Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 26

Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 26
MORGIÍNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987 26 Reuter Alfonsin forseti Argentínu býður Danielle Mitterand, forsetafrú Frakklands og fulltrúa á fundinum, velkomna. Við hlið Alfonsins stendur sendiherra Frakka i Argentínu, Antoine Blanca. Argentína: Alfonsín gefur ekki kost á sér til endurkjörs Buenos Aires, Reuter. RAUL Alfonsin, forseti Arg- entinu, sagði í gær í Buenos Aires er hann hafði sett 36. aðalfund Alþjóðasambands ritstjóra, að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri sem forseti, jafnvel þótt gerðar yrðu breytingar á Zimbabwe: Myrtu fjóra hvíta bændur stjórnarskrá landsins sem leyfðu slíkt. Alfonsin var kjörinn forseti árið 1983 eftir að herinn hafði stjórnað landinu í 8 ár og hafa margir stuðn- ingsmenn hans lýst yfir áhuga á að gerðar yrðu breytingar á stjórn- arskrá Argentínu til þess að gera honum kleift að sitja áfram sem forseti. Samkvæmt núgildandi lög- um er kjörtímabil forseta Argentínu 6 ár og er ekki hægt að endurkjósa hann. Stjóm Alfonsins hefur að und- anförnu átt í útistöðum við öfl innan hersins sem ekki vilja láta draga hermenn, sem grunaðir em um misgjörðir á tímum herforingja- stjómarinnar, fyrir dómstóla. Stigmögnuðust deilur uns til upp- reisnar kom í Campo de Mayo herbúðunum. Gáfust hermennirnir upp er forsetinn kom sjálfur til búðanna og ræddi við leiðtoga þeirra. Nú mun Alfonsin hafa í hyggju að leggja fyrir þingið fmm- varp þar sem dregið verður úr umfangi réttarhaldanna, m.a. verði undirmenn, er aðeins hafi hlýtt skipunum yfírmanna sinna, ekki látnir sæta ábyrgð. James Angleton látinn: Fletti ofan af njósn- aranum Kim Philby Washington, Reuter. JAMES Angleton, fyrrum yfir- maður gagnnjósna í Bandarísku leyniþjónustunni (CIA), lést á mánudag á sjúkrahúsi i Wash- ington 69 ára að aldri. Angleton vann hjá bandarísku herfræðistofnuninni (Office of Strategic Services), sem var fyrir- rennari CIA, í heimsstyrjöldinni síðari. Hann gekk í Bandarísku leyniþjónustuna eftir að hún var stofnuð árið 1947 og varð yfírmað- ur gagnnjósna árið 1954. Þótt margt af því, sem Angleton fékkst við, flokkist undir trúnaðar- mál, er talið að hann hafi átt dijúgan þátt í að fletta ofan af gagnnjósnaranum Kim Philby, sem sigldi undir fölsku flaggj í bresku leyniþjónustunni MI6. Philby flúði til Moskvu árið 1962 og gerðist þar gistilektor hjá KGB og leyniþjón- ustu hersins (GRU). Angleton lét af störfum árið 1975 eftir að William Colby tók við starfi yfírmanns CIA af Richard Helms. Bretland: Bókmenntaarf - urinn f luttur út St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðan Frímannssyni, fréttantara Morgunblaðins. FJÁRMAGN bandarískra há- skóla veldur ýmsum háskóla- mönnum í Bretlandi áhyggjum. Þeir óttast, að of mikið af bók- menntaarfi þeirra hverfi til erlendra stofnana. Bandarískir háskólar hafa keypt mikið af bókahandritum eftir breska höfunda: Evelyn Waugh, D. H. Lawrence, Graham Greene. Handrit V. S. Naipaul, eins af merk- ari höfundum, sem nú eru á dögum í Bretlandi, eru til sölu á um 400.000 pund. Þau gætu horfíð til Bandaríkjanna. Háskólinn í Texas á t.d. handritasafn, sem metið er á 55 milljónir punda. I því eru hand- rit ýmissa bestu bókmenntaverka á enska tungu á þessari öld. Þar má nefna Sons and Lovers (Synir og elskhugar) og Lady Chatterley’s Lover (Elskhugi lafði Chatterley) eftir D. H. Lawrence, og Brideshead Revisited (Ættaróðalið) og The Decline and Fall eftir Evelyn Waugh, og handrit af Beðið eftir Godot eftir Beckett, ritað með hendi höfundar. Breskir háskólamenn hafa ekki áhyggjur af þessari þróun fyrst og fremst af tilfínninga- og sögulegum ástæðum. Aðgangur að uppruna- legum handritum er nauðsynlegur vegna rannsókna. Það er því heppi- legra til að efla rannsóknir í Bret- landi að halda handritunum þar. Nú eru í gildi lög, sem kveða á um, að sérstakt leyfí þurfí til að selja úr landi handrit, sem eru eldri en 50 ára. Komnar eru fram tillög- ur um að stytta þann tíma niður í 30 ár. Olíuríki siglir undir fána stórveldanna: Iranar hóta Kuwait hefndar- aðgerðum vegna vélabragða Harare, Reuter. Vopnaðir stigamenn réðust inn í bændaklúbb skammt frá borg- inni Gweru í Zimbabwe og myrtu fjóra bændur, sem þar voru í pílukasti. Atvikið átti sér stað á laugar- dagskvöldið. Um tugur manna var í klúbbnum og voru bændumir fjór- ir í svonefndu pílukasti þégar stigamennimir ruddust inn og hófu skothríð. Auk hinna myrtu særðist barþjónn klúbbsins en sex mönnum, þ.