Morgunblaðið - 13.05.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
37
Afmæliskveðja:
Gísli Magnússon
Leirvogsvatni
Gísli Magnússon fyrrverandi
bóndi á Leirvogsvatni í Mosfells-
sveit er áttræður í dag. Gísli er
fæddur á Saurbæ á Kjalamesi þann
13. maí 1907 og þar sleit hann
bamsskónum.
Foreldrar Gísla voru þau hjónin
Guðrún Finnsdóttir og Magnús
Bjamason er fluttu suður 1904 og
voru ættuð af Norðurlandi. Foreldr-
ar Gísla hættu búskap nyrðra vegna
heilsuleysis, einkum móður hans,
sem þjáðist í mörg ár af liðagigt.
í tilefni af afmæli Gísla þykir
okkur vinum hans og öðm sam-
ferðafólki gaman að því að rifja
lítilsháttar upp æviferil hans, en
hann ólst upp í Saurbæ hjá þeim
sæmdarhjónum Vilhelmínu Eyjólfs-
dóttur og Eyjólfi Runólfssyni sem
þar bjuggu af myndarskap.
Rúmlega tvítugur gerðist hann
vinnumaður hjá ýmsum bændum á
Kjalamesi og m.a. fór hann til Kol-
beins Högnasonar í Kollafirði 1929
og var þar í 3 ár en síðan í Stardal
og vann þar um skeið. Hann gerð-
ist svo lausamaður, en átti alltaf
heimili hjá þeim ágætishjónum
Kristrúnu Eyvindsdóttur og Jónasi
Magnússyni vegaverkstjóra í Star-
dal. Á þessum ámm stundaði Gísli
sjómennsku og fór á vertíð á Suður-
nesjum og í Vestmannaeyjum en
var auk þess í kaupavinnu. í Star-
dal ieið Gísla vel og húsbændur þar
stuðluðu að því að hann gæti valið
um ýmiss konar störf, en síðan
greip hann í ýmislegt á milli og þá
gjaman heima í Stardal.
Árið 1945 ræðst Gísli í að taka
til ábúðar litla jörð í heiðarbrúninni
við Leirvogsvatn, en jörðin hafði
eitthvað verið í eyði og var í eigu
Mosfellshrepps. Þar þurfti ýmislegt
að lagfæra, bæði hús og girðingar,
en það tókst allt vel og naut hann
þar vina sinna í Stardal og oddvita
Mosfellshrepps, Magnúsar í Leir-
vogstungu. Árið 1955 kom konan
á heimilið, Sigríður Bjamadóttir,
sem ættuð var frá Akranesi og
hafði verið við störf á bæjum í ná-
grenninu svo sem Þverárkoti,
Stardal og Kárastöðum. Gísla bún-
aðist allvel og sá sér og sínum vel
farborða með sitt fremur litla íjár-
bú. Hann var á yngri ámm hinn
mesti eljumaður að hveiju sem hann
gekk. Til þess var tekið hversu vel
honum gekk við heyskap og fén-
aður hans var vel haldinn og vel
hirtur. Gísli var ötull við aðdrætti
svo ekkert skorti, en einnig var
hann hin mesta veiðikló og hefir
ávallt verið mikill áhugamaður um
stangaveiði. Gísli var léttur á fæti
og hinn mesti garpur við fjárleitir
enda þótt hann væri ekki alltaf létt-
klæddur til fótanna. Hann var einn
af þeim dugnaðarmönnum sem
aldrei gáfust upp fyrir sauðkindinni
og hafði ætíð betur í samskiptum
sínum við hana á víðum vangi. Fjár-
glöggur var hann og átti verðlauna-
hrúta á sýningum.
40 siglarar stofna
Seglbrettasamband
STOFNFUNDUR Seglbretta-
sambands íslands var haldinn
laugardaginn 9. maí sl. i húsi
Slysavarnafélags íslands. Þar
voru samankomnir um það bil
40 siglarar, sem stóðu að stofnun
sambandsins.
Markmið með stofnun Segl-
brettasambands íslands er að auka
samskipti milli seglbrettasiglinga,
auka fræðslu um íþróttina og kynna
nýjungar á hveijum tíma. Einnig
kemur SBÍ til með að sjá um móta-
hald ásamt Siglingasambandi
íslands.
Á stofnfundinum voru samþykkt
drög að lögum og kosin var starfs-
stjórn fram að fyrsta aðalfundi, sem
verður haldinn í október.
í stjórn voru eftirtaldir menn
kosnir: Ármann Jóhannesson, Jón
Björnsson, Jóhann Guðjónsson,
Hrafnkell Sigtryggsson og Böðvar
Þórisson.
