Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
43
Hálshreppur:
Keypti verslunarhús
úr þrotabúi Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar
HÁLSHREPPUR hefur keypt
verslunarhúsnæði úr þrotabúi
Kaupfélags Svalbarðseyrar fyrir
710.000 krónur án þess að til
uppboðs kæmi.
Fyrsta uppboð á þrotabúi kaup-
félagsins átti að fara fram þann
11. maí sl., en því var frestað til
næsta mánaðar. Hálshreppur mun
reka í húsnæðinu, sem er um 70
fermetra stórt, verslun fyrir ferða-
fólk yfir sumartímann. Verslunin
hefur hingað til verið opin tvisvar
í viku yfir vetrartímann fyrir sveit-
unga, en Tryggvi Stefánsson,
oddviti Hálshrepps, sagði í samtali
við Morgunblaðið að því yrði hætt
þar sem ekki væri grundvöllur fyrir
því.
Borist höfðu önnur tilboð í versl-
unina frá aðilum á Dalvík og
Akureyri, en þrotabússtjóra mun
vera heimilt að selja eignir þrota-
búsins fáist viðunandi tilboð í eignir
þess.
Leikfélag Akureyrar:
Síðustu sýning-
ar á Kabarett
SÍÐUSTU sýningar á söngleikn-
um Kabarett sem Leikfélag
Fyrsta golfmót
sumarsins hald-
ið um helgina
FYRSTA stórmót sumarsins verð-
ur haldið næstkomandi helgi á
vegum Golfklúbbs Akureyrar.
Leiknar verða 36 holur og hefst
mótið kl. 10.00 á laugardagsmorgun
og stendur til sunnudagskvölds.
Styrktaraðili mótsins eru frönsku
sportfatnaðarframleiðendumir hjá
Lacoste, en umboð fyrir þá hefur
herradeild JMJ á Akureyri. í tengsl-
um við mótið verður haldin sýning á
sportfatnaði og snyrtivörum frá Lac-
oste í nýja golfskálanum, sem vígður
var í gærkvöldi við hátíðlega athöfn.
Akureyrar hefur sýnt að und-
anförnu verða í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, föstudagskvöld og
laugardagskvöld. I þessum
síðustu sýningum tekur Þráinn
Karlsson við hlutverki Schultz
sem Pétur Einarsson leikhús-
stjóri hefur farið með, en
Þráinn veiktist rétt fyrir frum-
sýningu á leiknum og hefur
verið frá síðan.
í leiknum koma átján leikarar
og sjö manna hljómsveit fram auk
tækniliðs LA. Lokasýningin á
laugardagskvöldið verður sú
þrítugasta á Kabarett og er það
allra síðasta sýning.
Pétur Einarsson, leikhússtjóri,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að æfíngar hæfust aftur í byijun
ágúst hjá LA og yrði þá æfð dag-
skrá í tilefni af 125 ára afmæli
Akureyrarbæjar sem hlotið hefði
vinnuheitið „Veislan mikla“.
Rut og Hall-
grímur ásamt
“leigjandan-
um“ á Volks-
wagenþakinu Á
minni myndinni
sjást ungamir í
hreiðrinu
Ungarnir skriðnir úr eggj-
unum á Volkswagen-þakinu
UNGARNIR fjórir eru nú skriðnir úr eggjunum,
sem þrastarmamma ein verpti á þak Volks-
wagen-bifreiðar við Helgamagrastræti 42 á
Akureyri.
Ungarnir virðast við hestaheilsu og heimsótti
blaðamaður þá fyrir skömmu við misjafnar undir-
tektir foreldranna. Þau hjón Hallgrímur Hallgríms-
son og Rut Guðmundsdóttir, eigendur bifreiðarinnar,
kipptu sér þó ekki upp við hamagang fuglanna.
„Þau hafa meitt mig í skallanum oftar en einu
sinni," sagði Hallgrímur og leit til lofts áður en
hann klifraði upp á húddið til að heilsa upp á fóstur-
bömin sín. Eg lái þeim það reyndar ekki því ég
er alltaf að sprella við þau. Ég hef tvívegis borið á
borð fyrir ungana tvo þessa risa-orma, en þrastarm-
amma kom aðvífandi, tók þá upp aftur og flaug
með þá langt í burtu svo ég örugglega næði þeim
ekki aftur. Henni fannst þeir víst of stórir fyrir litlu
greyin."
