Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 24

Morgunblaðið - 14.06.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 Texti og myndir: JÓN KR. GUNNARSSON Það er hressandi tilbreyting að bregða sér á sjó- inn í einn róður eða svo. Bæði er það hollt þeim sem í landi vinna við kyrrsetustörf, líkamans vegna, og eins til að kynna sér starfssvið og að- stöðu þeirra sem á sjónum vinna. Kjör sjómanna valda deilum og eru höfð að bitbeini næstum því í byrjun hvers veiðitímabils. Þá er vegið og metið hvað hver eigi að bera úr býtum af sameiginlegum feng, sjómenn eða út- gerð. En hvort sem sjómenn eru taldir bera of mikið eða of lítið úr býtum, er hverjum „land- krabba“ hollt að hafa í huga fjarvistir fiskimanns- ins frá heimili sínu, reikulan vinnutíma og líkamlega erfiða vinnu, sem framkvæma verður oft við slæm skilyrði t.d. vegna illviðra. Fiskimað- urinn verður því að neita sér um mörg þau þægindi í daglegu lífi sem landmenn telja sjálf- sögð. Þeir, sem deila kjörum meðal vinnuþega og veita fjármagni til hinna mismunandi atvinnugreina eða skipuleggja á einhvem hátt hina ýmsu þætti atvinnulífsins, þyrftu margir hverjir að hafa meiri persónuleg kynni af atvinnuvegun- um. Þá væru þeir betur í stakk búnir. Þetta á ekki síst við að því er varðar fískveiðamar. Sjávarút- vegurinn er enn okkar megin útflutnings-atvinnuvegur og því undirstaða blómlegs menningarlífs og góðra lífskjara allrar þjóðarinn- ar. Að þessu sinni var það þó ekki bara eins konar kynnisferð þegar farið var í róður upp úr miðnættinu aðfaranótt 6. apnl með ms. Guð- rúnu GK37. Ms. Guðrún er um 180 lesta stálskip byggt í Noregi fyrir um 18 ámm, en í Noregi voru mörg góð fískiskip byggð fyrir ís- lendinga á þessum ámm. Skipstjóri er Jón Gíslason, ættaður að vestan. Hann er einn af eldri mönnunum í stéttinni með margra ára reynslu að baki. Eins og kunnugt er, em margir farsælir skipstjórar að vest- an. Haldið var frá Hafnarfírði og stefnan tekin vestur að Jökli. Þorskanetin em í sjó á svæðinu vestur af Malarrifí. Aflinn hefur verið nokkuð góður dagana á undan en þó misjafn eins og oft vill verða. Klukkan er um 6 að morgni þeg- ar komið er að Jöklinum og er þegar tekið til við að draga netin. En nú bregður svo við að aflinn er sára- tregur og það er að heyra í talstöð- inni að flestir á þessu svæði láti lítið yfir afla. Hins vegar berast fljótlega fréttir frá nokkmm bátum á Breiðafírði þar sem eitthvað meira er að fá úr sjónum. Tíu trossur em í sjó en í hverri trossu em fímmtán net. Skipstjór- inn ákveður að flytja sex trossur norður fyrir, á Breiðafjörðinn. Þeg- ar komið er norður fyrir gefur skipstjórinn sér góðan tíma til að Ieita fyrir sér, og reynir með hjálp dýptarmælisins að fínna lóðningar Á veiðum með þorskanet sem gefí til kynna að fískur sé við botninn. Allt tekur þetta nokkum tíma. Loðnutorfur em á svæðinu, sem koma fram á dýptarmælum, og eins má sjá fuglinn hópa sig á sjónum yfír torfunum. Háhyminga- vöður em einnig á svæðinu. Það þykir ætíð góður lífsvottur. Skip- stjóramir undrast að ekki skuli meiri fískur fylgja loðnunni. Kannski er eitthvað af þorski upp í sjó í loðnunni. Loks em trossumar lagðar að nýju á dreifðu svæði í norður frá Gufuskálum. Aflinn er lítill að þessu sinni og skipstjórinn ákveður að fara ekki í land heldur bíða átekta til morguns. Það er því látið reka út af Rifi þar sem hægt er að drepa tímann með því að horfa á sjón- varpið. Enn skortir nokkuð á að sjómenn eigi þess kost að horfa á sjónvarpið hvar sem er á fískimið- unum við landið. Það verður því að færa sig til og láta reka þar sem sjónvarpið sést þegar það skapast tóm til frá veiðum eins og að þessu sinni. Klukkan er um sex að morgni þegar byrjað er draga netin þann 7. apríl. Enn er besta veður eða suð-austlæg átt, kaldi en bjart. Aflinn er tregur í fyrstu netatross- una