Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
15
Mót Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans liggja í gegnum ísland
og eru jarðskjálftar og eldvirkni landsins tengd þeim. Á kortinu má
sjá upptök jarðskjálfta á íslandi og hafsvæðunum umhverfis landið á
tímabilinu 1960 til 1983. Dökku punktarnir tákna skjálfta sem staðsett-
ir hafa verið með gögnum frá 10 eða fleiri skjálftamælum. Langflestir
skjálftarnir eru stærri en 4,5 stig á Richterskvarða. Örvarnar sýna
rekstefnur flekanna út frá Reykjaneshrygg og Kolbeinseyjarhrygg,
og sniðgengishreyfingu um Charlie-Gibbs sprungusvæðið nálægt 53.
gráðu N.
33 sinnum valdið umtalsverðu tjóni
á svæðinu frá Ölfusi í vestri til Rang-
árvalla í austri og er þá örugglega
eitthvað vantalið því heimildir eru
gloppóttar, einkum um tvær fyrstu 70*n
aldimar og um fimmtándu öld.
Síðustu meiri háttar jarðskjáflftar á
Suðurlandi urðu 1896 og 1912 og
með því að bera saman tjónasvæði
þeirra má álykta að kippimir, sem
áttu upptök sín í Landssveit 26.
ágúst 1896 hafi verið um 7 stig á
Richterskvarða, en jarðskjálftinn á
Rangárvöllum 1912 er eini stóri
skjálftinn sem mældur hefur verið,
og var stærð hans 7 stig. Með sams-
konar samanburði á tjónasvæði má
einnig draga þá ályktun að skjálftinn
1784 hafi verið sá stærsti, sem orðið
hefur á íslandi á síðari öldum, en
hann gæti hafa verið allt að 7,5 stig.
Ýmislegt er líkt með skjálftunum
1784 og 1896. í bæði skiptin hefjast
umbrotin með miklum jarðskjálftum
austan til á svæðinu, en síðan verða
minni kippir vestar, þar til megin-
hluti svæðisins hefur komið við sögu.
Með því að taka þá atburði sem
vitað er um að hafa gerst á Suðurl-
andi og flokka þá niður kemur í ljós
að atburðarásinni má skipta í þrennt.
í fyrsta lagi skjálftar sem eiga upp-
tök austast á svæðinu. í öðru lagi
skjálftar sem eiga upptök sín vestast
á svæðinu, í Ölfusinu. í þriðja lagi
eru það svo skjálftahrinur þar sem
virknin virðist fara yfir megin hlu-
tann af svæðinu, frá Heklu og vestur
í Ölfus. Það eru þessir síðastnefndu,
í þriðja flokki, sem helst ber að ótt-
ast, því þeir valda tjóni á svo stóru
svæði. í þessum flokki hafa flestir
stærstu skjálftamir verið og það er
skjálfti af þessu tagi sem við erum
að tala um varðandi væntanlegan
Suðurlandsslqálfta á næstu árum.
Af heimildum má einnig ráða hver
meðaltíminn er á milli þessara
skjálfta. Lengsta bil á milli slíkra
skjálfta, sem við þekkjum, eru 112
ár, en stysta bilið er 45 ár. Meðaltím-
inn á milli er á bilinu 80 til 100 ár.
