Morgunblaðið - 28.05.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
37
Barbie sendi
44 börn í
gasklefana
Barbie sendi börnin 44 í Izieu, út í opinn dauðann.
Réttarhöldin í Lyon:
Reuter
Lyon. Reuter.
SABINA Ziatin, hjúkrunarkona
af gyðingaættum, sagði frá því
fyrir réttinum í Lyon í Frakkl-
andi, þar sem mál Gestapofor-
ingjans, Klaus Barbie, er tekið
fyrir, hvernig 44 börnum af
gyðingaættum og 7 fullorðnum
er gættu þeirra, var smalað inn
flutningabíla og þau síðan send
út í opinn dauðann, í gasklef-
ana. Er Klaus Barbie talinn
hafa verið viðstaddur atburð-
inn og bera á honum fulla
ábyrgð.
Atvikið átti sér stað á bama-
heimili, í smábænum Izieu um 80
km. frá Lyon, snemma á skírdags-
morgun árið 1944. Þar sem þetta
var frídagur var ekki allt starfs-
fólkið að vinna og því hringdi
enginn sérstakri þartilgerðri
bjöllu til að vara börnin við hæt-
tunni, er bílamir með Gestapo-
mönnunum renndu í hlað. Hinum
nývöknuðu bömum, sem vora
3-13 ára var síðan sparkað upp í
bílana og ekið á brott með þau.
Einn drengur komst undan, út um
glugga á bakhlið hússins og öðr-
um, sem ekki var af gyðingaætt-
um var sleppt. Öll bömin létust í
gasklefum og af þeim fullorðnu
lifði einn stríðið.
Zlatin sagði að hún hefði kom-
ið heimilinu á fót árið 1942 með
aðstoð eiginmanns sína og nok-
kurra Frakka. Hafði hún þá um
skeið, eftir að henni var sagt upp
störfum af því að hún var gyðing-
ur, heimsótt erlenda gyðinga er
var haldið í frönskum fangelsum.
í einni slíkri heimsókn báðu ör-
væntingarfullir foreldrar hana um
að bjarga bömunum þeirra. Tók
hún þá að sér fyrstu bömin og
síðan smáfjölgaði þeim. Hún
reyndi að finna fyrir þau öragg
heimili eftir því sem tækifæri
gafst. Umræddan dag var Zlatin
í Suður-Frakklandi að skipuieggja
flótta 44 manna. Er hún heyrði
um atburðinn flýtti hún sér Vic-
hy, þar sem hin franska leppstjóm
Þjóðveija sat. Franskir embættis-
Reuter
Sabina Zlatin kemur til yfir-
heyrslnanna í gær.
menn þar sögðu henni að snauta
á braut annars yrði hún hand-
tekin líka. „Barbie hefur haldið
því fram að hann hafí aðeins feng-
ist við óvini Þjóðveija, andspyrnu-
menn og skæraliða" sagði Zlatin
í gær, „en hvað vora þessi 44
böm, andspymumenn og skæra-
liðar?“. Leon Reifmann er
komst út um gluggann og Julien
Favet er var vitna að atburðinum
komu einnig fyrir réttinn í gær.
Sagði Favet að er hann hefði ver-
ið að horfa á sjónvarp árið 1972,
hefði komið mynd af Barbie sem
hann hefði þegar þekkt aftur sem
stjómanda aðgerðanna. Sagði
hann að við hefði legið að hann
fengi taugaáfall svo hefði sér
bragðið.
Andrúmsloftið í réttarsalnum
var hlaðið tilfinningum er vitnin
komu fyrir réttinn og margir
grétu.
Kosningabaráttan á Bretlandi:
Thatcher reynir að
hrifsa frumkvæðið
London, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, reynir nú
að hrifsa frumkvæðið í barátt-
unni fyrir þingkosningarnar,
sem haldnar verða 11. júní.
Verkamannaflokkurinn hefur
undanfarið dregið talsvert á
íhaldsflokkinn, sem hafði þægi-
legt forskot í upphafi kosninga-
baráttunnar, í skoðanakönnun-
um.
Forskot Ihaldsflokksins á Verka-
mannaflokkinn hefur minnkað um
helming á níu dögum og Thatcher
hefur vegið að Neil Kinnock og liðs-
mönnum hans og kveðið skýrt á
um það að vinstri flokknum verði
ekki kápan úr því klæðinu.
„Við höfum áður haft stjómir
Verkamannaflokksins," sagði
Thatcher á útifundi í Wales í fyrra-
dag. „Nú era meiri öfgar í Verka-
mannaflokknum, hann hefur færst
lengra til vinstri og er sósíalískari
en nokkra sinni. Við skulum ekki
telja okkur trú um að við séum það
rík að við þolum enn einn skammt
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, prófar hér
handhægan áfengismæli í verk-
smiðju í Barry í Wales.
af sósíalisma, þótt velmegun hafi
aukist."
í skoðanakönnun Marplan, sem
birtist í dagblaðinu Today í gær
hefur Íhaldsflokkurinn 42 prósenta
fylgi, Verkamannaflokkurinn 35
prósent fylgi og fylgi Bandalags
fijálslyndra og jafnaðarmanna hef-
ur skroppið niður í 20 prósent.
Samkvæmt könnuninni fengi
íhaldsflokkurinn 50 sæta meiri-
hluta í neðri málstofu breska
þingsins. Forskot íhaldsflokksins á
Verkamannaflokinn er nú að meðal-
tali 7 prósent í skoðanakönnunum,
en fyrir níu dögum hafði íhalds-
flokkurinn um 12 prósenta forskot.
í gær vora einnig birtar tvær
skoðanakannanir, þar sem fram
kom að íhaldsflokknum væri nú
aftur að vaxa fískur um hrygg. í
Harris-skoðanakönnun, sem gerð
er daglega fyrir TV-AM sjónvarps-
stöðina, fékk íhaldsflokkurinn 44
prósenta fylgi, Verkamannaflokk-
urinn 34 prósenta fylgi og Banda-
lagið rak lestina með 21 prósents
fylgi. í annarri Harris-könnun, sem
birtist í London Daily News, fékk
íhaldsflokkurinn 42 prósent í höf-
uðgborginni, Verkamannaflokkur-
inn 34 prósent og Bandalagið 23
prósent.
á sumarverðl — 2.500 kr. á mánuAI — og þú mætír þegar þú vilt I
TEYGJUR 0G ÞREK
Það sem þig vantar ef þú hefur ekki stundað íþróttir í langan
tíma — létt og hressileg leikfimi.
Og við gerum fleira skemmtilegt. Hjá okkur eru 4 salir fyrir
squash og raquet-ball, gufuböA, nudd- og sólbekkir — nóg
ef þú vilt hugsa um sjálfan þig.
Hringdu og athugaðu málið.