Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 42
V8CI IAM .82 HUOAaiJTMim .aiaAJtaVRJOHOM
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
kröfur sem gerðar væru.
„Það eru sífellt að bætast við
námsgreinar í grunnskólanum og
Íiað er aukið álag á nemendur.
slenskutímum hefur frekar fækk-
að en hitt, jafnframt því sem
kröfumar hafa ekki minnkað,
þannig að það er ef til vill eðlilegt
að einhvers staðar láti undan. Það
er algjör nauðsyn að auka íslensku-
kennslu vilji menn halda þeirri
málstefnu áfram, sem fylgt hefur
verið, að spoma við of miklum
áhrifum erlendra tungumála. Þetta
er menningarpólitísk ákvörðun,"
sagði Ragnhildur.
Hún benti á að íslenskukennarar
í grunnskólum stæðu frammi fyrir
því að vera með hóp af nemendum,
sem varla væru læsir og skrifandi.
„Við emm að reyna að kenna þeim
alltof flókin atriði í stað þess að
vera að kenna þeim það sem helst
þyrfti. Ég er fylgjandi því að sam-
ræmd próf í þessari mynd verði
lögð niður. Mér fínnst þau ekki
eiga neinn rétt á sér. Það þurfa
að vera samræmd próf eða könn-
unarpróf, sem skólum em send,
svo bæði hver kennari og skóli
geti fylgst með því hver staða hans
er gagnvart öðmm, en þau eiga
ekki rétt á sér í þessu formi. Kenn-
arar leika sér að því að sleppa
- þáttum íslensks máls, sem em
mjög mikilsverðir, vegna þess að
þeir koma ekki á samræmdum
prófum og margir skólar sem setja
sinn metnað hátt og vilja ná háum
samræmdum einkunnum byija
strax í 7. bekk að búa undir sam-
ræmdu prófín. Til dæmis hefur
ritun farið mjög halloka vegna
þess hversu lítið hefur verið um
hana á samræmdum prófum fram
að þessu," sagði Ragnhildur að
lokum.
Sverrir Pálsson skólastjóri
Gagnfræðaskólans á Akureyri:
„Hver er fallegasti fuglinn?“
„Ég hef skoðað þetta próf og séð þar augljósar hugsunarvillur
og afar illa orðuð fyrirmæli til próftaka um það hveiju þeir ættu
að svara. Sum fyrirmælin í prófverkefninu stóðust alls ekki. Meginat-
riðið er þetta: Menn, sem eru ekki færir um að orða hugsun sína svo
að hún komist til skila, eins og til er ætlast, þeir eru ef til vill held-
ur ekki færir um að dæma úrlausnir nemenda á viðunandi hátt,“
sagði Sverrir Pálsson, skólastjóri Gagnfræðaskólans á Akureyri.
Sverrir nefndi sem dæmi það
verkefni að mynda lýsingarorð af
nafnorðum. Um tvö þeirra gilti það
að ekki væri nokkur leið að mynda
lýsingarorð af þeim, þ.e.a.s. nafn-
orðin þögn og Svíi. „Vitanlega eiga
höfundar verkefnisins við allt aðra
hluti. Þeir eiga ekki við það, sem
þeir spyija um. Eins það, að það á
að mynda þijú nafnorð af sögninni
að aka og aldrei að nota sama stofn
sagnarinnar tvisvar. Þetta er ekki
hægt og það sjá skarpir nemendur.
Þeir fínna að þama er maðkur í
mysunni og þeir vantreysta verk-
efninu. Þeir sem hugsa ekkert
sérstaklega rökrétt geta sullast til
þess að gera þetta rétt, en virkilega
góðir nemendur hika við,“ sagði
Sverrir.
Hann nefndi ennfremur verkefn-
ið úr Gísla sögu Súrssonar, þar sem
Þórður sér vopnaða menn fara að
bænum og hleypur inn hræddur.
Síðan er spurt hvað megi ráða af
lýsingu þessa texta um skaplyndi
Þórðar. „Það er ekki hægt að ráða
nokkum skapaðan hrærandi hlut
af þessum texta um skaplyndi
mannsins. Það er hægt að segja
að hann hafí verið hræddur, flaum-
ósa, en það lýsir skyndiviðbrögðum
hans en ekki skaplyndi. Menn, sem
geta ekki komið frá sér óbjöguðum
texta í prófverkefni, en til hans
verður að gera miklar kröfur, þeim
treysti ég varlega til að dæma úr-
lausnir nemenda á viðhlýtandi hátt.
Þeir menn, sem annast þessa vinnu,
bera mikla ábyrgð gagnvart gengi
einstakra nemenda í skóla fram-
vegis. Þetta er ekki hégómamál
einstakra skóla," sagði Sverrir.
