Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987
37
„Ætli Indland sé ekki kjör-
ið fyrir forvitna og fróð-
leiksfúsa íslendinga“
Spjallað við Krishna
Batra, forstjóra Rík
isferðaskrifstofu Ind-
lands á Norðurlöndum.
„Á síðustu árum hafa Indverjar
í auknum mæli reynt að laða til
sín erlenda ferðamenn og segja
má, að ferðamenn geti komið til
landsins á hvaða árstíma sem er.
Veg^na stærðar er alltaf þægilegt
veður á einhverjum svæðum í
Iandinu. Á sumrin er til dæmis
fátt sem jafnast á við Kashmir.
Og reyndin hefur orðið sú, að
meðaldvalartími er 26 dagar og
fólk sækir Indland heim oftar
en einu sinni. Enda komið inn í
framandlegan heim, myndi ég
leyfa mér að segja. Heim, sem
ég held að ferðamenn þurfi þurfi
nokkurn tíma til að meðtaka."
Þannig komst Krishna Batra,
forstjóri Indversku ríkisferðaskrif-
stofunnar að orði. Hann var í
Reykjavík í síðustu viku og ræddi
við ýmsa forsvarsmenn í ferðamál-
um hér. Hann sagði, að ekkert hefði
verið afráðið að svo stöddu, en hann
teldi að áhugi væri á að athuga
málið af fyllstu alvöru. Honum
væri kunnugt um, að í undirbúningi
væri a.m.k. ein ferð til Indlands í
ár. Vonandi yrði ekki látið staðar
numið og hann mundi leggja sig
fram til að um frekara samstarf
yrði að ræða. „Ég er ekki í neinum
vafa um, að íslendingar njóta þess
að koma til Indlands. Þeir hafa
augsýnilega unun af ferðalögum og
mér finnst þeir koma manni þannig
Ljósmynd Mbl.KGA
Krishna Batra forstjóri.
fyrir að þeir séu líka fróðleiksfúsir
og forvitnir ferðalangar. Indland
hefur upp á svo ótrúlega fjölbreytni
að bjóða, að fáu er líkt, leyfi ég
mér að segja.
Indland er að vísu eitt land, en
það skiptist niður í ríki og segja
má að hvert ríki beri sín sérkenni,
hvort sem er í hefðum, menningu
og erfðum. Indland er eins og Evr-
ópa öll, alls staðar eitthvað nýtt að
sjá, en jafnframt ólíkt því sem var
handan landamæra. Og samt eru
ákveðið svipmót með Evrópulönd-
um öllum, sem við skynjum - sem
utan hennar erum ættuð," sagði
Batra.
„Ég staðhæfí hiklaust, að Ind-
land bjóði upp á stórkostlegri
fjölbreytni í landslagi, dýra og jur-
talífí, mannlífí, svo að nokkuð sé
nefnt, en flest önnur svæði í heimin-
um,“ sagði Batras. „Og svo er alls
staðar eitthvað um að vera, trúar-
hátíðir, menningarviðburðir, alls
konar uppákomur og sýningar. Ég
verð að segja, að mér finnst víða
gæta nokkurs ókunnugleika á ind-
verskum málum. Það er í sjálfu sér
eðlilegt, enda landið stórt. Nánast
eins og heil álfa. En heimurinn
minnkar stöðugt, það eru engin ný
sannindi, en góð og gild. Og við
höfum mikið gagn og gaman af að
kynnast framandi þjóðum. íslend-
ingar leggja vonandi í auknum
mæli leið sína til Indlands."
Krishna Batra hefur aðsetur í
Stokkhólmi og hefur unnið hjá
Ríkisferðaskrifstofunni í fjölda ára,
en verið búsettur í Stokkhólmi í
hálft annað ár. Hann sagði, að á
síðasta ári hefði ferðamannafjöldi
til Indlands losað eina milljón og
fyrirsjáanleg væri umtalsverð aukn-
ing. Af skiljanlegum ástæðum
koma flestir ferðamanna frá Bret-
landi. Þar næst eru Bandaríkja-
menn, Þjóðveijar og Frakkar.
Norðurlandabúar eru nú famir að
bætast við.
Batra sagði, að flestir ferðamenn
ferðuðust um. En margir notuðu
svo nokkra daga til að á strönd-
inni. Indland byði upp á 6000
kílómetra strandlengju. Einna
þekktast væri Goa svæðið, vestan-
megin, en strendur austanmegin
væru ekki síðri.
Krishna Batra lýsti síðan ánægju
sinni með þá fundi, sem hann hefði
átt með ferðafrömuðum og sagðist
vonast til að geta skoðað sig eilítið
um í næsta skipti.
r
NÝI TÍMINN..
Klukka í Pýramída
143 manns í
Félagi
bókasafns-
fræðinga
AÐALFUNDUR Félags bóka-
safnsfræðinga var haldinn þann
29. apríl sl. Stjóm félagsins skipa
nú: Karítas Kvaran formaður,
Ólöf Benediktsdóttir varafor-
maður, Súsanna Flygenring
gjaldkeri, Dóra Thoroddsen rit-
ari, Þóra Gylfadóttir og Nína B.
Svavarsdóttir meðstjómendur.
Fráfarandi formaður, Þórdís T.
Þórarinsdóttir, lagði fram skýrslu
stjómar fyrir síðasta starfsár. Þar
kom fram að 20 bókasafnsfræðing-
ar gengu í félagið á árinu og em
þeir nú 143. Að frumkvæði félags-
ins var í samvinnu við fleiri aðila
haldin námsstefna um tölvunotkun
á bókasöfnum í maí 1986. Tvö end-
urmenntunamámskeið vom haldin
á vegum félagsins í samvinnu við
Tölvufræðsluna sf. um notkun
smátölva og tölvuforrita á bóka-
söfnum. Fráfarandi stjóm skipu-
lagði einnig námskeið um
notendafræðslu á bókasöfnum, sem
haldið var dagana 4.-7. maí sl.
Kennari á námskeiðinu var Nancy
Fjállbrant bókasafnsfræðingur við
Chalmers teknologiska universitet
í Gautaborg. Tveir hádegisverðar-
fundir vom haldnir á vegum félags-
ins og félagsmenn, sem nýlega
höfðu sótt fundi eða ráðstefnur er-
lendis, fengnir til þess að greina frá
þeim. Félagið gekkst fyrir útgáfu
kynningarbæklings um nám og
störf bókasafnsfræðinga og verður
honum dreift til allra félagsmanna
FB og víðar. Fjölmargir fundir um
kjaramál vom haldnir á árinu. 53
félagsmenn FB sem em ríkisstarfs-
menn fóm í verkfall dagana 2.-11.
apríl síðastliðinn, og var það í fyrsta
sinn sem bókasafnsfræðingar fara
í verkfall.
af Peugeot 205
Bílar tilafgreiöslu strax
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
ÞORHILDUR/SÍA
(Fréttatilkynning)