Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
Morgunblaðið/KGA
Strax í flugstöðinni í Keflavík voru þeir Datner og Kushnir farnir að gefa eiginhandaráritanir á
báða bóga. Hér eru þeir að skrifa nöfn sín fyrir systurnar Ingu Dröfn og Guðbjörgu Dögg á
Hótel Loftleiðum.
„Komum til að hitta vini okkar“
„EFTIR kynni okkar af íslend-
ingunum í Brussel vorum við
staðráðnir í að fara einhvern
tíma til íslands, þótt við œttum
ekki von á að það yrði svona
fljótt. Við hugsuðum okkur því
ekki tvisvar um þegar tækifær-
ið kom upp í hendurnar á
okkur," sögðu þeir Datner og
Kushnir, ísrölsku háðfulgarnir
sem slógu svo eftirminnilega í
gegn í Eurovisionkeppninni
nýverið, við komuna til landsins
í gær. Þeir koma hingað á veg-
um veitingahússins Evrópu og
Rásar 2, en „þó aðallega til að
hitta vini sína,“ eins og þeir
sögðu sjálfir. Þeir félagar voru
hressir, eins og þeirra var von
og vísa, og kváðust hlakka til
að skoða sig um hér á landi.
„í alvöru talað, þá er sjaldgæft
að svo náin og einlæg vinátta
takist með þáttakendum í svona
keppni, eins og varð með okkur
og Islendingunum, sem bjuggu á
sama hóteli og við í Brussel. Það
var fastmælum bundið milli okkar
og þeirra að halda vinskapnum
- sögðu ísrölsku
háðfulgarnir
Datner og Kus-
hnir, sem komu til
landsins í gær
við og koma okkar hingað er liður
í því,“ sögðu þeir ennfremur.
vAuk þess höfum við heyrt að
Islendingar almennt hafí orðið
mjög hrifnir af framlagi okkar í
Eurovisinkeppninni og að bömin
hér syngi lagið okkar daginn út
og inn. Það yljar okkur um hjarta-
rætumar," sögðu þeir og brostu.
Þeir kváðust hafa orðið varir
við að athygli manna hefði mjög
beinst að þeim síðan þeir komu
fram í keppninni. „Heima í Israel
emm við stórstjömur. Meira að
segja ráðherrann, sem vildi banna
okkur að taka þátt í keppninni,
sendi okkur heillaóskaskeyti eftir
keppnina þar sem hann baðst af-
sökunar á frumhlaupi sínu. Það
hafa margir komið að máli við
okkur og þakkað okkur fyrir að
brjóta upp hið hefðbundna form
keppninnar og vonandi á þetta
eftir að hafa varanleg áhrif í
framtíðinni. Fyrir okkur hefði það
engu máli skipt þó við hefðum
lent í neðsta sæti. Við em fyrst
og fremast leikarar en ekki söngv-
arar. Upphaflega fómm við heldur
ekki út í að taka þetta lag með
keppnina í huga. Þetta var hlutur
sem okkur hafði lengi langað að
gera og svo slysuðumst við til að
vinna forkeppnina í ísrael, öllum
að óvömm og ekki síst okkur sjálf-
um. En við vomm einlægir í því
sem við vomm að gera og okkur
fannst þetta gaman, og sennilega
er það það sem fólk hefur fundið
og þess vegna tekið okkur eins
og við emm.“
Þeir félagar kváðust um þessar
mundir vera að ieika í grafalvar-
legu Shakespeare-verki heima í
ísrael en ættu nú tveggja vikna
frí. „Það var því tilvalið að skella
sér til íslands úr því að tækifærið
bauðst."
Bretar fá svar vegna Rockallrannsókna:
Islendingar munu
ekki sækja um leyfi
til rannsókna þar
BRESKA utanríkisráðuneytinu var í gaer afhent svar ísiendinga við
orðsendingu þar sem sagði að breska rikisstjómin gæti ekki samþykkt
að vísindarannsóknir íslendinga, Dana og Færeyinga fæm fram á
Hatton-Rockallsvæðinu i sumar.
í svarinu er vísað til þess að 9.
maí 1985 hafí utanríkisráðuneytið
gefíð út reglugerð um afmörkun
landgmnns íslands til vesturs, suðurs
og austurs. Samkvæmt henni sé fyr-
irhugað rannsóknasvæði_ á land-
gmnni íslands og því hafí íslendingar
hvorki sótt né muni þeir sækja um
leyfí til að framkvæma rannsóknir
þar.
