Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 29 Verkamanna- og Dialdsflokkur setja fram stefnuskrár London, Reuter. BRESKI íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn birtu i dag- gjörólíkar stefnuskrár, þar sem sagt er hvernig flokkarnir myndu stjórna Bretlandi, ef þeir sætu við völd eftir kosningar. íhaldsflokkurinn lofar að: Lækka tekjuskatt niður í 25 pró- sent. Utrýma verðbólgu. Halda í við eyðslu ríkis. Selja fleiri ríkisfyrirtæki og væru vatns- og rafveitan næst á dagskrá. Auka hlutabréfa- og íbúðaeign eiristaklinga. Herða innflytjendalög. Setja aukin höft á stéttarfélög. Slaka á lögum um opnunartíma vínveitingahúsa og verslun á sunnu- dögum. Gera breytingar á skólahaldi um landið allt. Koma á endurbótum í sveitar- stjómum. Halda kjamorkuáætluninni áfram. Auka fælingarmátt Breta með bandarískum Trident-kjarnorku- flaugum. Verkamannaflokkurinn lofar að: Afla einni milljón manna atvinnu innan tveggja ára Verja sex milljörðum sterlings- punda aukalega til þarfa ríkisins á tveimur ámm. Pjarlægja öll bresk kjarnorku- vopn. Semja um að bandarísk kjarn- orkuvopn á Bretlandi verði íjar- lægð. Stofna ríkisrekinn banka til fjár- festingar í iðnaði. Hækka skattlagningu á hátekju- menn og leggja skatt á fjármagn- seigendur. Ríkið taki að nýju yfir þau fyrir- tæki, sem starfa í þágu almanna- heilla. Stofna vísinda-, kvenna- og um- hverfismálaráðuneyti. Setja strangari reglur um starf- semi markaða í London. Draga úr notkun kjamorku á Bretlandi. Setja á laggirnar kjörið þing á Skotlandi. Styðja skyldubundnar viðskipta- þvinganir á hendur Suður-Afríku. V-þýskt gáma- skip kyrrsett Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. DÖNSK stjórnvöld hafa kyrrsett vestur-þýska gámaskipið Prince í Arósahöfn. Skipið strandaði fyrir nokkru á austurströnd Jótlands og láku þá um 20 tonn af olíu í sjóinn og ollu umtalsverðri meng- un. Skipstjórinn á Prince hefur neitað að taka þátt í sjóprófum vegna strandsins. Skipaskoðunin hefur enn fremur komist að raun um, að skip- stjórinn hefur ekki í höndunum nein bréf upp á, að talstöð skipsins sé í lagi, og það eitt er næg kyrrsetning- arástæða. Þar að auki hefur komið í ljós, að skilríki eins af stýrimönnun- um eru ófullnægjandi. Bandaríska flotanum fyrirskipað að verjast Bandarisk herskip á Persaflóa fengu í gær þau fyrirmæli að svara samstundis í sömu mynt ef gerð yrði á þau árás. Sovét- menn hvöttu til þess að Bandaríkjamenn kölluðu einhver herskipa sinn á svæðinu á brott. Nú er komið fram að 37 bandarískir sjó- liðar létu lífið þegar írösk herþota skaut Exocet-flugskeyti á freigátuna Stark á Persaflóa á sunnudagskvöld. Á myndinni er verið að draga Stark til hafnar í Bahrain. Saddam Hussein for- seta Iraks sendi Ronald Reagan Bandaríkjaforseta orðsendingu, þar sem hann kvaðst harma þetta atvik og vonast til að það yrði ekki til að spilla fyrir sambandi rikjanna. Sovéskir þingmenn á íslandi: Utrýming meðaldrægra eldflauga fyrsta skrefið Morgunblaðið/Sverrir Sovésku þingmennirnir á heimili sovéska sendiherrans við Tún- götu. Frá vinstri; Egor Alexandrovits Isajev, Jan Janovits