Morgunblaðið - 13.05.1987, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
t
GUÐLAUGUR G. PÉTURSSON,
BogahlíA 15,
lést í Landspítalanum 11. maí.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Katrín ÞorvarAardóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR INGIBERSSON
bifreiAastjóri,
MIAtúni 1,
Keflavfk,
andaðist á Landspítalanum 11. maí sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Marta Eiríksdóttir.
t
Móðir mín, tengdamóöir og amma,
SIGRÍÐUR BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR,
áðurtil heimilis á Leifsgötu 23,
andaöist að kvöldi 11. maí á Dvalarheimilinu Kumbaravogi.
Fyrir hönd aðstandenda.
Dóra GuAjónsdóttir,
Einar Bjarnason,
Lovfsa GuAbjörg Sigurjónsdóttir.
t
Móðir okkar, amma og langamma,
SIGURBJÖRG HELGADÓTTIR
frá Þurstööum,
Neshaga 13, Reykjavík,
lést í Borgarspítala þann 11. maí 1987. Jaröarför auglýst síöar.
Gunnar Valdimarsson,
Hildur Valdlmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar og systir,
ÞURÍÐUR TRYGGVADÓTTIR MÖLLER,
Austurbergi 38,
andaöist í Borgarspítalanum mánudaginn 11. maí.
Gunnlaugur Birgir Danfelsson,
Steinunn Þorsteinsdóttir,
Björn Möller,
Kristjana Halldóra Möller,
Kristján Ásgeir Möller,
AAalsteinn Tryggvason,
GeirT ryggvason.
t
Eiginkona mín, móðir og tengdamóöir,
ÁSLAUG SIGURGEIRSDÓTTIR,
Safamýri 47,
sem andaðist þann 5. maí sl., verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 14. maí kl. 13.30.
Helgi Jasonarson, Kristfn Helgadóttir,
Hafsteinn Helgason, Sigurbjörg Sœmundsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNÍNA EGILSDÓTTIR,
Skeljagranda 4,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 11. maí sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. maí kl.
16.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vildu minnast
hennar láti Krabbameinsfélag [siands njóta þess.
GuAni Gestsson,
Gestur GuAnason,
Hrafnhildur GuAnadóttir, Sturla Bragason,
Egill GuAnason, Carol GuAnason
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
ÞORBJÖRG FRIÐBERTSDÓTTIR,
verður jarðsungin fimmtudaginn 14. maí kl. 15.00 frá Fossvogs-
kirkju.
Sesselja Gfsladóttir,
Jóhannes Gfslason.
Sr. Gísli Brynjólfs-
son - Minning
Fæddur 23. júní 1909
Dáinn 4. maí 1987
Gísli Brynjólfsson fæddist 23. júni
1909 í Skildinganesi við Skeijafjörð.
Voru foreldrar hans Brynjólfur Gísla-
son bóndi Gislasonar, prests á
Reynivöllum í Kjós, Jóhannessonar í
Hofsstaðaseli í Skagafirði. Kona
Brynjólfs og móðir sr. Gísla var
Guðný Jónsdóttir prófasts á Auðk-
úlu, Þórðarsonar prófasts á Mosfelli
í Mosfellssveit. Er margt presta
meðal þessara ættmenna.
Þau hjón Brynjólfur og Guðný
bjuggu um tíma í Litladal, er liggur
gegnt Stóradal í Svínavatnshreppi.
Þau eignuðust margt barna, þar á
meðal sr. Eirík á Útskálum og Teo-
dór tannlækni.
Gísli gekk í menntaskólann og
varð stúdent 1930. Hann las síðan
guðfræði og lauk prófi 1934. Hann
hlaut utanfararstyrk til að lesa
kennimannlega guðfræði í Cam-
bridge veturinn 1935—36. Hann
reyndist góður námsmaður og var
vel undir það búinn að þjóna hinu
göfuga starfi sem kennimaður. Það
kom fram strax í skóla að hann var
hneigður til ritstarfa. Enda var hann
blaðamaður um skeið. Gísli var fram-
sóknarmaður og skipaði sér í
Bændaflokkinn með sr. Þorsteini
Briem á Skaganum og Jóni Jónssyni
óðalsbónda í Stóradal. Starfaði Gísli
við málgagn Bændaflokksins er
nefndist „Framsókn". Fór það starf
honum vel úr hendi.
