Morgunblaðið - 28.05.1987, Qupperneq 27
27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
----------------------------------c---
Það efast enginn um að það þarf einbeitni í spilamennsku, þegar
hann sér sellóleikarana hér
skrifaður fyrir litla kammersveit, en
sá rússneski fyrir stóra hljómsveit,
sem er því miður ekki alveg fyrir
hendi í þetta skipti.
En þá eru það einsöngvaramir,
þær Hrafnhildur og Kolbrún. Eins
og títt er með söngvara, þá eru þær
eldri en hljóðfæranemendumir, báð-
ar komnar með fjölskyldu, svo það
er ekki um að ræða að tónlistin taki
af þeim öll ráð.
Hrafnhildur hefur verið viðloðandi
tónlist lengi. Hún lærði á píanó frá
því hún var 9 ára og þar til hún
varð 14 ára. Þá tók hún til við fiðlu,
ekki sízt til að geta spilað með öðr-
um, en tók svo til við píanóið aftur
og útskrifaðist úr tónmenntakenn-
aradeild fyrir 10 árum. Söngurinn
var þó þama líka í og með og eftir
bameignir tók hún þriggja ára töm,
sem lýkur núna með einsöngvara-
prófínu.
Það em haldnar söngkeppnir um
allar trissur. Eina þeirra heldur
BBC-útvarpstöðin í Cardiff í Wales
og þangað fer líka íslenzkur kepp-
andi. Það hefur áður verið haldin
undankeppni hér, en f þetta skiptið
var Kristinn Sigmundsson valinn til
að fara. Áður hafa þær Sigríður
Gröndal og Ingibjörg Guðjónsdóttir
keppt fyrir ísland.
Síðast vom keppendur frá um
25 löndum. Söngvumnum er skipt
í þijá eða Qóra riðla. Hver riðill
heldur sína tónleika, sem em tekn-
ir upp og þeim sjónvarpað. Úr
hveijum riðli em svo valdir þrír eða
flórir, til að syngja á úrslitatónleik-
unum. Það em veitt þrenn peninga-
verðlaun og þeim fylgir líka boð
um að koma fram. BBC gerir líka
vel við keppenduma, því stöðin
greiðir bæði far þeirra og uppihald.
Hrafnhildur segir að söngnámi sé
vandlýst. „Raddtæknin er auðvitað
hluti námsins og svo píanónám til
þess að söngvarinn sé ekki upp á
aðra kominn við æfingar. Svo fylgja
almenn tónlistarfræði með og ekki
sízt tungumálanám. Það er stór þátt-
ur í söng, þó það verði að sækja
annað. „Eg er ekki mjög sterkbyggð
svo ég tok það upp hjá mér að fara
í leikfími, ekki síst eftir bameignim-
ar. Líkamsþjálfunin ætti að vera
skylda í náminu.en er alvarlega van-
rækt hér. í leikfiminni fékk ég betri
tilfinningu fyrir líkamanum og get
notað hann meira og betur í söngn-
um nú en áður. Ef líkaminn er vel
á sig kominn, þá skilar það sér í
söngnum."