Vagris, varaforseti Forsætisnefndar Æðsta ráðsins, og Roald Zinnurovits Sagdejev. ÞINGMANNAHÓPUR frá Æðsta ráði Sovétríkjanna hef- ur dvalist hér á landi frá því á sunnudag í boði sovéska sendi- herrans. Heimsókn þeirra lýkur í dag, miðvikudag, og hafa þeir notað tímann m.a. til að ræða við íslenska starfs- bræður sína um gagnkvæm viðskipti rikjanna og stöðu af- vopnunarviðræðna risaveld- anna. í gær var boðað til blaðamannafundar í bústað sovéska sendiherrans og sner- ust umræður einkum um afvopnunarviðræður risaveld- anna í Genf og þær tillögur sem Sovétstjórnin hefur lagt fram. Þingmennimir þrír, þeir Jan Janovits Vagris, varaforseti For- sætisnefndar Æðsta ráðsins, Egor Alexandrovits Isajev, fulltrúi í lagatillögunefnd Þjóðarráðsins og ritari í stjóm Rithöfundasam- bands Sovétríkjanna og Roald Zinnurovits Sagdejev, sem á sæti í Vísindaakademíunni og er for- stjóri sovésku Geimrannsóknar- stofnunarinnar, sögðu að viðræðumar við íslensku þing- mennina hefðu verið gagnlegar. Kváðu þeir íslensku þingmennina vel upplýsta og fylgjandi útrým- ingu kjarnorkuvopna. Varðandi tillögu Sovétstjómar- innar um upprætingu meðal- drægra flauga í Evrópu kváðust þeir vilja leggja áherslu á að út- rýming þeirra væri aðeins fyrsta skrefið í átt til útrýmingar allra kjamorkuvopna. Minntu þeir á mikilvægi Reykjavíkurfundar þeirra Mikhails Gorbachev Sovét- leiðtoga og Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og sögðu hann sögulegan þar eð þá hefði í fyrsta skipti verið rætt um útrýmingu allra kjarnorkuvopna. Aðspurðir um yfirburði Sovétmanna á sviði hefðbundins vígbúnaðar minntu þeir á að Varsjárbandalagsríkin hefðu lagt fram tillögu um fækk- un í hinum hefðbundna herafla risaveldanna. Sögðu þeir að vissu- lega hefðu MBFR-viðræðumar svonefndu um gagnkvæman og jafnan samdrátt heija sem hófust fyrir 13 árum ekki skilað tilætluð- um árangri en vænta mætti viðhorfsbreytingar eftir að samið hefði verið um upprætingu meðal- drægra kjamorkuflauga. . Þeir félagamir sögðu að ný skilyrði m.a. þau sem vamarmála- ráðherrar aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins hefðu sett fram á fundi sínum í Stavanger í Nor- egi torvelduðu mjög allar umræður um afvopnunarmál. Meginniðurstaða fundarins í Sta- vanger var sú að samkomulag risaveldanna þyrfti að taka til allra meðaldrægra flauga þar með talið þeirra sem staðsettar em í Asíu-hluta Sovétríkjanna. Tass- fréttastofan sovéska sagði kröfu þessa ekki vera í samræmi við niðurstöður Reykjavíkurfundar leiðtoganna. Þingmennirnir þrír sögðu að ákveðið hefði verið að einskorða viðræðurnar við Evrópu og minntu á að „núllausnin" svo- nefnda, sem Bandaríkjastjóm hefði lagt til á sínum tíma, hefði eingöngu tekið til Evrópuflaug- anna. Lögðu þeir áherslu á að jafnvægi væri viðhaldið í öðmm heimshlutum og sögðu viðbúnað Bandaríkjanna í Japan og víðar sérstakt áhyggjuefni. „Við emm hins végar tilbúnir til viðræðna um Asíuflaugamar,“ sagði Jan Janovits Vagris, varaforseti Æðsta ráðsins. Þeir félagarnir sögðu Sovét- menn fylgjast náið með viðræðum tiltekinna ríkja Vestur-Evrópu um samvinnu á sviði