Fyrsta eggið kom þann 8. maí og fyrsti unginn
skreið í heiminn á bílþakinu þann 21. maí. Hallgrím-
ur útbjó kassa í kringum hreiðrið til að veija það
og við hliðina setti hann annan kassa með mold og
ormum innanborðs. Volkswagen-bfllinn er sumarbif-
reið Hallgríms, en á veturna ekur hann á Willys-jeppa
árgerð 54. Hann bjóst við að þurfa að nota jeppann
sinn næstu tvær til þijár vikur, eða þangað til litlu
ungamir fara að geta bjargað sér sjálfir. Ég get
bjargað mér á vetrarbílnum á rneðan," sagði Hallg-
rímur að lokum.
Eg lít á mi g sem bráöa-
birgðafyrirbæri í starfinu
— segir Ólafur Guðmundsson, nýsettur fræðslustjóri Norðurlands eystra
„ÞAÐ ER orðið heldur seint að draga sig til baka, eins og starfs-
menn fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra hafa farið fram
á við mig. Ráðherra er búinn að setja mig í stöðuna og þyrfti ég því
að segja upp og er uppsagnarfrestur nú þrír mánuðir," sagði Ólafur
Guðmundsson, nýsettur fræðslustjóri Norðurlands eystra, í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Ólafur sagðist ætla að sjá til
hvernig málin þróuðust fyrir norð-
an. „En, eins og málum hefur
háttað að undanfömu, lít ég nú á
mig sem bráðabirgðafyrirbrigði í
þessu starfi þangað til að endanleg-
ar sættir nást. Ef ráðherra vill
endurskoða málin, sem ég reyndar
á ekki von á, þá stend ég ekki í
veginum. Hinsvegar gæti nýr
menntamálaráðherra viljað haga
málum á annan veg og ég vil síst
standa í veginum fyrir sáttum. En
á meðan hyggst ég sinna mínu
starfi og á ekki von á öðru en að
fá fullan frið ti! þess.“
Ólafur sagðist ekki reikna með
að gegna starfi fræðslustjóra lengur
en í ár miðað við núverandi aðstæð-
ur. Hann sagðist ekki vita hvað
hugsanlega gæti stuðlað að endan-
legum friði, en taldi þó að deiluaðil-
ar ættu að ræða betur saman, í
stað þess að skiptast á skoðunum
í gegnum fjölmiðla.
Nýi fræðslustjórinn sagðist ætla
að skreppa í heimsókn á fræðslu-
skrifstofuna á morgun og jafnvel
heilsa upp á formann fræðsluráðs,
Þráin Þórisson. Hann myndi síðan
hefja störf á mánudag.
Landssamband hjálparsveita skáta:
Landsþing haldið á Akureyri
LANDSÞING Landssambands hjálparsveita skáta verð-
ur sett á Hótel KEA á Akureyri á morgun, föstudag,
kl. 10.00. Þingið sitja yfir hundrað fulltrúar úr öllum
sveitum landsins. Þinginu lýkur á laugardagskvöld.
Aðalmál þingsins verða stefnu-
mörkun og tilgangur LHS og litið
verður á hvort fyrri markmið sam-
bandsins hafi skilað sér sem skyldi.
Þá verður fjallað um tækjabúnað
hjálparsveitanna sjálfra, öryggis-
mál á hálendinu og kynningarstarf-
semi hjálparsveitanna.
í nóvember síðastliðnum voru 15
ár liðin frá stofnun LHS. Stofnsveit-
ir sambandsins voru níu talsins, en
nú eru þær orðnar 21 talsins. Sem
nokkurs konar afmælisverkefni ein-
setti landssambandið sér að auka
og bæta þá aðstoð sem það getur
veitt aðildarsveitunum í þjálfunar-
málum. Fulltrúaráðsfundur^ sam-
bandsins, sem haldinn var á ísafirði
í september sl., samþykkti viðamikl-
ar tillögur nefndar sem fjaliaði um
þjálfunarmál. A sl. sumri var unair-
ritaður nýr samstarfssamningur
milli Almannavama ríkisins annars
vegar og björgunarfélaganna og
Rauða krossins hinsvegar. Að fmm-
kvæði LHS var hafist handa um
gerð þessa samkomulags, sem er
að ýmsu leiti gjörólíkt fyrri sam-
starfssamningum þessara aðila.
