Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 2

Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 Þoka raskar flugi: Fokker-vélar Flugleiða tepptust úti á landi Morgunblaðið/Svérrir Fjölmenni var á fundinum i Foldaskóla í gærkvöldi Húsnæðisvandi Foldaskóla: Laus kennslustofa sett á skólalóðina Attundubekkingum ekið í aðra skóla DAVÍÐ Oddsson, borgarstjóri, lýsti því yfir á borgarafundi í Foldaskóla í Grafarvogi í gær- kvöldi, að húsnæðisvandi skólans yrði leystur fyrir næsta vetur með því að koma fyrir lausri kennslustofu á lóð skólans og með akstri nemenda í áttunda bekk í aðra skóla í Reykjavík. Hann sagði jafnframt, að öðrum áfanga skólabyggingarinnar yrði lokið fyrir haustið 1988. Fundur þessi var haldinn á veg- um íbúasamtaka Grafarvogs og Foreldra- og kennarafélags Folda- skóla vegna fyrirsjáanlegs hús- næðisvanda skólans. Framsöguer- indi héldu Guðmundur G. Kristinsson, formaður íbúasamtaka Grafarvogs og Amgrímur Jónsson, skólastjóri Foldaskóla. Guðmundur lýsti áhyggjum íbúa hverfisins vegna þessa máls og krafðist þess, að loforð borgaryfirvalda um einset- inn skóla yrði efnt og lögbundinni kennslu yrði fullnægt. Amgímur Jónsson lýsti þróun fjölgunar nem- enda skólans og hvemig horfur væru. Hann sagði að hvorki væri pláss fyrir áttunda bekk né fyrir fjöigun í nokkrum árgöngum og takmarka yrði kennslu í hannyrðum og myndmennt. Davíð Oddsson tók næst til máls og sagði, að undanfarið hefði stað- reyndum verið hallað og dökk mynd máluð á vegginn. Hann sagði: „Ég hef ekki lofað neinu, sem ég hef ekki efnt, enda hentar það mér ekki nú og hefur aldrei gert. Þess vegna ætla ég ekki að lofa að öðrum áfanga verði lokið í haust. Hús- næðisvandi skólans, sem vissulega er fyrir hendi og stafar af sveiflum í byggingarhraða í hverfinu, verður leystur í vetur með því, að komið verður fyrir aukastofu á lóðinni til að mæta „flóði“ í sumum ár- göngum." Hann sagði ennfremur að nemendum áttunda bekkjar yrði ekið í aðra skóla í vetur. Davíð ítrek- aði síðan að öðrum áfanga skólans yrði lokið haustið 1988. VERULEG röskun varð á flugi í gær vegna þoku. Tvær vélar í millilandaflugi gátu ekki lent og innanlandsflug var í lágmarki. Vegna þokunnar voru allar Fokker-vélar Flugleiða tepptar úti á landi í nótt. Talsverð þoka lá mestan hluta gærdagsins yfír suðvestur homi landsins og raskaði flugi verulega. Tvær vélar á leið frá Bandaríkjun- um gátu ekki lent í gærmorgun og millilentu þess í stað í Glasgow á leið sinni til Luxemborgar. Milli- landaflug komst svo í lag er leið á daginn. Vegna þokunnar voru flugskil- yrði mjög slæm í Reykjavík. Flug- leiðum tókst þó að fljúga á nokkra staði, en með þeim afleiðingum að engin Fokker-véla þeirra komst aft- ur til Reykjavíkur. Þær voru því allar tepptar úti á landi í nótt, þijár á Akureyri, ein á Homafirði og ein á Húsavík. Áframhaldandi þoku er spáð á þessu svæði. Morgunblaðið/Einar Falur Frá verðlaunaafhendingunni í Atthagasal Hótel Sögu í gærkvöldi Sex auglýsing- ar verðlaunaðar Von/Veritas skuldar ÚRSLIT í samkeppni um athygl- isverðustu auglýsingu árins 1986 voru tilkynnt í gærkvöldi, en það voru íslenzki markaðsklúbbur- inn og Samband íslenzkra auglýsingastofa sem gengust fyrir henni. Fyrir athyglisverðasta dreifiritið hlaut viðurkenningu auglýsingin „Pure nature - high quality", fram- leidd af Guðjóni Heiðari Pálssyni fyrir lyfjafyrirtækið Metís. Fyrir athyglisverðasta veggspjaldið var valið „Nýtt líf í slöngunum", sem auglýsingastofan Svona gerum við gerði fyrir Skeljung. Athyglisverð- asta tímaritsauglýsingin þótti „Bacalao Islandia" framleidd af auglýsingastofunni Octavo, fyrir Sölusamband ísl. fiskframleiðenda. Athyglisverðasta dagblaðaaug- lýsingin var valin „Verðurðu sólar- megin í sumar?", framleidd af GBB-Auglýsingaþjónustunni hf. fyrir Samvinnuferðir/Landsýn. At- hyglisverðasta kvikmyndaða aug- lýsingin þótti vera „Þú þarft að vera viss“, óperuauglýsingin, sem GBB-Auglýsingaþjónustan hf. gerði fyrir Samvinnutryggingar. Óvenjulegasta auglýsingin árið 1986 var valin „Valgeir