Morgunblaðið - 13.05.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir ÖNNU BJARNADÓTTUR
Austurríki:
Nú þarf að hreinsa
mannorð forsetans
ÁKVÖRÐUN Bandaríkjastjómar um að setja Dr. Kurt Waldheim,
forseta Austurrikis, á lista yfir stríðsglæpamenn og annan óþjóða-
lýð sem fær ekki inngöngu i Bandaríkin mælist illa fyrir í
Austurríki og hefur knúið á um aðgerðir til að hreinsa mannorð
þjóðarleiðtogans. Waldheim ætlar að kæra ákvörðunina fyrir
bandariskum dómstólum og austurriska ríkisstjórnin hyggst setja
á fót nefnd sagnfræðinga sem á að rannsaka athæfi Waldheims
í heimsstyijöldinni síðari. Franz Vranitzky, kanslari, sagði um
helgina, að leitað yrði aðstoðar Breta við að skipa alþjóðlega
nefnd sagnfræðinga til að kanna fortíð forsetans.
Kanslaranum var fyrir
skömmu afhent svokÖlluð
„hvít bók“, sem Gerhard Wald-
heim, lögfræðingur og sonur
forsetans, tók saman um stríðsár
föður síns. Vranitzky fór fram á
að bókin yrði ekki birt opinber-
lega. Óstaðfestar fréttir herma að
hann ætli að afhenda Ronald Reag-
an, Bandaríkjaforseta, hana þegar
hann fer til Bandaríkjanna seinna
í þessum mánuði.
Waldheim var enn við nám í
Ræðismannaskólanum í Vín í byij-
un nasistatímabilsins en gekk í
austurríska herinn 1936. Gamlir
skólafélagar hans fullyrða að hann
hafi aldrei verið nasisti og sjálfur
segist hann aðeins hafa gert
skyldu sína í hemum, en hann féll
undir stjóm Þjóðveija þegar þeir
tóku Austurríki 1938. „Hvíta bók-
in“ þykir ekki veita fiillnægjandi
svör við öilum þeim spumingum
sem hafa vaknað um Waldheim
síðan það kom í ljós að hann
gegndi virkri herskyldu víðar og
lengur en hann gaf lengi vel til
kynna. Hann særðist í Rússlandi
1941 og í ævisögu hans lítur út
fyrir að hann hafi unnið að dokt-
orsritgerð sinni eftir það og ekki
tekið virkan þátt í styijöldinni. En
hann var meira og minna með
þýska hemum á Balkanskaga frá
því í mars 1942 til stríðsloka.
Bandaríska stjómarskrifstofan,
sem fer með mál Waldheims,
Office of Special Investigation
(OSI), bað lögfræðinga hans í
Washington í fyrrasumar um upp-
lýsingar varðandi eftirtalin atriði:
- nauðungarflutninga óbreyttra
borgara,
- hefndaraðgerðir,
- hlutverk Waldheims í þýskri
herdeild sem starfaði með yfír-
stjóm ítalska hersins í Aþenu
sumarið 1943,
- fjöldaaftökur á leiðinni milli
Stip og Kocane í október 1944,
- „Svörtu" orustuna (1943),
- bardagann um Kozara (1942),
- og doktorsritgerð hans um
Konstantin von Frantz.
Lögfræðingamir höfðu ekki
svör á reiðum höndum og þurftu
í mörgum tilvikum að leita í dag-
blöðum að getsögnum um aðild
Waldheims að þessum atriðum.
Gerhard Waldheim veitti þeim
smátt og smátt ítarlegar upplýs-
ingar og vitni voru kölluð til en
það tókst ekki að sannfæra OSI
um sakleysi Waldheims.
