Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
5
H"
Samkeppni um gerð
nýrra ruslaíláta
BORGARRÁÐ samþykkti sam-
hljóða á fundi sínum síðastliðinn
þriðjudag tillögu frá Vilhjálmi
Þ. Vilhjálmssyni (S) um að efnt
verði til almennrar hugmynda-
samkeppni um gerð nýrra íláta
undir rusl, tillögu um staðsetn-
ingu þeirra á almenningssvæðum
í Reykjavík svo og slagorða til
að hvetja til betri umgengni í
borginni.
í greinargerð með tillögunni seg-
ir að alltof algengt sé að fólk fleygi
frá sér alls kyns rusli á götum, torg-
um og opnum svæðum í borginni
og að nauðsynlegt sé að hugarfars-
breyting verði í þessum efnum og
áróður stóraukinn fyrir betri um-
gengni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann
teldi að það þyrfti að gera átak í
þessum málum og að svona sam-
keppni væri skynsöm leið til þess
að ná því markmiði. Leggja þyrfti
áherslu á að sem flestir, bæði ein-
staklingar og hópar, gætu tekið
þátt í samkeppninni. Til dæmis teldi
hann að reyna ætti að fá bekki í
grunnskólum borgarínnar til þess
að taka þátt, þetta gæti orðið
grundvöllur skapandi umræðu um
þessi í mál í skólunum.
Borgarráð á eftir að ganga frá
nánari útfærslu samkeppninnar en
í næstu viku verður skipuð tveggja
manna dómnefnd.
Bætur vegna
vatnsljóns á
Korpúlfsstöðum
Reykjavíkurborg annarsvegar
og Myndhöggvaraf élagið í
Reykjavík og Sverrir Ólafsson
hinsvegar hafa náð samkomulagi
um bætur vegna tjóns, er varð
af völdum vatns, á listaverkum,
tækjum o.fl. á Korpúlfsstöðum
16. nóvember á síðasta ári.
í samkomulaginu felst að Reykja-
víkurborg greiði Sverri Ólafssyni
1,8 milljón í bætur með því skil-
yrði, að Myndhöggvarafélagið leggi
fram yfirlýsingar frá öllum þeim
listamönnum, sem urðu fyrir tjóni
að Korpúlfsstöðum, að Sverri und-
anskildum, um að þeir falli frá
kröfum sínum.
í samkomulaginu er tekið fram,
að með sátt þessari sé hvorki viður-
kennd bótaskylda af hálfu
Reykjavíkurborgar né fullnaðar-
uppgjör tjóns af hálfu listamanna,
en aðilar séu um það sammála, að
hún feli í sér endanleg lok þessa
máls.
AUK hf. 93.11/SlA