og sölu- skrifsjx)fan“, sjónvarpsauglýsing, sem ÓSA gerði fyrir Flugleiðir. Mokfiskirí í Jökuldýpi Margir fullyrða að þorskganga frá Grænlandi sé þar á ferðinni Grindavik. VERTÍÐARHROTA er skollin á í Grindavík, en bátarnir, sem enn eru á netum, lönduðu miklum afla í gær. Fiskurinn veidd- ist vestur í djúpköntunum í Jökuldýpinu. Hrota þessi kemur mönnum i opna skjöldu, því stór hluti fiskvinnslufólksins er setztur á skólabekk vegna námskeiðahalds. í gærmorgun var ljóst að vertíð maí eftir slakan vetur. Þó bjargar væri hafin í Grindavík, þegar miklu að unglingar eru lausir úr henni, samkvæmt almanakinu, skóla og þiggja vinnuna með ætti að vera að ljúka. Hópsnes þökkum. GK kom með 38 tonn, Kópur GK Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- 35 tonn, Höfrungur IIGK 30 tonn rannsóknastofnunar, hafði heyrt og nokkrir bátanna með á milli um þessa hrotu hjá bátunum og 20 og 30 tonn. Margir fullyrða, vildi gjaman kanna fískinn nánar bæði sjómenn og fiskverkendur, með tilliti til þess hvort um þorsk að hér sé Grænlandsþorskur á frá Grænlandi væri að ræða. Hann ferðinni, enda hefur fiskurinn öll sendi tvo starfsmenn stofnunar- einkenni hans, sem eru svört innar til Grindavíkur í gær, þá himna á þunnildi, og að vera mjó- Þórð Viðarsson, líffræðing og sleginn með dökka bletti í Magnús Stephensen, rannsóknar- hnakkavöðva. mann, til að mæla og kvama Erfíðleikar em hjá sumum fisk- þorsk. Þeir vildu sem minnst tjá vinnslufyrirtækjunum að mæta sig um hvort þessi þorskur væri þessum afla, þar sem los er kom- frá Grænlandi, en sögðu að það ið á aðkomufólk og margt reyndar kæmi fljótlega í ljós, þegar kvam- farið. Einnig er stór hluti heima- imar kæmu undir smásjána. fólksins setztur á skólabekk vegna Uppistaða aflans út Hópsnes- námskeiðahalds fyrir fiskvinnslu- inu og Höfmngi II var 70 til 80 fólk. Námskeiðin vom ákveðin sentimetra langur fiskur, hrygnd- fyrir nokkm og óraði engan fyrir ur og sviljalaus. því þá, að vertíð skylli á í endaðan — Kr. Ben. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Þórður Viðarsson og Magnús Stephensen skoða þorskinn. 35 milljónir króna Eignir félagsins veðsettar fyrir um 46 milljónir króna Frá Nils Jörgen Bruun, Kaupmannahöfn. SJÚKRASTÖÐIN Von/Veritas á Lálandi i Danmörku, sem rekin er af íslendingum, skuldar mun meira en þær 1—2 milljónir danskra króna sem gefnar voru upp þegar stöðin fékk greiðslu- stöðvun fyrr í þessum mánuði. Skuldir vegna rekstrar sjúkra- stöðvarinnar nema um 6 milljón- um danskra króna (um 35 milljónum íslenskra króna) og fasteign stöðvarinnar, gamall skóli sem hefur verið endur- byggður, er veðsett fyrir 8 milljónir danskra króna (um 46 milljónir ísl. kr.) sem er mun hærra verð en fengist fyrir húsið á fasteignamarkaði. Von/Veritas fékk greiðslustöðv- un til 25. maí vegna skuldar við iðnaðarmenn sem unnið höfðu við að gera skólahúsið upp. Talan 6 milljónir er fengin úr bréfí sem skiptaráðandi búsins, Mikael Lunöe, hefur sent skuldareigendum Von/ Veritas. Vitnað er í þetta bréf í dagblaðinu Ny_ dag, sem gefið er út á Lálandi. í blaðinu eru einnig upplýsingar um veðsetningu húss- ins sem fengnar eru hjá þinglýsing- arskrifstofunni þar. Reykjavík: Dagvistargjöld hækka BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær 15% hækkun dag- vistargjalda í borginni. Sam- þykktin er byggð á tillögu stjórnar Dagvista borgarinnar um þessa hækkun tíl að vega upp á móti hluta kostnaðarhækkana. Hækkunin tekur gildi frá og með fyrsta júní og er á bilinu 400 til tæplega 1.000 kr. Anna K. Jónsdóttir, formaður stjómar Dagvista borgarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að rekstrarstaða Dagvistanna sýndi talsverðan halla um þessar mundir, um 30%, sem stafaði af ýmsum kostnaðarhækkunum. Tillaga stjómarinnar um 15% hækkun byggðist á því, að borgin og foreldr- ar bama í dagvistun skiptu áfram kostnaði við reksturinn á milli sín. Með þessu móti ykjust útgjöld borg- arinnar að sama skapi og greiðenda dagvistargjalda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.