Morgunblaðið - 28.05.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
67
Friðberg Guðmunds
son Hafnarfirði
Fæddur 19. mars 1919
Dáinn 22. maí 1987
Þánn 22. maí síðastliðinn, þegar
ég og aðrir skólafélagar mínir í 9.
bekk Öldutúnsskóla komum heim
frá Hollandi úr ánægjulegu skóla-
ferðalagi, var mér tilkynnt sú
harmafregn að afi minn Friðberg
Guðmundsson hefði látist aðeins
fáum klukkustundum áður. Þessi
frétt skyggði algerlega á þetta ann-
ars frábæra ferðalag. Því daginn
áður en ég fór út þann 15. maí
heimsótti ég afa minn á Borgarspít-
alann. Þá strax fór hann að tala
um næstu veiðiferð, og það gladdi
mig mjög. Þess vegna gat ég
ómögulega ímyndað mér að þetta
yrði okkar síðasta samverustund í
þessum heimi.
Ég og afi minn tengdumst sterk-
um vinaböndum, þannig að við
fráfall hans er stórt gat höggvið í
minn vinahóp. Afi dáði veiði og fór
tugi veiðiferða árlega, auk þess sem
hann átti sér stórt tómstundagam-
an, að hnýta flugur sem voru mjög
eftirsóttar af vinum og kunningjum
hans. Afi vann sem jámsmiður alla
tíð ásamt bræðrum sínum, þeir
lærðu jámsmíði af föður sínum
Guðmundi Hróbjartssyni þekktum
jámsmiði hér í Hafnarfirði.
íþróttaáhugi afa míns var mikill
hann fór ósjaldan á völlinn til þess
að sjá FH leika jafnt knattspymu
sem og handknattleik. Hann var
liðtækur billjardspilari og spilaði oft
billjard ásamt vinum sínum. A
hveijum laugardegi heimsótti ég
Fjóla
Jónsdóttir
Kveðja
Okkar kynni voru ekki löng. Við
unnum saman í öryrkjavinnu eða
réttara sagt í föndri, eins og það
er kallað, en við kölluðum það
vinnu. Ekki gat Fjóla alltaf mætt,
því heilsa hennar bauð ekki alltaf
upp á það. Ekki kvartaði hún þó
auðséð væri, að hún gekk ekki heil
til skógar. Hún kom alltaf með birtu
og yl og jafnvel heitar lummur eða
annað til að gleðja okkur með.
Hún var sú manngerð sem vildi
fremur gefa en þiggja. Fjóla var
greind kona, kunni mikið af ljóðum
og hafði ánægju af söng, það kom
oft fyrir að við tókum lagið. Hún
var af okkar eldri kynslóð og gæti
ég trúað að hennar einkunnarorð
hafi verið: „Aldrei skal ég bogna."
Að lokum vil ég þakka henni
fyrir samveruna og þann kjark sem
hún gaf mér. Ég veit að vel verður
tekið á móti henni í þeim heimi sem
hún er komin í.
Mínir vinir fara flöld
feigðin þessa heimtar köld.
Ég kem eftir kannske í kvöld,
með klofínn hjálm og rofinn slqöld,
brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld.
(Bólu-Hjálmar)
Hildur E. Frímann
afa og horfðum við saman á íþrótt-
irnar í sjónvarpinu, þar var enska
knattspyman í miklu uppáhaldi hjá
okkur.
Þessi stutti pistill um afa minn
Friðberg Guðmundsson er rétt til
þess að minna á hvað hann var
góður vinur minn og hve ég sakna
hans sárt. En ég veit að ég á eftir
að standa í sömu sporum og hann
stendur nú og þá hittumst við aftur
í allt öðmm heimi heldur en við lif-
um í nú. Þá munum við afi hefja
leika að nýju, og hlakka ég til þeirra
stunda. Að lokum vil ég senda elsku
Sigurbjörgu ömmu, ættingjum og
vinum afa, mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Hvíli hann í friði.
Högni
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Tónar og texti
Eg hef löngum verið hrifinn af rokktónlist. En fyrir skömmu
fór eg að leggja eyrun við textanum á sumum plötunum
mínum. Telur þú rangt að hlusta á slíka tónlist?
Þú þarft að gera þér ljóst að hugur okkar verður fyrir
áhrifum á marga vegu — og oft þannig að við vitum ekki
af því meðan það gerist. Eg er sannfærður um að kvikmynd-
irnar sem við horfum á, sjónvarpið, tónlistin sem við gefum
gaum að, bækurnar sem við lesum og margt annað hefur
mjög mótandi áhrif á okkur.
