Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
Reuter
Mikhail Gorbachev Sovétleiðtogi í hópi aðdáenda sinna í Búkarest.
Ráðist á Bandaríkjamenn í Kairó:
Sýrlendingar lofa
árásarmennina
Damascus, Reuter.
DAGBLAÐ sýrlensku stjórnarínn-
ar, Tishrin fór f gser lofsamlegum
orðum um árás byssumanna á
bandaríska embættísmenn í Kairó
og sagði að þeir væru „hetjur
araba í Egyptalandi".
í blaðinu sagði að árás „hetjanna"
hefði beinst gegn veru Bandaríkja-
manna í Egyptalandi og bæri hún
„óánægju heiðarlegra sona Egypta-
lands vegna veldisins, sem styður
[ísraela] óvini araba" vitni.
Sagði að árásin væri þáttur í „upp-
reisn egypsku þjóðarinnar gegn ragri
stjóm, sem opnað hefði dymar að
Egyptalandi hveijum, sem koma
vildi, og veðsett örlðg þjóðarinnar
heimsvaldastefnu".
Þrír menn skutu í gær á starfs-
menn bandaríska sendiráðsins í
Kairó. Tveir þeirra hlutu minniháttar
skotsár á höfði.
Samtök, sem nefnast „Bylting
Egyptalands", lýstu ábyrgð á árá-
sinni á hendur sér. Samtökin segjast
bera ábyrgð á tveimur árásum á ísra-
elska sendierindreka síðan árið 1985.
Sovétríkin:
Sjónvarpsiðnað í
Mikhail Gorbachev í Austur-Þýskalandi:
Ritskoðaðar fréttir af
Rúmeníuför leiðtogans
Kommúnistaleiðtogar funda í Austur-Berlín
Austur-Bcrlín, Reuter.
AUSTUR-þýsk dagblöð birtu í
gær rítskoðaðar fréttir af heim-
sókn Mikhails S. Gorbachev
Sovétleiðtoga til Rúmeníu.
Gorbachev kom til Austur-
Þýskalands í gær en hann hafði
áður hvatt yfirvöld í Rúmeníu til
að fylgja fordæmi Sovétstjórnar-
innar varðandi frjálsari miðlun
upplýsinga og efnahagslegar
umbætur. Um þetta fengu Ies-
endur Neues Deutschland,
málgangs austur-þýska kom-
múnistaflokksins, ekki að lesa
en blaðið lagði áherslu á tillögur
Sovétstjórnarinnar varðandi
fækkun kjarnorkuvopna.
Dagblöð í Austur-Þýskalandi
hafa áður brugðið á það ráð að
sleppa köflum úr ræðum Sovétleið-
togans þar sem hann minnist á
„glasnost-stefnuna“ en vitað er að
austur-þýskir kommúnistar hræð-
ast afleiðingar hennar. Á hinn
bóginn segja þeir er gleggst þekkja
til að Gorbachev sé hæstánægður
með traustan efnahag Austur-
Þýskalands og honum þyki stjóm-
unaraðferðir Erichs Honecker,
leiðtoga austur-þýska kommúnista-
flokksins, ólíkt geðslegri en per-
sónudýrkun sú sem einkennir stjóm
Ceausescus Rúmeníuforseta.
„Gorbachev mun líklega leyfa
Honecker að fara sínu fram svo
lengi sem stöðugleika er viðhaldið
innanlands og efnahagur landsins
er traustur," sagði ónefndur stjóm-
arerindreki í viðtali við Reuters-
fréttastofuna.
