Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
23
Hugleiðingar um umferðannál
eftir Jóhann E.
Björnsson
Seint á árinu 1986 sameinuðust
öll bifreiðatryggingafélögin um
átak í umferðarmálum á árinu 1987
undir kjörorðinu Fararheill ’87 og
samþykktu félögin að veija til
átaksins 1% af iðgjöldum ökutækja-
trygginga 1987, sem áætlað er að
verði um 13 milljónir kr. Markmiðið
er fækkun umferðaróhappa og slysa
á árinu og í framtíðinni.
Nú eru liðnir tæpir fimm mánuð-
ir af árinu 1987 og því er eðlilegt
að menn spyiji. „Hvað hefur verið
gert til að vekja menn upp af þeim
þymirósarsvefni, sem svo margir
virðast vera haldnir í umferðinni
hér á landi? Má merkja einhvem
bata í umferðarmenningu okkar,
hefur hörmungunum linnt eitthvað
á vígvelli umferðarinnar?"
Nokkrar raddir hafa heyrst, sem
kvarta yfir því að lítið hafi borið á
þeim áróðri, sem menn væntu frá
Fararheill ’87. Víst hefurýmis áróð-
ur verið hafður í frammi, en það
skal viðurkennt, að hann hefði
mátt vera meiri og hvassari. Margs
konar efni er nú í vinnslu eða þeg-
ar komið fram, má þar t.d. nefna
gerð 15 sjónvarpsþátta um um-
ferðarmál í samvinnu við Stöð 2 sem
hver um sig verður sýndur þrisvar
sinnum, en sá fyrsti hefur þegar
verið sýndur. Þá er væntanlegur
þáttur í ríkissjónvarpinu um afleið-
ingar umferðarslysa og verið er að
ljúka við stuttar áróðursmjmdir sem
kvikmyndahúsin munu sýna. Fram-
kvæmdastjóri átaksins hefur í vetur
heimsótt nokkra framhaldsskóla í
fylgd með ungum manni, sem á um
sárt að binda vegna umferðarslyss,
og hafa viðtökur í skólunum verið
mjög jákvæðar. Ýmislegt annað
efni er í undirbúningi og vinnslu,
sérstaklega ætlað verðandi öku-
mönnum og ökunemum, en það kom
einmitt fram á ráðstefnu trygginga-
félaganna í nóvember 1986 að
skórinn kreppir hvað mest að í
málefnum ökukennslunnar hér á
landi.
En árangur af starfí Fararheillar
hefur látið á sér standa, því miður.
Umferðaróhöppum hefur fjölgað
verulega á þessu ári og slasaðir í
umferðinni eru fleiri í ár en þeir
voru á sama tíma í fyrra. Hvers-
vegna? Er það ófrávílq'anleg regla
að árekstrum og öðrum umferðar-
slysum fjölgi ár frá ári? Nei, það
er það ekki, sem betur fer. Það
sýnir umferðaröryggisárið 1983, þá
fækkaði óhöppum, slösuðum og
látnum í umferðinni. Slíkt hið sama
gerðist árið 1968 þegar hægri um-
ferð var tekin upp. Þá dundu yfír
okkur viðvaranir og mikill umferð-
aráróður var hafður uppi. Og það
hreif þá.
Hversvegna taka ökumenn ekki
sönsum nú? Við vitum að óvenju
mikill bílainnflutningur sl. ár hefur
leitt til þess að umferðin hefur aldr-
ei verið þéttari en núna. Við vitum
líka að hið góða tíðarfar hefur or-
sakað það að allur fjöldinn hefur
notað bíla sína allan síðastliðinn
vetur, sem einnig hefur leitt til
meiri umferðar en almennt tíðkast
á vetrum. Og skyldi góða veðrið og
færðin ekki hafa örvað menn til
hraðari aksturs?
Allt kunna þetta að vera skýring-
ar á hinum tíðu umferðaróhöppum
hjá okkur á undanfömum mánuð-
um, en þetta er engin afsökun. Við
verðum að kunna að haga okkur í
umferðinni í samræmi við aðstæður
á hverjum tíma og aka í samræmi
við þær. Mér fannst það býsna at-
hyglisvert sem kom fram í sjón-
varpsþætti um daginn hjá
íslendingi, sem hefur dvalið í 25 ár
í New York. Hann sagði, að. það
sem honum fyndist mest skilja að
íslendinga og Bandaríkjamenn
væriþað, að í umferðinni hagar
Bandaríkjamaðurinn sér eins og
allir aðrir ökumenn séu kjánar sem
kunni ekki að aka og því þurfi að
varast þá og taka tillit til þeirra
(maður veit aldrei hveiju þeir kunna
að taka uppá!), en á Islandi keyra
menn fyrst og fremst með því hug-
Ráðstefna um ferðamál
á höfuðborgarsvæðinu
Ferðamálaráðstefna höfuð-
borgarsvæðisins verður haldin á
Hótel Loftleiðum föstudaginn 5.
júní næstkomandi. Ráðstefnan
er haldin á vegum Atvinnumála-
nefndar Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og verður
fulltrúum sveitarstjórna og at-
vinnumálanefnda á svæðinu
boðið til hennar ásamt ýmsum
aðilum sem vinna að ferðamál-
um.
