Morgunblaðið - 28.05.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
í dag
Dana
Keflavík
<0
jz
“O
CO
JVC
DYNAREC
inc Ínan ÉF JVC JVC
1951240180120 60 30
ÍÉÍÉ
r||ri
HR
MYNDBÖND
6 mismunandi lengdir
Dreifing
ll/PUMBOÐIÐ
sísÆ Qgjj LAUGAVEGI 89 o 91 27840
BÍLAÚTFLUTNINGUR
FRÁ ÞÝSKALANDI
Porsche - Mercedes Benz
- BMW - VW - Audi
Viö göngum frá öllum skjölum og
pappírum ásamt flutningi til (slands.
Hringiö eöa skrífiö okkur og viö
munum reyna aö uppfylla séróskir
ykkar.
D + F Handelsgesellschaft
Wllstorfer Strasse 78, 2100
Hamburg 90, W.Qermany.
Síml: 0049-40-76B3551 eöa 61
Telex: 216679 dfha
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
ÐKKIIB BflNTflB
EBTT STflRFSfÓLK
I' GUESILEGA VERSLBH
í ágúst nk. opnum viö nýjar verslanir í Kringlunni.
Okkur vantar því konur og karla til aö vinna meö
okkur í þessum glæsilegu verslunum.
Um er að ræða þæði hluta- og heilsdagsstörf í
matvöruverslun, sérverslun og á lager. Þú þarft að
vera eldri en 18 ára og hafa einhverja starfsreynslu.
Þú þarft helst að geta byrjað á tímabilinu 15. júlí til
1. ágúst.
Við bjóðum þér mjög góða vinnuaðstöðu og góða
starfsmannaaðstöðu.
Komdu á skrifstofu Hagkauþs í Skeifunni 15 n.k.
laugardag frá kl. 13-16 og ræddu við einhvern
eftirtalinna: Kristján Sturluson starfsmannastjóra,
Karl West og Valdimar Hermannsson
verslunarstjóra. Athugaðu, að upplýsingar eru ekki
veittar í síma.
HAGKAUP
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
Zia og Juneio neita
að þingið hafi lög-
sögu yfir forseta
PAKISTANSKIR þingmenn sem hafa reynt að halda uppi gagn-
rýni á stjórn Zia ul Haq, forseta, hafa hvatt til að samþykkt
verði stjórnarskrárbreyting sem hnígur að því að auka völd for-
sætisráðherra og ráðuneytis hans. Svo virðist sem andstæðingar
Zia reyni með þessu að leggja á hilluna fornan fjandskap. Sumir
segja að fyrir þeim vaki að reka fleyg milli forseta og forsætis-
ráðherrans. Hvað sem er nú til í því. Það sem kom þessu af stað
nú er árlee þingræða Zia á þingi, sem hann flutti á dögunum.
Eftir að'forsetinn flutti netnQa
ræðu tókst stjómarandstöð-
unni að sameinast um að krefjast
sérstakra umræða um hana. Stað-
hæft var að forsetinn hefði í ræðu
sinni brotið allar reglur þingræðis-
ins og móðgað þingmenn stórlega.
Þetta taldist vissulega til tíðinda
og var í fyrsta skipti, síðan Zia
endurreisti þing landsins fyrir
tveimur árum, að forseti hefur
leyft umræður um ræðu forset-
ans. Fram að þessu hefur ríkis-
stjómin staðhæft að athafnir
forseta og orð heyrðu ekki undir
lögsögu þingsins.
Stjómarandstöðuþingmenn
lýstu einnig yfir samstöðu með
þeim sem gagnrýna stjómarfarið
í landinu og utan þings em, til
dæmis er þeir tóku undir kröfur
um aðskilnað stjómarskrifstofu
yfirmanns herafla landsins og for-
seta, en það er kunnara en frá
þurfí að segja, að Zia gegnir báð-
um þessum embættum.
Fakhar Imam, leiðtogi stjómar-
andstöðunnar kvaðst harma
tregðu forsætisráðherra Junejo og
stjómar hans, að lúta í einu og
öllu vilja Zia forseta og hersins.
Auðvitað kom þessi tregða Junejo
hvorki Fakhar né öðmm á óvart,
enda á forsætisráðherrann vissu-
lega stöðu sína undir náð og
miskunn forsetans.Og þar sem
forsetinn styðst við herinn, er
þetta í sjálfu sér allt ósköp eðli-
legt, þótt ekki sé þar með sagt
að það sé lýðræðislegt.
, Þráteflið í pakistanskri pólitík
er ákaflega flókið og ekki liggur
í augum uppi, hveijir næstu leikir
gætu orðið. Þótt Zia hafí ákveðið
að endurreisa þingið.að nokkm
leyti hefur það takmörkuð völd.