Nú tók hugur sr. Gísla að hneigj-
ast til prestsskapar og tók hann víxlu
1937 til Kirkjubæjarklausturspresta-
kalls á Síðu, er hann þjónaði til 1963.
Þar af var hann prófastur í Vestur-
Skaftafellssýslu í 10 ár. Sr. Gísli var
vel látinn og reglusamur í starfi og
dagfari. Hann hafði létta lund, var
gamansamur, fróður maður og fé-
lagslyndur.
Sr. Gísli Brynjólfsson kvæntist
Ástu Þóru Valdimarsdóttur skip-
stjóra Kristmundssonar á Akranesi
30. júlí 1938. Þau eignuðust þessi
böm: Brynjólf, prest_ í Stafholti,
Borgarfírði, kvæntur Áslaugu Páls-
dóttur frá Heiði í Mýrdal; Valdimar,
bónda á Felli í Mýrdal,_ kvæntur
Sigríði Tómasdóttur frá Álftagróf í
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR,
sem lést 2. maí á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 15. maí kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á líknar-
stofnanir.
Ingunn Ósk Sigurðardóttir,
Kristján Ársæll Sigurðsson, Margrót S. Jóhannesdóttir,
Einar Sigurðsson, Ingibjörg Árnadóttir,
Gunnþórunn SigurAardóttir, Sveinn ísleifsson
og barnabörn.
t
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞURÍÐAR ÁGÚSTU SÍMONARDÓTTUR,
Framnesvegi 59,
Reykjavfk,
sem lést 7. maí, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. maí
kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Slysavarnafélag
íslands.
Haraldur Steingrfmsson,
Sesselja Steingrímsdóttir,
Ásta S. Sanchez,
Garðar Steingrfmsson,
Magnús Steingrímsson,
Ingibjörg Steingrfmsdóttir,
Steingrfmur Steingrfmsson,
Ásta Hjartardóttir,
Jón H. Gunnarsson,
Samuel R. Sanchez,
Elsa Stefánsdóttir,
Jóhanna Óliversdóttir,
Björgvin Guðmundsson,
Krlstín Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
EINARS INGA JÓNSSONAR
prentsmlöjustjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 1A Landakoti.
Kristján Ingi Einarsson, Ásdfs Lilja Emilsdóttir,
Hildur Einarsdóttir, Sigmundur Hannesson,
Ásdís Hrund Einarsdóttir, Erling K. Nesse,
Jón Vilhjálmsson, Erla Jónsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
FRÍÐU GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til Rebekkustúku nr. 4 Sigríðar I.O.O.F.
Gylfi Baldursson, Þuríður Jónsdóttir,
ArngunnurÝr Bryndfs Halla,
Gunnhildur Sif, Baldur,
Yrsa Þöll, Sigurður örn
Benný Ingibjörg Baldursdóttir.
+
Innilegar þakklr fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður og bróður,
ÞÓRARINS GfSLA JÓNSSONAR,
MosabarAi 9,
Hafnarfirði.
Elfn Vilhjálmsdóttir, Pétur Þórarinsson,
Markús Jónsson, Anna Friðbjarnardóttir
og vandamenn.
Mýrdal; Sverri, rafvirkjameistara,
Reykjavík, kvæntur Sigríði Maríu
Guðmundsdóttur.
Ásta, kona sr. Gísla, var starfí
sínu vel hæf sem prestskona. Hún
söng í kirkjukómum og hafði lært á
orgel og greip í það þegar á lá, eins
og fleiri prestskonur í gegnum tíðina.
Þau hjón voru gestrisin og góð heim
að sækja.
