Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 59
1
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
59
læra eitthvað af honum litla frænda
sínum. Það má kannski gera gott
úr öllu og segja, að á meðan þeir
halda sig við þetta mataræði þá eru
þeir grannir og huggulegir og er
það ekki svo heilsusamlegt? Og ef
til vill er það bara ágætt að kjötið
skuli vera svona dýrt. Eru þeir ekki
alltaf að nöldra í manni þessir
heilsufræðingar um að minnka kjöt-
neysluna? Nú, ég segi það ekki, að
það er miklu þægilegra að fá gesti
hér, maður þarf ekki að vera í keng
yfir því hvað maður eigi að gefa
þeim. Heima þarf allt að vera svo
fínt og frumlegt, þykir svo púkalegt
að vera alltaf með það sama.
Þetta með íhaldssemina getur í
sjálfu sér líka verið ágætt. Maður
vaknar á morgnana og veit hvar
maður stendur. Brauð með brúnosti
í morgunmat, sama stjórnin og var
í gær, sama verð á kaffipakkanum
(gæti meira að segja fengið hann
á tilboðsverði), aurinn minn á vísum
stað í bankanum, brauð með spægi-
pylsu í hádeginu, kem úr vinnunni
milli klukkan þrjú og fjögur og bý
þá til kjötbollur, dútla við að smyija
skíðin fram að kvöldfréttum og
rabba við krakkana, horfi á fréttirn-
ar í sjónvarpinu og slekk svo á því
af því að það er svo leiðinlegt og
fer svo snemma í rúmið með góða
bók.
Nú skil ég af hveiju Norðmenn
eru svona rólegir og sléttir í fram-
an. Þeir þurfa auðvitað ekki að
eyða kröftum sínum í að fylgjast
með og breyta til, enda eru þeir
ekki heimsmenn eins og við. Já,
þeir eru furðanlega vel útlítandi.
Bara sjaldan séð jafnmikið af
föngulegu fólki, jafnvel þótt það sé
í gifsi. En ég skil bara ekki hvemig
það má vera af öllu þessu brauðáti.
Nei, uss, nú gengur þetta ekki
lengur með hann Arvid. Eg verð
að fara út að hjálpa þeim. Hundur-
inn orðinn kolvitlaus og farinn að
narta í gifsið og Arvid pikkfastur
í framsætinu, ekki hægt að loka
hurðinni. Ég held það væri ráð að
reyna að leggja hann bara ofurvar-
lega í aftursætið.
Höfundur er kennari, nemi og
húsmóðir í Kristiansand INoregi.
Markaður
til styrkt-
ar einhverf-
um börnum
UMSJÓNARFÉLAG einhverfra
barna verður með markað, kaffi-
sölu og kökubasar í Hlaðvarpan-
um á Vesturgötu 3 í dag, 28. maí,
kl. 10.00-18.00. Ágóðinn rennur til
almennrar starfsemi umsjónarfé-
lagsins, sem m.a. felst í fræðslu-
fundum og kynningu á málefnum
einhverfra.
Foreldrar nokkurra einhverfra
bama og starfsfólk, sem fékkst við
að leysa vandamál þeirra, stofnuðu
félagið árið 1977.
Núverandi stjóm félagsins er
þannig skipuð: Kolbrún Hafliðadóttir
formaður, Hallgerður Gísladóttir rit-
ari og Sigrún Hjartardóttir gjaldkeri.
VW JETTA er talandi dœmi
um vönduö vinnubrögö.
VW JETTA er traustur og
endingargóður bíll.
VW JETTA er meö íram-
hjóladrií og íer meistaralega
d íslenskum malarvegum.
Verð frá kr. 549.000 ™
ÍX ■TfWlKTW'
Jmnif***®®**i
: 1 > "
tVS'J
r
,*• v,i,;
; i •" • m