Ennfremur ber þér að minnast þess, að ef þú tilheyrir
Jesú Kristi ertu kallaður til að lifa í hreinleika og heilag-
leika. Guð vill fá að móta huga okkar, svo að hugsanir
okkar og markmið endurspegli Krist. Því er það að Biblían
notar oft sterk orð þegar hún ræðir um hversu hugur og
hjarta eru mikils virði og brýnir fyrir okkur að gæta þess
vel hvað þangað fer inn.
Biblían segir að við eigum ekki að lifa að hætti vantrúar-
manna sem framganga „í hégómleik hugskots síns“. „I
Jesú hafið þér lagt af, ásamt með hinni fyrri breytni, hinn
gamla mann sem er spilltur af tælandi girndum, en endur-
nýjast í anda hugskots yðar.“ (Efes. 4,17,22,23.)
Þess vegna þarftu að gæta að hvers konar texti fylgir
tónlist þeirri sem þú minnist á. í mörgum nútímalögum er
mikil áhersla lögð á kynferðistal (og sumu fólki finnst jafn-
vel kynæsing vera í taktinum). í sumum dægurlagatextum
er farið fögrum orðum um neyslu fíkniefna eða hegðun sem
brýtur algjörlega í bága við það sem kristinn maður getur
viðurkennt ef hann vill þóknast Guði.
Ef þetta er einkenni tónlistar þinnar er kominn tími til
þess að þú snúir baki við henni.
En í þessu öllu er dýpri spuming. Það er spurningin um
hvaða markmið þú hefur sett þér í lífinu. Leitastu við að lifa
í Kristi? Þráir þú að þóknast honum í einu og öllu?
Eg bið þess að þú gefir þig honum á vald og fáir honum
stjórntaumana í hendur. Þá verður þér efst í huga að veg-
sama hann í öllu lífi þínu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Syðri-Hraundal,
Álftaneshreppi, Mýrasýslu,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. maí kl.
13.30.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
PÁLÍNU MAGNÚSDÓTTUR
frá Efra-Hvoli.
Sérstaklega þökkum við öllum þeim sem veittu henni hjálp og
umönnun í veikindum hennar á umliðnum árum.
Guð blessi ykkur öll.
Sœbjörn Eggertsson,
Skúli Magnússon,
Sigfrfður Magnúsdóttir,
Alfreð Magnússon,
Haraldur Magnússon,
Ingunn Ósk Sigurðardóttir.
Arndfs Þorvaldsdóttir,
Guðný Pálsdóttir,
t
Útför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
HELGU P. SIGURÐARDÓTTUR,
hefur farið fram í kyrrþey.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
JÓHANNU SIGURÐARDÓTTUR
frá Rafnseyri,
Skólavegi 10, Vestmannaeyjum,
Þórarinn Gunnlaugsson,
Sigurður Þórarinsson,
Elfsabet Þórarinsdóttir, Hlöðver Jónsson,
Grétar Þórarinsson, Jóna Guðjónsdóttir,
Þórey Þórarinsdóttir, Sigþór Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR,
Karfavogi 42.
Aðalbjörg Skúladóttir,
Gfsli Guðmundsson, Matthildur Guðmundsdóttir,
Stefán Jónsson, Edda Magnúsdóttir,
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Kristinn Guðbergsson,
Einar Gunnarsson, Elfn Sörladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS SUMARLIÐASONAR,
Hafsteinsstöðum,
Bolungarvfk.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Sjúkrahúss Bolungarvíkur.
Guðmundur H. Kristjánsson, Jónfna Sveinbjarnardóttir,
Theodór H. Kristjánsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar og tengdamóður,
ÁSLAUGAR SIGURGEIRSDÓTTUR,
Safamýri 47,
Reykjavfk.
Helgi Jasonarson,
Kristfn Helgadóttir,
Hafsteinn Helgason, Sigurbjörg Sæmundsdóttir.
t
Þakka af alhug öllum þeim sem heiðruðu minningu mannsins míns,
JÓNSÁ. ÞORSTEINSSONAR,
Mánagötu 22, Reykjavfk
og auðsýndu mér vináttu og hluttekningu við andlát hans og útför.
Guðrún Guðmannsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HARALDAR SIGURÐSSONAR,
fyrrv. póstmanns.
Sérstakar þakkir til allra á Sólvangi í Hafnarfirði fyrir góða umönn-
un og vinsemd á liðnum árum.
Hólmfrfður G. Haraldsdóttir, Helgi Arason,
Guðlaug H. Guðmundsdóttir, Helgi S. Haraldsson,
börn og barnabörn.
LOKAÐ
vegna jarðarfarar ÞÓRÐAR STURLAUGSSONAR fyrr-
verandi stórkaupmanns föstudaginn 29. maí.
Sturlaugur Jónsson & Co hf.