en svo er það reytingur eins og sjómennimir orða það. Skipstjór- amir skiptast á fréttum í talstöðinni og það er ljóst að aflabrögðin em afar misjöfn. Ef aflinn er mikill er það mikil vinna að greiða fískinn úr netunum. Netin em jafnóðum greidd og lögð út í síðuna svo þau séu tilbúin til að leggja aftur. Óll vinna um borð gengur hratt og vel. Það virðast vera röskir strákar um borð í ms. Guðrúnu. Mikil þróun hefur orðið við veiðar í þorskanet eins og við flestar aðrar fiskveiðar á undanfömum ámm. Ekki þarf lengur að draga netin af spilinu eins og áður. Spilið gerir það sjálft en stýrimaðurinn stjómar hraðanum og stöðvar spilið ef eitt- hvað fer úrskeiðis. Hann stendur við borðstokkinn og hagræðir jafn- framt fískinum á rúllunni. Aður þurfti mikið af netasteinum til að halda netunum við botninn en nú er kominn til sögunnar blýteinn sem er ólíkt hentugri í meðfömm og heldur auk þess netunum betur við botninn. í staðinn fyrir allar gler- kúlumar em komnir til sögunnar plasthringir. Allt er þetta einnig margfalt fyrirferðarminna og ör- uggara. Þróunin er ör í fiskveiðun- um. Það glæðist nokkuð aflinn þegar á daginn líður. Fiskurinn er blóðg- aður jafnóðum. Flestir em sammála um það að betur sé vandað til allr- ar meðferðar á físki nú en gert var fyrir nokkmm ámm. Veðrið er enn sæmilega gott. En veðurfræðingar em í verkfalli þessa dagana eins og margir aðrir opin- berir starfsmenn, svo veðurfréttir frá veðurstofu em engar. Hins veg- ar em tvö skip á veiðisvæðinu sem fá veðurkort erlendis frá inn á sjálf- ritandi tæki. Þessi veðurkort sýna afstöðu hæða og lægða og sjómenn átta sig á þróun veðra og vinda. Veðurútlit er enn nokkuð gott og engar krappar lægðir á leiðinni. Miklar umræður fara fram í tal- stöðinni um aflabrögð dagsins. Flestir em einnig komnir með farsíma og það auðveldar enn fjar- skiptin og veitir aukið öryggi. Flestir skipstjóramir virðast óán- ægðir með aflabrögðin og hafa á orði að flytja netin til og em því að leita fyrir sér. Flesteir færa sig norðar á BreiðaQarðarmiðunum. En skipstjóramir em ekki að gefa of miklar upplýsingar að svo stöddu því það er að sjálfsögðu til- hneiging til að Ieggja netin þétt þar sem vel aflast og horfumar em góðar. Skipin em mörg og sam- keppnin hörð á fískimiðunum. Skipstjórinn á ms. Guðrúnu, Jón Gíslason, gefur sér góðan tíma til að leggja netin á ný. Siglt er um svæðið og reynt að fínna lóðningar á dýptarmæli. Sjálfritandi dýptar- mælirinn tifar í sífellu og þegar dökkir bólstrar eða skuggar koma í ljós niður við botninn vekur það vonir um físk á svæðinu. Á þeim slóðum sem lóðningar fínnast era netin lögð þétt. Skipstjóramir koma sér saman um að leggja netin í svipaða stefnu svo að þeir leggi síður hvor yfir annan. Allt gengur þetta nokkuð skipulega fyrir sig. , Það er liðið á daginn og það frétt- ist af nokkmm bátum sem hafa fengið góðan afla. Þeir em flestir gmnnt eða fast upp í landi. Það em aðallega heimamenn á Snæ- fellsnesi og sumir þeirra á minni bátum og em því kannski djarfari upp við landið. Loks er búið að draga öll netin og farið að, halla degi og nánast komið myrkur þegar síðasta trossan er lögð í hafið á ný. Sæmilegar lóðn- ingar á dýptarmælinn gefa góðar vonir um betri afla í næsta róðri. Klukkan er orðin um átta þegar haldið er til hafnar til löndunar. Það er um sex stunda sigling til Hafnarfjarðar. Löndunin gengur greitt og það er ekki til setunnar boðið. Það er haldið í róður á ný um leið og fískinum hefur verið landað á vömbíl og kosturinn til næstu daga hefur verið tekinn um borð. „Landkrabbinn" sem þetta ritar stendur einn eftir á bryggjunni með ýsu og lúðu í plastpoka. En glað- værir sjómennimir á ms. Guðrúnu leysa landfestar og leggja í ’ann enn á ný. Höfundur er framkvæmdastjórí í Hafnarfirði. í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.