Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 38

Morgunblaðið - 28.05.1987, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987 Reuter Fórnarlömb fellbylsins jarðsett Útför 17 þeirra er fórust er fellbylur jafnaði smábæinn Saragosa í Texas við jörðu í síðustu viku var gerð í gær. 29 manns fórust og 121 slaðaðist er skýstrokkur barst yfir bæinn á föstudag í síðustu viku. „Trú ykkar hefur snortið mig,“ sagði Raymond Pena biskup, sem annaðist útförina er hann ávarpaði bæjarbúa. Bill Clements, ríkis- stjóri Texas, var viðstaddur athöfnina og sagði hann að bærinn og hans nánasta umhverfi hefði verið lýstur neyðarástandssvæði. Þar með mun íbúunum gefast kostur á að sækja um styrki og hagstæð lán auk þess sem þeim verður séð fyrir húsnæði. Kína: Fjórir handtekmr fyrir ( að valda skógareldinum Peking-, Reuter. FJÓRIR kínverskir verkamenn hafa verið handteknir og eru þeir sakaðir um að hafa kveikt mesta skógareld, sem geisað hef- ur í Kína síðan kommúnistar komust þar til valda, að því er embættismaður kinversku stjórnarinnar greindi frá í gær. Tveir mannanna eru sakaðir um að hafa kveikt í sígarettum og far- ið gáleysislega með eld í skóginum, þar sem miklir þurrkar höfðu verið. Hinum tveimur er gefið að sök að hafa unnið með vélar, sem ólöglegt er að nota í skóginum. Verkamennimir eiga yfir höfði sér dauðadóm fýrir að vera valdir að dauða næstum tvö hundruð manna, sem fórust í eldinum. Um fimmtíu þúsund slökkviliðsmenn, hermenn og björgunarmenn unnu að slökkvistarfí og tóks loks að hemja eldinn á þriðjudag. Margir höfðu aðeins blautar fatadruslur og tijágreinar til að berjast við eldinn. „Mannlegur máttur fær oft og tíðum ekki ráðið við svo mikla skóg- arelda,“ sagði Liu Guangyun, aðstoðarlandgræðsluráðherra. Hann sagði að hvassviðrið hefði verið slíkt að eldurinn hefði breiðst út á allt að 60 km hraða á klukku- stund. Eldurinn kviknaði í norðaust- urhluta Kína og tók þijár vikur að ráða við hann. „Eldurinn kom hemum að óvör- um og urðu hermenn að grípa það sem hendi var næst til að beijast við hann,“ sagði Guangyun á blaða- mannafundi. Þar sagði hann að í bænum Xilinjizhen hefðu íbúar flúið naktir á götur út um miðja nótt er eldurinn nálgaðist hann á ógnar- hraða. „Eldurinn læsti sig í allt sem brunnið gat í bænum á einni klukkustund og íbúar höfðu ekki tíma til að klæða sig áður en þeir flúðu brennandi heimili sín,“ sagði Guangyun. Að hans sögn létu 191 maður lífið, 221 hlaut alvarleg brunasár og 56 þúsund menn misstu heimili sín. Kvað hann aðeins einn þeirra, sem börðust við eldinn, hafa beðið bana „þegar hann lagðist til hvfldar í stað þess að sinna slökkvistarfi". Guangyun sagði að ekkert benti til þess að um hermdarverk hefði verið að ræða þegar eldarnir í Xil- injizhen, Tuquiang, Amur og Tahe kviknuðu. Lögregla ætti aðeins eft- ir að komast að því hvemig eldurinn í Tahe hefði brotist út. Hann sagði að kviknað hefði í út frá sígarettum tveggja verka- manna og tveir aðrir menn hefðu verið að vinna með vélum til að fella runna, en þær vélar væri bann- að að nota. Að sögn Guangyuns er aðeins ösku að finna á einni milljón hekt- ara lands. Tjónið væri metið á 400 til 500 milljónir yuan (4,4 til 5,4 milljarða ísl.kr.). Kosningarnar á Grænlandi: Líklegast að sömu flokkar sljórni áfram Kaunmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, STJORNARANDSTAÐA borg- araflokkanna vann heldur á í kosningunum á Grænlandi, en ekki nóg til þess að ríkisstjórna- skipti