Morgunblaðið - 28.05.1987, Qupperneq 79
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1987
79
Símamyndir/Reuter
• Alsirbúinn Madjer Rabah skoraði jöfnunarmark Porto. Á myndinni til vinstri hefur hann sent knöttinn áleiðis í netið með hælnum. Á innfelldu myndinni tekur fyrirliði Porto,
Joao Pinto, við hinum glæsilega Evrópubikar úr hendi forseta Evrópusambandsins, UEFA, Jacques Georges. Á myndinni ti hægri fagna svo Portúgalarnir innilega eftir að hafa
fengið bikarinn afhentan. Þeir eru, frá vinstri: markvörðurinn Mlynarczyk, aðstoðarþjálfarinn Mota, Futre, Santos, Pinto, Ferreirinha og Inacio.
Úrslitaleikurinn í Evrópukeppni meistaraliða:
„Frábær úrslit fyrir
portúgalska knattspyrnu"
- sagði Artur Jorge þjálfari Porto eftir leikinn
PORTO varð í gærkvöldi Evrópu-
meistari meistaraliða i knatt-
spyrnu er þeir unnu Bayern
Múnchen f úrslitaleik, 2:1, í Vínar-
borg. Vestur-þýksu meistararnir
höfðu 1:0 yfir allt þar til 12 mfnút-
ur voru til leiksloka að Portúgalar
skoruðu tvö mörk á tveimur
mfnútum. Lefkurinn var mjög fjör-
ugur og skemmtilgur og sáust
oft skemmtilegir taktar til leik-
manna beggja liða.
„Þetta voru frábær úrslit fyrir
portúgalska knattspyrnu. Við
sýndum Evrópubúum að við eigum
á að skipa leikmönnum eins og
best gerist í Evrópu. Jafnvel meðan
við vorum undir hafði ég alltaf trú
á að við myndum vinna. Við bárum
of mikla yirðingu fyrir Bayern í fyrri
hálfleik. í leikhléi vissi ég að við
gátum gert betur," sagði Artur
Jorge, þjálfari Porto, eftir leikinn.
Mikil vonbrigði
„Úrslitin eru okkur mikil von-
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
hópferðar á sfðasta leik And-
erlecht í belgfsku 1. deildar-
keppninni f knattspyrnu. Liðið
leikur gegn Berchem á laugar-
dagskvöldið og á góða möguleika
á að tryggja sór belgfska meist-
aratitilinn þriðja árið í röð. Arnór
Guðjohnsen leikur sem kunnugt
er með Anderlecht; hann hefur
staðið sig frábærlega vel f vetur,
er markahæstur í deildinni og lyk-
ilmaður f liði Anderlecht.
Það er ferðaskrifstofan Saga
sem efnir til þessarar hópferðar.
Farið verður frá Keflavík á laugar-
dagsmorgun, flogið til Lúxemborg-
ar og ekið þaðan til Brussel. Eftir
að búið verður að skrá mannskap-
inn inn á hótel verður ekið sem
leið liggur til Antwerpen þar sem
leikurinn hefst kl. 20.00. Eftir leik-
inn verður farið aftur til Brussel.
Sunnudagurinn verður síðan frjáls,
brigði. Við lékum kerfisbundiö í
fyrri hálfleik en í seinni hálfleik
gerðu leikmenn mínir ekki eins og
fyrir þá var lagt og því fór sem
fór. Við fengum mörg tækifæri
sem ekki voru nýtt. Porto kom mér
mjög á óvart fyrir góðan leik. Ég
bjóst ekki við að þeir hefðu úthald
í svona leik,“ sagði Uto Lattek,
þjálfari Bayern, eftir leikinn.
Leikmenn Bayern réðu lögum
og lofum í fyrri hálfeik, en Porto
Lerby til PSV
DANSKI landsliðsmaðurinn f
knattspyrnu, Sören Lerby, var í
gær seldur frá franska liðinu
Mónakó til PSV Eindhoven í Holl-
andi.
Lerby gerði þriggja ára samning
við Eindhoven. Hann hefur aðeins
leikið eitt tímabil með Mónakó, en
áður lék hann með Ajax og Bayern
Munchen.
og komið verður heim á mánudag.
Ferðin kostar 18.500 krónur fyr-
ir manninn og er innifalið í því flug,
akstur, gisting á fjögurra stjörnu
hótelinu Ramada í Brussel, miðar
á völlinn, morgunverður og íslensk
fararstjórn. Fararstjóri verður Erl-
ingur Karlsson, íþróttakennari.
LEIKMENN Porto fengu tvö kúó
af gulli fyrir sigur sinn f Evrópu-
keppni meistaraliða. Það var
ftalskt kaffifyrirtæki sem hafði
heitið þeim kílói af gulli fyrir hvert
mark sem þeir skoruðu gegn
Bayern.
Hópur portúgala sem býr í
Bandaríkjunum hafði einnig heitið
byggði á skyndisóknum. Ludwig
Kögl skoraði fyrsta mark leiksins
fyrir Bayern á 24. mínútu. Tekið
var langt innkast á móts vlð víta-
teig Porto, einn leikmaður Porto
framlengdi boltann með skalla út
í vítateiginn og þar var Kögl fljót-
astur að átta sig og skallað laglega
í netið.
