Morgunblaðið - 20.05.1987, Side 5

Morgunblaðið - 20.05.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 Iceland Seafood Corporation: Nýr samningnr við Long John Silver’s Verulegar verðhækkanir til framleiðenda hér heima .. . í*—■ ICELAND Seafood, dótturfyrir- tæki Sambandsins í Bandaríkjun- um, hefur gengið frá samningi við veitingahúsakeðjuna Long John Silver’s um sölu á þorsk- flökum. Samingurinn gildir frá og með 1. júlí iiæstkomandi og felur i sér hækkun á söluverði til samræmis við markaðsverð. Verð verður ennfremur endur- skoðað á þriggja mánaða fresti. Eysteinn. Helgason, forstjóri Ice- land Seafood, sagði í samtali við Morgunblaðið, að með þessari hækkun á þorskflakapakkningum, 6% hækkun á þorskblokk síðustu vikur og öðrum hækkunum á fiski í Bandaríkjunum, fengju framleið- endur heima verulegar hækkanir á framleiðslu sína. Þetta þýddi, að Bandaríkjamarkaðurinn væri betur settur í samkeppninni um fiskinn og vonandi þýddi bætt afkoma framleiðenda meiri framleiðslu fyrir þennan markað. Eysteinn sagði ennfremur, að nú væri verð á þorskflökum til veit- ingahúsanna orðið mjög hátt og ætti nú eftir að reyna á það, hvort þeim tækist að koma þessari verð- hækkun til neytenda. Jafnframt væri hætta á því, að þessir veitinga- staðir leituðu eftir fiski af lakari gæðum og ódýrari tegundum en þorski. Það þýddi þá væntanlega samdrátt í kaupum á íslenzkum þorskflökum, sem vissulega væri áhyggjuefni. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Snör handtök voru notuð við að koma dekkinu á sinn stað og lyftu nærstaddir bílnum upp með handafli. Dekkið f ór undan bílnum Keflavík. UNGUR piltur sem ók bíl sínum niður Hafnargötuna á dögunum, átti sér einskis ills von þegar ann- að afturdekkið losnaði undan bilnum. Bíll piltsins fór ekki lengra það sinnið, en dekkið rúllaði áfram og skall á öðrum bíl sem var að koma út frá bensínstöð ESSO við Aðalstöð- ina. Sá bíll var nýkominn úr sprautun og urðu smávægilegar skemmdir á honum. Menn sýndu snör handtök við að koma dekkinu á sinn stað aft- ur og gat ökumaður haldið ferð sinni fljótlega áfram. - BB. Ástæður breyttrar afstöðu Borgaraflokksins til sljórnarþátttöku: Ríkisstjórn með þátttöku vinstri flokka yrði of dýr - segirAlbert Guðmundsson ALBERT Guðmundsson formað- ur þingflokks Borgaraflokksins segir að ríkisstjórn með þátttöku A-flokkanna og Kvennalista verði landinu fyrirsjánlega allt of dýr þar sem ríkissjóður standi ekki undir þeim kröfum sem þessir flokkar setja við stjórnar- myndun. Því hafi Borgaraflokk- urinn endurskoðað afstöðu sína til veru í ríkisstjórn í samstarfi við Sjálfstæðisflokk og Fram- sóknarflokk. Þingflokkur Borgaraflokksins samþykkti á mánudag að falla frá fyrri samþykktum um að flokkurinn ætti að vera í stjórnarandstöðu og lýsti sig reiðubúinn til að stuðla að því að sú stjórn sem sat að völdum á síðasta kjörtímabli starfi áfram. í samtali við Morgunblaðið sagði Albert Guðmundsson að fyrri sam- þykkt flokksins hefði verið gerð með þeim fyrirvara að endurskoða afstöðuna til stjómarþátttöku ef þröf krefði. „Við teljum þörf á því nú því við sjáum fyrir að núverandi stjórnarkreppa gæti að öðrum kosti orðið löng. Við sjáum einnig fyrir að með núverandi halla á ríkis- sjóði, sem ég tel að fari aldrei undir 5 milljörðum króna í lok ársins, muni ríkissjóður ekki þola þær kröf- ur sem vinstri flokkamir eru að gera til stjómarþátttöku og það setti landið alveg á hausinn.“ sagði Albert. Albert sagði ennfremur að eina úrræðið væri að styðja þá ríkis- stjóm sem hefur setið og sem muni fyrst og fremst hugsa um að ná hallanum niður og koma á jafn- vægi. Borgaraflokkurinn væri því með þessari samþykkt sinni að gegna þeirri fmmskyldu sem hvíldi á Alþingi og alþingismönnum að stuðla að því að koma á starfhæfri ríkisstjórn Albert sagði aðspurður að aðrir flokkar hefðu ekkert samband haft við Borgaraflokkinn eftir áður- nefnda samþykkt. Hins vegar hefði fólkið á götunni lýst yfir ánægju sinni við fulltrúa flokksins. wmmmmmmm i ,) ... . imii ■ FACIT 9401 i Já, það komast fáir í fótspor Facit. Enn er Facit feti framar, nú með nýja ritvél. Sérfræðingar Facit hafa hannað þessa afburða ritvél sem byggð er á langri hefð og nýjustu tækni. Líttu við því sjón er sögu ríkari. Við fullyrðum að verð og gæði koma svo sannarlega á óvart. Okkar þekking í þína þágu. ~ GISLI J. JOHNSEN SF. Nýbýlavegi 16. Sími 641222 n ERICSSON g Information Systems

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.