Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
63
bakherbergi búðarinnar. Leiddist
mér þar inni og laumaðist ég gjarn-
an fram í búð til Ragnheiðar, elti
hana eins og skuggi og horfði með
andakt á hana afgreiða hinar fjöl-
breyttustu hannyrðavörur og sér-
staklega þótti mér gaman, þegar
hún dró út litlu skúffumar með
allvega litu silkigami og fann iit-
inn, sem nákvæmlega átti við í
hvert skipti, enda alltaf reiðubúin
til að leiðbeina viðskiptavinunum
og gefa þeim góð ráð. Aldrei blak-
aði hún við mér, þó að sjálfsagt
hafi ég stundum verið fyrir henni
og alltaf spjallaði hún við mig á
sinn glaðværa og hressilega hátt,
þegar tími gafst til. Svo liðu mörg
ár, Ragnheiður flutti hingað norður
til Akureyrar og setti á stofn sína
eigin hannyrðaverslun, sem hún rak
í áratugi, en ég fullorðnaðist.
í annað sinn bar fundum okkar
Ragnheiðar saman. Ég var tíðum
ásamt bónda mínum í Kristnesi á
summm hjá tengdaforeldrum
mínum. Þá áttu menn almennt ekki
bíla, svo bæjarferðir vom famar
með Hælisbílnum, í bæinn um há-
degi og heim kl. 5.30 síðdegis.
Ragkst ég þá á Verslun Ragnheiðar
O. Bjömsson og Ragnheiði sjálfa,
sem tók mér eins og það hefði verið
í gær, sem ég elti hana um búð
Ág. Svendsen. Þarf ekki að orð-
lengja það, að hjá Ragnheiði
eignaðist ég athvarf í bæjarferðum,
þar geymdi ég pakka og pinkla og
sat á spjalli við Ragnheiði, þegar
tími gafst til. Er mér sérstaklega
minnisstætt frá þessum ámm, hvað
Ragnheiður bar mikla umhyggju
fyrir bræðmm sínum og ekki síður
bræðrabömum og aldrei varð hún
glaðari, en þegar hún gat gert eitt-
hvað fyrir litla frændfólkið sitt eða
þegar hún frétti að því vegnaði
vel. Sömuleiðis var mjög kært með
Ragnheiði og mágkonum hennar.
Enn liðu mörg ár og í þriðja sinn
tókust kynni með okkur Ragnheiði.
Það var þegar ég gerðist félagi í
Zontaklúbbi Akureyrar 1976.
Ragnheiður 0. Bjömsson var
Zontakona af lífi og sál, enda var
það hún, sem átti heiðurinn af því
að undirbúa og koma í framkvæmd
stofnun Zontaklúbbs Akureyrar og
varð fyrsti formaður hans. Vinkona
hennar frá gömlum dögum, Amdís
Bjömsdóttir, leikkona, var „ljósa“
klúbbsins, en hann var formlega
stofnaður þ. 2. júlí 1949. Ragn-
heiður var sístarfandi af áhuga og
eldmóði og sótti fundi Zontaklúbbs-
ins svo lengi sem kraftar entust og
var æfinlega hrókur alls fagnaðar.
Hún átti stóran hlut í að koma
Nonnasafni á laggimar og bar vel-
ferð safnsins fyrir brjósti alla tíð.
Er mér sérlega minnisstæð stund,
sem við áttum einar saman í safn-
inu, en við fómm þangað til draga
upp fána og kveikja á kertum á
meðan aðrar Zontasystur fóm á
flugvöllinn að sækja þangað gesti
frá Þýskalandi. Þá rakti Ragnheið-
ur fyrir mér sögu safnsins og fræddi
mig um svo margt, bæði um ævi
séra Jóns Sveinssonar, Nonnasafn
og Zontahreyfinguna.
Ragnheiður var félagslynd kona
og lagði fleiri félögum en Zonta-
klúbbnum lið og_má nefna Náttúm-
lækningafélag íslands sem dæmi
um það. Skopskyn hafði Ragnheið-
ur með afbrigðum gott, sá spaugi-
legu hliðamar á hlutunum,
skopaðist óspart að sjálfri sér en
aldrei að öðmm svo ég hafi heyrt.
Músikölsk var hún og lék á píanóið
sitt daglega fram á seinustu ár.
Langri og heillaríkri ævi er lokið.
Zontaklúbbur Akureyrar kveður
fyrsta formann sinn og heiðurs-
félaga, Ragnheiði O. Björnsson,
með virðingu og þökk.
Bergljót Rafnar
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RÓBERT G. JENSEN,
Háengi 16,
Selfossi,
sem andaöist 21. maí sl. veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laug-
ardaginn 30. maí kl. 13.00.
Jóna Gissurardóttir,
Björn Jensen, Guðrún Á. Halldórsdóttir,
Gissur Jensen, Hansfna Á. Stefánsdóttir,
Jóhanna Jensen, Svavar Bjarnhóðinsson
og barnabörn.
80doga
afmœlistilboö
I tilefni af 80 áia aímœli
Hans Petersenhf. bjóðumviö
Kodak myndavél
á einstakleqa haqstœðu veiði.
5áia ábyrgð
(fyrir 35mmfilmur)
Verð kr: 3100.-
Tilboðið gildir til 6. júli 1987.
.Á______
HfiNS PETERSEN HF
UMBOÐSMENN UM LAND ALIT!
Síðustu forvöð
að tryggja sér
vandað
sumarleyfi
Leiguflugsferðirokkartil Costa del Sol hafa
svo sannarlega slegið í gegn. Fjöldi
ánægðra viðskiptavina vitnar um það.
Við bjóðum þér fyrsta flokks gististaði, þar
sem aðstaða og þjónusta ertil fyrirmyndar:
Principto Sol, Las Palomas, Sunset Beach
Club, El Remo o.fl.
Fararstjórarnir Pétur Björnsson, Þórunn
Sigurðardóttir, Sigríður Stephensen og
Arna Steinsen, hnokkafararstjóri 25. maí
og 1. júlí, sjá um að allir séu ánægðir.
1
011 börn að 16 ára aldri fá frítt eitt stk. Sögu-
bol og allir 0-12 ára fá meðlimakort í Hnokka-
klúbbnum. í lok sumars verður dregið úr öllum
kortunum og verða þá 5 börn svo heppin að
fá fría ferð sumarið 1988.
ALLRA
VAL
' TJARNARGOTU 10
SÍMI 28633