Gorbachev var ómyrkur í máli
er hann hélt ræðu á útifundi í Búk-
arest, höfuðborg Rúmeníu, á þriðju-
dag. Sagði hann að opinskáar
umræður og frumkvæði einstakl-
inga væru nauðsynleg skilyrði þess
að kommúnískt þjóðskipulag fengi
þrifist. Skömmu áður hafði Ceau-
sescu haldið mikla lofræðu um eigin
stjóm og gættu tilkvaddir áheyr-
endur þess að klappa á réttum
stöðum. Gorbachev kvaðst á hinn
bóginn vita fullvel að ýmsir erfið-
leikar settu svip sinn á daglegt líf
almennings. Þóttu áheyrendum
þetta nokkur tíðindi því stjómvöld
viðurkenna sjaldnast að við nokk-
um vanda sé að etja. Auðsveipir
áheyrendumir brugðust af sömu
kurteisi við ræðu Sovétleiðtogans
en hann skipaði þeim að hætta
fagnaðarlátunum með handabend-
ingum. Sovéska fréttastofan Tass
sagði að þá Ceausescu og Gorbach-
ev hefði greint á um ýmis atriði.
„Ég gagnrýndi sjónarmið Rúmeníu-
stjómar og félagi Ceausescu
gagmýndi sjónarmið okkar,“ var
haft eftir Gorbachev. Sagði hann
jafnframt að ýmsir örðugleikar
væru samfara efnahagssamvinnu
ríkjanna tveggja en þá væri unnt
að yfirstíga. Var þetta í fyrsta
skipti frá árinu 1976 sem leiðtogi
Sovétríkjanna heiðrar Rúmeníubúa
með nærveru sinni. Vom fréttaský-
rendur almennt þeirrar skoðunar
að Gorbachev hefði ekki rejmt að
þröngva Ceausescu til fylgis við
umbótastefnu sína. „Hann hefur
komið sjónarmiðum sínum til skila
á afdráttarlausan hátt en hann veit
að hann getur beðið því tími Ceau-
sescus er senn útrunninn," sagði
einn þeirra.
í dag, fímmtudag, hefst leið-
togafundur Varsjárbandalagsríkja í
Austur-Berlín. Búist er við því að
þar verði samþykktar ályktanir
varðandi yfirlýsingar hemaðarsér-
fræðinga Atlantshafsbandalagsins
um að ríki Vestur-Evrópu þurfi að
efla hefðbundnar vamir sínar semji
stórveldin um stórfellda fækkun
kjamorkuvopna. Sovétmenn neita
því að þeir njóti yfírburða á sviði
hefðbundins vopnabúnaðar. Telja
þeir að semja beri sérstaklega um
jafnvægi á þessu sviði en viðræður
stórveldanna um jafna og gagn-
kvæma fækkun heija í Evrópu hafa
staðið í 13 ár án árangurs.
Valentin Falin, yfírmaður Novosti-
fréttaþjónustunnar sagði á frétta-
mannafundi á þriðjudag að
samningamemn risaveldanna í
Genf væru nærri samkomulagi um
upprætingu meðaldrægra kjam-
orkuflauga f Evrópu og að beðið
væri samþykkis aðildarríkja Atl-
antshafsbandalagsins.
Maðurinn flaug eins hreyfíls
áburðardreifíngarvél af gerðinni
Antonov-2 og kom hún fram á rat-
sjá á leið yfír Eystrasalt. Tvær
herþotur voru sendar á loft en flug-
vélin var lent í hafínu skammt undan
Östergam en svo nefnist austasti
tangi Gotlands áður en þær komu á
vettvang. Flugmaðurinn, sem var
borgaralega klæddur, synti í land og
braust inn í hús eitt til að ná sér í
þurr klæði. Eyjarskeggjar urðu hans
varir og gerðu lögreglu viðvart. Mað-
urinn var fluttur með þyrlu til Visby
sem er stærsti bær eyjarinnar þar
nútímalegt horf
-segir Pravda
Moskvu. Reuter.
SJÓNVARPSIÐNAÐI Sovétrílg-
anna hefur ekki tekist að fram-
leiða vandaðan búnað og er brýnt
að koma honum í nútímalegt horf,
sagði Pravda, málgagn sovéska
koinmúnistaflokksins í gær.
