Morgunblaðið - 13.05.1987, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
27
Reuter
40 ára filma framkölluð
Fyrir skömmu voru birtar í fyrsta sinn nokkrar myndir er teknar voru á fjórða áratugnum af
Adolf Hitler og samstarfsmönnum hans. Maður frá Youngstown í Ohio fann filmuna í Þýskalandi
á síðustu dögum heimstyijaldarinnar, en síðan lá hún gleymd og grafin um árabil. Á þessari mynd,
sem tekin er við fjallabústað Hitlers, er Adolf Hitler fyrir miðri myndinni, til vinstri við hann er
Hermann Göring, en ekki er vitað hver konan sem stendur hægra megin við hann er.
Danmörk:
Kynlíf
seinkar
konum
í vinnu
Kaupmannahöfn, Reuter.
ÞRIÐJA hver kona í Dan-
mörku kemur öðru hveiju of
seint tíl vinnu vegna þess
hversu upptekin hún hefur
verið við hvílubrögð, að því
er fram kemur í niðurstöðum
athugunar á kynlífi danskra
kvenna.
Könnunin var gerð fyrir helg-
arblað danska blaðsins BT. Náði
hún til 4.000 kvenna. Þar kemur
fram að algeng skýring á því að
danskar konur mæti seint til
vinnu sé sú að þær hafí verið að
leggja rækt við kynlífið.
Jafnframt kom fram að 70%
Rolls-Royce selt:
Yfir tvær milljónir manna
sóttust eftir hlutabréfum
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðains.
ROLLS-Royce, sem framleiðir on, verslunar- og iðnaðarráð-
fræga bíla og vélar í flugvélar, herra, tilkynnti um helgina, að
var boðið út á fijálsum markaði yfir tvær milljónir manna hefðu
í siðastliðinni viku. Paul Shann- óskað eftir að kaupa hlutabréf f
Austur-Evrópa:
Ræða samstarf í bar-
áttu gegn eiturlyfjum
Belgrað, Júgóslavíu.
TOLLGÆSLUMENN í Varsjár-
bandalagsríkjunum koma saman
til ráðstefnuhalds f Búlgarfu f
þessari viku tíl að ræða sameigin-
legar aðgerðir gegn eiturlyfja-
innflutningi, að því er búlgarska
fréttastofan BTA greindi frá í
gær.
Á ráðstefnunni verða fulltrúar
frá Sovétríkjunum, Búlgaríu, Aust-
ur-Þýskalandi, Póllandi, Rúmeníu,
Ungveijalandi og Tékkóslóvakíu,
auk Mongólíu og Kúbu, að sögn
BTA.
Kommúnistaríkin hafa átt í vax-
andi erfíðleikum vegna eiturlyfja-
neyslu á undanfömum árum, þó að
vandi þeirra sé ekki á viðlíka alvar-
legu stigi og á Vesturlöndum.
Sum Austur-Evrópuríkjanna
(einkum Búlgaría, sem liggur um
þjóðgötu þvera á Balkanskaga-
leiðinni frá Miðausturlöndum til
Evrópu) munu í náinni framtíð
gegna mikilvægu hlutverki í barátt-
unni gegn eiturlyfjasmygli og -sölu,
og tollayfírvöld þar hafa lagt hald
á mikið af eiturlyfjum á allra
síðustu ámm.
í tilkynningu frá FAA segir að
vitað sé um 12 tilvik þar sem
spmnga í festibúnaðinum hefði get-
að valdið því að eldsneytisleiðslur
rifnuðu.
Vill flugmálastjómin að þremur
kraftspermm úr áli í hreyfilfesting-
um hreyfla af gerðinni General
Electric CF6 verði breytt. „Ef sperr-
unum verður ekki breytt er hætt
við þvf að sprungumyndun í sperr-
unum leiði til skemmda í eldsneytis-
leiðslum og síðar leka,“ sagði í
yfírlýsingu FAA.
fyrirtækinu. Þetta er einn best
heppnaði liðurinn í einkavæð-
ingu ríkisstjórnarinnar í atvinnu-
lífinu. Þegar British Airways var
selt í janúar, sóttist 1,1 milljón
manna eftir hlutabréfum í fyrir-
tækinu.
