Morgunblaðið - 13.05.1987, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
Kaupmannahöf n:
íslendingafélagið starf-
ar af miklum krafti
Morgunblaðið/G.L.
Að kvöldi sumardagsins fyrsta, frá vinstri: Gunnar Bernburg, Gunn-
hildur Halla, Örn Ólafsson, Anna Þrúður, Guðmundur Eiríksson,
Helga Bachmann og Helgi Skúlason.
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
SUMARDAGURINN fyrsti rann
upp bjartur og hlýr og virðist
hið danska sumar loksins komið.
Barnaskemmtun var á sumar-
daginn fyrsta, þar sem böm úr
íslenzka sunnudagaskólanum og
íslenzkuskólanum skemmtu með
upplestri og söng og blöktu fánar
við hún á Jónshúsi eins og vera
ber. Um kvöldið var dagskrá,
sem Bergljót Skúladóttir gest-
gjafi stóð fyrir. Var hún í tilefni
af 85 ára afmæli Halldórs Lax-
ness og hlustuðu margir gestir á
Helgu Bachmann, Helga Skúla-
son og Önnu Þ. Grímsdóttur lesa
úr verkum hans, en Öm Ólafs-
son, nýskipaður lektor við
Stofnun Árna Magnússonar,
rakti æviatriði Halldórs og Helga
Bachmann flutti kveðju hans og
frú Auðar. Á milli atriða vom
leikin lög við ljóð Nóbelsskálds-
ins og lék Gunnhildur Halla
Guðmundsdóttir á selló, Gunnar
Bemburg á bassa og Guðmundur
Eiríksson á píanó. Var upplesur-
um og tónlistarfólki vel fagnað.
íslendingafélagið í Kaupmanna-
höfn hefur starfað af miklum krafti
í vetur og má nefna, að félagið stóð
fyrir myndarlegu þorrablóti með
ágætum skemmtiatriðum og frá-
bærum mat á þorra, bingói í sl.
mánuði og hefur stuðlað ásamt
námsmannafélaginu að komu
stjómmálamanna til fundahalda
hér. Þá hefur stjómin_ ákveðið að
bjóða öllum rosknum íslendingum
^ til kaffídrykkju eftir guðsþjónustu
síðasta sunnudag í maí, en þá er
hér dagur eldra fólksins íslenzka
að venju. Skógarferð félagsins verð-
ur farin 24. maí nk. og er það
nýbreytni í félagsstarfínu, a.m.k.
hin síðari ár.
Kaupmannahafnardeild Norræna
félagsins er líka í fullu fjöri og
notar sér oft ágæta aðstöðu og
prýðilegan mat í félagsheimilinu
hér. Má nefna meðal atriða á dag-
skrá deildarinnar, að sendiherra
Islands í Danmörku, Hörður Helga-
son, hélt erindi um hlut Islands og
stöðu í vamarmálum á hádegisverð-
arfundi deildarinnar í marz. Þá
koma oft deildir norræna félagsins
úr öðmm sveitarfélögum hingað til
funda, nú síðast deildin frá Sölleröd.
Safnaðarfundur íslenzka safnað-
arins var haldinn nýlega og var þar
kosinn nýr formaður safnaðar-
nefndar, en Jón Helgason, sem verið
hefur formaður hennar um skeið
og einnig námsmannafélagsins,
flytur nú heim. Vom Jóni þökkuð
farsæl störf í kveðjuhófi. Nýr for-
maður er Ámi Bjömsson, sem var
gjaldkeri nefndarinnar, en í hans
stað kom Þórður Kristjánsson og
nýr varamaður, Margrét Eggerts-
dóttir. Safnaðamefndin er mjög
áhugasöm um allt, sem tekur til
kirkjulegs starfs íslendinga í Höfn.
Frá áramótum og til júníloka er
Kristjana Ásgeirsdóttir tónlistar-
kennari, organisti og söngstjóri
kirkjukórs safnaðarins.
