Morgunblaðið - 14.06.1987, Qupperneq 31
Hann uppgötvaði Fijieyjar fyrir
20 árum. Þar stundar hann kaup-
sýslu og á stóran hlut í dagblaðinu
Fiji Sun. „Fólk sagði við mig: Af
hveiju ætlar þú að fara frá siðmennt-
uðum heimi eins og þessum til staðar
eins og Fijieyja? Eg sagði: Ég er að
fara á mun siðmenntaðri stað. Og
það er satt. Ég var ekki að fara frá
einhverju, ég var að fara til ein-
hvers. Ég hef sagt það mörgum
sinnum að það eru til baðstrendur
og pálmatré um allan heim en það
fer eftir því hveijir byggja þessa
heimshluta hvort þeir séu eftirsókn-
arverðir. Fyrir mig eru Fijieyjar einn
af þessum stöðum og Portúgal ann-
ar. Tvö frábær lönd. Vegna fólks-
ins.“
Burr á eignir á Azoreyjum og
búgarð í N-Kalífomíu þar sem hann
býr þegar hann er ekki að vinna.
En það kom allt saman eftir Perry
Mason. Aður en lögfræðingurinn
knái kom til sögunnar hafði Burr
lifað til fulls og ekki sársaukalaust.
Hann byijaði að leika á sviði í New
York og var vinsæll í útvarpi en fór
svo útí kvikmyndimar, venjulegast
í hlutverki skúrksins. Eftirminnileg-
ar myndir sem hann lék í em: A
Cry in the Night, Rear Window og
Crime of Passion. Einkalíf hans var
sorglegt og hann vill ekki tala um
það. Fyrsta eiginkonan hans lést í
flugslysi árið 1943, annað hjónaband
endaði með skilnaði árið 1947 og
þriðja konan hans lést úr krabba-
meini árið 1955. Hann átti eitt bam,
strák, sem lést úr hvítblæði.
Þegar Perry Mason knúði dyra
hjá honum árið 1957 sökkti Burr sér
í sjónvarpsþættina. í þá daga vom
gerðir 39 þættir á sýningartímabili
(núna em venjulegast gerðir 22) og
sem titilleikari var Burr í næstum
því hveiju einasta atriði. Hann bjó
í upptökuverinu. „Sem betur fer var
ég ekki giftur og ég var ekki for-
eldri,“ segir hann. „Ég hefði verið
versta foreldri í heimi og skilið mjög
fljótlega. Ég bjó í upptökuverinu sex
daga vikunnar í níu ár. Mig langaði
til að auglýsa viðvömn til leikara:
Ekki leika titilhlutverk. Þú drepur
þig á því. Þetta fer allt eftir fjöl-
skyldunni, ástarlífinu, lífi í föstum
skorðum. Ef þú hefur enga þörf fyr-
ir þessa hluti skaltu leika í sjónvarps-
þáttum. En ef þú þarft á þessu að
halda skaltu ekki vinna í sjónvarpi.
Aldrei. Ef þú átt fjölskyldu muntu
sundra henni. Eða sjónvarpsþættim-
ir ná aldrei á toppinn. Það er aðeins
um eitt að velja. Þetta fer aldrei
saman."
En samt, eftir níu ár sem Perry
Mason, smeygði Burr sér í annað
titilhlutverk ári síðar í Ironside og
lék það í átta ár. En í þetta sinn
var hann einnig meðframleiðandi og
sá um að meðleikarar sínir (Don
Galloway og Barbara Anderson)
væm mikið á skjánum líka. Hann
eyddi aldrei nótt í upptökuverinu en
hann leyfði sér að breyta ýmsu.
„Þegar ég sá handritið fyrst fannst
mér hugmyndin hræðileg. Það var
eins og sambland af Batman og ein-
hveiju. Ironside átti sendiferðabíl
með innbyggðri glæparannsóknar-
stofu og hjólastóllinn hans var
hlaðinn vopnum. Það tók tíma að
gera söguna manneskjulegri."
Burr hafnaði í mörg ár þeirri til-
lögu að endurlífga Perry Mason af
því að það var alltaf gert ráð fyrir
klukkustundarlöngum þáttum sem
sýndir yrðu einu sinni í viku. „Ég
hafði engan áhuga á að gera viku-
lega þætti en ég sagðist mundu vera
til í sjónvarpsmynd. Framleiðend-
umir Fred Silverman og Dean
Hargrove komu með þessa hugmynd
að gera nokkrar sjónvarpsmyndir og
ég sagðist mundu slá til ef þeir
fengju Barböm Hale til að endurtaka
sína mllu (hún lék Dellu Street,
einkaritara Masons).
Burr er ánægður með að sjón-
varpsmyndimar gefi svolítið rými
fyrir kímni, nokkuð sem uppmna-
legu þættina skorti. „Earle Stanley
Gardner (sem skrifaði skáldsögumar
um Mason) og kona hans höfðu frá-
bæra kímnigáfu en ekki framleið-
endumir okkar svo það fór lítið fyrir
skopskyninu hjá Mason. Það verður
öðmvísi í þetta sinn.“
Þýtt og endursagt: -ai.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
Of?
31
■ ■
KVÖLDÚTVARP:
Rás 2 er ódýr og
höfðartil flestra ald-
urshópa. Rásin
býður uppá vandaða kvöld-
dagskrá sem nær um land allt.
Frá 19-24er verðið 140 kr. fyrir
sekúnduna.
NÆTuRinVARP:
Rás 2 I loftinu allan
IQal sólarhringinn um
wiw ^ I 14. 1»«^ k i — - x: i
allt land. Nær til
vinnandi fólks, fólks f frii,
fólks við skemmtun og fólks á
ferð. Frá 24—7 er verðið 70 kr.
fyrir sekúnduna.
/■f'fV
RÍKISÚTVARPIÐ
AUGLÝSING ADEILD
SÍMI 693060
HIDKKVRMR ÞRJAR
ÁRlsm é !t k>iinir iiyja tíma
og ný verð á leiknum
augtýsingum
M0RGUN- 0G
SÍÐDEGISÚTVARP:
Rás 2 nær til fólks
afflR við leik og störf um
land allt. Rásin heyr-
ist í sumarbústaðnum, tjald-
inu og bilnum. Frá 7—19 er
verðiö 225 kr. fyrir sekúnduna.
ÖRKIN/SÍA