Tvö mörk á tveimur
mínútum
Portúgölsku meistararnir komu
ákveðnir til leiks í seinni hálfleik
og sýndu þá mjög góðan leik. Þjóð-
verjarnir gáfu eftir miðjuna og
bökkuðu og reyndu að halda
fengnum hlut. En allt kom fyrir
ekki. Varnarmúr þeirra brást á 78.
mínútu er Rabah Madjer jafnaði
fyrir Porto með hælspyrnu af
stuttu færi eftir góða sókn. Aðeins
tveimur mínútum síðar kom rot-
höggið fyrir Bayern er Brasilímað-
urinn Juary Filho, sem kom inná
helgina
Pess má og geta að eiginkona
Arnórs Guðjohnsen verður hópn-
um til aðstoðar í Belgíu.
Hægt verður að panta sæti í
ferð þessarri hjá ferðaskrifstofunni
Sögu milli kl. 9.00 og 12.00 í fyrra-
málið. Lágmarksfjöldi í ferðina
verður 15 manns.
liðinu 1000 dollurum fyrir sigur og
1000 dollurum fyrir hvert mark
sem þeir myndu skora. Leikmenn
Porto hafa því hagnast vel í gær-
kvöldi.
Þúsundir knattspyrnuáhuga-
manna í Portúgal þustu út á götur
og þeytu lúðra, sungu og kunnu
sér vart læti vegna sigursins í
sem varamaður, skoraði laglegt
mark af stuttu færi eftir fyrirgjöf
frá vinstri.
Þarna léku tvo ólík lið, Porto
með netta og fljóta leikmenn en
Bayern með sterka og fremur
þunga leikmenn. Það var því létt-
leikinn sem var ofaná í þessum
úrslitaleik. Úrslitin verða að teljast
sanngjörn miðað við gang leiksins.
Morgunblaöið/Sverrir
• Þrír fyrstu i Kaldalshlaupinu.
Vormót ÍR:
Márfyrstur í
Kaldalshlaupinu
MÁR Hermannsson, UMFK, sigr-
aði í Kaldalshlaupinu, 3.00 metra
hlaupinu sem ætíð er hápunktur
Vormóts ÍR, i gærkvöldi, á 8:44,0
mínútum.
Jóhann Ingibergsson, FH, varð
annar í hlaupinu og Hannes Hrafn-
kelsson, UBK, þriðji. Athyglisverð-
asti árangurinn á mótinu var sá
að Unnar Vilhjálmsson stökk 2,08
metra í hástökki. Hann átti góða
tilraun við 2,13 m. en felldi þá
hæð. íslandsmet hans er 2,12 m.
gærkvöldi. Þetta var í fyrsta sinn
í 25 ár sem portúgalskt lið vinnur
Evrópukeppni. Eina portúgalska
liðið sem unnið hefur keppnina
áður er Benfica, 1961 og 1962.
Búist er við að þúsundir áhang-
enda liðsins fagni þeim við
heimkomuna í dag.
Hópferð á síðasta leik
Anderlecht um
Tvö kfló af gulli!
Mjólkurbikarinn:
Blikarnir
úr leik
Leiftur sigraði
Neista 10:0
TÓLF leikir fóru fram í
fyrstu umferð Mjóikurbik-
arsins í knattspyrnu í
gærkvöldi. Þróttur sigraði
Breiðabiik nokkuð óvænt á
gervigrasinu, 3:1, en þessi
lið leika bæði í 2. deild.
Úrslit voru sem hér segir:
Hveragerði - Grótta 1:2
Páll Guðjónsson skoraði fyrir
Hveragerði.
Augnablik - Hafnir 3:1
Sigurður Halldórsson 2, Viðar
Gunnarsson-Guðmundur F.
Jónsson.
Skallagrímur - Snæfell 3:2
Snæbjörn Óttarsson, Sjálfsm.,
Hafþór Hallsson-Lárus Jóns-
son, Bldur Þorleifsson.
Njarðvík - Afturelding 6:7
Sigurður Ingólfsson gerð 2 fyrir
Njarðvík. Staðan var jöfn, 2:2,
eftir venjulegan leiktíma og
framlengingu og varð því að
fara fram vítaspyrnukeppni.
ReynirS. - Árvakur 5:1
(var Guðmundsson 5-Halfdán
Örlygsson.
Þróttur R. - UBK 3:1
Ásmundur Helgason 2, Daði
Harðarson-Ragnar Rögnvalds-
son.
Leiknir - Lóttir 11:0
Jóhann Viðarsson 4, Ragnar
Bvaldursson, Magnús Boga-
son, Jóhannes Bárðarson, Atli
Þorvaldsson, Gunnlaugur Sig-
urgrímsson og Kjartan Guð:*
mundsson.
Tindastóll - KS 1:3
Guðbrandur Guðbrandsson-
Ólafur Agnarsson 2, Jónas
Björnsson.
Leiftur - Neisti 10:0
Óskar Ingimundarson 4, Haf-
steinn Jakobsson, Róbert
Gunnarsson, Ólafur Björnsson,
Guðmundur Sigurðsson og
Gústaf Ómarsson.
ValurRf. - Höttur 1:4
Gauti Marinósson-Jóhann Sig-
urðsson 3.
Huginn - Austri 2:1
Jóhann Stefánsson, Þórir Ól-
afsson-Sigurjón Kristjánsson.
ÞrótturN. - Hrafnkell 4:1
Marteinn Guðjónsson 3, Magn-
ús Jónsson-Jón Sveinsson.
í _