Morgunblaðið - 13.05.1987, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1987
DiKarmeisiarar oijornunnar
• Stjarnan úr Garðabœ varð f vetur bikarmeistari HSÍ í handknattleik og hér birtum við sfðbúna mynd af þeim. Aftari röð frá vinstrí: Sigtryggur Helgason frá Daihatsuum-
boðinu, Jón Ásgeir Eyjólfsson formaður handknattleiksdeildar, Gylfi Birgisson, Skúli Gunnsteinsson, Einar Einarsson, Hannes Leifsson fyrirliði, Hilmar Hjaitason, Páll
Björgvinsson þjálfari, Bragi Eggertsson og Hilmir Elísson frá Daihatsuumboðinu. Fremri röð frá vinstrí: Sigurjón Guðmundsson, Hafsteinn Bragason, Sigmar Þröstur
Óskarsson, Jónas Þorgeirsson, Ragnar Gíslason og Magnús Teitsson.
Uppskeruhátíð Stjörnunnar:
Fyrirliðinn Hannes
Leifsson var bestur
STJARNAN f Garðabœ hétt upp-
skeruhátfð sfna um sfðurstu helgi
og var þar meðal annars tilkynnt
um val á bestu leikmönnum
meistaraflokka félagsins. Hannes
Lerfsson fyrirliði meistaraflokks
karla var valinn besti leikmaður
flokksins og hjá stúlkunum var
Guðný Gunnsteinsdóttir fyrir val-
inu.
Stjarnan er ekki gamallt félag,
aðeins 27 ára, en engu að síður
hefur félagið náð undraverðum
árangri á undanförnum árum,
sérstaklega í handboltanum. Fé-
lagið lék fyrst í deildarkeppninni í
handbolta nokkrum árum eftir að
það var stofnað þannig að þó svo
félagið sé 27 ára þá hefur hand-
bolti verið stundaður mun skemur.
Fjögur ár í röð hefur handknatt-
leiksdeildin verið með alla flokka í
úrslitum og í ár varð meistaraflokk-
urinn bikarmeistari og var það
fyrsti stóri titillinn sem félagiö vinn-
ur til.
Meistaraflokkur karla varð í
fjórða sæti í 1. deildinni í vetur,
meistaraflokki kvenna í þriöja sæti
og þriðji flokkur karla einnig. [ öðr-
um flokki karla og þriðja flokki
kvenna náði féiagið öðru sæti og
2. flokkur kvenna varð íslands-
meistari. í ár var í fyrsta sinn
starfræktur 4. flokkur kvenna og
komst hann ekki í úrslit að þessu
sinni en ef framhald verður á hinu
geysiöfluga unglingastarfi þeirra
Garðbæinga verður ekki langt þar
til ungu stúlkurnar komast í úrslita-
keppnina. Á lokahófi handknatt-
leiksmanna fékk Stjarnan meðal
annars viðurkenningu frá unglinga-
nefnd HSÍ fyrir frábært unglinga-
starf og kom það engum á óvart.
Hannes Leifsson var útnefndur
besti leikmaður meistaraflokks
karla á uppskeruhátíðinni um helg-
ina og Guðný Gunnsteinsdóttir var
valin best hjá stúlkunum eins og
áður sagði. Fleiri voru heiðraðir.
Páll Björgvinsson var valinn besti
þjálfari Stjörnunnar í vetur og stór-
skyttan Gylfi Birgisson fékk viður-
kenningu fyrir mestu framfarirnar.
Einar Einarsson og Skúli Gunn-
steinsson fengu viðurkenningar
fyrir 100 leiki með meistaraflokki,
Sigurjón Guömundsson fyrir 200
leiki og Magnús Teitsson fyrir 300
leiki.
Þessi fengu ÖM viðurkenningu á lokahátíð Stjörnunnar um helgina.
