Morgunblaðið - 28.05.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
49
ÁRNl MATTHtASSON
Mussolini
Svart/hvítur draumur sem komin
er á fullt eftir nokkurt hlé og
betri en nokkru sinni. Sveitin spil-
aði hvert topplagið af öðru með
afbragðs textum og sýndu það að
Ljósmynd/BS
þar fer ein besta hljómsveit lands-
ins um þessar mundir.
Ekki verður skilið við tónleika-
frásögnina án þerss að lofa
hljóðstjóm sem var mjög góð.
Súld í Casablanca
í kvöld halda hljómsveitirnar
Súld og Tríó Bobby Harrison
ókeypis tónleika í skemmti-
staðnum Casablanca.
Hljómsveitina Súld kannast án
efa margir við, þá sérstaklega
eftir eftirminnilegan leik í Broad-
way á nýársdansleik sjónvarpsins.
Nú er Súld tríó eftir að Tryggvi
Húbner hætti í hljómsveitinni.
Þeir félagar í Súld sem eftir eru,
Steingrímur Guðmundsson,
Szymon Kuran og Stefán Ingólfs-
son, halda þó uppteknum hætti
og ætla sér að spila frumsaminn
framsækinn jass í kvöld.
Tríó Bobby Harrison, sem í eru
auk hans þeir Guðmundur Ingólfs-
son og Bjami Sveinbjömsson,
mun líka fást við jass en einnig
má búast við blús frá Bobby og
félögum.
Eins og áður sagði er aðgangur
ókeypis að tónleikunum.
Gildran: Þórhallur Árnason, Birgir Haraldsson, Karl Tómasson.
GILDRAN
Huldumenn í toppformi
Nú á föstudaginn kemur út
platan „Huldumenn" með hljóm-
sveitinni Gildrunni. Blaðamanni
gafst tækifæri til þess að heyra
plötuna, sem er hreint afbragðs-
góð rokkskífa og átti spjall við
hljómsveitarmeðlimi um Urði,
Verðandi og Skuld.
Rokktríóið Gildran er skipað þeim
Birgi Haraldssyni, söngvara og
gítarleikara, Þórhalli Ámasyni,
bassaleikara, og Karli Tómassyni,
sem ber trumbur. Þeir félagar eru
búnir að spila saman í tæpan áratug
og þekkja því vel til hvers annars.
Lengst af mynduðu þeir þunga-
rokkssveitina Pass, en efír að hafa
þrautreynt að koma þeirri tónlistar-
stefnu ofan í landann, sneru þeir sér
að ögn melódískari tónlist og það
er hún sem við blasir nú. Engin
skyldi þó halda að hér sé um sykur-
húðaða lyftutónlist að ræða; þeir
félagar eru enn þá harðir rokkarar,
en með talsvert öðrum áherslum en
áður.
Það sem nú er leikið er líkast til
kallað framsækið rokk. Sumt minnir
ögn á U2, en fyrst og fremst er nú
ljóst að hér er um íslenska fram-
leiðslu að ræða, án þess að með í
kaupunum fylgi þetta óhemju sveita-
lega „íslenska sánd“.
Hvað eruð þið að gera?
„Við erum að spila heiðarlega
rokkmúsík, eins og hún kemur okkur
fyrir sjónir. Við erum búnir að spila
saman heillengi og það var nú annað
hvort eða að það færi að ganga eitt-
hvað. Þessi plata sem kemur út núna
i vikunni er þó ekki alveg það sem
við höfum verið mest á kafí í að
undanförnu."
Og hvað myndi það vera?
„Ja, í haust kemur út tveggja laga
plata með okkur á Englandi. Forsag-
an er sú að við höfðum farið utan
og m.a. verið í stúdíói þar sem að
Marc nokkur Esteles heyrði í okkur
og hreifst af. Hann sagði síðan að
hann hefði í hyggju að koma hingað
norður á klaka og taka upp efni
með okkur, en með því skilyrði að
hann fengi algerlega að ráða ferð-
inni. Við sögðumst alveg sætta
okkur við það og svo kom hann. í
framhaldi fórum við aftur utan að
klára þessa plötu, sem nefnist „Good
Balance“.Við erum mjög hrifnir af
útkomunni, þó svo að við hefðum
e.t.v. gert hana öðru vísi hefðum við
útsett, en við erum ekki einir um
hrifninguna, a.m.k. ætlar Prism
Records að gefa hana út.“
En hvað með Huldumenn?
„Þeir eru aftur á móti alíslensk
plata; tekin upp í hinu nýja Stúdíó
Stemmu og tók aðeins 23 tíma f
upptöku og er svo að segja alveg
„live“. Það eru níu lög á plötunni —
hvert öðru betra! Það er rétt að
undirstrika það að allir textar eru
íslenskir, en þá semur ungur laga-
nemi og vinur okkar, Þórir Kristins-
son.“
Og hvað er framundan?
„Það er ekki alveg á tæru ennþá,
en nú þarf bara að fylgja plötunni
eftir, þannig að það eru tónleikar
innan seilingar. Og hvað tónleikana
varðar þá getum við lofað fólki því
að það fær ekki minna út úr okkur
á sviði en af plötu."
Undirritaður bíður spenntur eftir
að heyra í „Gildrunni" á sviði, en
fram að því lætur hann sér afbragðs-
góða plötuna nægja, sem er tvímæla-
laust fjögurrar og hálfrar stjömu
stykki.
A.M.
rokksíðan
Ljósmynd/BS
Svart/hvítur draumur
Ljósmynd/BS
Á fimmtudagskvöld héldu
tvær af betri rokksveitum höf-
uðborgarsvæðisins tónleika á
Borginni með niðurrrifsrokk-
arana í Mussolini í samfloti.
Drengimir í Mussolini riðu á
vaðið og gerðu sitt til að skemmta
áheyrendum. Sveitin er ekki í
mikilli æfingu en textarnir eru
með því besta sem heyrst hefur
lengi og flutningur þeirra með
miklum ágætum.
X kom næst á svið og byijaði
af feikna krafti. Greinilegt var að
sveitin er vel æfð og einkar vel
spilandi. Trommuleikarinn og
bassaleikarinn náðu áberandi vel
saman og báru þeir lögin uppi
með miklum ágætum. Rjrthmagít-
arinn gaf líka góða undirstöðu.
Söngvarinn var einnig góður en
gítarinn mætti vera framar í hljóð-
blöndun. Ekki veit ég hvort
strákamir í X eiga sér aðdáenda-
klúbb, en þeir vöktu mikla hrifn-
ingu meðal áheyrenda. Textarnir
vom á ensku og óvenju góðir sem
slíkir. Stórefnileg sveit sem gam-
an verður að fylgjast með.
Næst á svið var hljómsveitin
og einni betur
Megas
á
yfirreið
Megas er á mikilli ferð um
landið um þessar mundir og
þegar þetta birtist hefur hann
þegar haldið fimmtán tón-
leika við góðar undirtektir,
enda ekki oft sem Megas kem-
ur fram einn með kassagítar-
inn.
í kvöld heldur Megas tónleika
á Akureyri og heldur síðan norð-
urfyrir og vestur til Reykjavíkur.
Næstu tónleikar á eftir Akur-
eyri verða á Sauðárkróki en
síðan koma tónleikar á Skaga-
strönd, Hvammstanga,
Hólmavík, Helissandi, í Borgar-
nesi, á Akranesi og í Keflavík.
Ekki er enn búið að fastsetja
tónleika í Reykjavík, en líklegast
gefst mönnum færi að sjá meist-
arann spila fyrstu helgina í júní.