Á ráðstefnunni verður Qallað um
stöðu ferðamála á höfuðborgar-
svæðinu og framtíðarmöguleika.
Einnig verður rætt um mótum
ferðamálastefnu og framkvæmd
hennar.
Ræðumenn ráðstefnunnar verða
m.a. Ólafur Steinar Valdimarsson
ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu, forystumenn í ferðaþjón-
ustu og sveitarstjómamenn.
Jóna Gróa Sigurðardóttir form-
aður atvinnumálanefndar samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu sagði á fundi með blaðamönn-
um, þegar ráðstefnan var kynnt,
að vinna þyrfti að því að efla ferða-
mannaþjónustu sem atvinnugrein
til gjaldeyrisöflunar. Einnig þyrfti
að að efla þjónustu við innlenda
ferðamenn sem skilar af sér álíka
miklu til þjóðarbúsins og þjónustan
við útlendinga.
„Það er öruggt að margir mögu-
leikar eru enn ónýttir og mest
aðkallandi er nú að unnið verði að
mótun ferðamálastefnu fyrir höfuð-
borgarsvæðið og framkvæmd
hennar" sagði Jón Gróa.
Ráðstefnan stendur frá kl. 13.00
- 17.00 og er ijöldi ráðstefnugesta
takmarkaður við 100.
Jóhann E. Björnsson
„En árangnr af starfi
Fararheillar hefur látið
á sér standa, því miður.
Umf erðaróhöppum
hefur fjölgað verulega
á þessu ári og slasaðir
í umferðinni eru fleiri
í ár en þeir voru á sama
tíma í fyrra. Hvers
vegna?“
arfari, að enginn steli af þeim
„réttinum"!
Er ekki heilmikið til í þessu hjá
Óla í Ameríku? Hvemig væri að
hver og einn ökumaður liti í eigin
barm og gaumgæfði eigið aksturs-
lag!
Höfundur er forstfóri Abyrgðar,
tryggingafélags bindindismanna.
m m w m nu m hu tw m m m itti m m íw nu m iw m m m m m nu w hu m m m
immmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmm
i m m m m tm m m hu m m m m m m m m m hu m m m m m m m m m hu m m m
immmmmmmimmmmmmmmmnummmmmmmmmmimmmm
t m m m m m m m hu m hu m m m m mi m m hu m m m m m m m m m hu m m m
mmmmmmmimmmmmmmmmmimmmmmmmmmmimmmm
mmmmtmm mttu m Humm mtrrnm mnum Hummmm'hum mnu m mm
tmmmmmmmimmmmmmmmmnummmmmmmmmmimmmm
t m m m ttu tm m m hu m hu m m m m tm m m hu m hu m m m m tm m m hu m hu m
t mrn mmm mmtm mm m ttu rtumm mnum mm m m numrn mnum mm m
ummmmmmmmmmmmmmtmmmHummmmmmmmmHumrnm
mmmmmmnummmmniiHummimnummmmmmmmmnummmm
t m m mttutm m m hu m hu m m mmttu m m hu m hu m m mttutm m m hu m hu m
m m mmm tmnu m mmm trn mmm tmnum mm m m mmm trnnu nu mm m
u m m mtm tm m m hu m m m m mtm tm m m ttu m m m m mm tm m m hu m hu m
u m ttu m m m tm nu m m m m trn rrn m m trn nu m m m m tm rrn m m trn nu m m m m
u m m m trn tm m m ttu m m m m m trn tm m m hu m m m m m ttu tm m m hu m m m
u m ttu m m m tm nu m m m m trn m m m tm nu m m m m ttu m m m tm nu m m m m
u m m mttu tm m m hu m hu m m rnttutm m m hu m hu m m mrn tm m m hu m hu m
u m ttu m m m ttu nu ttu m m m ttu m m m im nu ttu m m m ttu m m m m nu m m m m
u m m mttuttu m m hu m hu m m mttuttu m mtiu m hu m m mttuttu m m hu m hu m
u m ttu m m m m nu m m m m ttu m m m m nu m m m m ttu m m m m nu ttu m m m
u m m mttu ttu m m ttu m hu m m mttu ttu m m ttu m hu m m mm ttu m m ttu m m m
u m ttu m m m ttu nu ttu m m m ttu m m m ttu nu ttu m m m ttu m m m ttu nu ttu m m m