íslendingum sé kunnugt um að
Bretar telji sig eiga réttindi á hluta
þess svæðis sem rannsóknir íslend-
inga, Dana og Færeyinga eigi að ná
til. Ríkisstjóm íslands ítreki mót-
mæli sín gegn kröfum til svæða sem
séu á landgrunni íslands samkvæmt
reglugerðinni frá 1985 og í samræmi
við þjóðarrétt.
Minnt er á að íslendingar hafí
staðfest Hafréttarsáttmála Samein-
uðu þjóðanna og í samræmi við 83.
grein hans séu Islendingar reiðubún-
ir að leita leiða til að samræma sínar
rannsóknir og bresku rannsóknimar
sem íslendingum hafí ekki verið
skýrt frá fyrr en 21. maí. Náist fljót-
lega samkomulag um slíka samræm-
ingu sé ríkisstjóm íslands fyrir sitt
leyti tilbúin að heimila rannsóknar-
verkefni Breta, enda verði henni
skilað skýrslu um niðurstöður þess
innan 12 mánaða.
Morgunblaðið leitaði í gær til
breska utanríkisráðuneytisins og
spurði hvort Bretar væru tilbúnir til
viðræðna við íslendinga um sam-
ræmingu þessara rannsóknarverk-
efna þjóðanna, og ef svo væri ekki
til hvaða aðgerða yrði gripið ef ís-
lendingar og Danir færu eigi að síður
í vísindaleiðangur á Hatton-Rockall-
svæðið í sumar, eins og fyrirhugað
er. Svar hafði ekki borist í gær-
kvöldi, og í samtali við Mark
Chapman sendiherra Breta á íslandi
kom fram að ólíklegt væri að við-
brögð fengjust í bráð við þessu svari
íslendinga. Chapman sagði þó að
þessar bandalagsþjóðir hlytu að geta
gert út um þetta deilumál með samn-
ingum.
Tap Steinullar-
verksmiðjunnar 35
milljónir króna
REKSTRARTAP Steinullarverk-
smiðjunnar hf. á Sauðárkróki varð
34,9 milljónir króna á liðnu ári.
Velta verksmiðjunnar var 86,8
milljónir króna, en rekstrargjöld
námu rúmum 75 milljónum króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
Framsóknarflokkurinn:
Mikil andstaða við sam-
starf við Alþýðuflokk
Hafa enga trú á að samstarf við Kvennalista geti gengið
FARI svo að Þorsteinn Pálsson slíti formlegnm viðræðum við
Kvennalsita og Alþýðuflokk og bjóði Framsóknarflokki og Al-
þýðuflokki til þríhliða stjórnarmyndunarviðræðna, munu fram-
sóknarmenn reynast mjög þungir í taum, samkvæmt áreiðanlegum
heimildum úr röðum forystumanna Framsóknarflokksins. Er það
einkum andúð við hugsanlegt stjórnarsamstarf við Jón Baldvin
sem ræður þessari afstöðu framsóknarmanna.
Steingrímur Hermannsson hef-
ur fullt umboð þingflokksins til
þess að leiða þátttöku Framsókn-
arflokksins í stjómarmyndunar-
viðræðum, en hann myndi
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins boða til þingflokksfundar,
bærist honum formlegt boð um
Égdansaviðþig
í síðasta sinn
SÍÐASTA sýning Islenska dans-
flokksins á „Ég dansa við þig“
verður í kvöld, 28. maí.
Fleiri sýningar geta ekki verið á
dansinum vegna anna gestadansar-
anna, þeirra Athol Farmer og
Phillipe Talard við Kölnaróperuna.
viðræður við Sjálfstæðisflokk og
Alþýðuflokk. Talið er líklegt að
hann sjálfur, með stuðningi Hall-
dórs Asgrímssonar myndi vilja
þekkjast boðið, að minnsta kosti
til málamynda, þar sem annað
væri ekki við hæfí. Fjölmargir
framsóknarmenn, landsbyggðar-
þingmenn, bændur, Jón Helgason
landbúnaðarráðherra og fleiri
munu á hinn bóginn vera hug-
myndinni með öllu öndverðir.
