Morgunblaðið - 20.05.1987, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987
Umsvif aukin úti í héruðunum
- segir Páll Lýðsson nýkjörinn formaður stjórnar Sláturfélags Suðurlands
Selfossi.
Á AÐALFUNDI Sláturfélags
Suðurlands sem nýlega var hald-
inn var kosinn nýr formaður
stjórnar félagsins, Páll Lýðsson
bóndi í Litlu Sandvik í Sandvík-
urhreppi. Páll hefur setið í stjórn
Sláturfélagsins síðan 1983. „Fé-
lagið þarf fyrst og fremst að
standa undir þvi verkefni að taka
við öllum sláturfénaði félags-
manna sinna og koma honum í
eins gott verð og hugsanlegt er,“
sagði Páll um helstu verkefni
Sláturfélagsins og það til hvaða
átta hann liti sem nýkjörinn
formaður stjórnar.
„Það vildi svo skemmtilega til
að þann dag sem aðalfundurinn var
haldinn, 30. apríl, var SS búið að
greiða öllum sínum félagsmönnum
allt sem þeir áttu inni til marsloka.
Það hefur aldrei gerst áður. Þama
vegur auðvitað þyngst að nýju bú-
vörulögin tryggja bændum fulla
greiðslu sauðfjárafurða um miðjan
desember og svo hefur rekstrarfjár-
staða SS verið það góð undanfama
mánuði að hægt var að greiða upp
fyrir nautgripakjöt þó það væri
ekki allt selt," sagði Páll.
Umsvif aukin í
héruðunum
„Á undanfömum ámm hefur
verið mikil uppbygging hjá SS og
þótt ekki hafí kannski alltaf verið
skilað ársreikningi með hagnaði þá
á félagið miklar eignir og þarf ekki
á þeim öllum að halda, ekki öllum
sem em í Reykjavík. Það hefur
verið unnið að því að selja sumt af
þesum eignum og svo hafa lán-
veitendur talið að félagið standi vel
fyrir þeim framkvæmdum sem unn-
ið er að og það hefur gengið
þokkalega að fjármagna nýbygg-
ingar.
Mér er efst í huga að nýbúið er
að taka í notkun sláturhús á Hvols-
velli sem tekur yfir alla slátmn sem
áður fór fram í Djúpadal og á
Hellu. Þetta sláturhús gerir félag-
inu kleift að selja nautakjöt til
vamarliðsins. Það er auðvitað nauð-
synlegt meðan þessi her er í landinu
að hann bijóti ekki lög sem banna
innflutning á kjöti og öðmm búvör-
um.
Annað efni er mér hugleikið en
það er að Sláturfélagið er að auka
Morgunblaðið/Siguröur Jónsson
Páll Lýðsson hjá einni nýbærunni. Hundurinn Rex fylgist með.
umsvif úti í hémðunum. Ég man
þá tíð að ekki var unnið í slátur-
húsinu á Selfossi nema við haust-
slátmn á sauðfé. Nú em starfsmenn
á Selfossi um 80 og nær 20 á
Hvolsvelli. Það er gaman að geta
NÁMSTEFNA UM
MILLIRlKJAVIÐSKIPTI
Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námstefnu um milli-
ríkjaviðskipti þriðjudaginn 26. maí n.k. að Hótel Sögu
kl. 12.15
Meginefni námstefnunnar verður:
• Hver er staða íslands í ljósi núverandi milliríkjaviðskipta, tolla og
skatta, landfræðilegrar legu og tengsla við efnahagslönd.
• Hvaða kröfur verða gerðar til íslands til þess að það nái hagstæðari
viðskiptakjörum.
• Hverjar eru horfurnar á þróun utanríkisviðskipta og tvíhliða samn-
inga milli íslands og Bandaríkjanna, samanber tvíhliða samninga
Kanada og Bandaríkjanna.
• Gengisþróun dollarans - væntanlegar horfur.
Fyrirlesari verður Dr. Stephen D. Cohen prófessor við
School of Intemational Service, American University í
Washington DC.
Dr. Cohen er menntaður við American University og Syr-
acuse University starfaði hann m.a. sem hagfræðingur í
milliríkjaviðskiptum við ármálaráðuneyti Bandaríkj-
anna, og hjá Philadephia National Bank þar sem hann sér-
hæfði sig í viðskiptaháttum Vestur-Evrópu. Á árunum
1969 til 1973 var hann yfirhagfræðingur Japansk/Banda-
ríska viðskiptaráðsins og seinna starfaði hann á vegum
Bandarísku stjórnarinnar að þróun stefnu í milliríkjavið-
skiptum. 1981-1982 var Dr. Cohen gestaprófessor við
London School of Economics. Dr. Cohen hefur haldið jQölda
fyrirlestra og námstefna um milliríkjaviðskipti, þykir
mjög góður fyrirlesari með víðtæka þekkingu á eðli milli-
ríkjaviðskipta og eru námskeið hans um þessi efni afar
vinsæl.
Tími og staður: 26. maí 1987 á Hótel Sögu kl. 12.15.
Upplýsingar og skráning í síma 62 10 66.
Stjórnunarfélag íslands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
þess að pökkun á dilkakjöti á
Hvolsvelli hefur tekist það vel að
dilkakjötssala SS hefur aukist til
muna þess vegna.
