Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 Julian Altman spilar á Stradivarius-fiðluna frægu fyrir eiginkonu Reuter Níu biðu bana í flugárekstri NÍU menn biðu bana í árekstri tveggja smáflugvéla skammt norður af belgísku hafnarborg- inni Antwerpen um síðustu helgi. Áreksturinn varð skömmu eftir flugtak vélanna frá flugvellinum í Antwerpen. Önnur flugvélin var af gerðinni Cessna og voru í henni fimm Belgar, fjórir fallhlífastök- kvarar og flugmaður. Hin var af gerðinni Piper Cherokee og voru í henni fjórir brezkir fall- hlífastökkvarar, sem voru á heimleið frá Antwerpen. Mynd- in sýnir brak annarrar flugvél- arinnar. EB opnar skrifstofu í Osló: Mikilvæg ákvörð- un bandalagsins - segir Gro Harlem Brundtland tilkynnti í gær. „Gro Harlem Brundtland forsæt- isráðherra fagnar þessar ákvörðun og verður hún sérstaklega mikil- vægt atriði í þeim breytingum sem gera þarf í viðskiptum aðildarríkja Evrópubandalagsins," sagði Per Paust, talsmaður utanríkisráðu- neytisins. Norðmenn óttast að áætlanir um að fjarlægja allar viðskiptahindran- ir innan bandalagsins frá og með árinu 1992 gætu spillt fyrir við- skiptum þeirra við aðildarríki þess. Því hefur að nýju hafíst umræða í Noregi um samskipti við Evrópu- bandalagið. „Hin nýja skrifstofa bandalags- ins kemur í stað sérstakrar upplýs- ingaskrifstofu, sem opna átti, og ber hún því vitni að samskipti milli Noregs og Evrópubandalagsins verða mikilvægari með hveiju ári,“ sagði Paust. Minnihlutastjórn Verkamanna- flokksins ætlar að leggja fram skýrslu á þinginu á föstudag og verður þar hvatt til þess að Norð- menn móti stefnu í viðskiptum við Evrópubandalagsríki. Aftur á móti hefur komið skýrt fram að Norðmenn hyggjast ekki sækja um aðild að bandalaginu, nema að ljóst sé að meirihluti kjós- enda styðji slíkt. Árið 1972 höfnuðu Norðmenn aðild að Evrópubanda- laginu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Flóðí Colorado Hank Battjes frá Parker í Colorado veltir því hér fyrír sér hvað hann eigi að grípa til bragðs til að ná sendi- ferðabíl sínum upp úr mjaðmadjúpum vatnselg á bílastæði við vörumarkað rétt hjá Denver. Gríðarlegar rigningar og hvassviðri hleyptu þessum flóðum í Colorado af stað. Reuter Osló, Reuter. NORÐMENN hafa fagnað áætl- unum Evrópubandalagsins um að opna skrifstofu i Osló til að efla böndin milli Noregs og tólf aðildarríkja bandalagsins, að því er norska utanríkisráðuneytið Canberra, Reuter. YFIRVÖLD í Ástralíu létu í gær loka sendiráðsskrifstofu Líbýu- stjórnar í Canberra og skipuðu starfsmönnum hennar að hverfa úr landi. Bob Hawke, forsætis- ráðherra Ástralíu, sagði á frétta- mannafundi að ákvörðun þessi hefði verið tekin sökum þess að Líbýusljórn „raskaði stöðug- leika“ á Suður-Kyrrahafi. Hawke sagði Líbýustjóm hafa annast þjálfun vopnaðra andófs- manna í Nýju Kaledóníu og víðar og gat þess einnig að Líbýumenn hefðu einnig reynt að skapa óróa í Ástralíu án þess þó að neftia dæmi máli sínu til stuðnings. Að sögn ónafngreindra embættismanna var forsætisráðherrann með þessum ummælum að vísa til stuðnings Líbýustjórnar við hina ýmsu öfga- hópa. „Umsvif Líbýustjómar hafa aukist verulega á þessu ári,“ sagði Hawke. „Hryðjuverkastarfsemi Líbýumanna víða um heim gefur tilefni til þess að líta þessa þróun alvarlegum augum," bætti hann við. Minnti hann einnig á að Gadd- afi Líbýuleiðtogi hefði hvatt íbúa Suður-Kyrrahafseyja til þess að sameinast um að bylta stjómvöldum þar. David Lange, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, kvaðst í gær hafa fengið fregnir af ákvörðun ást- rölsku ríkisstjómarinnar en bætti við að stjóm sín hygðist ekki fylgja fordæmi hennar og slíta öllum sam- skiptum við Líbýu. Að sögn talsmanns ástralska ut- anríkisráðuneytisins starfa tveir menn við sendiráðsskrifstofuna í Canberra. Ástralíustjóm