séu í augsýn. Eftir úrslit- um kosninganna að dæma er langlíklegast, að flokkur Jonat- hans Motzfeldts, Siumut, sem verið hefur við stjórn allt frá því að landstjórnin var sett á lagg- irnar 1979, haldi áfram um stjórnartaumana með stuðningi vinstriflokksins Inuit Ataqatigiit. Borgaraflokkurinn Atassut varð stærsti stjómmálaflokkur Græn- lands. Fyrir kosningamar var Siumut stærstur. En eins og landið liggur í grænlenskum stjómmálum, er líklegt, að Atassut verði áfram að láta sér lynda áhrifaleysið utan stjómar. Atassut fékk 63 atkvæðum fleira en Siumut, 10.043 á móti 9.980. Inuit Ataqatigiit (vinstrisósíalistar) fengu 3.823 atkvæði, nýstofnaður borgaraflokkur, Pólarflokkurinn, sem sækir fýlgi sitt til smáatvinnu- rekenda og útgerðarmanna, fékk 1.119 atkvæði og þverpólitískur listi ungs fólks fékk 91 atkvæði. Fyrir kosningamar voru 25 þing- éttaritara Morgunblaðsins. sæti á grænlenska landsþinginu. Siumut hafði 11, samstarfsflokkur hans, Inuit Ataqatigiit 3, og stjóm- arandstöðuflokkurinn, Atassut, 11. Nú var kosið um 27 þingsæti. Siumut fékk 11, Atassut 11, Inuit Ataqatigiit 4 og Pólarflokkurinn 1. Eina breytingin, sem orðið hefur, er sú, að nýi flokkurinn, Pólarflokk- urinn, fékk annan viðbótarþing- mannanna, og hinn hafnaði hjá öðrum stjómarflokkanna, Inuit Ataqatigiit. Otto Steenholdt, leiðtogi Atassut, hefur nú fengið umboð til stjómar- myndunar. Hann viðurkenndi í viðtali við Grænlenska útvarpið, eftir að úrslit kosninganna voru ljós, að flokkur hans gæti því miður ekki státað af því að vera með fjöl- mennasta þingflokkinn, en hann byði öllum, sem þess óskuðu, að vinna með Atassut. Upp á síðkastið hefur nokkuð verið um þreifingar milli stóru flokkanna, Atassut og Siumut, og beinar viðræður þeirra í milli fóru m.a. fram á þingi Norðurlandaráðs í Helsinki um mánaðamótin febrú- ar/mars. En þeir, sem hnútum eru kunnugir, telja, að Jonathan Motz- feldt hafi ekki haft nógu traust land undir fótum til að ganga til þeirra viðræðna. Vinstri armur flokks hans vill ekkert vita af samstarfi við Atassut. En eins og kunnugt er var boðað til kosninganna nú, vegna þess að stjómarsamstarf Siumut og Inuit Ataqatigiit gekk erfíðlega. Og upp úr sauð, þegar Aqqaluk Lynge, leið- togi IA, átaldi Jonathan Motzfeldt opinberlega í viðtali við dönsk blöð fyrir að taka gagnrýnislaust fullyrð- ingum Bandaríkjamanna um, að endurbygging ratsjárstöðvarinnar í Thule bryti ekki í bága við gagneld- flaugasáttmála stórveldanna. í auglýsingu, sem birt var fyrir kosningamar, sagði Siumut um samstarfsflokk sinn í landstjóm- inni, að Inuit Ataqatigiit ætti erfitt með að vinna með öðrum. „IA talar mikið um lýðræði, en á í erfiðleikum með að taka þátt í lýðræðislegu samstarfi," sagði í auglýsingunni. „IA heldur einu fram í landstjóm- inni, en öðm í landsþinginu." En Siumut á ekki annarra kosta völ en halda áfram samstarfinu við LA. Flokkamir hafa 15 þingsæti til samans og þar með meirihluta. Jonathan Motzfeldt Otto Steenholdt Eftir að tilkynnt hafði verið um úrslit kosninganna, útilokaði Jonat- han Motzfeldt samt ekki samstarf við Atassut. Hann sagði í viðtali við Grænlenska útvarpið, að þjóðin mundi efalaust fagna stöðugleika- tímabili í landsmálunum — og vísaði þar aftur beint til samstarfs Siumut og Atassut. En eins og er virðist Plast verður að ryki ÓÁNÆGJA almennings með plastrusl sem dreifist um götur og torg hefur hvatt fyrirtæki í efnaiðnaði til þess að þróa framleiðslu á plastefnum sem