á m. tveimur sonum eins bón- dans, tókst að komast í skjól. Lögregluþjónar og hermenn hófu þegar árangurslausa leit að morð- ingjunum. Er þetta versta ofbeldis- verk í Zimbabwe í tvö ár, að sögn lögreglu, eða frá því 21 vinnumaður á búgarði var myrtur í Mwenezi í suðurhluta landsins í ágúst 1985. Gengi gjaldmiðla Gengi Bandaríkjadollara var þann veg á hádegi í gær að fyrir hann fengust 1,6643 sterlings- pund. Kaupgengi annarra helztu gjald- miðla á gjaldeyrismarkaði í London var hins vegar þannig að dollarinn kostaði: 1,3365 kanadíska dollara, 1,7875 vestur-þýzk mörk, 2,0155 hollensk gyllini, 1,4680 svissneska franka, 37,09 belgíska franka, 5,9740 franska franka, 1293 ítalskar lírur, 139,55 japönsk jen, 6,2500 sænskar krónur, 6,6500 norskar krónur, 6,7225 danskar krónur, Únsan af gulli kostaði 460,10 dollara. Kuwait, Bagdað, Reuter. ÍRANAR hafa varað Kuwaitbúa við því að flytja olíu í skipum, sem sigla undir bandarískum eða sovéskum fána. Stjórnarer- indrekar telja að þetta geti leitt til þess að stjórn arabaríkisins ákveði að treysta frekar á Sov- étmenn og Bandaríkjamenn. „Ég tel að allar ógnanir, hvort sem þær eru munnlegar eða ekki, leiði til þess að Kuwait leiti hjálp- ar stórveldanna," sagði einn þeirra. Stjórnarerindreki nokkur segir að stjómin í Teheran hafi hafíð hefndaraðgerðir gegn Kuwait. Skipaflutningamenn segja að fr- anar hafí gert árásir á tuttugu flutningaskip á Persaflóa og þar af hafí sextán skip á vegum Kuwa- it orðið fyrir skeytum. Sovéska flutningaskipið Ivan Koroteyev, sem stjómvöld í Moskvu sögðu að hefði orðið fyrir árás óþekktra eftirlitsbáta á miðvikudag, er ekki talið með þessum skipum. Koroteyev var á leið frá hafnar- borginni Damman í Saudi-Arabíu til Dubai í Sameiðnuðu arabísku furstadæmunum. Aftur á móti hafði skipið lagt úr höfn í Kuwait fyrr í þessum mánuði, að sögn heimildarmanna. Skipið naut ekki vemdar þegar árásin var gerð. Farmur þess var byggingarefni. Sovésk skip hafa haft fylgd ef vopn og vörur, sem fara áttu til Kuwait og aka átti þaðan til Ír- ans, voru um borð. Stjómvöld í Moskvu hafa lýst yfír því að þijú sovésk olíuflutningaskip, sem Kuwait tók á leigu í apríl, fái fylgd herskipa ef þurfa þykir. Stjórnvöld í Kuwait sýna þess engin merki að ætla að fresta áætlunum um að láta olíuskip sín sigla undir bandarískum fána. Richard Murphy, háttsettur bandarískur embættismaður, sem kom í gær til Kuwait, varaði írana á mánudag við því að ráðast á skip undir bandarískum fána. „Við lítum á hveija árás á bandarískt skip, sem grafalvarlegt mál,“ sagði Murphy á blaðamannafundi í Bagdað. Samkvæmt tillögum ríkjanna, sem nánast hefur tekist um sam- komulag, mun helmingur tuttugu og tveggja olíuskipa Kuwaitbúa sigla undir bandarískum fána. Þetta hefur í för með sér að skip- in eiga rétt á vemd frá banda- rískum herskipum á Persaflóa. íranska fréttastofan IRNA hafði á mánudag eftir Mir Hossein Mousavi, forsætisráðherra írans, að þar kæmi að Kuwait yrði eigin vélabrögðum að bráð og myndi Washington. Reuter. ALVARLEGUM glæpum fjölgaði um 6% I Bandarílqunum í fyrra, og er það mesta aukning milli ára frá 1980, að því er Alríkislög- reglan, FBI, greindi frá á mánudag. Samkvæmt tölum, sem FBI fær frá lögsagnarumdæmunum, varð aukning í öllum tegundum glæpa milli áranna 1985 og 86. Ofbeldisglæpum fjölgaði um 12% og gripdeildum bvers konar um 6%. Líkamsárásum fjögaði um 15%, þjófnuðum á farartækjum um 11%, morðum og ránum um 9%, inn- brotum, þjófnuðum og nauðgunum um 5% og íkveikjum um 3%. Samkvæmt fréttatilkynningu frá gjalda þess að hafa gert Persaf- lóann að þrætuepli austurs og vesturs. FBI fjölgaði alvarlegum glæpum í öllum lögsagnarumdæmum lands- ins í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu fjölgaði föngum um 9% á síðasta ári. Urðu þeir 546.659, og hafa aldrei verið fleiri. Föngum fjölgaði um 43.000 á árinu 1986 og hefur ekki fjölgað meira í 60 ár, eða frá því að farið var að safna saman tölfræðilegum gögnum þar að lútandi. Frá árinu 1980 hefur föngum fjölgað um nærri 66% eða 217.000 manns. í árslok 1986 voru 26.610 konur í fangelsum landsins og hafði fjölgað um 15% frá árinu áður. Bandaríkin: Veruleg’ fjölgun alvar- legra afbrota í fyrra Aldrei fleiri verið í fangelsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.