Það er skoðun stjómarinnar að vel
hafi tekist til og að framkvæmd
samningsins geti orðið lyftistöng
fyrir hjálparsveitimar. Það er þó
komin í ljós ákveðin brotalöm í sam-
komulaginu. Almannavamir virðast
ekki vera í stakk búnar til að upp-
fylla þær óskir sem settar hafa
verið fram um þjálfun lykilmanna
sem vinna eiga að þjálfunarmálum.
Stjóm LHS hefur af því þungar
áhyggjur hversu illa virðist búið að
þessari lífsnauðsynlegu stofnun
fjárhagslega, segir í skýrslu LHS.
Starfsemi LHS skiptist í tvo höf-
uðflokka, annars vegar er félagslegi
þátturinn og hinsvegar fjáröflunin.
Á undanfömum árum hafa milljón-
ir króna komið frá LHS til aðildar-
sveitanna, mest megnis í formi
peninga og útbúnaðar. Mest er þar
um að ræða sjálfsaflafé sambands-
ins, en ríkisstyrkur rennur einnig
óskiptur til sveitanna. Rekstur sam-
bandsins hefur fram að þessu
byggst á sölu varnings sem beint
eða óbeint fellur undir það sem
kalla má áhuga- eða þekkingarsvið
sambandsins. Velta þess á síðasta
ári var um það bil 60 milljónir.
Ingimar Eydal í Hjálparsveit
skáta á Akureyri sagði í samtali
við Morgunblaðið að starfið væri
blómlegt þar í bæ. Um það bil 70
til 80 félagar væm í sveitinni, þar
af um helmingur sem væri mjög
virkur í starfinu. Hinsvegar hefðu
þeir Norðanmenn misst þó nokkuð
af liði sínu suður í skóla og hefðu
til dæmis átján félagar verið við
nám þar í vetur, en starfað í stað-
inn með sveitinni í Reykjavík. „Við
emm komnir með eina sjö til átta
kennara hér á Akureyri í skyndi-
hjálp og sjáum um mestalla
skyndihjálpakennslu í skólum norð-
anlands. Björgunarskóli LHS
verður tíu ára í haust og er starfið
sem þar fer fram mikið og gott.
Auk skyndihjálparinnar fer þar
fram fræðsla í rötun og ferða-
mennsku og í bígerð er námsbraut
í köfun og sjóbjörgun. Þá hefur
skólinn sent menn á námskeið er-
lendis í öðmm sérhæfðari málum
og er þá ætlast til þess að þeir
kenni öðmm félögum sínum hér-
lendis." Jón Grétar Sigurðsson er
skólastjóri björgunarskóla LHS.
Ingimar sagði að sveitin á Akur-
eyri ætti eignir sínar skuldlausar,
en kominn væri tími til að fara að
huga að endumýjun snjóbflsins sem
nú væri orðinn um 20 ára gamall.
Einnig þyrfti að endurbæta fjar-
skiptabúnaðinn. „Við emm með
mjög öflugt félagslíf og emm þess-
ar vikumar að innrétta húsnæðið
okkar sem við fengum árið 1983.
Það var gamalt fjós og hlaða svo
mikið starf liggur fyrir."
Jón Halldór Jónasson, ritstjóri
Hjálparsveitatíðinda, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að nú væri
happdrætti í gangi sem dregið yrði
í í júní og fengju sveitimar ágóðann
af sölu happdrættismiðanna. Þá er
annað átak að heQast hjá hjálpar-
sveitum skáta um land allt sem er
sala svokallaðra sjúkrapúða.
I dag fer fram fjölmiðlanámskeið
fyrir alla fréttaritara Hjálparsveita-
tíðinda og mun Vilborg Harðardótt-
ir stjóma því. Fyrir um það bil einu
og hálfu ári var blaðið stækkað til
muna og er upplagið 4.000 eintök,
sem dreift er til allra þeirra sem
tengjast björgunarmálum á ein-
hvem hátt.