Nú eru liðin 91 ár frá því síðasta
stóra hrinan reið yfir Suðurland og
því er ekki óeðlilegt að gera ráð fyr-
ir slíkri hrinu innan 20 ára. Þess ber
að geta að stóri skjálftinn á Rangár-
völlum 1912 flokkast í fyrsta flokk,
það er að segja stakur skjálfti aust-
ast á svæðinu, og því er miðað við
hrinuna 1896.“
Óhjákvæmilegt að búa
sig undir stærri skjálfta
Páll var spurður hvort einhveijar
ályktanir mætti draga af umbrotun-
um á Suðurlandi á mánudag og hvort
það hefði ef til vill verið undanfari
þeirrar hrinu sem jarðvísindamenn
búast nú við á Suðurlandi:
„Það er ómögulegt að segja nokk-
uð til um það á þessu stigi. Einn af
óvissuþáttunum sem við stöndum
frammi fyrir núna er hvar eigi að
flokka þessa nýafstöðnu kippi. Er
þetta skjálfti í fyrsta flokknum, sem
eru stakir skjálftar austast á svæð-
inu, eða eru þessar hræringar í þriðja
flokknum, sem eiga þá eftir að breið-
ast út? Við vitum heldur ekki hvort
þetta er undanfari eldsumbrota á
svæðinu austur eða suður af Heklu.
Við höfum ekkert í höndunum til að
skera úr um þetta og framtíðin verð-
ur að leiða það í ljós.
Ef þessi nýafstaðni skjálfti er und-
anfari stærri hrinu, sem á eftir að
breiðast út, getur það dregist í allt
að þijú ár. En hvort heldur sem þetta
hefiir verið stakur skjálfti eða undan-
fari stærri hrinu stendur hitt eftir
óhaggað, að stóri skjalftinn er eftir
og þá á ég við skjálfta sem myndi
mælast um 7 stig á Richterskvarða.
Samkvæmt meðaltíma á milli stóru
hrinanna er óhjákvæmilegt að búa
sig undir þann skjálfta á næstu
árum.“
Aðspurður um hvort skjálftinn nú
hefði hugsanlega losað um einhveija
spennu í jarðskorpunni og dregið þar
með úr stærð þess skjálfta sem í
vændum er sagði Páll að svo væri
ekki heldur þvert á móti:
„Það er frekar að hann hafi ýtt
undir spennuna vestar á svæðinu og
flýtt fyrir meiri háttar jarðskjálfta
þar. Þessi skjálfti var tæp 6 stig en
stærstu skjálftamir í þessum hrinum
eru um 7 stig. Til samanburðar má
nefna að það þyrfti orku 30 skjálfta
á borð við þann nýafstaðna til að
jafnast á við orku þess sem i vændum
er. Sá verður bæði stærri og varas-
amari að því leyti, að hann verður
miklu nær byggð."
Menn verða að hafa í
huga að þetta er yfirvofandi
Er hægt að segja með nokkurri
vissu hvar upptök þess skjálfta verða
og verður ef til vill hægt að sjá fyr-
ir með einhveijum fyrirvara hvenær
það verður?
„Stærstu skjálftamir hingað til
hafa átt upptök í ofanverðri Rangár-
vallasýslu, efst á Rangárvöllum, í
Landssveit og Efri Holtum og það
er ekki ástæða til að ætla að það
breytist næst þegar Suðurlands-
skjálftar ganga yfír. Hins vegar dreg
ég stórlega í efa að við munu sjá
fyrir nákvæmlega hvenær hrinan
ríður yfir þannig að við getum gefið
út aðvörun í tæka tíð. Til þess höfum
við hvorki nægilega reynslu af
skjálftum á Suðurlandi né nægileg
mælitæki til að sýna þær breytingar
sem búast mætti við. Hins vegar
má telja miklar líkur á, að innan
tuttugu ára verði stór skjálfti á þessu
svæði og því er full ástæða til að
búa sig undir það.“
Er eitthvað hægt að gera til að
draga úr slysahættu eða tjóni af
völdum slíks skjálfta?
„Já, það er vissulega margt hægt
að gera til að draga úr hættunni. í
fyrsta lagi verða menn að hafa það
stöðugt í huga við byggingu húsa
að þetta er yfirvofandi. Það á ekki
að þurfa að muna svo miklu í kostn-
aði, ef menn hafa bara hugsun á því
að mannvirkið verður að standa af
sér snarpar jarðskjálftahrinur. Það
getur líka skipt máli hvemig fólk
raðar upp hlutum heima hjá sér, til
dæmis er full ástæða til að festa vel
bókahillur og þunga skápa og passa
sig á að sofa ekki undir slíkum hús-
gögnum eða hlöðnum veggjum. Þetta
eru einföld atriði, en geta þó skipt
máli og við aðstæður sem þessar er
ekki ástæða til annars en að vera á
varðbergi," sagði Páll Einarsson
jarðeðlisfræðingur að lokum.
