Morgunblaðið - 20.05.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987
47
Rödd úr hópi eldri borgara II:
„Þolinmæðin þraut-
ir vinnur allar“
eftir Guðjón B.
Baldvinsson
Er víst að þetta máltæki sé alltaf
raunverulegt? Hvað um þá hijáðu
þegna samfélagsins, sem bíða eftir
umhyggju og vænta réttlætis?
Þolinmóðir hlustuðu t.d. öryrkjar
og eldri borgarar á orðræður at-
kvæðaleitenda fyrir síðustu sveitar-
stjómakosningar og þolinmóðir bíða
þeir enn eftir efndum á hástemdum
loforðum.
Ýmsir hópar þjóðfélagsþegna telja
sig afskipta í þjóðfélaginu. Fyrir
nýafstaðnar kosningar til Alþingis
höfðu öryrkjar uppburði til þess að
vekja athygli á sínum sérmálum, og
var það ekki ástæðulaust. Þolinmæði
þeirra er á þrotum vegna ýmissa
vanefnda á loforðum og því miður
einnig á gildandi lögum.
Konur sýndu þann manndóm að
leita eftir atkvæðum til áhrifa á lög-
gjafarsamkundu okkar. En hvað um
eldri borgara? Hvað gerðu þeir? Leit-
uðu athvarfs í skjóli og bóli ýmissa
samtaka hér í höfuðborginni. Stund-
argaman við spil og kaffineyslu.
Vissulega þakkarvert og ber hæst
starfsemi félagsmálastofnunar borg-
arinnar. Víst skulum við meta að
verðleikum starf safnaðanna í þessa
átt, og ekki skulum við leggja niður
viðleitni okkar eigin samtaka.
En með þolinmæði bíðum við enn
framtaks til lausnar á vandamálum,
sem þessi hluti borgara býr enn við,
á enn við að glíma og stundum er
tæpt á af góðum huga, meðan at-
kvæði við kosningar eru ógreidd og
ótalin.
BERGÞÓRA Árnadóttir heldur
vortónleika sína í veitingahús-
Leiðrétting
Misskilningur varð í inngangi að
grein í Morgunblaðinu í gær þar sem
skýrt var frá ritdómum um doktors-
ritgerð séra Jakobs Jónssonar. Sagt
var að ritgerðin hefði nýlega komið
út á þýsku, en um var að ræða endur-
útgáfu á ensku, en ritgerðin er í
ritröð, sem fylgir tímariti með þýsku
nafni. Ritgerðin er samin á ensku.
Þá varð misritun í þremur nöfnum.
E.J. Brill var nefndur Britt og misrit-
un varð í nafni Krister Stendahl. Þá
misritaðist einnig nafn H.J. Klimkeit
prófessors.
Lesendur eru beðnir velvirðingar
á þessu.
Guðjón B. Baldvinsson
„Sennilega er enginn
svo skyni skroppinn að
hann viti ekki — eða
finni ekki — að ellimóð-
um er öryggið fyrir
mestu.“
••
Oryggi aldraðra —
húsnæði eignalausra
Sennilega er enginn svo skyni
skroppinn að hann viti ekki — eða
finni ekki — að ellimóðum er örygg-
ið fyrir bestu. Enn lifa ýmsir, sem
inu Hollywood fimmtudaginn
21. maí nk. en Bergþóra er nú
að vinna að nýrri hljómplötu
sem verður tekin upp viku síðar.
Á tónleikunum fær Bergþóra
aðstoð tíu hljóðfæraleikara og má
þar nefna Pálma Gunnarsson,
Tryggva Hiibnér, Eyjólf Kristjáns-
son, Sigurð Reynisson, Hjört
Howser og Abdou Dhour.
Á þessum tónleikum verður
stiklað á stóru í tónlistarferli Berg-
þóru, en mikill hluti laganna verður
þó nýr, með textum hennar.