öryggis- og vam- armála. Kváðu þeir of snemmt að segja til um hvort slík samvinna væri af hinu góða en ljóst væri að hefði hún í för með sér fjölgun kjamorkuvopna væri hún mjög óæskileg. Nefndu þeir í þessu samhongi þann möguleika að Evr- ópuríkin kæmu sér upp eigin geimvömum. Minntu þeir í þessu samhengi á að æskilegt væri að samið yrði um fækkun kjamorku- vopna í vopnabúmm annarra ríkja en risaveldanna og nefndu kjam- orkuvígbúnað Breta og Frakka sem dæmi. Sovésku þingmennirnir sögðu að afvopnunartillögur Sovét- stjómarinnar héldust í hendur við þær breytingar sem Mikhail Gorbachev hygðist koma á í Sov- étríkjunum. Ræddu þeir um „breyttan hugsunarhátt" á stjóm- málasviðinu og minntu jafnframt á þær umbætur sem þegar hefði verið komið á svo sem fijálsar kosningar til stjómunarembætta í verksmiðjum og fleira. Formósa: Gjaldeyris- forði aldr- eimeiri Taipei, Reuter. Gjaldeyrisforði formósu hef- ur aldrei verið meiri, eða 58 milljarðar Bandaríkjadollara, og óttast landsmenn nú að verða fyrir barðinu á vemdarr stefnu Bandaríkjastjómar. Stöðug aukning hefur veri í útflutningi frá Formósu að undanfömu. Eykst gjaldeyri- svarasjóðurinn ört því hann í honum voru 57 milljarðar doll- ara 11. maí sl. og 28,8 millj- arðar fyrir ári. Talsmaður Seðlabanka Formósu sagðist eiga von á að varaforðinn yrði kominn í 60 milljarða dollara eftir mánuð. Hagnast Form- ósubúar einna mest á viðskipt- um við Bandaríkin, en þau voru hagstæð um 5 milljarða dollara fyrstu ijóra mánuði ársins. Morgunblað- inu breytt í kvennablað Briissel Belgíska dagblaðið De Morg- en, eða Morgunblaðið, birtist lesendum undir nafninu De. Madam, eða Frúin, í gær, enda höfðu fimm konur, sem eru blaðamenn við blaðið, tekið ritstjórnina í sínar hendur. Frúin fjallaði þess vegna svo til eingöngu um það sem kall- að hefur verið reynsluheimur kvenna með skrítlum og teiknimyndum í bland. Breytingin var ákveðin í einn dag vegna niðurstöðu úr rannsókn, sem leiddi í ljós að belgiskum konum finnst þær beittar ójafnrétti vegna kyn- ferðis síns. í leiðara blaðsins sagði að konur hefðu lítil áhrif í „karlaveldinu" Belgíu og mis- munun kynjanna væri daglegt brauð. Konumar skrifuðu ög ritstýrðu blaðinu sjálfar, en gáfu 36 karl-blaðamönnum frí. Blaðið verður gefið út með gamla laginu í dag. Moskvubúar andvígir geimvörnum Moskvu, Reuter. I GÆR voru birtar niðurstöður úr fyrstu skoðanakönnun, sem hið opinbera hefur staðið fyrir í Sovétríkjunum. Samkvæmt þeim eru Moskvubúar að meirihluta andvígir geim- vamaáætlun Bandaríkja- stjórnar. Samkvæmt könnuninni sögðu 67% aðspurðra að geim- varnaráætlunin væri bein ögmn við heimsfriðinn. Enn- fremur leiddi hún í ljós að 57% töldu að stórveldin myndu ná samkomulagi um að uppræta meðaldrægar kjranaflaugar. Notkun amaigams varasöm Stokkhólmi, Reuter. SÆNSKIR tannlæknar hafa varað við notkun tannfylling- arefnisins amalgam þar sem kvikasilfursambönd, sem í því eru, kunna að vera hættuleg þunguðum konum. Kvikasil- frið finni sér leið inn í blóðrás- ina og gæti þannig borist til fósturs og skaðað það.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.