Páll Björgvinsson besti þjálfari Stjörnunnar, Guðný Gunnsteinsdóttir
besti leikmaður kvennaflokks, Einar Einarsson 100 leikir, Hannes
Leifsson besti leikmaður meistaraflokksins, Gylfi Birgisson tók mest-
um framförum, Skúli Gunnsteinsson 100 leikir og Magnús Teitsson
300 leikir.
Vandræði hjá IBV
0 Jóhann Georgaaon 0 Tómas I. Tómasaon 0 Hlynur Stefánsson
NÚ styttist óðum í það að ís-
landsmótið f knattspyrnu hefjist
aftur eftir vetrarfrí. Eins og jafnan
á veturna eiga sér miklar breyt-
ingar stað hjá liðum deildanna.
Flest lið fá nýja leikmenn og
missa aðra og í ár hefur enginn
breyting orðið þar á. Fá lið hafa
orðið fyrir eins mikilli blóðtöku
fyrir þetta keppnistímabil og ÍBV.
ÍBV leikur nú, eins og kunnugt
er, í 2. deild eftir að hafa fallið úr
þeirri fyrstu í fyrra. Margir leik-
menn hafa yfirgefið liðið en aðeins
einn nýr komið í staðinn. Meöal
þeirra leikmanna sem farið hafa
eru Karl Sveinsson og Sighvatur
Björgvinsson sem ætla að reyna
fyrir sér á fasta landinu í sumar.
Þá hafa þeir Viðar Elíasson og
Þórður Hallgrímsson lagt skóna á
hilluna að ógleymdum hinum efni-
lega Viðari Þorsteini Viktorssyni.
Til að bæta gráu ofan á svart
fyrir Eyjamenn má segja að allir
máttarstólpar liðsins séu á sjúkra-
lista. Jóhann Georgsson, leik-
reyndasti maður liðsins, verður að
öllum líkindum ekki með í sumar
vegna slæmra bakmeiðsla og er
það liðinu mikið áfall. Þá er Hlynur
Stefánsson, sem lék í Noregi í
fyrra, meiddur á öxl og verður frá
í sex vikur. Tómas Ingi Tómasson
er sömuleiðis illa meicfdur og þá
hafa þeir Bergur Ágústsson og
Ómar Jóhannsson verið meiddir
en þeir veröa væntanlega klárir í
slaginn fyrir helgina.
Þjálfarar IBV í ár eru þeir Ár-
sæll Sveinsson og Tómas Pálsson
sem öllu kunnari eru sem leikmenn
ÍBV um árabil. Þeir félagar eru að
þjálfa meistaraflokkslið í fyrsa sinn
en hafa báðir þjálfaö yngri flokka
félgsins með góöum árangri.
Þeir vildu sem minnst tjá sig um
komandi keppnistímabii í stuttu
spjalli við blaðamann Morgun-
blaðsins. Þeir sögðu þó að þeim
litist sæmilega á sumarið - en ekk-
ert meir. Tómas sagðist þó ekkert
voða svartsýnn ef strákarnir sem
meiddir væru yrðu fljótlega tilbúnir
í slaginn. Hann bætti því viö aö
það væri hræðilegt áfall fyrir liðið
að missa alla sína bestu menn
strax í upphafi.
Fátt var um svör er þeir voru
beðnir um að spá um fyrsta leik
mótsins gegn Selfoss. Þeir sögðu
að liöið væri ungt og geta þess
ætti eftir að koma í Ijós en vissu-
lega væri útlitið dökkt.
Þaö má með sanni segja að
dagar ÍBV sem stórliðs í íslenskri
knattspyrnu séu taldir í bili að
minnsta kosti. Liðið sem flestir
töldu víst að myndi blanda sér í
baráttuna um sæti í 1. deild gæti
átt það á hættu að þurfa að berj-
ast fyrir tilverurétti sínum í 2. deild.
Þaö yrði væntanlega hlutskipti
sem fáir Eyjamenn myndu sætta
sig við. Þó má ekki gleyma að oft,
þegar erfiðleikarnir hafa verið hvað
mestir hjá liðinu, hefur það staðið
sig hvað best.
-GMS