Morgunblaðið - 20.05.1987, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
35
Kynning á starf-
semi meinatækna
KYNNING var haldin á störfum
meinatækna síðastliðinn föstu-
dag og laugardag í húsi lækna-
deiidar HÍ í tilefni af 20 ára
afmæli Meinatæknafélags ís-
lands.
Meinatæknar starfa á rann-
sóknastofum heilbrigðisstofnana, í
blóðbönkum og víðar. Mikil þróun
hefur orðið í meinarannsóknum á
undanförnum árum. Aður fyrr voru
fáar rannsóknir gerðar og fólust
þær aðallega í smásjárskoðun og
einfaldri efnagreiningu. Þróun í
aðferðafræði og tækjabúnaði hefur
leitt til fjölgunar rannsókna sem
jafnframt hafa orðið nákvæmari og
markvissari, segir í kynningarbækl-
ingi frá félaginu.
Meinarannsóknir skiptast í nokk-
ur svið, sem eru: sýklafræði,
veirufræði, ónæmisfræði, blóð-
bankafræði, meinefnafræði, blóð-
meinafræði, lífeðlisfræði, ísótópar-
annsóknir, líffærameinafræði,
rafeindasmásjárranssóknir, frumu-
fræði, litningarannsóknir.
í Meinatæknifélagi íslands eru
360 félagsmenn og eru í hinar
ýmsu nefndir starfandi innan þess.
Má þar nefna fræðslunefnd, endur-
menntunamefnd, kennslunefnd,
kjaranefnd, öryggismálanefnd,
skemmtinefnd og ritnefnd. Ari eftir
stofnun félagsins gerðist það aðili
að Samtökum norrænna meina-
tækna. Norræn þing eru haldin
annað hvert ár og hafa tvö þing
verið haldin á íslandi, árin 1973
og 1983. Árið 1970 gerðist MTÍ
aðili að Alþjóðasamtökum meina-
tækna og eru alþjóðleg þing haldin
annað hvert ár. Síðasta þing var
haldið í Svíþjóð 1986, með sam-
vinnu Norðurlandanna. Næsta þing
verður í Japan 1988.
Menntun meinatækna fer fram
við heilbrigðisdeild Tækniskóla ís-
lands. Inngönguskilyrði er stúd-
entspróf. Námið er á háskólastigi
og tekur þijú og hálft námsár, eða
sjö annir.
Morgunblaðið/Sverrir
Frá sýningu Meinatæknifélags íslands í húsi læknadeildar HÍ
Morgunblaðið/Sverrir
Nýútskrifaðir leikarar frá Leiklistarskóla íslands. í miðjunni er Helga Hjörvar skólastjóri.
Leiklistarskóla íslands slitið:
Veitt viðurkenning fyrir góð-
an f lutning á íslensku máli
- í minningu Lár-
usar Pálssonar
TÓLFTA starfsári Leiklistar-
skóla íslands lauk formlega
síðastliðinn laugardag er skólan-
um var slitið í nýju húsnæði
skólans við Sölvhólsgötu 13. Átta
nemendur voru útskrifaðir úr
venjulegu leiklistarnámi og einn
frá framhalds- og endurmennt-
unardeild.
Halldóri Bjömssyni var veitt var
viðurkenning fyrir góðan fiutning
íslensks máls, en viðurkenning þessi
er í minningu Lámsar Pálssonar
leikara, og er þetta í fyrsta skipti
sem hún er veitt. Meðal viðstaddra
við skólaslitin vom forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra og
svo afmælisárgangar úr gömlu leik-
Meðal viðstaddra við skólaslit Leiklistarskólans voru forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir og Sverrir Hermannsson, menntamálarðherra.
listarskólum Þjóðleikshússins og Leiklistarskóla íslands er Helga
Leikfélags Reykjavíkur. Skólastjóri Hjörvar.
TOUCHSTONEPICTURES p.eseiuiumi.tion.1 SILVERSCREENPARTNERSII a» INTERSCOPE COMMUNICATIONS PRODUCTION
BETTE MIDLER SHELLEYLONG an ARTHUR HILLER FILM “OUTRAGEOUSFORTUNE" PETER COYOTE anp GEORGECARLIN
Co Piodicedbp PETERV. HERALD SCOTTKROOPF MARTINMICKELSON .„iieno, LESLIEDIXON
p,odUcedb, TEDFIELD ROBERTW CORT o„ectedb, ARTHURHILLER
IENSISANDPAÍAFlfX® CAMiRA B, PANAVISION® Coloi b, Dí LUXi® Distilbuted b, BUENAVISIA DISTIilBUIION COINC UUi
©1981IouctalonePictiiies
H S£L£CTTD TMEATRES
EVRÓPUFRUMSÝNING
„MEÐTVÆR í TAKINU“
Hér kemur hin sannkallaða grínmynd sumars-
ins Outrageous Fortune sem gerði svo
sannarlega lukku í Bandaríkjunum og er nú
orðin best sótta grínmyndin þar 1987.
Island er annað landið í röðinni til að frumsýna
þessa frábæru grínmynd.
Aðalhlutverk: Bette Midler, Shelley Long,
Peter Couort, Robert Prosky.
Leikstjóri: Arthur Hiller.
Sýnd kl. 9 og 11.
A th! í tilefni opnunar Bíóborgarinnar eru
sýningar í dag aðeins ki. 9 og 11.