Sv.G.
Á laugardagskvöld:
ALLT VITLAUST f ..
Rokksýningin „Allt vitlaust“ hlýtur einróma lof
Rokksýningin „Allt vitlaust", sem sýnd er í
Broadway á föstudags- og laugardagskvöld-
um, fær frábæra döma enda er hér á ferðinni
fjölmennasta og vandaðasta skemmtidag-
skrá, sem sett hefur verið á svið hér á landi.
Rifjuð eru upp nær 60 lög frá árunum 1956-
1962, sem margir kalla „gullöld rokksins".
Allt eru þetta Iög, sem slegið hafa í gegn og
mörg eru vinsæl enn í dag því á rokkið enn
sterk ítök í hugum fólks, sem komið er á
„réttan“ aldur. Að sýningunni standa marg-
ir af okkar færustu listamönnum. Fram
John Travolta:
What a show!
Skemmti sér konunglega
Leikarinn og dansarinn heimsfrægi, John
Travolta, kom hér við á dögunum og fór að
sjálfsögðu í Broadway. Eftir sýninguna
sagði hann: „Leikararnir og dansararnir
komu verulega á óvart, þeir eru bctri en
flestir sem ég hef séð til þessa.“ John
Travolta sagðist hafa skemmt sér konung-
lega Og það hefði komið sér á óvart að sjá
svo fjölmenna og vel unna sýningu hér.
Travolta lék á sínum tíma í myndinni
„Grease", sem fjallar einmitt um cjötta ára-
tuginn og hugarhcim unglinganna, ekki
ósvipað og gerist í sýningunni „Allt vitlaust“1
í Broadway,
koma 4 söngvarar, 7 hljóðfæraleikarar, 16
dansarar auk 9 tæknimanna eða hátt í 40
manns. Sýningin sjálf tekur 90 mínútur og
þar er ekki dauður punktur; söngur, dans,
leikur, tíska og tíðarandi rokkáranna „með
trukki og dýfu“. Sýningunni fylgir glæsileg-
ur kvöldverður og svo er dansað á eftir.
Hafa margir haft á orði að slíka kvöld-
skcmmtun sé vart að finna nema í stórborg-
um heimsins.
Létt yfír strákunum:
Grínland
- dagskrárgerð í alvöru
Höfundar sýningarinnar „Allt vitlaust" eru
Þýlr EgiH Eðvarðsson leikstjóri, Bjöm
Bjömsson útlitshönnuður og Gunnar popp-
meistari Þórðarson hljómsveitarstjóri. Ein-
valalið vann að uppsetningu sýningarinnar:
Dansa sömdu Astrós Gunnarsdóttir og
Nanette Nelms, lýsingu stjómar Magnús
Sigurðsson og hljóði Sigurður Bjóla, kynn-
ingar annast Jón Axel Olafsson og búninga
gerðu Anna Ásgeirsdóttir og Ragnheiður
Olafsdóttir, förðun sér Elfn Sveinsdóttir um
°g sýningarstjóri er Eyþór Árnason. Auk
þeirra starfa 4 tæknimenn Broadway við liós
og hljóð.