Nú er það rætt mjög ákveðið að
sútunariðnaður Sláturfélagsins
verði fluttur frá núverandi stað, sem
er í verslunarhverfi í Reykjavík, og
eitthvert austur fyrir fjall, en ekki
er ákveðið hvert."
Samkeppnin er
geysihörð
„Það er oft einblínt á það að
sunnlenskir bændur séu að byggja
verslunar- og iðnaðarhallir í
Reykjavík og reyndar að flytja alla
starfsemi félaga sinna þangað.
Reyndar er SS búið að vera með
kjötiðnað sinn í Reykjavík frá stofn-
un og verslunarrekstur þess fer
eingöngu fram í Reykjavík og á
Akranesi. Þetta er mesta markaðs-
svæði landsins og samkeppnin er
geysihörð. Við erum ekki eingöngu
í samkeppni við aðra sláturleyfís-
hafa héma fyrir austan. Það má
alveg eins tala um SÍS sem verðug-
an keppinaut sem á og rekur
kjötiðnaðarstöð í Reykjavík. Þess
vegna segi ég að viss hluti starf-
semi SS verður að vera á aðalmark-
aðssvæðinu. Nú er verið að byggja
upp dreifingarstöð á Laugarnes-
tanga í Reykjavík þar sem verður
lokavinnsla afurðanna. Sláturfélag-
ið á svo að rýma alla starfsemi sína
á Skúlagötu kringum árið 1988.
Þetta eru mikil verkefni og auð-
vitað ber nýkjömum formanni að
óttast þann vanda sem hann er allt
í einu ofurseldur en bótin er mikil
því að SS hefur verið mjög heppið
með starfsfólk. í trúnaðarstöðum
hjá félaginu eru bæði mjög reyndir
menn sem hafa unnið því alla
starfsævi sína og það segir nokkuð.
Svo sýnist mér að ungir hæfileika-
menn séu einnig komnir til starfa
hjá félaginu."
Ný starfsmannastefna
„Fastir starfsmenn SS em núna
um 600 og á uppgangstímum eins
og núna virðast vera hefur SS
ákveðið nýja tilhögun á launakerfi
sem kynnt var kringum aðalfund.
Það er svokölluð starfsmannastefna
SS sem gerir ráð fyrir því að hækka
góða starfsmenn í launum umfram
lágrnarkslaun eftir vissu kerfi.
Ég vona að þessi stefna fái góð-
an hljómgrunn og SS og starfsemi
þess uppskeri sameiginlega eins og
til var sáð og að SS njóti áfram
þess álits sem mér virðist það hafa
verið í fyrir vandaðar og eftirsóttar
vömr. Ég veit ekki hveiju er meira
að þakka slíka velgengni en góðum
starfsmönnum SS.“
Betra á vettvangi
„Nu fömm við út,“ sagði Páll.
Erindið var að sækja fyrstu lömbin
útfyrir túngarðinn í Litlu Sandvík.
Þar vom þijár ær nýbomar og áttu
að fara í hús, í skjól fyrir nepj-
unni. „Ég kann alltaf betur við mig
á vettvangi,“ sagði Páll. „Er ekki
oft sagt um menn að þegar þeir
komast í einhveijar stöður þá séu
þeir myndaðir við skrifborð? En ég
er ekki mikill skrifborðsmaður."
Það gekk vel að koma ánum í
hús með dyggri aðstoð hundsins
Rex og Páls dóttursonar nýkjörins
stjómarformanns Sláturfélags Suð-
urlands sem var myndaður á
vettvangi. Sig. Jóns
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Síðasti hluti gamla
frystihússins brenndur
Keflavfk.
FRYSTIHÚSIÐ Atlantor við
Framnesveg í Keflavik brann til
kaldra kola á mánudaginn eða
réttara sagt sá hluti byggingar-
innar sem enn stóð. Slökkviliðs-
menn töldu að kveikt hefði verið
í húsinu.
Hluti byggingarinnar brann í
mars og þá var einnig talið að
um íkveikju hefði verið að ræða.
Frystihúsið hafði staðið autt í
nokkur ár og til stóð að rifa það.
Slökkviliðið var kallað út laust
eftir klukkan þrjú og þegar að var
komið logaði mikill eldur í bygging-
unni. Ellert Eiríksson, varaslökkvi-
liðsstjóri, sem fyrstur kom á
vettvang, taldi að um íkveikju hefði
verið að ræða. Húsið fuðraði upp á
skammri stundu og hmndi fljótlega.
Engin teljandi hætta steðjaði að
nærliggjandi húsum og tók slökkvi-
liðsstarfíð um tvo tíma.
Keflavíkurbær hafði keypt Atl-
antor fyrir 4,3 milljónir og ætlaði
að rífa húsið. Beðið var eftir að
veðbönd yrðu losuð af byggingunni
svo hægt yrði að rífa hana. Eftir
eldinn í mars úrskurðaði fógeti að
sá hluti sem brann skyldi rifinn
vegna slysahættu og því stóð nú
aðeins hluti af byggingunni uppi.
Talsvert hefur verið um að ungling-
ar hafí sótt í bygginguna og telja
slökkviliðsmenn mikla mildi að þar
hafí ekki orðið slys. Þetta er í fjórða
sinn, sem slökkviliðið er kallað til
vegna elds í þessu húsi á rúmu
ári, og talið er að um íkveikju hafí
verið að ræða í öll skiptin. — BB