í heild var sótt um 3,15 milljarða
hlutabréfa fyrir 2,67 milljarða
punda, en hvert hlutabréf er boðið
á 85 pens. Ákveðið hefur verið, að
allir, sem sóttu um minna en
100.000 hlutabréf, fái bréf, en mun
færri en sóttu um. Þegar bytjað
verður að versla með þau á verð-
bréfamarkaði eftir viku, er búist
við, að þau hafí a.m.k. hækkað um
30 pens hvert.
Einkavæðing ríkisstjómar
íhaldsflokksins hefur gengið mjög
vel á þessu kjörtímabili. Hlutabréfa-
eign er einn þátturinn, sem stjóm-
málamenn verða nú að taka tillit
til. Þannig mun Verkamannaflokk-
urinn ekki leggja áherslu á það í
komandi kosningabaráttu, að fyrr-
um ríkisfyrirtæki verði þjóðnýtt á
ný, af því að það getur fælt kjósend-
ur frá flokknum.
kvennanna vildu gjaman stunda
oftar amorsbrögð en raun væri á
en báru við tímaskorti eða streitu.
Samkvæmt könnuninni sofa 9
af hveijum 10 danskra kvenna í
tvíbreiðu rúmi og eiga kynmök
þrisvar til fímm sinnum í viku.
Mikill fjöldi konanna, sem þátt
tóku í könnuninni, kvörtuðu hins
vegar yfír því að áhugi rekkju-
nautar þeirra dofnaði ef þær
byijuðu að tala í miðjum klíðum.
Nær önnur hver kona á aldrin-
um 30-39 ára, eða 44%, viður-
kenndi að hafa haldið framhjá
eiginmanni sínum. í aldurshópn-
um 15-24 var hlutfallið 34%.
Þriðjungur kvennannan í fram-
hjáhaldshópnum sagðist þó hafa
fengið slæma bakþanka og hætt
þeirri iðju fljótlega. Átta konur
af hveijum 10, sem þátt tóku í
könnuninni, sögðust hafa átt
rekkjufélaga fyrir hjónaband og
þá venjulega aðra menn en þann,
sem síðar varð eiginmaður þeirra.
ERLENT
Gallar í hreyfilfest-
ingnm á Boeing-767
BANDARÍSKA flugmálastjórnin (FAA) hafa lagt að Boeing-flugvéla-
verksmiðjunum að gera breytingar á kraftsperrum í hreyfilfesting-
um þotna af gerðinni Boeing 767 vegna sprungumyndana.
Alls munu 166 Boeing 767 vera
í notkun og eru 89 þeirra með
hreyfla af gerðinni General Electric
CF6. Eru 25 þeirra í eigu American
Airlines, 22 í eigu Delta, 23 í eigu
AU Nippon í Japan, fimm í eigu
ástralska flugfélagsins Ansett, fjór-
ar í eigu brezka flugfélagsins
Britannia, þijár í eigu Transbrasil
í Brazilíu og þijár í eigu Air New
Zealand. Að sögn FAA hefur Bo-
eing gert þessum flugfélögum
viðvart og gert tillögur til úrbóta.
Úr skinni, einnig margar aðrar gerðir.
sKúem
VELTUSUNDI 1
21212
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
Sími: 18519.
Gæða-
stimpill
og gottverð
r ASh. ^
Vegnamikils
annnVis í pöntunum
höfumviðoP'0
álaugardögum
kl. 10.00-120°
L ímaí. A
Munið raðgreiðslur
Viðskiptavinireiga þess kost
nú sem áður að greiða eftir-
stöðvar ferðakostnaðar með
VISA raðgreiðslum.
Einnig bendum við á af-
borgunarleiðina „Sparið upp
ifarið" með VISA
Við lánum þér jafnmikið i
jafnlangan tíma og þú spar-
aðirfyrirbrottför.
kostur