Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 22
22
-vSaOp í*!
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Lystadún brann
MIKILL eldur gaus upp í af-
greiðslu- og verksmiðjuhúsi
Lystadúns í Dugguvogi um kl.
11 í gærmorgun. Skömmu síðar
var allt brunnið sem brunnið gat
inni í húsinu og mikil hætta talin
á að það hryndi.
Eldurinn kom upp þegar starfs-
menn í límklefa fyrirtækisins voru
að vinna við að líma saman dýnur,
en límklefinn er innst í húsinu,
fjærst Dugguvoginum. Þegar límið
var borið á dýnumar mynduðust
neistar vegna viðnáms þess og dýn-
anna. Neistarnir hlupu í dýnumar
og gaus þegar upp mikill eldur.
Starfsmennimir gripu strax til ná-
lægra handslökkvitækja og börðust
við eldinn um hríð. Fljótlega varð
þeim ljóst að ekki varð við neitt
ráðið og forðuðu sér út úr brennd-
ani húsinu ásamt starfsfélögum
sínum.
Alls vom 12 starfsmenn í húsinu
þegar eldurinn kom upp og sluppu
þeir allir ómeiddir, þó ekki hafi
þeim öllum gengið mjög greiðlega
að komast út. Á neðri hæð hússins
er afgreiðsla, límklefi og lager og
á efri hæðinni er saumastofa.
Starfsmönnum á neðri hæð gekk
vel að komast út úr húsinu, en á
efri hæð lokaði reykur og eldur
nokkra starfsmenn inni. Tvær kon-
ur náðu að skrúfa lausa festingu á
mjóum, opnanlegum glugga á hlið
hússins, og komust þaðan út með
aðstoð tveggja starfsmanna nær-
liggjandi fyrirtækis. Þá tókst
tveimur starfsfélögum þeirra einnig
að opna slíkan glugga á framhlið
hússins og skríða út á skyggni yfir
aðaldyrum. Þaðan var þeim bjargað
af sömu mönnum og björguðu fé-
lögum þeirra og notuðu mennimir
vélskóflu til verksins.
Slökkviliðinu barst tilkynning um
eldinn kl. 10.43. Þegar héldu tólf
slökkviliðsmenn af stöðinni á vett-
vang og varalið var allt kallað út.
Um fimmtíu manns unnu því að
slökkvistarfinu þegar mest var og
notuðu fjóra dælubíla og tvo körfu-
bíla til verksins. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang var húsið þegar
alelda og lagði mjög þykkan reyk
frá því. Rúður hússins voru þá
sprungnar vegna hitans. Slökkvi-
starf gekk greiðlega þrátt fyrir að
ekki væri hægt að senda menn inn
í húsið vegna hættu á hruni og einn-
ig var óttast að efnavörur í húsinu
kynnu að valda sprengingu. Þá
varaði slökkviliðið borgarbúa við
að koma nálægt Dugguvoginum þar
sem reykurinn sem myndaðist þeg-
ar svampur og plast brunnu, var
talinn mjög eitraður. Fjölmennt lið
lögreglumanna lokaði öllum nær-
liggjandi götum fyrir umferð og
girti athafnasvæði slökkviliðsins af.
Um kl. 11.30 hafði slökkviliðið náð
tökum á eldinum og komið í veg
fyrir að hann læstist í nærliggjandi
hús. Klukkan 13 var slökkvistarfi
að mestu lokið en haldið áfram að
dæla vatni inn í húsið til að kæla
það niður. Vakt var við húsið í alla
nótt og hefur engum verið heimilað
að fara inn í það vegna hrunhættu.
Að öllum líkindum er húsið sjálft
ónýtt og ljóst að tjón fyrirtækisins
er mjög mikið.
Morgunblaðið/Aðalsteinn Þórðarson.
Þessi mynd var tekin aðeins örfáum mínútum eftir að eldurinn
braust út. Eldurinn er þegar orðinn mjög magnaður. Starfsfólk
Lystadun stendur á þakskegginu og bíður björgunar.
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson.
Eldurinn var svo magnaður að slökkviliðið fékk ekki við neitt ráðið og einbeitti sér að því að veija næstu hús. Slökkvistarf var erfitt því
eiturgufur voru í kolsvörtum reiknum.
Yfirlitsmynd af brunasvæðinu við Elliðavoginn laust fyrir hádegi í gær.
Morgunblaðið/Sverrir.
Forvitnir borgarbúar héldu sig fjarri
„FÓLK hefur virt þær takmark-
anir á umferð sem við höfum
sett og okkar störf því gengið
vel,“ sagði Magnús Einarsson,
yfirlögregluþjónn, sem hafði
þann starfa með höndum að
halda forvitnum borgarbúum
frá brennandi Lystadúnsverk-
smiðjunni.
Mikill fjöldi lögreglumanna var
kallaður út til að tryggja að
slökkviliðið hefði næði til að sinna
störfum sínum. Magnús sagði að
Elliðavogurinn hefði strax verið
lokaður allri umferð, frá Skeiðar-
vogi að Suðurlandsbraut. „Við
lokuðum einnig öllum Vogum fyrir
norðan Elliðavoginn og girtum
bannsvæðið af með gulum borð-
um, enda er reykurinn frá verk-
smiðjunni eitraður," sagði
Magnús. „Fólk hefur virt þessar
lokanir og það hefur auðveldað
mjög störf okkar.“
Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri og Magnús Einarsson yfirlögreglu-
þjónn héldu um stjórnvölinn á brunastað og nágrenni hans.
Hætta á hruni, eitr-
un og sprengingu
- segir Rúnar Bjamason, slökkviliðsstjóri
„VIÐ höfum ekki getað sent
menn inn í húsið heldur orðið
að slökkva utan frá, því það er
mjög mikil hætta á að hús af
þessu tagi hrynji,“ sagði Rúnar
Bjamason, slökkviliðsstjóri, á
meðan á slökkvistarfi við Lyst-
ardúnsverksmiðjuna stóð í gær.
Rúnar sagði að húsið væri svo-
kallað strengjasteypuhús. „Þessi
hús hafa átt það til að hrynja og
því höfum við ekki viljað senda
menn inn til slökkvistarfa," sagði
Rúnar. „Fyrir nokkrum árum brann
svipað hús hér í Reykjavík og þá
hrundi það þegar það fór að kólna,
um sex klukkustundum eftir að
slökkvistarfi lauk og var mesta
mildi að tveir slökkviliðsmenn, sem
voru inni f húsinu, komust lífs af.
Hins vegar hefur okkur gengið von-
um framar að slökkva héma, því
eldurinn var að mestu koðnaður
eftir hálfrar stundar starf. Það er
eitt af því versta sem slökkviliðs-
menn lenda í þegar svona verk-
smiðjur brenna, því það er
eiturhætta vegna þeirra efna sem
brenna og hugsanlegt að efnavörur
í húsinu geti sprungið, fyrir utan
hrunhættuna." “
Þegar eldurinn kom upp varaði
slökkviliðsstjóri borgarbúa við að
koma nálægt brunastaðnum, þar
sem þykkur reykurinn gæti verið
eitraður. Ekki er þó vitað til að
neinum hafi orðið meint af.