Morgunblaðið - 20.05.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAI 1987
45
Kápumynd
Þegar til-
finning-
arnar
verða úti
Erlendar bækur
GuÖni Kjartansson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu:
„Kmfturinn
kemurekki
afsjálfiisér
Mn ndu ettir ni] ól kínm
Menn verða ekki afreksmenn í íþróttum núoröiö án alhliöa undirbúnings.
Guðni Kjartansson, leikmaður og þjálfari í knattspyrnu leggur ríka áherslu á, að
einn liöurinn í undirbúningi knattspymumanna, sem annarra íþróttamanna, sé
að borða rétta fæðu, til þess aö líkaminn fái þann kraft og snerpu sem
nauðsynleg er.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ted Allbeury: Children of Tend-
er Years
Útg. Hodder& Stoughton 1986.
TED Alibeury á sjálfsagt drjúgan
lesendahóp hérlendis, enda eru
bækur hans í hæsta gæðaflokki-
eins og það heitir á ferðaskrifstofu-
máli- afþreyingabóka. Hann hefur
raunar skrifað meira en spennusög-
ur og leikur þar við hvem sinn
fíngur líka.
Children of the Tender Years
segir frá Jakobi Malik, hann vinnur
hjá brezku leyniþjónustunni og er
sendur til Þýzkalands til að kanna,
hversu mikil alvara geti legið að
baki aðgerðum sem benda til að
andúð á gyðingum og jafnvel of-
sóknir séu að hefjast á ný í landinu.
Malik á sjálfur þungbærar minning-
ar úr stríðinu og var með móður
sinni í fangabúðum árum saman.
Hann tekur verkið að sér, sam-
verkamaður hans í Þýzkalandi er
Heinz Fischer, vinalegur Þjóðveiji,
slyngur og vænn. Samstarf þeirra
virðist ganga ágætlega til að byija
með.
Jakob Malik kynnist fjölskyldu
Heinz.sem tekur honum vel og
smátt og smátt takast ástir með
Lisu Fischer og Jakob. Það verk-
efni, sem þeir Jakob og Heinz em
að glíma við verður æ óskiljanlegra
og óhugnarlegra. Slóðin liggur tii
ísraels og þaðan á ný til Þýzka-
lands.. Jakob kannar samvizkusam-
lega hvemig í málum liggur og það
er greinilegt, að það þarf að taka
skjótar og heldur óhuggulegar
ákvarðanir, þegar málið er tekið
að skýrast. Blasir ella við önnur
helför?
Þetta er sem sagt ótvíræð
spennubók, með vel gerðri atburða-
rás og aldrei of mglingslegri. En
samt held ég að athyglin hljóti fyrst
og fremst að beinast að þeirri per-
sónu Jakobs Malik, sem höfundur
skapar og er býsna athygliverð og
skelfiieg í senn.
Kannski maðurinn sleppi aldrei
frá fortíð sinni, að ekki sé nú talað
um uppruna. Að minnsta kosti varla
ef maður er gyðingur sem verður
hrifínn af þýzkri stúlku. Slíkt getur
ekki blessast. Ekki vegna þess, að
hún sé ekki öll af vilja gerð, heldur
er persóna Maliks slík, að smátt
og smátt mun hann fara að hata
hana og sjá í henni persónugerving
allra þjáninga gyðinga. Sjálfur er
hann gaddfrosinn, tilfínningalega
og það er sem sagt rakið til bems-
kunnar. Ekki á þann hátt að það
verði fráleitislegt. Niðurstaða Allbe-
urys er í hvívetna sannfærandi. En
nöturleg. Þvi verður ekki neitað.
Mjólkin er ómissandi uppistaða í daglegri fæðu þeirra, sem
hugsa um uppbyggingu líkamans. Fáar fæðutegundir eru eins ríkar af
bætiefnum og mjólk.
Nær vonlaust er t.d. fyrir okkur aö tryggja líkamanum nægilegt kalk án
mjólkurmatar og kalk veröur líkaminn að fá til vaxtar og viðhalds beina og
tanna. Auk kalksins sér mjólkin líkamanum fyrir mikilvægum próteinum,
B-vítamínum, A-vítamíni, kalíum, magníum, zinki o.fl. bætiefnum sem eru
nauðsynleg fýrir heilbrigði okkar.
Þess vegna er mikilvægt að mjólk og mjólkurvörur séu hluti af
hverri máltíð.
Börn og unglingar ættu aö nota allan
mjólkurmat eftir því sem smekkur þeirra
býöur.
Fullorðnir ættu á hinn bóginn aö halda sig við
fituminni mjólkurmat, raunar við magra fæöu
yfirleitt. 2 mjólkurglös á dag eru hæfilegur
lágmarksskammturævilangt. Munduað
hugtakiö mjólk næryfir léttmjólk,
undanrennu og nýmjólk.
Pétur Pétursson, landsliðsmaður í
knattspyrnu drekkur mikla mjólk og
leysir þar með stóran hluta af
bætiefnaþörfinní enda krefst iþrótt
hans mikillar snerpu, þreks og sterkra
tauga.
5
Mjólk fyrir alla
eftir dr. Jón Óttar Ftagnarsson
* (Með mjólk er átt viö nýmjólk, léttmjólk og undanrennu).