eyðast af sjálfu sér. Forráðamenn Ecoplastics, sem er lítið framleiðslufyrirtæki í Kanada, telja sig hafa komið fram með merka nýjung. Þeir hafa þró- að nýtt plastefni sem þeir kalla Ecolyte. Plastið drekkur í sig út- fjólubláa geisla en þeir breyta því í fíngert ryk. Bolli úr Ecolyte verð- ur að ryki á um tveimur mánuð- um. Sýklar breyta því næst rykinu í vatn og kolefnistvíildi. Venjulega tæki þetta ferli mörg ár. Jim Guillet við háskólann í Toronto uppgötvaði Ecolyte fyrir 15 árum. Hægt er að nota sömu vélar og voru notaðar við að framleiða plastmál, við framleiðslu mála úr Ecolyte og kostnaðurinn er aðeins 5-10% hærri. Þar sem plastið drekkur aðeins í sig út§ólubláa geisla þolir Ecolyte geymslu innan dyra. Útfjólubláir geislar komast ekki í gegn um venjulegt rúðugler. Nú seljast um 20 tonn af Eco- lyte á mánuði sem er einungis örlítill hluti af heildarsölu plast- efna í heiminum. Önnur plastefni á markaðnum sem líka eyðast, seljast betur en þau hafa öll ein- hveija slæma eiginleika. Plastor, sem framleitt er í ísra- el, er mikið keypt af bændum. En í því eru aukaefhi sem gætu smit- að út frá sér og því má ekki nota Plastor til pökkunar á matvælum. I Kanada er framleitt plastefni með sterkju. Sýklar éta sterkjuna og búa þannig til göt í plastið sem dettur í sundur. Gallinn er sá að sterkjan breytir eiginleikum plastsins. ICI stórfyrirtækið í Bretlandi framleiðir efni sem kall- að er PHB. Það er búið til af örverum og sýklar vinna auðveld- lega á því. Þetta efni er hins vegar svo dýrt í framleiðslu að það er einungis notað í hluti eins og í þráð til að sauma saman skurði og sár. Búast má við því að áhugi á plastefnum sem eyðast sjálf au- kist í framtíðinni. Nú þegar eru sumar verslanir farnar að nota bréfpoka í staðinn fyrir plastpoka og t nokkrum löndum hafa verið sett lög sem hvetja til notkunar annarra efna en plastefna í um- búðir. Árið 1989 verða allar einnota plastvörur á Ítalíu að vera sjálfeyðandi og frá og með l.júní má ekki selja matvörur í plastum- búðum í Flórens. Aqqaluk Lynge samstarf þessara flokka aðeins fjar- lægur möguleiki og mundi koma verulega á óvart. Kosningaþátttaka var rúmlega 70% eða aðeins meiri en í síðustu kosningum. Japan: Tveir hand- teknir fyrir að selja há- tæknibúnað Tókýó, Reuter. TVEÍR háttsettir starfsmenn jap- anska fyrirtækisins Toshiba voru liandteknir í gær og eru þeir grun- aðir um að hafa sent Sovétmönn- um hátæknibúnað með ólöglegum hætti, að því er lögreglan í Tókýó sagði. Hinir grunuðu eru Ryuzo Hayashi, einn forstjóra Toshiba Machine Co, og Hiroaki Tanimura, aðstoðarfor- stjóri. Þeir voru handteknir og eru nú í yfirheyrslu. Þeim er gefið að sök að hafa flutt hátæknibúnað til Sovétríkjanna. Hér er um tæki að ræða, sem nota má til að framleiða nánast hljóðlausar skrúfur í kafbáta. Tækin voru send milli desember 1982 og júní 1983, að sögn lögreglu. Stjóm Japans hefur þegar lagt eins árs bann við frekari sendingum fram- leiðslu fyrirtækisins til kommúnist- aríkja. Ekki má flytja umræddar vélar til kommúnista ríkja samkvæmt banni, sem Samræmingamefnd útflutning- seftirlits (COCOM) í París setti. Nefnd þessi fylgist með útflutningi á hergögnum og vöm, sem nota má í sambandi við hemað, til kommúnist- aríkja. Að sögn lögreglu samþykkti iðnað- ar- og verslunarráðuneytið útflutning tækjanna eftir að Toshiba gaf rangar og falsaðar upplýsingar um það til hvers nota má tækin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.