Morgunblaðið - 13.05.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
33
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
íbúð óskast til leigu
Útivinnandi ung hjón með eitt barn óska eft-
ir 2ja-3ja herb. íbúð helst í miðbænum eða
á Stór-Reykjavíkursvæðinu sem fyrst.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Góð meðmæli.
Uppl. í síma 14842 eftir kl. 19.00.
Aðalfundur
Hafnarfjarðardeildar RKÍ
verður haldinn fimmtudaginn 21. maí kl.
20.00 ífundarsal Slökkvistöðvar Hafnarfjarðar.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Verkamannafélagið Hlff
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtu-
daginn 14. maí kl. 20.30 í Hlífarhúsinu,
Reykjavíkurvegi 64.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn V.m.f. Hlífar.
Gódan daginn!
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn heldur al-
mennan félagsfund i Sjálfstæðishúsinu
Keflavik miðvikudaginn 13. maí kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Venjuleg fundarstörf.
2. Ellert Eiríksson fjallar um stjórnmála-
stöðuna að afloknum kosningum.
3. Kaffiveitir — bingó.
Tökum með okkur gesti. Stjórnin.
Kópavogur — Kópavogur
Sjálfstæðisfélögin i Kópavogi halda fund
fimmtudaginn 14. maí kl. 20.30 í sjálfstæð-
ishúsinu Hamraborg 1, 3. hæð. Allt sjálf-
stæðisfólk er hvatt til að mæta á fundinn.
Fundarefni: Staða Sjálfstæðisflokksins eftir
kosningar. Ræðumaður, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson.
Sjálfstæðisflokkurínn.
Morgunblaðið/Bjami
Nokkrir af starfsmönnum Hljóðvarps hf. i nýju hljóðveri Stjörnunn-
ar i gœr. Frá vinstri: Þorgeir Astvaldsson, Jón Axel Olafsson,
Gunnlaugur Helgason, Hafsteinn Vilheilmsson framkvæmdastjóri
og Hallur Leópoldsson sölu- og markaðsstjóri.
Nýja útvarpsstöðin
heitir Sljarnan
NÝJA útvarpsstöðin, sem rekin
verður af Hljóðvarpi hf, hefur
hlotið nafnið Stjarnan. Hundruð-
ir tillagna bárust um „nafn á
barnið", eins og það var orðað
þegar auglýst var eftir heiti á
stöðina og hafa forráðamenn
nýja fyrirtækisins verið að velta
fyrir sér nöfnunum nú á annan
mánuð. Flestir sendu inn tíu til
tuttugu tillögur og allt upp í 120
nöfn.
Hafsteinn Vilhelmsson fram-
kvæmdastjóri Hljóðvarps hf. sagði
á blaðamannafundi í gær að mest
hefði borið á kvenmannsnöfnum svo
sem Aldan, Báran og fleiri slík.
Einnig hefðu frumlegri tillögur bor-
ist eins og „Röndótti riddarinn" og
annað i þeim dúr. Forráðamenn
nýja fyrirtækisins bjuggust við að
fara í loftið um eða upp úr mánaðar-
mótunum, en þó gæti ýmislegt orðið
til þess að sú áætlun stæðist ekki.
Menn höfðu í nógu að snúast í
kjallaranum við Sigtún, þar sem
Blikksmiðja Breiðíjörðs var áður til
húsa, í gær við innréttingar og
uppsetningu tæknibúnaðarins, en
hann er sömu gerðar og búnaður
Rásar 2 og Bylgjunnar. Tvö hljóð-
ver eru til staðar auk lítils vinnu-
hljóðvers fyrir dagskrárgerðar-
menn. Nýja stöðin mun senda út á
FM 102,2 og mun ná til Faxaflóa-
svæðisins, Akraness, Borgamess,
Suðurnesja og sunnanverðs Snæ-
fellsness. Starfsmenn Stjömunnar
verða alls 17 til 20. Dagskrárgerð-
arfólkið mun flest starfa á verk-
takasamningi og hefur bæði fólk
verið ráðið sem starfað hefur áður
við útvarp auk sjö til átta nýliða,
að sögn Þorgeirs Ástvaldssonar.
Ráðnir verða þrír til fjórir frétta-
menn auk fréttastjóra og verður
fréttastofan á þriðju hæð hússins
þar sem meistari Kjarval hafði
vinnustofu sína síðustu 15 ár ævi
sinnar.
Siglufjörður:
Nýr
meirihluti
myndaður
GENGIÐ var frá myndun nýs
meirihluta i bæjarstjórn Siglu-
fjarðar á mánudaginn.
Hinn nýja meirihluta mynda 3
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, 2
bæjarfulltrúar Alþýðubandalags og
einn bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokks. í minnihluta eru þrír fulltrú-
ar Alþýðuflokks. Kristján Möller,
oddviti Alþýðuflokksins, sem var
kjörinn forseti bæjarstjórnar við
upphaf kjörtímabilsins, hefur kraf-
ist þess að gegna embættinu áfram
þótt nú sé hann kominn í minni-
hluta. Vísar hann til þess að hann
eigi á því rétt samkvæmt sveita-
stjórnarlögum.
Bæjarstjóri verður áfram ísak
Ólafsson.
Bein sending- frá þremur leikjum
ÞREMUR úrslitaleikjum verður
sjónvarpað í beinni útsendingu
næstu daga og mun Bjarni Fel-
ixson lýsa þeim öllum.
Fyrsti leikurinn fer fram í dag og
hefst útsending kl. 18.10. Það er
úrslitaleikur í Evrópukeppni bik-
arhafa sem fram fer í Aþenu, þar
sem Ajax og Lokomotiv Leipzig
leiða saman hesta sína. Úrslita-
leikurinn í ensku bikarkeppninni
fer fram á Wembley-leikvanginum
á laugardaginn og hefst bein út-
sending frá honum kl. 13.35. Þar
mætast Coventry og Tottenham.
Þettaverður 106. úrslitaleikurinn,
sem spilaður er í elstu knatt-
spyrnukeppni heims.
Miðvikudaginn 27. maí kl.
18.10 verður bein sjónvarpssend-
ing frá úrslitaleik Evrópukeppni
meistaraliða sem háður verður í
Vínarborg. Þar mætast Bayern
Munchen og portúgölsku meistar-
arnir Porto.
A-6370
Tetekm
UTIUF
Glæsibæ, simi 82922
v\ ■r A