Húsið opnar kl. 21.00 ogtónleik-
arnir hefjast um kl. 22i00.
virðast ekki vilja sjá, að samhjálp
þarf til að bægja kvíðanum frá öldn-
um foreldrum, fátækum náunga,
heilsutæpum, útslitnum og úrræða-
litlum, í hörðu samkeppnisþjóðfélagi.
Leiguhúsnæði sem þessir einstakl-
ingar búa í er vitanlega misjafnt að
gæðum, en það er áreiðanlega ekk-
ert úrval leiguíbúða. Rætt er talsvert
um íbúðabyggingar, en mest ber á
því að það séu söluíbúðir, sem ætl-
ast er til að aldraðir kaupi. Eigi
skal vanmeta framtakið, en því mið-
ur blandast það ærið oft hagsmuna-
von framkvæmdaaðila. Spurningin
er: Hvenær hefst bygging sérhan-
naðra leiguíbúða, verndaðra íbúða,
sem aldnir ættu að forgang að til
leigu eða kaups — eftir atvikum og
úrræðum aðila? íbúðir, sem leigjand-
inn yrði ekki hrakinn úr meðan
heilsa hans leyfir honum að búa
heima.
Það er ekki nóg að gaspra um
hagkvæmni þess fyrir samfélagið
að eldri kynslóðir geti sem lengst
„búið heima hjá sér“. Taka þarf til
hendinni og hlutast til um af mynd-
arskap, að þeir eigi þess kost. Bent
hefur verið á leiðir til þess að fram-
kvæma þetta. En hvenær — já
hvenær — munu trúnaðarmenn okk-
ar í borgarstjóm og á löggjafarþingi
taka tillögur okkar alvarlega — eða
smíða aðrar — og hefjast handa um
framkvæmdir? Þolinmæði okkar má
ekki verða ævarandi í þessu máli.
Höfundur er rítari Öldrunarráðs
Islands.
Bergþóra Arnadóttir
með tónleika í Hollywood
Verslun til sölu
sem er í nýrri verslunarmiðstöð í Breiðholti og
verslar með snyrtivörur, skartgripi og fatnað.
Hagstætt verð. Lítill lager.
Upplýsingar í síma 79061, heimasimi 12927.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-bréfaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaöri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá þér á þeim hraöa sem þór hentar. Nú stundá rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini i lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í flugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll á ensku.
□ Tölvuforritun □ Almenntnám
□ Ratvirkjun □ Bitvólavirkjun
□ Ritstörf □ Nytjalist
□ Bókhald □ Stjórnun
□ Vélvirkjun fyrirtækja
□ Garöyrkja
□ Kjólasaumur
Nafn:.......................................................
Heímilisfang:................................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
STÓR „
BINGO
á fimmtudaginn
6 vinningar
3ja vikna ferðir til Costa del Sol
Skemmtiatriði:
Jóhannes Kristjánsson verður með eftirhermur.
DANS. hljómsveit Andra Backmann leikur.
Á HÓTEL SÖGU
Aðgangseynr Kr. 400/ geymum ávlsanir
BORGARA
FLOKKURim
-flokkur meðframtíð
□ Innanhús-
arkitektúr
□ Stjórnun hótela
og veitingastaða
□ Blaóamennska
□ Kælitækni og
loftræsting
í
Þú ættir aö slást í hóp þeirra öruggu
og vera viss um aö komast
á leiðarenda.
■©
OPEL
CORSA
Þaö er ekki að ástæöulausu
aö OPEL CORSA er nú einn söluhæsti
og vinsælasti bíll Evrópu
jafnt meöal einstaklinga sem bílaleiga.
Þeirvita
aö þaö má treysta á OPEL CORSA
þótt hann vökni, þótt hann snjói,
þótt hann frysti.
■©-I GM
mumri
v/oiHnrnPQAi BÍLVANGURsf
veiau CUKoA! HÖFÐABAKKAÐ SÍMI 687BOO