Kolbrún er búin að syngja hér og
þar síðan hún var 14 ára. Fyrir sex
árum byijaði hún í Söngskólanum
hjá Sieglinde Kahmann, fyrir hvatn-
Hver söngvari hefur í farteski
sínu 20 mínútna efnisskrá að eigin
vali. Kristinn tekur með dagskrá,
sem undirstrikar einn helzta styrk
hans sem söngvara, en hann er að
geta fengist við ólík verkefni. Jónas
Ingjmundarson kemur fljúgandi frá
Búdapest til Cardiff til að spila
undir ljóðasöng Kristins. í Búdapest
er Jónas með Karlakór Reykjavíkur
og reyndar ætlaði Kristinn að vera
með þeim, áður en Cardiff-förin
varð ofan á. Á fyrra prógramminu
er Allerselen og Zueignung eftir
Strauss, Kampavínsarían úr Don
Giovanni, dauðasenan úr Don Carl-
os og aría úr Andréa Chenier eftir
Giordano. Ef hann fær að syngja
meira býður hann upp á Charles
Ives, aríu úr jólaoratoríu Bachs,
Kvöldstjömuna eftir Wagner og
söng nautabanans úr Carmen. Og
ingu vinkonu, sem var byijuð hjá
Sieglinde. „í upphafi var námið tóm-
stundagaman, en alvaran óx þegar
á leið. Eg kom alveg glær inn í söng-
námið, hafði enga tónlistarmenntun
fyrir. Mér óx ekki mjög í augum að
syngja, en hliðarfögin leizt mér ekki
á, því ég hafði ekki setið á skóla-
bekk lengi. Það er líka erfítt að fara
í söngnám eftir að hafa sungið lengi,
því það þarf þá að byija að tína vit-
leysumar úr röddinni. Námið léttist
þegar ég vandist við en eins og fleiri
hef ég unnið með náminu og auk
þess verið með heimili.“
Hrafnhildur er með létta mezzó-
kólóratúr-rödd sem hentar betur í
Mozart- og Rossini-óperur, en Verdi,
sem er helzt fluttur hér. Kolbrún er
með alt-rödd. Báðar eru sammála
um að það þýði ekki að bíða eftir
tækifæri, heldur verði að bera sig
sjálfur eftir björginni. Þær eiga ekki
heimangengt í nám erlendis en alltaf
er möguleiki á að taka þátt í nám-
skeiðum því náminu lýkur seint.
Hrafnhildur saknar þess að hafa
enga með svipaða rödd til að vinna
með. „Það er ekki alltaf auðvelt að
skilja hvers vegna í ósköpunum sé
verið að leggja allt þetta á sig, en
það er einhver sterk innri þörf sem
rekur mann áfram ..."
Það er sannarlega ástæða til að
samfagna þessum ágætu nemendum
með prófið, ekki sízt vegna þess hve
þau eru sér vel meðvituð um að það
er enginn endapunktur, heldur að-
eins áfangi í eilífðarnámi. Bezta
leiðin til að samfagna þeim er að
mæta á tónleikana, en dekra um
leið við sjálfan sig og njóta tónlistar-
gleðinnar.. .
Kristinn Sigmundsson
ef Kristinn syngur jafn glaðlega og
hressilega og hann gerði á tónleik-
unum á sunnudaginn fær hann
kannski tækifæri til að koma báðum
efnisskránum að ...
DÚR OG MOLL
ÞÚSEM STRAU/AR
GERÐU KRÖFUR!
BELDRAY strauborðin eru fyrirþá
sem strauja. Þau eru létt og
meðfærileg og standast kröfur um
góða aðstöðu fyrir þig, straujárnið
og þvottinn.
Þannig á gott strauborð að vera.
BELDRAYstrauborðin fástíbúsahaldaverslunum ogkaupfélögum um landallt.
EINKAUMBOÐ I.GUÐMUNDSSON & CO HF. ~SÍMl 24020
Auðvitað er engum sama hvar hann eyðir langþráðu sumarfríi
sínu. Pað er öruggt að fríið verður eins og best verður á kosið
ef þú velur hina frábæru aðstöðu okkar á Alcudia ströndinni á
Mallorca. Ströndin er sú stærsta og besta á Mallorca, glæsileg
íbúðahótel, stórgóð aðstaða, þaulvanir fararstjórar og sérstakur
barnafararstjóri tryggja að öll fjölskyldan nýtur sumarleyfisins
eins og best verður á kosið.
Sökum mikillar eftirspurnar höfum við fjölgað ferðum tilMallorca
og eigum þ ví laus sæti 1. júní, 13. júní, 20. júní og 6. júlí.
Aðrar ferðir eru nánast uppseldar.
Ef þér er ekki sama velur þú Alcudia með Polaris.
FERÐASKR/FSTOFAN
POLARIS
Kirkjutorgi4 Sími622011