Morgunblaðið - 14.06.1987, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
59
i
Sinfóníimni vel fagnað
Hnfn Hnmnfip/li
Höfn, Horaafirði.
Sinfóníuhljómsveit íslands ferðaðist um Austurland á dögunum
og hélt tónleika á 7 stöðum. Stjómandi í ferðinni var Páll P. Páls-
son og einleikari Erling Blöndal Bengtson. Karlakórinn Jökull úr
Hornafirði söng með hljómsveitinni á tónleikunum á Egilsstöðum,
Neskaupstað og Höfn í Hornafirði.
Hljómleikaferðinni lauk með tón- góður andi ríkti. Mér þótti vænt
leikum í þróttahúsinu á Höfn.
Fjölmenni var á tónleikunum og
listafólkinu geysivel tekið.
Tónleikamir hófust með leik sin-
fóníuhljómsveitarinnar og síðan
kom Erling Blöndal Bengtson og lék
einleik með hljómsveitinni. Var
listamanninum ákaft fagnað og
slapp ekki fyrr en hann hafði leikið
2 aukalög. Kunnu áheyrendur
greinilega að meta þessa heimsókn.
Eftir hlé bættist Karlakórinn Jökull
á sviðið og söng 3 lög með hljóm-
sveitinni.
í lokin var allt listafólkið ákaft
hyllt og margoft klappað upp og
því færðar gjafir og blóm frá heima-
mönnum.
Eftir tónleikana á Höfn náði
blaðamaður tali af þeim Páli P.
Pálssyni, stjórnanda hljómsveitar-
innar, Emi Amarsyni, formanni
karlakórsins, Sigjóni Bjamsyni,
stjómanda kórsins, og Guðlaugu
Hestens, undirleikara kórsins, og
spurði þau um ferðalagið og tónleik-
ana.
Páll P. Pálsson: Það var mjög
skemmtilegt að starfa með þessum
áhugamönnum. Ég er vanur því.
Fyrst þegar ég kom til íslands starf-
aði ég með Karlakómum Þresti í
Hafnarfirði og síðan með Karlakór
Reykjavíkur, en það var sérstaklega
gaman að fara hingað út á land
og vinna með þessum góðu mönnum
í Karlakómum Jökli. Eg kom hing-
að fyrir þrem vikum og við vorum
að æfa saman og þá kom strax
fram að við vomm dús og mjög
m m .
: mm
um að fá að taka þátt í þessu.
Ferðin hefur verið mjög
skemmtileg, að vísu aðsókn dálítið
misjöfn, langmest hér í Höfn, og
sérstaklega var gaman að hafa
svona frægan mann eins og Erling
Blöndal Bengtson með í ferðinni,
svona frábæran listamann.
Undirtektir hafa verið mjög góð-
ar alls staðar, en þetta var toppur-
inn héma. Ég man bara ekki eftir
að hafa fengið svona miklar undir-
tektir, það er alveg dásamlegt og
ég er mjög ánægður með þetta allt
Morgunblaðið/Albort Eymundsson
Sinfóníuhljómsveit íslands og Karlakórinn Jökull á tónleikunum á
Höfn í Hornafirði.Á innfelldu myndinni tekur Páll P. Pálsson við
fána úr höndum Arnar Arnarson, formanns Karlakórsins Jökuls.
Siguijón Bjarnason, stjórnandi Karlakórsins, Guðlaug Hestnes, undir-
leikari og Om Arnarson, formaður karlakórsins.
saman. Frammistaða strákanna í
kómum var prýðileg og ég heyrði
að fólk hafði gaman af þessu.
Öm Arnarson, formaður
Karlakórsins Jökuls: Að syngja
með sinfóníuhljómsveitinni fyrir
svona áhugamannalið er alveg ólýs-
anlegt. Öll ferðin frá upphafi til
enda er búin að ganga mjög vel og
framar öllum vonum. Við karlakórs-
félagamir emm sérstaklega þakk-
látir fyrir að hafa fengið tækifæri
til að taka þátt í þessu.
Siguijón Bjarnason, stjórnandi
karlakórsins: Þetta er mikil upplif-
un fyrir okkur í kómum og nánast
vítamínsprauta á alla félaganna'og
við höfðum aldrei ímyndað okkur
að eiga eftir að upplifa þetta, það
er ólýsanlegt.
Guðlaug Hestnes, undirleikari
karlakórsins: Mér fannst þetta
stórkostlegt og strákamir í kómum
stóðu sig eins og hetjur. Þeir em
búnir að leggja hart að sér til að
gera þetta vel. Tónleikamir í heild
vom góðir og Erling Blöndal alveg
sérstakur.
Hljómburður í húsinu er bara
nokkuð góður og ég get ekki betur
séð en við eigum að nýta þetta
meira í þágu tónlistarinnar og það
var gaman að sjá hvað margt fólk
var hér.
- AE.
Höfn Hornafirði:
Aðalumboðið hf.
Vatnsmýrarvegi 25, sími 621738
Eigum til fyrirliggjandi:
Wageneer LTD Grand 1987 m/öllu og
Cherokee Lorcelo 1987 m/öllu:
Sjálfsk., 6 cyl, 41 vél, litað gler, álfelgur, raf-
drifnar rúður, rafdrifin sæti, 5 dyra , 6
Jensen-hátalarar, útvarp og segulband, fjar-
stýrður hurðaopnari, veltistýri, sjálfvirkur
hraðastillir, sentrallæsingar, leðurklædd sæti,
loftkæling, toppgrind, sóllúga. Selec Trac þró-
aðasta fjórhjóladrifið. Tvivirkir gasdemparar í
öllum bílum.
P.s. Athugið, þetta eru bílarnir sem um-
boðið gat ekki útvegað.
Verð Wagoneer LTD: kr. 1550 þús.
Verð Cherokee Lorcelo: kr. 1440 þús.
■ a- i« t»i.