En efalaust allnokkur áhrif. Það
vald sem máli skiptir er í höndum
Zia, og þótt hann hafí heitið kosn-
ingum og endurreisn lýðræðisins
í landinu, í áföngum að vísu, er
flest sem bendir til þess, að þar
verði oftast farið bara fetið. Zia
er sennilega ekki einn um að álíta
að ringulreið og blóðbað myndi
verða í landinu, ef starfssemi
stjómmálaflokka yrði leyfð fyrir
alvöm, hvað þá ef boðað yrði til
kosninga. Og það em sem sagt
fleiri á því að gmnsemdir forset-
ans séu ekki alveg út í bláinn.
Þegar forsetinn skipaði Junejo
forsætisráðherra fyrir tveimur
ámm, spáðu flestir því að það
samstarf og sú valdskipting sem
þeir hefðu með sér, myndi fara í
vaskinn fljótlega. Menn töldu að
Zia yrði ósveigjanlegur og Junejo
myndi verða leikssoppur í höndum
hans. Þar við bættist að Junejo
þykir litlaus persónuleiki og hann
hefur takmarkað lag á að ná til
fólks, hvað þá heilla það. Því
sögðu menn að Junejo myndi lafa
í embættinu með því einu að hlíta
vilja Zia í öllu. Því athyglisverðara
er að stjómin furðusterk tök og
Junejo hefur hlotið ákveðna viður-
Junejo forsætisráðherra
Zia forseti
kenningu fyrir stjómkænsku,
heima fyrir og einnig aflað sér
álits utan Pakistan.
Því virðist sem milli forseta og
forsætisráðherra hafi náðzt sam-
komulag um verkaskiptingu og
valdajafnvægið milli þeirra virðist
að svo stöddu ekki í hættu. Þeir
virðast einnig sýna þá eftir-
breytniverðu hegðan að leysa
ágreiningsmál sín á milli í stað
þess að fara með þau í fjölmiðla.
En þó að Zia hafi fært margt
af daglegum störfum í hendur
Junejo, er enginn vafi á því hver
hefur töglin og hagldimar. Og
Junejo hefur sætt gagnrýni fyrir
að vera of mildur og ekki nægi-
lega afgerandi. Sögusagnir um
spillingu meðal embættismanna,
misbrestur á að halda uppi lögum
og reglu - allt hefur þetta verið
lagt honum til lasts. En þar sem
hann persónulega þykir hrein-
skiptinn og heiðarlegur í hvívetna
hefur þetta skaðað hann tiltölu-
lega lítið. „Aðeins harðskeyttustu
stjómarandstæðingar, sem eru
gersamlega staurblindir, viður-
kenna ekki að Junejo hefur staðið
sig undra vel,“ er haft eftir ónafn-
greindum pakistönskum þing-
manni í samtali við tímaritið Far
Eastem Economic Review. En það
fer ekkert á milli mála, að forsæt-
isráðherrann vill ekki ætla sér eða
öðmm um of. Hann leggur ein-
lægt áherzlu á að það sé öllum
fyrir beztu að fara hægt í sakirn-
ar. Sumir telja þessa afstöðu hans
Imam, leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar
til kosta. Margir dást að því
hversu vel hann hefur komið sér
fyrir í stjórnmálum, þar sem allir
höfðu spáð honum hrakfömm og
auðmýkingu.
En þó að Juneijo sýni athyglis-
verðan sveigjanleika. Þótt Zia
forseti sýni nýjustu hliðina á sér:
að leyfa umræður og gagnrýni á
ræðuna sem var minnzt á í byij-
un, eiga Pakistanir án efa
nokkurn spöl ófarinn áður en lýð-
ræði, á þeirra mælikvarða er í
landinu á nýju. Orð Zia benda
ekki til að þar verði flanað að
neinu. Zia sagði að hann teldi að
herinn myndi um ókomnar tíðir
gegna bæði öryggis-, vörzlu og
eftirlitshlutverki í landinu. Þeir
sem skildu ekki þýðingu hersins
fyrir þróun í Pakistan væm meira
en lítið glámskyggnir.
Zia segir að hann muni ekki
„hlaupast undan skyldum sínum,
þótt lýðræði verði endurreist að
fullu." Hann segir að hann muni
verða sá mikilvægi tengiliður milli
hersins og hins óbreytta borgara.
Tengiliður sem Pakistan geti ekki
án verið. Junejo kveðst vera hjart-
anlega sammála þessu. Stjómar-
andstaðan mótmælir, annað hvort
væri nú. Fakhar Imam hefur vax-
ið mjög fylgi síðasta ár og að
sama skapi virðist áhugi hafa
dvínað nær algerlega fyrir Benaz-
ir Bhutto, sem nú heyrist varla
nefnd. Zia hefur sagt að hann
vilji að her og stjórn starfí saman
um ókomna tíð og af fyllsta trún-
aði. Meðan hann verður í valda-
stóli breytist það ekki. En ótvíræð
merki um að hægfara breytingar
séu að verða í Pakistan ættu vera
gleðiefni.
heimild: Far Eastem Economic
Review