íslenzk messa var í Klaustur-
kirkjunni í Álaborg í marz og vom
2 böm skírð við þá athöfn. Þar
söng eins og áður kór íslenzkra
heimamanna, allir úr hópi náms-
manna, undir stjóm Sigríðar
Á ÍSLANDI í 20 ÁR
Við íofum því
sem skiptir mestu
máli:
GÓÐRI
ÞJÓNUSTU
með MS sam-
lokum -hvar
og hvenær
sem er. I
Mjólkursamsalan
m
Vörumarkaðurinnhf.
Eiöistorgi 11 - simi 622200
Og svo gerast
þeir vart fallegri
og vandaðri
PFAFF
Borgartúni 20
Sími 2-67-88
Góðar stundir
Electrolux
Ryksugu-
úrvalið
D-720
1100 WÖTT.
D-740
ELECTRONIK.
Z-165
750 WÖTT.
Aðeins
1 .500 kr. út
og eftirstöðvar til allt
að 6 mánaða.
Morgunblaðið/G.L.
Sendiráðsprestur, organisti og safnaðarnefnd, frá vinstri talið: sr.
Ágúst Sigurðsson, Krisljana Asgeirsdóttir, Árni Björnsson, Ragn-
hildur Ólafsdóttir, Þórður Kristjánsson og Margrét Eggertsdóttir.
Auk þeirra eru í safnaðarnefnd Sesselja Karlsdóttir og Sigríður H.
Þorsteinsdóttir.
Eyþórsdóttur, sem stundar söng-
stjóranám í Álaborg. Tókst það vel
og beið myndarlegt kaffíborð
kirkjugesta, sem vom um 80 tals-
ins. Undirbúning annaðist formaður
íslendingafélagsins, Jón Pálsson. Á
skírdag var messað í hinni æva-
gömlu Hasle-kirkju í Árósum og 3
böm skírð. Þar íék Kristjana Ás-
geirsdóttir á orgelið og nokkrir
námsmenn leiddu sönginn ásamt
þrem félögum úr íslenzka kirkju-
kórnum í Kaupmannahöfn. For-
maður íslendingafélagsins í
Árósum er Ragnar Bjartmarz. Þá
var íslensk ferming í Rosengaard-
kirkjunni í Malmö á annan páska-
dag og vom 4 böm fermd þar. Var
að venju sameiginleg fermingar-
veizla í boði foreldra bamanna á
eftir, með góðri aðstoð Georgs
Franklínssonar, formanns ÍMON,
og Margrétar Jóhannesdóttur, konu
hans. Nýr organisti hóf nú störf
fyrir íslenzka safnaðarstarfið í
Malmö, en það er Ann-Louise Jóns-
son og stóð hún sig með prýði með
aðstoð manns síns, Péturs R. Jóns-
sonar. Sama dag var fermt á
íslenzku í Barsebáck, en þar þjónar
íslendingur, séra Gísli Friðriksson,
sænsku kalli.
Nýlega flutti W. Flensmark, full-
trúi nefndar, sem kallast „Danske
venner af SOS Börnebyeme", erindi
í messukaffinu hér í Jónshúsi og
sýndi litskyggnur máli sínu til
stuðnings. Vakti hann athygli á því
mikla starfí, sem unnið er víða um
heim, þar sem um 30.000 foreldra-
laus böm búa í rúmlega 200
„bamabæjum" í 4 heimsálfum. Á
næstu 2 árum er í ráði að byggja
100 ný slík þorp, en í hverju þorpi
eru 15—20 hús og býr ein fjöl-
skylda, þ.e. 7—8 börn ásamt for-
eldri, í hveiju. Flensmark hvatti
mjög til þátttöku Islendinga í þessu
máli, en við erum eina Norðurlanda-
þjóðin, sem ekki hefur slíka nefnd
starfandi. Heimilisfang danskra
vina SOS-barnabæjanna er:
Osloplads 16, 2100 Köbenhavn Ö,
og er öll aðstoð þegin með þökkum,
en íjölmargir greiða vissa upphæð
mánaðarlega og verða þar með eins
konar hjálparforeldri eins eða fleiri
bama.
