Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 20.05.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987 59 ■ VELVAKANDI SVARAR ( SÍMA 1891100 KL. 13-14 I FRÁ MÁNUDEGI iTIL FÖSTUDAGS Hver á að byggja upp og reka þjónustu við ferðamenn í óbyggðum? - hugleiðing vegna skrifa Víkverja um ferðamál 28. apríl sl. Til Velvakanda. Víkveiji vekur máls á því í dálk- um sínum í Morgunblaðinu 28. apríl sl. að auka beri merkingar á ferða- mannaleiðum til að auka öryggi ferðamanna og forða því að níðst sé á náttúrunni að ástæðulausu. Til hamingju með þessa niðurstöðu, Víkvetji góður. Þú hefur áður skrif- að um ferðamál og segir í pistli þínum 28. apríl sl., að þú hafír lent í ritdeilum vegna skoðana þinna á hlut hins opinbera í ferðamálum. Þetta er nú ekki alls kostar rétt, því að sennilega átt þú við pistilinn þegar þú lýstir yfír andstöðu þinni við að ferðaþjónustan væri ríkisrek- in eins og þú kallaðir það, þ.e. að Ferðamálaráði væri ætlaður hluti af rekstrarhagnaði Fríhafnarinnar í Keflavík (en svo er fyrir mælt í lögum um ferðamál). Eftir þessa yfírlýsingu þína sendi lesandi Morgunblaðsins þér eina litla spurningu, án þess að taka afstöðu til hvort Fríhafnarfram- lagið ætti rétt á sér eða ekki. Spumingin var á þá leið hver ætti að þínu mati að byggja upp og reka óarðbæra þjónustu við ferðamenn í óbyggðum (eins og t.d. að leggja Hart vegið að okkar lagi í Söngva- keppninni Kæri Velvakandi. Ástæðan fyrir bréfí þessu er sú að mér og nokkrum öðrum fannst hart vegið að okkar lagi í Júró- visjón. Okkar lag sem var langbest fyrir kannski utan Israel (sem var besta Júrólagið síðan keppnin byij- aði) fékk ekki nema 28 stig en átti skilið 4 sinnum fleiri stig. Það sem ég tel hneyksli er að Þjóðverjar (sem gáfu okkur 10 stig) hafi stolið lagi sínu, Las die sonne in dein herz. Ég heyrði ekki betur en lagið „Ég vildi ég væri varalitur þinn“ væri sungið af Þjóðveijum. Að lokum viljum við þakka sjón- varpinu fyrir Mike Hammer-þætt- ina sem eru örugglega bestu gamanþættir sem sjónvarpið hefur sýnt. 2069-4718 göngustíga og koma upp hreinlæt- isaðstöðu). Skv. ferðamálalögunum eru Ferðamálaráði falin þessi verk- efni ásamt landkynningu erlendis, en svo vill til að vegna peningaleys- is hefur nær öllu ráðstöfunarfé ráðsins verið varið til landkynning- ar, en framkvæmdir innanlands hafa setið á hakanum. Þess vegna vaknaði sú spuming hjá lesanda sem las pistilinn þinn sl. haust: Hver(jir) geta hugsanlega komið inn í myndina til að framkvæma þau fjölmörgu verkefni sem bíða úrlausnar á ferðamannastöðunum í óbyggðum? Þessari spurningu var varpað til þín, Víkveiji góður, en þú vékst þér undan því að svara spumingunni, nema þá í pistli þfnum 28. apríl sl. Þá stingur þú upp á því að Vegagerðin auki merk- ingar. Ég óska þér til hamingju með þessa niðurstöðu og vildi mega setja þér fyrir smá heimaverkefni þar til þú sendir frá þér næsta pistil: Hver ætti að þínum dómi að 1) setja upp viðvörunarskilti á hverasvæðum, 2) merkja gönguleiðir á ferðamanna- stöðum, 3) rækta upp moldarsvæðin sem myndast hafa á fjölfömustu ferðamannastöðunum, 4) koma upp og halda við hreinlætisaðstöðu í óbyggðum (svo ferðamennimir þurfí ekki lengur að