Morgunblaðið - 28.05.1987, Síða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
Noregur:
- Gunnar
og félagar
sigruðu
Frá Bjami Jóhannssyni f Noregi.
GUNNAR Gíslason og félagar í
Moss unnu Tromsö í norsku 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu á |
heimavelli sínum um síðustu
helgi 4:2. Moss komst í 4:0 en
gaf örKið eftir í lokin, þó sigur
. '.‘íðsins hafi aldrei verið f hættu.
Það gekk ekki eins vel hjá Bjarna
Sigurðssyni og félögum í Brann,
þeir léku við Rosenborg á heima-
velli og töpuðu 5:6 eftir vítaspyrnu-
keppni. Eftir venjulegan leiktíma
var staðan 1:1. Bjarni lék vel og
fékk góða dóma í norsku blöðun-
um.
Önnur úrslit um síðustu helgi
urðu þessi: Molde og Kongsvinger
gerðu jafntefli 1:1 eftir eftir víta-
keppni vann Kongsvinger 3:1,
Ham Kam tapaði heima fyrir Vaal-
erengen 1:3, Lilleström vann
Mjöndalen 1:0 og Start tapaði
heima fyrir Bryne 0:1. Bryne er nú
efst með 12 stig eftir 5 leiki, Ro-
- í&mberg hefur 10 stig eftir jafn
marga leiki, Brann er með 9 stig
og Moss 8. Bæði „íslendingaliðin"
hafa einnig lokið fimm leikjum.
Þess má geta að 5 lið eru í
neðsta sæti með 6 stig, þannig
að keppnin er mjög og spennandi
í deildinni.
Myndabrengl
ÞAU mistök urðu við vinnslu
- blaðsins i gær að myndir á bls.
62 víxluðust. Myndin af Árna Þór
Árnason átti auðvitað að vera
með frásögn af leik íslands og
Belgíu í Evrópukeppni U-18 ára
landsliða og myndin af þvf er
hollenski markvörðurinn settist á
bak Ágústi Má Jónssyni efst á
síðunni með frásögn af þeim leik.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
• Robert Parrish, sem hór treður f körfuna, verður illa fjarri góðu
gamni aðfararnótt föstudagsins. Hann verður þá ekki með Boston
vegna meiðsla. í 5. leiknum var hann heppinn að vera ekki rekinn
af velli eftlr að hafa slegið einn mótherjanna f gólflð.
Boston vann Detroit í 5. leiknum:
Hroðaleg mistök
kostuðu sigur
Frá Gunnari Valgeirssyni í Bandaríkjunum
LIÐ Boston Celtics heldur áfram
að vinna leiki þrátt fyrir ýmsa
mótbyri. í fyrrinótt var fimmti ieik-
urinn í serfu Boston og Detroit
um það hvort liðið leikur til úr-
slita við LA Lakers um NBA-titil-
inn og sigraði Boston 108:107 f
hnffjöfnum og spennandi leik.
Leikurinn var lengst af jafn,
Boston hafði yfirhöndina í fyrri
hálfleik og var staðan 58:56 í leik-
hléi fyrir Boston. Einni mínútu fyrir
hálfleik sló miðherji Boston, Ro-
bert Parrish, miðherja Detroit, Bill
Laimbeer, í gólfið. Tvö högg beint
í andlitið. Þó ótrúlegt sé sáu dóm-
ararnir ekki atvikið og var Parrish
því mjög heppinn að vera ekki rek-
inn fram í búningsklefa.
Leikurinn hélst hnífjafn og stóð
87:86 fyrir Boston eftir þriðja leik-
hluta. Þegar fjórar mín. voru eftir
varð áðurnefndur Robert Parrish
að yfirgefa leikvöllin þar sem han
sneri sig enn einu sinni illa á ökkla
en hann hefur átt við meiðsla að
stríða að undanförnu og er Ijóst
að hann leikur ekki með í sjötta
leiknum í Detroit aðfararnótt föstu-
dagsins.