Stjómmálin hafa auðvitað verið
í sviðsljósinu hér eins og heima og
ríkir mikil óánægja meðal þeirra,
sem ekki hafa kosningarétt, en þeir
eru margir, sem hvorki mega kjósa
heima né hér í landi. Hefur fulltrúi
ísiendingafélagsins afhent stjóm-
málamönnum áskorun um að
lagfæra þetta mikilvæga atriði. Þá
hafa námslánin verið í brennidepli
eins og mönnum er kunnugt.
Nokkrir stjórnmálamenn hafa hald-
ið hér fundi undanfamar vikur,
fyrst Svavar Gestsson, þá Stein-
grímur Hermannsson, forsætisráð-
herra, Guðrún Halldórsdóttir fyrir
Kvennalista og svo var almennur
framboðsfundur á pálmasunnudag
á Öresund-garðinum. Þar töluðu
Þorlákur Helgason fyrir A-lista,
Finnur Ingólfsson fyrir B-lista, Sig-
urbjörn Magnússon fyrir D-lista,
Álfheiður Ingadóttir fyrir G og
Kristín Halldórsdóttir fyrir Kvenna-
lista. Einnig var leikin myndbands-
spóla frá Borgaraflokki. Hafa
íslendingar íjölmennt á fundi þessa,
ekki sízt þegar forsætisráðherra
kom hingað í Jónshús. Félags-
heimilisnefnd hefur fest kaup á
stuttbylgjuútvarpi, þannig að
fréttaútvarp frá íslandi náist og
nýlega var einnig keypt myndsegul-
band til notkunar í félagsheimilinu
og njóta sýningar á íslenzku efni
mikilla vinsælda.
Þeir, sem búa í fræðimannsíbúð-
inni, flytja oft erindi eða skemmta
löndum sínum hér með öðmm
hætti. Þórður Jónsson, eðlisfræð-
ingur, sem dvaldi í íbúðinni frá 1.
desember til 1. marz ásamt Sigur-
laugu Sveinbjörnsdóttur, lækni,
konu sinni, hélt erindi í sinni grein
fyrir skömmu. Þórður vinnur að
rannsóknum í kennilegri eðlisfræði
við Nordisk Institut for teoretisk
atomfysik. Sigurlaug læknir flutti
nýlega erindi um eyðni-sjúkdóminn.
Nú dvelja í fræðimanns-
íbúðinni hjónin Helga Bachmann
og Helgi Skúlason.
Hjónin munu koma fram á síð-
asta konukvöldi vetrarins, sem
verður 12. maí, en þá fjölmenna
íslenzkar konur venjulega og borða
góðan íslenzkan mat hjá Bergljótu
Skúladóttur gestgjafa.
Nýlega komu 8 ungar konur úr
málfreyjudeildinni Frigg Fjörgyns-
dóttur í Óðinsvéum hingað og héldu
kynningarfund á konukvöldi. Höfðu
heimakonur ánægju af að sjá, hve
duglegar málfreyjumar voru að
koma fram og fysir nokkrar að
stofna deild hér í borg. Forseti
Friggjar Fjörgynsdóttur er Erna
Sveinbjamardóttir og er hún mjög
áhugasöm um stofnun systurdeildar
hér, en málfreyjufélög eru óþekkt
í Danmörku.
Fyrsta sunnudag í apríl voru tón-
leikar í Nikolaj-kirkjunni, þar sem
Con Anima, hljómsveit sex kvenna,
lék lög eftir norræn kven-tónskáld.
Voru flutt verk eftir 3 norsk tón-
skáld, 1 sænskt, 1 finnskt og 2
dönsk, en fulltrúi íslands var Karó-
lína Eiríksdóttir. maí nk.
Má að lokum nefna, að 22. maí
verður bókmenntakvöld hér í húsi,
þar sem íslenzk skáld og rithöfund-
ar lesa úr verkum sínum.
— GL. Ásg.