skríða ofan í skurðina meðfram þjóðvegunum eða leita undir moldarbörðin)? Svona mætti lengi telja, því að verk- efnin era nóg. Til að koma í veg fyrir misskiln- ing vil ég taka fram að ég er hvorki að mæla með né móti ríkisforsjá í ferðaþjónustunni, heldur er hér að- eins verið að leita til þín Víkveiji góður, sem hefur lýst ákveðinni skoðun þinni á skipulagi ferðamála og vekja athygli á fjölmörgum verk- efnum sem bíða úrlausnar, verkefn- um sem landslög hafa lagt á herðar Ferðamálaráðs en því síðan gert ókleift að sinna með því að bijóta þau sömu landslög ár eftir ár. (Það er samt ekki úr vegi að vekja at- hygli á því að skiptar skoðanir era um það hvort skoða beri Fríhafnar- framlagið sem ríkisstyrk eða hluta af hagnaði sem ferðaþjónustan sjálf gefur af sér.) En gaman væri, Víkveiji góður, að heyra svör þín við ofangreindum spuraingum, þú sem hefur svo ákveðnar skoðanir á skipulagi ferðamála hér á landi. Nú fer sá tími í hönd þegar reiðhjólin eru tekin fram. Yfirfarið hjólin með börnum ykkar og sjáið um að allur öryggisbúnaður sé í lagi. Brýnum fyrir bömum okkar að gæta varúðar og leiðbeinum þeim hvar öruggast er að hjóla. Þessir hringdu . . . Amstrad PCW HL hringdi: „Fyrir nokkram vik- um sá ég auglýsingu í dagblaði þar sem „Amstrad-klúbburinn" auglýsti eftir nýjum félögum. Mér láðist að hringja í þá en það sem ég vildi vita er hvort þessi klúb- bur sé einnig fyrir þá sem eiga Amstrad pcw 8256 eða 8512, eða hvort hann sé eingöngu fyrir heimilistölvumar. Ég yrði þakk- látur ef einhver sæi sér fært að svara þessari fyrirspum." Lyklakippa Lyklakippa fannst í Víðiteig, Mos- fellssveit. Á kippunni er einn bíllykill og fjórir húslyklar. Eig- andi lyklakippunnar getur hringt í síma 66 65 24. Er Smári hættur hjá Bylgjiumi NN hringdi: „Er Smári Ríkarðs- son, fréttamaður Bylgjunnar í Þýskalandi, hættur að vinna fyrir Bylgjuna. Það hefur ekki heyrst í honum nokkuð lengi og ég sakna fréttapisla hans." Þarf að hafa meira við snadínista? Ellilífeyrisþegi hringdi: „Nú hef- ur sjónvarpið sent fréttamenn til Nigaragua. Þarf að hafa meira við sandínistana í Nigaragua held- ur en við Castró á Kúpu eða Víetnam? Góð þjónusta hjá Dem- antshúsinu Ása hringdi: „Mig langar til að koma á framfæri þökkum fyrir góða þjónustu sem ég varð aðnjót- andi hjá Demantshúsinu Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfírði. Ég fór þangað með gullhálskeðju til viðgerðar fyrir nokkra. Hún var ekki tilbúin hjá þeim á tilsett- um tíma og þeir hringdu í mig til að láta vita það. Það er til mikill- ar fyrirmydar að láta viðskipta- vininn vita í svona tilfellum því ánnars hefði ég hugsanlega farið fýluferð. Þetta hlýtur að teljast góð þjónusta og til fyrirmyndar." Heyrnartæki tapaðist Hinn 15. maí tapaðist heymar- tæki í fatamótöku Þjóðskjalasafns eða þar í grennd. Finnandi er vin- samlegast beðin að hringja í síma 3 43 44. Innilegar þakkir til ykkar allra sem heimsóttu mig, sendu skeyti eÖa hugsuÖu til mín á annan hátt á 70 ára afmœli mínu. GuÖ blessi ykkur. Anna Ólafsdóttir, Giljaseli 5, Reykjavík. Múpmgmia kr.285 KAUPFELDGIN í LANDINU ... VEIÐISETT kr. 1.390 FÓTB0LTI kr.495 D0MUS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.