Er 17 sekúndur voru eftir af
leiknum kom Isiah Thomas, aðal-
leikmaður Detroit, liði sínu yfir
107:106. Boston tók þá leikhlé og
í næstu sókn reyndi Larry Bird
sniðskot (lay-up) en þrír leikmenn
Detroit blokkuðu skot hans og
boltinn fór út af eftir að hafa snert
einn leikmanna Boston-liðsins.
Detroit hafði því boltinn og foryst-
una þegar fimm sekúndur voru
eftir. En þá gerði Isiah Thomas
stóra skyssu. I stað þess að taka
leikhlé tók hann boltann strax af
dómaranum og ætlaðl að varpa
honum inn til samherja - Larry Bird
var með á nótunum og sá við hon-
um. Bird komst inn í sendinguna
og sendi knöttinn umsvifalaust á
samherja sem skoraði þegar ein
sekúnda var eftir. Leiknum lauk
því með sigri Boston 108:107.
Detroit klúðraði því leiknum og
Boston heldur áfram að vinna þrátt
fyrir ýmis vandræði.
Larry Bird var bestur á vellinum,
skoraði 36 stig, tók 12 fráköst og
átti 9 stoðsendingar - og enga
mikilvægari en þá síðustu sem
hann gaf á Dennis Johnson sem
skoraði sigurkörfuna. Isiah Thom-
as var heldur slakur hjá Detroit í
þessum leik. Þjálfari liðsins gerði
einnig mikil mistök, skipti furðu-
lega inn á.
Detroit hefur ekki unnið í Boston
síðan 1982, liðið hefur tapað 17
leikjum í röð þar.
Þetta var fyrsti leikurinn í þess-
ari seríu sem er jafn. Boston vann
tvo fyrstu auðveldlega og síðan
vann Detroit tvo. Að öllu
óbreyttu má búast við að Detroit
vinni næsta leik á heimavelli og
því þurfi sjöunda leikinn til; hreinan
úrslitaleik í Boston á laugardag.
Knattspyrna:
Þrír
leikir
ÞRÍR leikir fara fram fyrstu um-
ferð Mjólkurbikarkeppninnar í
knattspyrnu f dag. Á morgun,
föstudag, verða þrír leikir í 1.
deild karla.
í Mjólkurbikarnum í dag leika
Ármann og Víkverji á gervigrasinu
kl. 17.00. Víkingur og Haukar spila
á Hæðagarðsvelli kl. 14.00 og ÍR
og ÍK á gervigrasinu kl. 20.00.
Á morgun, Uppstigningardag,
eru þrír leikir á dagskrá í 1. deild,
Víðir og KA leika á Garðsvelli, KR
og FH á KR-velli og Þór og Völs-
ungur Þórsvelli á Akureyri. Allir
leikirnir hefjast kl. 20.00.
Iþróttafélagið Fylkir 20 ára í dag:
Fylkir merkir konungur; við
verðum það vonandi einhvern
tíma á íþróttasviðinu"
-segir formaðurinn, Jóhannes Óli
Garðarsson
Morgunblaöiö/KGA
• Jóhannes Óli Garðarsson, formaður Fylkis, Við félagsheimilið
á Fylklssvæðinu í Árbænum.
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Fylkir á 20
ára afmæli í dag og af þvf til-
efni er Fylkisdagurinn 1987
haldinn há-tfðlegur á svæði fé-
> lagsins. Hátfðahöldin hefjast kl.
11.00 með Árbæjarhlaupi og
hefst skráning f hlaupið kl.
10.00. Fyrstu tvö árin hét félag-
Ið Knattspyrnufélag Selás- og
Árbæjarhverfis, KSA, en þvf var
breytt. „Mönnum þótti það ekki
heppilegt þegar verið var að
hvetja liðið. Nafnið var heldur
langt,“ sagði Jóhannes Óli
Garðarsson, formaður Fylkis, f
samtali við Morgunblaðið f til-
efni afmælisins.