Blaðið segir, að um 20 milljón
manns, aðallega í stijálbýlinu, nái
ekki útsendingum Moskvusjónvarps-
ins og sjöundi hver sjónvarpsáhorf-
andi nái aðeins annarri rás
stöðvarinnar. Þá kvarti fólk yfír
tíðum bilunum f litsjónvarpstækjum.
Pravda segir, að ástæðan fyrir
þessu sé gamaldags framleiðslutæki.
Nefnir það sem dæmi verksmiðju
eina í Leningrad, þar sem ekkert
nýtt hafí komið fram á sviði hljóð-
tækni í heilan áratug. Önnur verk-
smiðja notist enn við tæki, sem komið
hafí verið upp á fjórða áratug aldar-
innar.
sem hann var yfirheyrður. Kvaðst
hann vera frá bænum Magadan og
eiga þar konu og tvö ung böm.
Að sögn sjónarvotta kom flugvélin
inn yfír Gotland og virtist sem flug-
maðurinn væri að leita að hentugum
lendingarstað. Það virðist ekki hafa
tekist. Olía lekur úr flakinu og hefur
sænska strandgæslan og herinn þeg-
ar gert ráðstafanir til að ná flugvél-
inni á land. Yfirvöld skýrðu
sendimönnum Sovétríkjanna í Stokk-
hólmi frá atburði þessum og hyggjast
þeir ná tali af manninum.
Sri Lanka:
Uppreisnarmenn
hverfa er her-
inn sækir fram
Colombo, Sri Lanka, Reuter.
SKÆRULIÐAR tamíla á Srí
Lanka virðast einfaldlega
hverfa jafnóðum og her stjórn-
arinnar sækir fram, að þvi er
talsmaður stjómarinnar sagði
í gær. Herinn er að reyna að
losa tak uppreisnarmanna á
Jaffna-skaga á norðurhluta Srí
Lanka.
„Hryðjuverkamennimir hverfa.
Okkur hefur ekki verið veitt and-
spyma frá því að aðgerð hersins
hófst," sagði Tilak Ratnakara,
talsmaður yfírvalda.
Að hans sögn misstu skærulið-
ar tuttugu menn á fyrsta degi
sóknarinnar. Ellefu hermenn létu
lífíð og flöratíu særðust er jarð-
sprengjur sprangu. Sfðan hafa
ekki borist fréttir um mannfall
eða átök.
Rúmlega þijú þúsund hermenn
taka þátt í áhlaupinu á uppreisn-
armennina, sem hafa nánast
stjómað Jaffna-skaga og 800
þúsund íbúum, sem flestir era
tamílar, í tvö ár.
Ratnakara sagði að hermenn-
imir væru nú að reyna að sölsa
undir sig Vadamaradchchi svæð-
ið, sem er á norðaustur homi
skagans og einangrað frá hinum
hluta jafna með söltu lóni. Hann
kvað hermenn starfa beggja
vegna lónsins: „Þegar stjómin
hefur náð svæðinu á sitt vald
verða herbúðir á skaganum
tengdar saman. Það er fyrsta
skrefíð, sem tekið verður til að
tryggja yfírráð stjómarinnar."
Stjómvöld banna fréttamönn-
um að fara til skagans og er því
ógemingur að fá óháðar fréttir
af gangi mála þar.
Sjóher, landher og flugher held-
ur til í tíu herstöðvum á skaganum
og hafa þær hingað til verið ein-
angraðar hver frá annarri og
umkringdar skæruliðum.
Reuter
Sænskar herþotur á sveimi yfir flaki sovésku flugvélarinnar skammt
undan Gotlandi.
Sovésk flugvél hrapar undan Gotlandi:
Flugmaðurinn óskar
eftir pólitísku hæli
Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins.
SOVÉSK flugvél hrapaði í hafið skammt undan Gotlandi í gærmorg-
un. Flugmaðurinn, sem er 24 ára gamall bóndi tók flugvélina traustataki
á flugvelli í Lettlandi og hefur hann óskað eftir pólitisku hæli í Sviþjóð.