Jón Óttar á Stöð 2:
Gef hennl 3
stjömur
í þætti sfnum „Sviðsljósi“ á Stöð 2 fjallaði
Jón Ottar Ragnarsson um skemmtidag-
skrámar í borginni. Um „Allt vitlaust" í
Broadway sagði Jón: „Þetta er frábær
sýning, ég gef henni þrjár stjömur.“
Miðaldra kona sleppir sér:
Lofa að gera
þetta aftur
Kona á besta aldri fór í Broadway um dag-
inn og sá sýninguna „Allt vitlaust'*. Þegar
liða tók að lokum sleppti konan fram af sér
beislinu og skemmti sér óskaplega. Aðspurð
kvaðst hún komast í svo mikið stuð við að
heyra öll þessi gömlu, góðu lög að það væri
cins og unglingsárin stæðu henni Ijóslifandi
fyrir hugskotssjónum. „Þetta er æði,“ sagði
hún, „þetta minnir mig á árinu áður en ég
kynntist manninum mínum.“ Margir sem
komnir eru á miðjan aldur og muna „gullöld
rokksins eru á sama máli, þeir segjast
verða yngri en þeir áttu von á, í annað sinn.
. jgprí' '
Æðisleg lög:
The Bees
„Það er alveg rosalega gaman að syngja
ressi lög,“ segja söngvararnir fjórir, sem
skipa söngsveitina The Bees, Björgvin
Halldórsson, Eiríkur Hauksson, Eyjólfur
Kristjánsson og Sigríður Beinteinsdóttir.
Þau eru sammála um að þessi lög hafi ein-
hvem galdur sem nái tökum á áhorfendum
enn þann dag í dag.
ojanvirKur sieppjDunaOur:
ROKK í YIÐLÖGUM
16 manna dansflokkur sem smitar
Dansaramir 16 í sýningunni í Broadway
hafa vakið verðskuldaða athygli. Margir ef-
uðust um að hægt væri að koma hér upp
dansflokki sem réði við sýningu sem þessa
cn þau hafa sannað að sá efi var ástæðu-
laus. f hópnum em rokkarar, jassdansarar,
stepparar, fimleikamenn og fjörkálfar af
öllum gerðum sem smita frá sér lífsgleði
-¥-¥•¥
Þekkirðu lögin?
56 lög frá ’56-’62
Athugaðu hvað þú kannast við mörg þessara
laga. Ef þú þekkir fleiri en 10 áttu erindi í
Broadway.
Johnny B. Goode, Long tall Sally, You must
have been a beautiful baby, Rock and Roll
music, Speedy Gonzales, Love me tender
Peter Gunn, Yakety Yak, Will you still lovc
me tomorrow, You are my destiny, Happy
birthday sweet sixteen, Jailhouse rock,
Sixteen candles, Hound dog, One night with
you, Sleep walk, Sweet nothing, Bye bye
love, All I have to do is dream, Diana, Who's
sorry now, Lipstick on your collar, Kansas
city, Are you lonesome tonight. Blue suedc
shoes, Tutti Frutti, Rip it up, Shery baby,
Little darling, Reelin’ and rockin’, Roll over
Beethoven, Whole lot a shakin’ goin’ on, At
the hop og mörg fleiri „top-hit“ sem ’æra
óstöðugan og fá hjörtun til að slá hraðar.
°g fiöri 1 svo stómm stíl að elstu menn
hendast til í sætum sínum óumbeðnir. Sæma
rokk varð að halda á framsýningunni og
Didda kenndi krökkunum rokkhoppin. Enn
hafa aðeins brotnað tvö rifbein og eitt
handarbein.
Rosaband:
The Birds
- 7 manna skjálftavakt /
Rokkhljómsveitin The Birds, sem Gunni /'
Þórðar setti saman fyrir sýninguna,
er í sérflokkí. Þar er valinn maður
í hverju rúmi. Þéttholda sýn- /
ingargestur lét þau orð falla /
að hér væru lögin leikin /* / A
cins og á að gera: „Hér ,-'
er hver nóta á sínum /' / /
stað, þessir strákar /' íþ /
e™ með þetta //p
t blóðinu.” ,.' .»» -> ^ftn
/ýj? /W
/ v / ' »