OSI-skrifstofan var stofnuð inn-
an dómsmálaráðuneytisins árið
1978 eftir að það kom í ljós að
fjöldi stríðsglæpamanna, eins og
Ivan Demjanuk, Karl Linnas, Fed-
or Ferenko og Artur Artukovic,
bjó í Bandaríkjunum. Það er í
verkahring embættisins að rann-
saka hvort um stríðsglæpamenn
sé að ræða þegar sá grunur leikur
á. Samkvæmt bandarískum lögum
eiga þeir sem tengdust Hitler-
stjóminni og stríðsglæpum hennar
ekki að fá leyfi til að heimsækja
landið. OSI nægir sterkur grunur
til að mæla með að einstaklingar
séu settir á bannlistann og þarf
ekki að sanna sekt þeirra fyrir
dómsstólum. Dómsmálaráherra er
ekki bundinn af niðurstöðu OSI
en hann hefur hingað til alltaf far-
ið eftir tilmælum embættisins.
Waldheim segir að dómsmála-
ráðuneytið hafi engar sannanir um
að hann hafi brotið af sér á
stríðsárunum ogþað byggi ákvörð-
un sína að mestu á gögnum sem
Heimsráð gyðinga birti í fyrra. En
OSI telur sig hafa fundið fleiri
gögn sem benda til að Waldheim
hafi gegnt mikilvægara hlutverki
í þýska hemum en hann vill viður-
kenna. OSI telur að hann hafi til
dæmis að hluta til átt samstarf
við þýsku öryggisþjónustuna og
SS og verið viðriðinn nauðungar-
flutninga og morð á gíslum. Það
hefur ekki komið fram hvort hann
var virkur þátttakandi eða óvirkur
í þessum aðgerðum. OSI telur
einnig að hann hafi tekið þátt í
að dreifa áróðri gegn gyðingum
árið 1944. Áróðursdeild í herflokki
hans var þá falið að útbúa dreifi-
miða með óhróðri um gyðinga og
fjölrita í 100.000 eintökum. Yfir-
maður OSI telur að einkennisstafir
Waldheims, Wal, séu á einu upp-
kasti en Waldheim þvertekur fyrir
það. Rithandarsérfræðingar voru
kallaðir til í Washington en OSI
var ekki haggað.
Á fundi Heimsráðs gyðinga í
Búdapest í síðustu viku komst for-
seti þess þannig að orði um
Waldheim, að hann hafi verið hluti
af „drápsvél gyðinga". Hefur
Waldheim ákveðið að höfða meið-
yrðamál á hendur forseta heims-
ráðsins, Edgar Bronfman, sem
segist ekki hafa miklar áhyggjur
af málshöfðuninni.
Ákvörðun Bandaríkjastjómar
kom Austurríkismönnum og Evr-
ópubúum yfirleitt á óvart. Laga-
bókstafur Bandaríkjanna er
gagnrýndur og fundið að því að
Waldheim sé fundinn sekur án
þess að nokkuð hafi verið sannað
á hann fyrir dómstólum. Landar
hans hafa fylkt sé um hann og
vinsældir forsetans í skoðanakönn-
unum hafa aukist gífurlega.
Meirihluti Austurríkismanna hafði
ekki gert sér grein fyrir hversu
alvarlegum augum umheimurinn
lítur á missagnir Waldheims um
fortíð sína. Um 60% þjóðarinnar
hélt að kjör Waldheims myndi eng-
in áhrif hafa á ímynd Austurríkis
erlendis.
Vanþóknun Bandaríkjanna á
Waldheim hefur komið skýrast í
ljós en óbeit annarra þjóða hefur
einnig komið fram: Svisslendingar,
nágranna- og vinaþjóð Austurríkis,
hafa ekki í hyggju að bjóða Wald-
heim í opinbera heimsókn; Beatrix
Hollandsdrottning lét draga boð
til forseta Austurríkis vegna at-
hafnar við nýja flóðgarða til baka
eftir að Waldheim var kjörinn for-
seti og hún ætlar ekki á skíði í
Lech í Austurríki á meðan hann
er forseti; Baldvin, konungur
Belgíu, sagðist ekki vilja setja
austurríska hátíð í Brussel í fyrra
ef Waldheim yrði viðstaddur svo
Waldheim sat heima; og Frakkar
ákváðu að senda ekki fyrrverandi
ráðgjafa Waldheims hjá Samein-
uðu þjóðunum sem sendiherra til
Austurríkis þar sem hann gæti
talist of handgenginn forsetanum.
