Morgunblaðið - 14.06.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
9
HUGVEKJA
Lífsins
ólgusjór
eftir SR. JÓN RAGNARSSON
wm Sjómannadagur 1987Mt. 14:22—33
Við eigum að mörgu leyti
gott með að setja okkur inn í
aðstæður þessarar frásögu af
bátnum í öldurótinu. Við getum
jafnvel hermt eigin reynslu og
umhverfi upp á hana, að nokkru
leyti. Við getum sett okkar
hymdu og fannarákóttu fjöll í
stað hæðanna í Galíleu og firði
okkar og flóa í stað vatnsins
Genesaret. Skip okkar stór og
smá geta komið í stað bátsins,
sem lærisveinamir vom að velkj-
ast á. Vissulega er ýmislegt sem
svipar saman í þessum ytri að-
stæðum, en kannski ennþá fleira
í þeim innri.
Þegar dýpra er skoðað snýst
málið ekki fyrst og fremst um
björgun úr sjávarháska í eigin-
legri merkingu, þó að slík vá sé
ógnþmngin reynsla sem margir
þekkja og geta skilið.
Kjami frásögunnar fæst við
gmndvallarspumingar mann-
legrar tilvem. Lífsháskann
sjálfan. Þetta endalausa hættu-
spil að vera maður í heiminum
— að lifa lífsins vegna og finna
jafnframt smæð sína og van-
mátt gagnvart öllum vanda þess.
Það er oft mjótt milli bamings
og björgunar og okkur þrýtur
ráðin í þrengingum.
Það er engin tilviljun að ógn-
valdamir í þessari sögu em
veður og vatn. Jesús og læri-
sveinar hans vora aldir upp í
túlkunarhefð, þar sem þessi
náttúmöfl táknuðu allt sem var
villt, eyðandi, óhamið, órætt.
Óskapnaðinn sjálfan. Þann hluta
veraldarinnar sem Drottinn setti
lausar skorður, þegar hann
skapaði lífinu skilyrði á jörðinni.
Vindur og haf vom, eins og
þau em í dag, utan þess sem
menn fá hamið. Þau vom sam-
nefnari allra ógnarafla. Djúpið
myrkt og duttlungafullt átti,
eins og í dag, samsvömn í sálar-
djúpum mannkynsins. Torþekkt-
um rastarálum manneðlisins,
sem getur eins og hafið endur-
varpað skini guðdómssólarinnar
af skyggðum fleti. Bylgjast í
fegurð sinni og gælt við strendur
og bátskinnung á blíðum degi,
og umhverfist í einni svipan.
Hrokast upp fyrir öll sín tak-
mörk, mölvar og tortímir og
svelgir allan mannlegan mátt,
úrræði og von.
Undir sléttu yfirborði kvikar
undiraldan og dimmir straumar
uppmnasyndarinnar bæra víða
á sér.
Við finnum það oft en við við-
urkennum það sjaldan, að þrátt
fyrir návígi við hamslausan ægi-
mátt höfuðskepnanna, þá
stendur okkur mesta ógnin af
eðlisöflum, sem aldrei verða
tamin. Eyðingarhvöt okkar
sjálfra.
Við kunnum ráð. Við kunnum
að smíða skip sem komast vel
af við veður og vinda, seltu og
særót. Við kunnum að ganga á
svig við grimmd þeirra og sækja
í sjóði hafsins. Getum ráðið í
veður með vissu um nokkra
framtíð. Við kunnum að láta
þessi öfl þjóna okkur meira en
skolfa, þó að ætíð verði þeim
háski búinn, sem býður þeim
birginn af óbilgimi og glanna-
skap.
Lífsins og ævinnar skeið kann
hver kynslóð samt jafn illa að
sigla. „Tíminn steðjar, sem
streymi á/ strengir um kletta
falla./ Undan mig rekur ofan
hjá/ áralausan að kalla," segir
í sálmi.
Hver einasti maður. Hver ein-
asta ijölskylda. Hvert einasta
samfélag hreppir meiri og minni
baming um sitt æviskeið. Liggur
lengur og skemur undir áföllum.