Á fundinum voru kynnt segl-
brettamót sem verða haldin í sumar
og verður fyrsta mótið haldið 31.
maí í Fossvogi. Einnig var kynnt
mót, sem verður haldið á Laugar-
vatni, en þar hafa verið haldin mót
undanfarin þijú ár um verslunar-
mannahelgina.
Hrunamannahreppur:
Ferðamennirnir koma
um leið og farfuglarnir
Syðra-Langholti.
SVO ER að sjá að fyrstu ferða-
mennimir fylgi farfuglunum
eftir, en þeir em nú þegar fara-
ir að streyma í hádegismat á
Flúðum í hundraðatali. Em þeir
þá á ferð sinni að Gullfossi og
Geysi að líta á fleiri fagra staði
hér í Ámesþingi.
Fleiri bókanir eru á sumarhótel-
inu á Flúðum en endranær að sögn
Jóhannesar Sigmundssonar hótel-
stjóra. Eins og fyrr hefur verið
getið í Morgunblaðinu er verið að
bæta og auka við þjónustu fyrir
ferðamenn á staðnum. Verður gisti-
fymi aukið úr 55 rúmum í 85 með
viðbyggingu við Skjólborg. Þá
verða einnig sett upp smáhýsi á
tjaldstæðinu. Sundlaugin var end-
urbætt í fyrrahaust og byggð ný
sundskýli. Ástand vega hefur ekki
verið gott en þeir eru að þoma
núna, enda er lítill klaki í jörðu.
Sig. Sigm.
Carl Henrik Svenstedt
í Norræna húsinu
SÆN SKI. kvikmyndagerðarmað-
urinn Carl Henrik Svenstedt
hefur skamma viðdvöl hér á
landi miðvikudaginn 13. maí á
heimleið frá Bandaríkjunum.
Hann mun sýna myndina „Appro-
aching ZERO.OOO — De lyckliga
ingenjörerna" í Norræna húsinu
í kvöld kl. 20.30.
„Þetta er litmynd í fullri lengd,
þar sem tölvugrafík kemur mikið
við sögu. Þar segir frá verkfræðing-
um þeim sem eru að smíða fyrsta
geimfar Svía. Svenstedt og kona
hans, Stefania Lopez, sem leikstýr-
ir myndinni, fylgjast með þeim í
fímm ár og yfir fjórar álfur. Fyrir
þeim vakir að veita innsýn í hugar-
heim hins tæknimenntaða manns,“
segir í frétt frá Félagi kvikmynda-
gerðarmanna.
Draumur Gísla frá yngri árum
var nú að rætast, að hafa jörð til
umráða og vera sjálfstæður bóndi.
Leirvogsvatn er við Þingvallaveginn
en næstu bæir eru Stardalur norður
undir Esju og Seljabrekka sem er
10 km vestar. Leiðin yfir Mosfells-
heiði var torsótt, einkum að vetrar-
lagi, og þótti það auka á öryggi
ferðamanna að búseta var á Leir-
vogsvatni og kom sér oft vel, eins
og geta má nærri. Þá var það starf
Gísla að fara í eftirleitir á Mosfells-
heiði seint að haustinu og sýndi
hann mikið þrek og dugnað við
þetta, því snjóþungt er mjög á þess-
um slóðum.
Þau Gísli og sambýliskona hans
bjuggu á Leirvogsbatni til ársins
1972 að þau fluttu „til byggða" eða
niður í Mofellssveit. Samningar
voru gerðir milli þáverandi oddvita
og Gísla um að hreppurinn keypti
eignir Gísla á jörðinni eftir mati og
léti honum í té lóð og húsnæði á
skólasvæðinu á Varmá. í Varmár-
brekku býr Gísli nú og unir hag
sínum vel. Hann á marga trausta
vini og velunnara, má þar nefna
starfsmenn^ hreppsins og skólanna
á Varmá. Áður sinnti hann nokkr-
um störfum við skólana en nýtur
nú samvista við kennara og aðra
starfsmenn, því hann kemur þangað
daglega. Gísli hefir mikinn metnað,
er höfðingi í raun og keppir að því
nú sem fyrr að vera sjálfum sér
nógur.
Gísli hefír nú ákveðið að halda
nokkurt afmælishóf í Hlégarði og
væntir þess að vinir hans og kunn-
ingjar fjölmenni þangað í kvöld kl.
20.00. Við vinir hans og kunningjar
sendum honum best.u ámaðaróskir
á afmælisdaginn og óskum honum
alls hins besta í framtíðinni.
J.M.G.
Litir: Hvítt, svart,
blátt, rautt, grænt.
Stærð: 35-45.
Póstsendum.
5% stadgreiðsluafsláttur.
VELTUSUND11
21212
Blaóburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
Lindargata 1 -38 o.fl.
Hverfisgata 4-62 o.fl.
Hverfisgata 63-115 o.fl.