Jóhannes Óli hefur verið for-
maður Fylkis í rúmlega fimm ár.
Þar á undan var hann gjaldkeri
félagsins í fimm ár og hefur því
veriö í stjórn á ellefta ár. Jóhann-
es sagöi að félagið stæði vel að
sínu mati, og væri í sókn á öllum
sviðum. „Við erum með stóran
og góðan hóp í fótboltanum,
höfum góðan þjálfara í meistara-
flokki þar sem Marteinn Geirsson
er, og við væntum mikils af
flokknum. Vonandi kveðjum við
3. deildina í sumar. Handboltalið
okkar er t 2. deild, þar eru aö
koma upp ungir strákar sem ald-
ir eru upp hjá félaginu; þar eru
að verða viss kynslóðaskipti. Þá
er félagið einnig með fimleika-
deild."
í upphafi æfðu Fylkismenn á
sparkvelli í Árbæjarhverfi, en
fyrst var leikið á núverandi malar-
velli félagsins árið 1973. Félags-
heimilið var svo tekið í notkun
1976 og búningsklefahús 1978.
„Svo gerðum við grasvöll á
síðasta ári. Við höfum lagt um
5,5 milljónir króna í hann og
skuldum ekki krónu í þessum
áfanga. Þetta var ódýrara en við
höfðum reiknað með, við fengum
gífurlega mikið af fólki f sjálf-
boðavinnu og einnig miklar gjafir
vegna framkvæmdanna. Völlur-
inn verður tilbúinn í sumar og
meiningin er að leika vígsluleik á
honum einhvern tíma í sumar."
Jóhannes sagði vallargeröina
hafa verið mjög skemmtilegt
verkefni. „Völlurinn varð til á
tveimur dögum. Við byrjuðum á
laugardagsmorgni að þekja og
völlurinn varð orðinn grænn á
sunnudagskvöldi," sagði hann.
Gagngerar endurbætur hafa
nýlega verið gerðar á félags-
heimilinu og vallarhúsinu. „Það
er ekki nóg að eignast þessi hús
- það verður að sýna þeim þá
virðinga að halda þeim við."
Næsta stórverkefni félagsins er
svo bygging íþróttahúss. Jóhann-
es tekur fram „skófluna góðu"
sem hann notaði við upphaf gerð
vallarins og mun taka fyrstu
skóflustunguna í dag kl. 14.30.
Húsið verður 38 metra breitt og
50 metra langt. Stefnt er að því
að hefja framkvæmdir síðar á
þessu ári. Teikningar af húsinu
verða einmitt til sýnis í dag í fé-
lagsheimilinu, en Ingimar Haukur
Ingimarsson arkitekt gefur alla
arkitektavinnu.
Félagar í Fylki eru á milli 1700
og 1800 talsins að sögn Jóhann-
esar Óla og sagði hann Fylkis-
menn líta svo á að allt væri þeim
viðkomandi austan Elliðaáa.
„Ártúnsholt, Árbær og Selás er
okkar svæði," sagði hann „og
einnig sækja til okkar börn og
unglinar úr Grafarvogi."
Jóhannes var í lokin spurður
hvernig honum litist á framtíð
félagsins. „Ég get ekki annað en
litið björtum augum á framtíðina.
Öll þessi uppbygging aðstöðu
fyrir félagið hlýtur að skila sér.
Sérstaklega húsið; það verður
ómetanlegt að fá hús í hverfið í
stað þess að senda börnin í burtu
á æfingar. Og frá náttúrunnar
hendi er svæðið okkar óumdeil-
anlega skemmtilegasta íþrótta-
svæðið í borginni að okkar mati,
hér er til dæmis mikill gróður
sem var á þessu gamla sumarbú-
staðalandi áður en við komum
hingað."
Aöur er þess getið að skipt
hafi verið um nafn á félaginu
þegar það var tveggja ára gam-
alt. „Fylkir merkir konungur; við
verðum það vonandi einhvern
tíma á íþróttasviðinul" sagði Jó-
hannes að lokum.