Waldheim sagði belgískum blaða-
manni nýlega að hann hefði fengið
heimboð frá nokkrum Evrópuþjóð-
um en vildi ekki nefna þær. Fréttir
um hugsanleg boð, til dæmis til
írlands og Japans, hafa hingað til
spillt fyrir þeim. Waldheim er sagð-
ur hafa haft gaman af að ferðast
þegar hann var aðalframkvæmda-
stjóri SÞ en hann ferðast væntan-
lega minna næstu fimm árin en
gengur og gerist með þjóðhöfð-
ingja. Hann hefur þó fengið boð
um koma til Egyptalands og Jórd-
aníu og nágrannar hans í Ung-
veijalandi buðu honum nýlega að
koma í opinbera heimsókn á næsta
ári.
Heimildir: Profil og Interaat-
ional Herald Tribune.
Eftir að Bandaríkjamenn höfðu sett Kurt Waldheim, Austurríkis-
forseta, á svartan lista og neitað honum um vegabréfsáritun um
ókomna framtíð, ávarpaði forsetinn austurrísku þjóðina í sjón-
varpi. Hér sést hann búa sig undir útsendinguna; Waldheim
sagðist saklaus af ákærum Bandaríkjamanna um að hann hefði
gerst sekur í síðari heimsstyijöldinni fyrir þjónkun við nasista.
Tilefniðer . . .
Svar við bréfi Þórðar H. Hilmars-
sonar til undirritaðs sem birtist í
Morgunblaðinu 25. apríl sl.
eftirPálKr. Pálsson
Þegar teknar eru ákvarðanir um
að veija fjármunum almennings til
atvinnuuppbyggingar, með hluta-
fjárþátttöku hins opinbera, tel ég
það tilefni til opinnar umræðu.
Þú verður að eiga það við ríkis-
sjónvarpið að það skyldi ekki leita
álits fulltrúa Steinullarverksmiðj-
unnar við ummælum mínum. Það
var ríkissjónvarpið sem fór þess á
ieit að ég tjáði mig um málið og
geta þeir staðfest að ég var tregur
til. Taldi ég hins vegar rétt að koma
þessu á framfæri, því eftir fjárfest-
ingamistök undanfarinna ára
þörfnumst við svo sannarlega var-
færni og raunsæis við ákvarðana-
töku.
Þú telur mig hafa misskilið for-
sendur hlutafjáraukningarinnar.
Það taldi forveri þinn í starfi einnig
og sú stjórn fyrirtækisins sem vann
að undirbúningi byggingar steinull-
arverksmiðju á Sauðárkróki á
sínum tíma. Þá lét ég og reyndar
fleiri í ljós þá skoðun opinberlega,
að bygging steinullarverksmiðju á
Sauðárkróki væri vafasöm fjárfest-
ing. Fengum við ætíð ákúrur frá
aðstandendum framkvæmda. Því
miður var ráðist í framkvæmdir;
því miður rættust spár okkar. Þess
vegna þarf í dag fé til að bjarga
fyrirtækinu frá gjaldþroti.
Ágreiningurinn nú snýst hins
vegar um það hvemig eigi að
bjarga. Ég vona svo sannarlega að
72 milljónir reynist nóg, en leyfi
mér þó að efast um vissar forsend-
ur sem þið gefið ykkur. Ég tel
nefnilega skynsamlegra að fara vel
búinn til björgunarstarfsins og
koma kaðlinum alla leið til manns-
ins sem fastur er í sprungunni en
að koma á staðinn með of stuttan
spotta. Það getur orðið ansi dýrt
að sækja lengri spotta þegar mikið
liggur við.