Á prestskaparárum sínum ritaði
sr. Gísli oft í blöð og tímarit fræð-
andi greinar, einnig vandaði hann
ræður sínar á stól. Þá var hann kenn-
ari í skóla þeim í Hólmi í Landbroti
er halda skyldi á lofti minningu
Bjama Runólfssonar, hins mikla völ-
undarsmiðs. Skólinn tók unga og
efnilega hagleiksmenn til náms. Sr.
Gísli kenndi þar íslensku og önnur
fræði og reyndist góður kennari.
Sr. Gísli kom nokkuð við mál
manna austur þar. Var hann fulltrúi
Vestur-Skaftafellssýslu á aðalfundi
Stéttarsambands bænda 1947—63
Eftir 25 ára þjónustu á Klaustri
flutti hann til Reykjavíkur og varð
fulltrúi í Landbúnaðarráðuneytinu
1964 og deildarstjóri þar 1974. —
Hér undi sr. Gísli vel hag sínum, en
hefur án efa saknað margs úr hinum
fögm sveitum með stórbrotnu lands-
lagi, en því var ekki til að dreifa á
nýja vinnustaðnum. Sr. Gísli var þó
í sambandi við náttúmna, því hann
hafði umsjón með fasteignum ríkisins
víða um land. Hann komst í samband
við hina stórbrotnu náttúm í
Grindavík, er hann og Bergur Bjöms-
son fengu til sumardvalar gamla
grestshúsið á Stað í Grindavík. —
Áhrif þessa komu berlega í ljós í
hinni merku bók hans „Mannfólk
mikilla sæva“, Staðhverfíngabók,
sem út kom 1973, er átthagafélag
þeirra hafði forgöngu um, en sr.
Gísla má telja aðalhöfund bókarinn-
ar. — Formáli hans á bókinni hefst
á þessa leið: „Átthagatryggðin
blandin söknuði og trega, en eigi að
síður vafín ljóma endurminninganna,
sem er kveikjan að þessari bók.“ —
Bókin er hið merkasta rit af fróðleik
frá liðinni tíð allt fram á þessa öld.
— Sr. Gísli hefur ritað vel um at-
vinnuhætti til sjós og lands, búskap
og búalið, kennimenn á Stað og gripi
hins helga húss. — Hér er og gnótt
mynda; landslagsmyndir, af sjávar-
föllum, úr híbýlum manna svo og
mannamyndir. — Að sjálfsögðu var
sr. Gísli meðlimur í Staðhverfingafé-
laginu.
Sr. Gísli Brynjólfsson gleymdi ekki
söfnuði sínum í Skaftárþingi. Bera
því glöggt vitni minningargreinar
hans er hann skrifaði um sín gömlu
sóknarböm. — Þó sr. Gísli hafí hætt
prestskap var hann trúr þjónn heila-
grar kirkju og naut þess að grípa í
prestskapinn. Þjónaði hann Mosfells-
prestakalli í þijá mánuði 1965 og
var síðan ráðinn forfallaprestur í
Laugamesprestakalli 1969 og þjón-
aði um leið sínu veraldlega starfí í
stjómarráðinu.
Árið 1939 var stofnað Félag fyrr-
verandi sóknarpresta, er þá voru
einmana, án starfa og safnaða. —
Þetta tókst vel, gott samstarf, og
kynntust prestar hvaðanæva af land-
inu. — Lengst af hefur félagið starfað
á Grund og forstjóri Grundar búið
vel að því. — Hefur félagið haft eina
messu í mánuði og að loknu messu-
kaffí hefur verið settur fundur og
erindi flutt og menn rætt saman.
Sr. Gísli Brynjólfsson var á annan
áratug í félaginu, 10 ár í stjóm þess,
þar af 5 ár formaður. — Hann var
stjómsamur og vann hér gott starf.
Er ég minnugur þess að hann flutti
erindi blaðalaust um þá biskupa sem
hann hafði haft kynni af. Minn-
isstæðar verða hér frásagnir hans,