Framsóknarmenn sem eru
þessu andvígir segja að linnu-
lausar framsóknarárásir Jóns
Baldvins Hannibalssonar hafi gert
það með öllu útilokað að gott sam-
starf þessara flokka geti tekist í
ríkisstjóm. Aðrir telja það ekki
með öllu útilokað, en mjög hæpið
þó.
Þá hefur Morgunblaðið heimild-
ir fyrir því að framsóknarmenn séu
ekki ýkja trúaðir á að samstarf
geti tekist við Kvennalista. Full-
trúar Kvennalista ræddu óform-
lega við þá Guðmund Bjamason
og Halldór Ásgrímsson, eftir að
Þorsteinn Pálsson fékk umboðið
til stjómarmyndunar, en áður en
kvennalistakonur gerðu upp hug
sinn þess efnis að þær vildu ganga
til formlegra viðræðna við Sjálf-
stæðisflokk og Alþýðuflokk.
Á þessum viðræðufundi, kom
fram, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, að Kvennalisti
myndi setja það sem ófrávíkjanleg
skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjóm,
að ákveðin lágmarkslaun yrðu lög-
bundin þegar í stað, að öllum
framkvæmdum á vegum vamar-
liðsins yrði þegar í stað hætt, þar
með talið framkvæmdum við
Helguvík, ratsjárstöðva og stjórn-
stöð og að frekari samningar um
stóriðju hér á landi yrðu alls ekki
gerðir.
Herma heimildir Morgunblaðs-
ins að þeir Halldór og Guðmundur
að fengnum þessum upplýsingum
hafí talið að samstarf við Kvenna-
lista í ríkisstjóm væri næsta
útilokað.
magnskostnað var því 11,8 millj-
ónir króna.
í ársreikningi 1986 eru heildar-
eignir fyrirtækisins bókfærðar á
564,5 milljónir króna. Skuldir við lok
ársins 1986 námu 447,1 milljón
króna og eigið fé 114,4 milljónum,
að því er kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá verksmiðjunni. Ársreikning-
ur fyrirtækisins er færður
samkvæmt annari reglu en hefð-
bundnu skattauppgjöri. Samkvæmt
skattalegu uppgjöri var tapið 13
milljónum lægra eða alls 22 milljón-
ir.
Aðalfundur Steinullarverksmiðj-
unnar var haldinn í gær og þar
samþykktu hluthafar tillögu þess
efnis að taka þátt í endurskipulagn-
ingu fjárhags og rekstrar, sem unnið
hefur verið að um nokkurt skeið.
Fjármögnun á stofnkostnaði verk-
smiðrjunnar er hvergi nærri lokið,
eins og bent er á í tilkynningu og
þar segir orðrétt: „Greiðsluvandinn
jókst til muna á árinu. Þá varð einn-
ig ljóst, að arðsemisforsendur hefðu
brostið að verulegu leyti, þar sem
verðþróun á vörum verksmiðjunnar,
sölumagn og gengisþróun voru á
annan veg en ráð hafði verið fyrir
gert.“
Ólafur Laufdal stofn-
ar ferðaskrifstofu
NÝ ferðaskrifstofa í eigu Ól-
afs Laufdal veitingamanns
tekur til starfa í byrjun júní.
Hún heitir Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur og verður til
húsa í Aðalstræti 16. Fram-
kvæmdastjóri hennar verður
Halla Pálsdóttir, sem áður
starfaði hjá Flugleiðum i
Stokkhólmi.
Ólafur Laufdal sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hin
nýja ferðaskrifstofa annaðist
alla almenna farmiðasölu, hótel-
bókanir, miðasölu á skemmtanir
og þess háttar. Fyrst um sinn
yrðu ekki skipulagðar leiguflug-
ferðir á hennar vegum hvað sem
síðar yrði. Ólafur sagði að með
stofnun ferðaskrifstofunnar
væri hann einnig að markaðs-
setja þau hótel og veitingahús
sem hann ræki, en þau eru Bro-
adway, Hollywood og Hótel
Borg í Reykjavík og Sjallinn og
Hótel Akureyri á Akureyri. Þá
er Ólafur að reisa stórt hótel í
Ármúla 9, sem væntanlega verð-
ur opnað næsta vor.