„Við höfum æðilanga reynslu af
kennslu í íslensku hér við skólann
og það em sömu kennaramir í ára-
raðir, þaulvanir menn og vandvirk-
ir, sem fást við þetta. íslenskan
hefur oftast nær verið sú samræmd
prófgrein, sem hefur skilað hæstri
meðaleinkunn. Ég held það hafí
verið alveg föst regla þangað til
allt í einu núna að hún verður lægst
í meðaleinkun og líka í hlutfalli
þeirra sem ná 5. Þetta er eitthvað
skrýtið og það, að af 135 nemend-
um, sem em hér við skólann og
tóku þetta próf, er aðeins einn sem
nær stigafjölda yfír 8. Til saman-
burðar em þeir margir í stærðfræði
og ensku, sem era með 9 og sumir
10. í íslenskunni verður hmn og
það er ekki því að kenna, sem látið
hefur verið í veðri vaka, að kennar-
Sverrir Pálsson
ar hafi verið í verkfalli og skólum
lokað. Hvomgt gerðist hér. Það
féll ekki niður einn einasti tími í
íslenskunni í 9. bekk.
Prófverkefnið var stórgallað. Þar
að auki tel ég ákaflega hæpið að
prófa í túlkunaratriðum og jafnvel
smekksatriðum. Það minnir mig á
sögu, sem Jónas Ámason rithöfund-
ur sagði af kennara, sem spurði
nemendur sína: Hver er fallegasti
fuglinn? Þeir sem svöraðu stokk-
andarsteggur fengu 10. Þeir sem
nefndu einhvem annan fugl fengu
0. Ég er ekki að segja að þetta sé
hliðstætt, en minnir ansi mikið á
þessa sögu Jónasar," sagði Sverrir.
Hann sagði að sér fyndist
kennslubókum í íslensku hafa farið
hrakandi undanfarin ár. Þær
byggðust einkum á því fylla út í
eyður og sumt af því, sem þar
stæði, væri mjög hæpið fræðilega.
„Við þurfum ömgglega að taka upp
harðari kröfur um meiri málfræði-
kennslu. Ekki þessa linku, sem verið
hefur, og alls konar innantómt
snakk í kennsluefni og prófefni.
Ég held við verðum að hugsa okkar
gang um hvað við emm að gera
og hvert við emm að fara í íslensku-
kennslunni yfírleitt. Enda sjáum við
alls staðar í kringum okkur, ekki
síst í fjölmiðlum, hvers konar
smekkleysur og vankunnáttu í mál-
fari, sem venjulegur maður á
sauðskinnsskóm hefði aldrei látið
sér detta í hug að láta sér um
munn fara, þó að hann hefði aldrei
komið í skóla. Það virðist heldur
ekkert þýða að tala um það við
þetta fólk hvað betur má fara, því
það endurtekur sömu vitleysumar,"
sagði Sverrir.
Hann sagðist vera því fylgjandi
að meðaldreifíng, þar sem tekið er
mið af einkunnum nemenda inn-
byrðis, yrði tekin upp á nýjan leik.
Meðaldreifíngin hefði eytt mistök-
um í prófverkefnagerð. Þá hefði
ekki verið hægt að kenna því um
að prófið í ár hefði verið þyngra
en próf fyrri ára eða öfugt. Ein-
kunnir skóla, sem gefnar hefðu
verið samhliða, hefðu verið hlut-
fallseinkunnir í tölustöfum og sýndu
kunnáttu nemandans miðað við
námskröfur. Þess þyrfti líka, þar
sem nemandinn þyrfti að vita hvar
hann væri staddur gagnvart náms-
efninu.
I BATINN - BUSTAÐINN OG GARÐINN
HAND- OG RAFMAGNSVERKFÆRI I URVALI
Allt til sjó-
stanga- og
handfæra-
veiða
AKur öryggis- og skoö-
unarbúnaöur í bátinn og
skútuna.
Dælur -r drekar
björgunarvesti — aiglingaljós
vírar — keöjur — kaölar
Vatna- og
innfjaröarbátar
9—14 fet.
LINUR, SIGURNAGLAR,
SÖKKUR. SJÓVEIÐI-
STENGUR, HANDFÆRA-
VINDUR MED STÖNG.
FÆREYSKAR HAND-
FÆRAVINDUR.
Ánanaustum, Grandagarði 2, sfmi 28855
Fatadeildin
Hlíföarfatnaöur
Regnfqtnaöur
Norsku ullarnærfötin
Samfestingar
Peysur — skyrtur
Buxur
Gúmmístígvél há og lág
Skófatnaöur
Vinnu- og garöhanskar
Sokkar
Fúavamarefni — Málning
— Lökk — Hreinlætisvörur
— Kústar — Burstar.
Vatns- og olíudælur.
Minka- rottu- og músa-
gildrur
Gasluktir — vasaljós —
rafhlööur — hreinsuö stein-
olía
Olíuofnar — Arinsett
SLÖKKViTÆKI OG
REYKSKYNJARAR.
VATNSBRÚSAR OG
FÖTUR.
Garðyrkjuverk-
færi
Hjólbörur —
Slöngur og klemmur.
FLAGGSTENGUR .
6-8 METRA. A
Fánar- Vimplar
Flaggstangarhúnar
Hitamælar — Klukkur
Loftvogir — Sjónaukar
Olíulampar og luktir
Með einu símtali er hægt að breyta inn-
heimtuaðferðinni. Eftir það verða áskfiftar-
gjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslu-
kortareikning mánaðarlega.
JftmgifiiHfifcife
SÍMINNER
691140
691141