hefur ekki sendiherra í Trípólí og fara öll sam- skipti við Líbýu fram í gegnum sendiráðið í Róm. Bob Hawke hefur þráfaldlega vakið athygli á auknum ítökum Líbýumanna í ríkjum Suður-Kyrra- hafs. í síðasta mánuði sagði hann hins vegar að ekkert benti til þess að sendiráðsmennimir í Canberra brugguðu launráð gegn yfirvöldum þar. Á síðasta ári ákvað stjóm Gaddafis Líbýuleiðtoga að taka upp stómmálasamband við yfirvöld á eyjunni Vanuatu. Á undanfömum mánuðum hafa nokkrir fylgismenn stjómarflokksins á Vanuatu fengið þjálfun í meðferð vopna í Líbýu. Þá hafa andstæðingar stjómvalda á nokkrum Kyrrahafseyjum þegið heimboð Líbýustjómar sem og leið- togar verkalýðsfélaga. Fyrr í þessum mánuði komu þeir David Lange og Bill Hayden, utanríkisráð- herra Ástralíu, saman til fundar til að ræða aukin umsvif og ítök Líbýu- manna á þessum slóðum. Stradivarius-fiðla sem stolið var fyrir fimmtíu árum kemur í leitirnar Huberts H. Humphreys, Muriel. Myndin var tekin snemma á sjö- unda áratugnum. Bethel, Connecticut. The New York Times. ÞEGAR Julian Altman, fiðlu- leikari og ævintýramaður, lá banaleguna á bæjarspítalanum í Torrington í Connecticut 1985, sagði hann eitt sinn við eiginkonu sína, Marcelle Hall, að hann þyrfti að gera játn- ingu: „Ég bið þig að sjá um fiðluna fyrir mig; hún er mikill kjörgripur.“ Þegar frúin kom heim og fletti fóðrinu innan úr fiðlutöskunni að fyrirsögn bónda síns, fann hún blaðaúr- klippur, þar sem gat að líta frásagnir af Stradivarius-fiðlu, sem stolið hafði verið í búnings- berbergi í Carnegie Hall árið 1936. Hún skildi strax, hvað klukkan sló, og leit ekki af gripnum eftir þetta, fyrr en hann var kominn í hendur eig- andans. Samkvæmt frásögn frúarinnar sagðist Julian Altman hafa keypt fiðluna fyrir 100 dollara árið 1936 - eflaust af þeim, sem stal henni í Camegie Hall. Hann hafði verið að spila á veitingahúsinu Russian Bear í New York I febrúar þetta ár, þegar kunningi hans kom með fiðluna undir frakkanum og bauð honum til kaups. Hann sló til, keypti gersemina og spilaði síðan á hana í hálfa öld. Hljóðfærið, sem smíðað var árið 1713, hafði verið í eigu pólsks fiðlusnillings og kennara, Bron- islaw Hubermans, frá því í byrjun þessarar aldar, og greiddi Llo- yd’s-tryggingarfélagið honum 30.000 dollara í skaðabætur. Ha- rold M. Foster, lögfræðingur og frændi frúarinnar, sagðist hafa hjálpað henni að komast í sam- band við tryggingaraðilann, eftir að Altman lést í ágúst 1985. „Llo- ydá er að sjálfsögðu réttur eigandi fiðlunnar," sagði hann. Að sögn frú Hall var eigin- maður hennar hálfgerður skúrk- ur, kvennaflagari og fjárhættu- spilari, en vann lengstum fyrir sér með því að spila á veitingahúsum og við ýmiss konar tækifæri. Frú Hall sá hann fyrst á veit- ingahúsi f Washington 1968. „Hann spilaði eins og engill," sagði hún. „Og þetta varð ást við fyrstu sýn - ég varð gersamlega heilluð af honurn." Ástarsam- bandið stóð, meðan bæði lifðu, en var oft æði stormasamt. Þau gift- ust ekki fyrr en í mars 1985. Charles Beare, sem tók við fiðl- unni fyrir hönd Lloyd’s, sagði, að til stæði að snurfunsa gripinn og efna síðan til sýningar á honum í Cremona á Ítalíu í sumar í til- efni af 250. ártíð Antonio Stradi- vari, fiðlusmiðsins fræga. Fiðlan hefur nú verið tryggð á nýjan leik — fyrir 800.000 doll- ara, en söluverðmætið getur verið allt að ein milljón dollara, að sögn sérfræðinga. Lloyd’s mun greiða frú Hall ótilgreinda upphæð að launum fyrir framlag sitt. „Það sem mér er dýrmætast er að hafa dregið þessa gersemi fram í dags- Ijósið að nýju,“ sagði hún. Hún sagðist ekki vera ýkja hrif- in af öllu, sem hún hefði orðið að segja frá. „En allt er gott, sem endar vel,“ sagði hún, „og svo fór einnig nú.“ Astralía: Líbýskum sendiráðs- mönnum vísað úr landi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.