Flestir þekkja þær aðstæður
úr eigin lífi að fínnast útlitið
svart, þrekið á þrotum og kunna
fá úrræði. Við könnumst líka við
að hafa bmgðist við Kristi eins
og lærisveinamir í bátnum. Höf-
um óttast hann, ekki þekkt
hann, þar sem hann kemur að
bjóða hjálp og samfylgd. Við
höfum hafnað honum sem mark-
leysu — sem vofu.
Það er ekki endilega sjálfgert
að kannast við Krist og hætta
á að treysta honum, enda sjáum
við það að það var aðeins einn
lærisveinanna sem tók hann á
orðinu. Pétur einn tók þessi
áhættuskref trúarinnar — og
heyktist á því. — Þegar allt kem-
ur til alls er það mesta krafa
sem við getum gert til eigin trú-
ar, að taka áhættuna af því að
ganga til móts við Krist. Það
er aldrei gert í eitt skipti fyrir öll.
„Kom þú,“ segir hann, eins
og hann sagði við Pétur. Hann
svíkur ekki. Það var trú Péturs
sem bilaði. Hann tók tilboðinu
og gekk út í háskann. Honum
gekk vel þar til hann tók að blína
á hættumar í stað hjálparráðsins
í Jesú.
Þama er ekki verið að gera
Iítið úr þeim lífs- og sálarháska
sem við kynnumst í tilvemnni.
Það er hins vegar bent á að trú-
in er mannleg og brigðul, ef hún
missir sjónar á þeirri einu hjálp,
sem okkur er búin í þessu lífí,
og horfír á háskann einan.
Þetta dæmi kennir okkur ann-
að. Pétur yfírgaf samfélag sitt
— hóp hinna í bátnum — til að
flýja til Krists svona alveg
prívat.
Við þekkjum líka þetta „ég á
mína trú fyrir mig“-viðhorf. „Eg
þarf eki á samfélagi að halda.
Trúin er einkamál." Þannigtrúði
Pétur, þegar hann steig úr bátn-
um og gekk af stað, svo fór
hann að sökkva.
Storminn og særótið lægði
ekki fyrr en þeir vom báðir
komnir um borð, Pétur og Krist-
ur. Fyrr en allir vom sameinaðir
í einum báti. Þá fyrst vora þeir
öraggir. Þeir vom ekki endan-
lega losaðir undan því að lenda
í þrekraunum líkama og sálar,
en þeir höfðu Krist með í för.
Sameinað fólk í einum báti.
Sameinað í Kristi, sem kemur
gegnum hættur og neyð, til að
vera með okkur og skapa hlé
fyrir veðmm.
Það er kristin kirkja og hún
verður sí og æ að treysta leið-
sögn Drottins til Hfhafnar.
Gengi: 12. júní 1987: Kjarabréf 2,104 -Tekjubréf 1,181 - Markbréf 1,041 - Fjölþjóðabréf 1,030
Hjá Fjárfestingarfélaginu færðu þinn eigin
ráðgjafa til aðstoðar 1 fjármálum þínum
Heir, sem stofna fjármálareikning hjá Fjárfestingar-
félaginu, fá sinn einkaráðgjafa sér til aðstoðar í fjármál-
um, auk þess sem þeir fá fullan aðgang að allri þjónustu
verðbréfamarkaðs Fjárfestingarfélagsins.
Fjármálareikningurinn hentar sérstaklega vel fyrir
þá, sem vilja fjárfesta í hlutabréfum og verðbréfum, svo
og þeim sem eru að minnka við sig húsnæði og vilja fjár-
festa mismuninn í verðbréfum.
Heir sem stofna fjármálareikning hjá okkur njóta
þjónustu varðandi kaup, sölu og umsýslu hvers konar
verðbréfa, umsjón með innheimtu og greiðslum,
t.d. af skuldabréfum og kaupsamningum,
tekjur af verðbréfaeign sinni, - og síðast en ekki síst
aðstoð við reglulegan sparnað.
Njóttu ráðlegginga ráðgjafa Fjárfestingarfélagsins,
hafðu samband við skrifstofu okkar og fáðu upplýsingar
um nýja fjármálareikninginn.
Gunnar Óskarsson
Ráðgjafi
Pétur Kristinsson
Ráðgjafi
Valur Blomsterberg
Ráðgjafi
FJARFESTINGARFEIAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík (91) 28566