Að undanförnu hef ég rætt þessi
mál við nokkra vel sjóaða einstakl-
inga sem hafa áratuga reynslu í
atvinnurekstri og spurt þá hvort
þeir telji 72 milljónir króna hluta-
fjáraukningu vera nóg. Því miður
hefur enginn svarað mér játandi.
Ég tel rétt að menn meti stöðuna
út frá því sem vel gæti gerst, þ.e.
að meira fé þurfí en 72 milljónir.
í lok greinar þinnar lætur þú í
ljós áhuga á frekari skoðanaskipt-
Páll Kr. Pálsson
„Þá lét ég og reyndar
fleiri í ljós þá skoðun
opinberlega, að bygg-
ing steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki
væri vafasöm fjárfest-
ing. Fengum við ætíð
ákúrur frá aðstandend-
um framkvæmda. Því
miður var ráðist í fram-
kvæmdir; því miður
rættust spár okkar.
Þess vegna þarf í dag
fé til að bjarga fyrir-
tækinu frá gjaldþroti.“
um um málið á vettvangi iðnaðar-
ráðuneytisins, þar sem ég sé
starfsmaður þess. Ég er reiðubúinn
til frekari skoðanaskipta hvenær
sem er, en bendi þér á að hér erum
við heldur ekki alveg sammála, því
ég tel mig ekki starfsmann iðnaðar-
ráðuneytisins, þó Iðntæknistofnun
Islands heyri undir það ráðuneyti.
Höfundur er forsijóri Iðntækni-
stofnunar íslands.
Opið bréf til Hall-
dórs Þorsteinssonar
Reykjavík 11.5. 1987
í grein þinni, sem birtist í Morg-
unblaðinu laugardaginn 9. maí á
blaðsíðu 22, setur þú fram eftirfar-
andi fullyrðingar:
„Ennfremur tel ég framlag skóla-
rannsóknamanna okkar til fræðslu-
mála hafa lítið sem ekkert gildi,
m.a. vegna þess, að framsetning
flestra þeirra manna, sem starfa á
skólaþróunardeild — (dáfagurt orð
það!) menntamálaráðuneytisins, er
óskýr og ófullnægjandi, enda eru
rit þeirra flest á hráu og torskildu
stofnanamáli. Að skaðlausu
mættu nokkrar silkihúfur fjúka
burt úr þeirri fínu deild.“ (Letur-
breyting okkar.)
Það hæfír illa svo vel menntuðum
manni, að setja fram slíkar æru-
meiðandi fullyrðingar og atvinnu-
róg. Því teljum við rétt að þú notir
þann vettvang sem þú heftir valið
þessum skrifum til að afturkalla
þennan óhróður eða rökstyðja hann
ella. Enginn getur setið undir slíku
og áskiljum við okkur allan rétt til
að veija okkur.
Við, starfsmenn skólaþróunar-
deildar, kreíj'umst þess að þú svarir
á þessum vettvangi eftirfarandi
spumingum:
1. Hvaða rit eru það sem starfs-
menn skólaþróunardeildar hafa
sent frá sér „á hráu og torskildu
stofnanamáli"?
2. Hvar hefur þú hlýtt á erindi eða
aðra framsetningu máls hjá
starfsmönnum deildarinnar?
3. Hvaða störfum telur þú starfs-
menn skólaþróunardeildar
gegna svo slælega?
4. Hvaða „silkihúfur" þekkir þú í
skólaþróunardeild sem mættu
„fjúka burt“?
Ennfremur viljum við bjóða þér
að koma í skólaþróunardeild
menntamálaráðuneytisins í Skip-
holti 37, ræða við okkur og kynna
þér það starf sem þú fordæmir.
F.h. starfsmanna skólaþróunar-
deildar menntamálaráðuneytisins.
Aðalheiður Auðunsdóttir
Ingólfur Guðmundsson
Margrét Harðardóttir
Sigþór Magnússon