Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 1
88 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
155. tbl. 75. árg.___________________________________SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 ________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandarískir embættismenn:
Sovétstjórnin tefur
afvopnunarviðræður
— í von um eftirgjöf af hálfu vestrænna ríkja
Washington, Reuter.
Bretland:
Verðbólgn-
hraði eykst
lítillega
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VERÐBÓLGA síðustu tólf mán-
uðina reyndist vera 4,2%, þegar
hún var mæld í júnímánuði, 0,1%
hærri en í mánuðinum á undan.
Ríkisstjórnin býst við, að verð-
bólgan hækki í 4,5%, en verði
undir 4% á þessu ári í heild.
Matvara lækkaði í verði í síðasta
mánuði, en verð á bílum hækkaði.
Húsnæðiskostnaður lækkaði vegna
þess að vextir á húsnæðislánum
lækkuðu.
Norman Fowler atvinnumálaráð-
herra sagði, að þessar tölur væru
í fullu samræmi við spá fjármála-
ráðuneytisins um, að verðbólgan
yrði undir 4% í lok ársins. Þessar
tölur voru heldur betri en búist var
við í fjármálaheiminum, og pundið
styrktist á alþjóðlegum fjármagns-
mörkuðum. Ríkisstjómin býst
fastlega við, að styrkur pundsins
komi fram í lækkuðu verði á erlend-
um vörum síðar á árinu.
Sprengjuhót-
anir í Kaup-
mannahöfn
Kaupmannahöfn, Reuter.
Verslunareigendur í Kaup-
mannahöfn voru á varðbergi í
gær en þá hafði því verið hótað
í nafnlausu bréfi, að sprengjum
yrði komið fyrir í verslunum víða
um borgina. í fyrradag sprungu
fimm sprengjur í kjallara sjúkra-
húss í Glostrup.
Skömmu eftir að sprengingamar
urðu í Glostmp barst lögreglunni
bréf á slæmri ensku þar sem sagði,
að fimm manna hópur stæði á bak
við sprengingamar. Hefði hann
hvorki trúmál né pólitík að leiðar-
ljósi heldur krefðist þess að fá í
hendumar 16 milljónir danskra
króna. Að öðrum kosti yrði sprengj-
um komið fyrir í verslunum vítt og
breitt um Kaupmannahöfn. Fylgdi
það með, að nánari fyrirmæli um
afhendingu fjárins kæmu síðar.
Spréngjumar, sem sprungu í
sjúkrahúsinu í Glostrup, voru gerð-
ar úr rörbútum, sem fylltir höfðu
verið sprengiefni, og sprengdar með
fjarstýringu.
yfir 100 manns og særði a.m.k.
tíu í hörkuátökum, sem urðu víða
á götum Panamaborgar í gær,
þegar verið var að mótmæla
áframhaldandi setu Manuels An-
tonio Noriega hershöfðingja á
valdastóli.
Þeir, sem særðust, urðu fyrir
skotum, þegar hermenn skutu af
haglabyssum inn í mótmælenda-
Bandaríkjastjórn telur, að Sov-
étmenn séu vísvitandi farnir að
tefja afvopnunarviðræðurnar i
von um að fá vestræn ríki til að
gefa ýmislegt eftir gagnvart
skarann. Þar á meðal var banda-
rískur blaðamaður, Geoffrey
Biddulph, sem særðist á eyra og
bijósti. Einnig særðist panamskur
sjónvarpsmaður, sem var við störf
sín.
Heimildarmenn innan hersins
töldu, að yfir 100 manns hefðu
verið handteknir. Noriega sagði í
sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að
mótmælin væru að undirlagi fá-
þeim í væntanlegum samningum.
Er þetta haft eftir bandarískum
embættismönnum.
Bandaríkjamenn eru famir að
ókyrrast vegna þessarar nýju af-
menns minnihlutahóps, í mesta lagi
um 5.000 manna, og lagði til, að
fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla
um það, hvort hann ætti að gegna
áfram leiðtogastarfinu.
Stjómvöld í Washington hafa
gagnrýnt Noriega óvægið undan-
famar vikur og krafist þess, að
lýðræði verði þegar endurreist í
Panama.
stöðu Sovétmanna en hún hefur
verið að koma í ljós á síðustu tveim-
ur vikum. Charles Redman, tals-
maður utanríkisráðuneytisins,
segir, að Sovétstjómin fari nú und-
an í flæmingi þegar minnst er á
fyrirhugaðan fund utanríkisráð-
herranna, Eduards Shevardnadze
og Georges Shultz, og í viðræðun-
um í Genf gengur hvorki né rekur.
Bandarískir embættismenn telja,
að Sovétmenn hafi ákveðið að tefja
fyrir framgangi afvopnunarvið-
ræðnanna í því skyni að neyða
vestræn ríki til nýrrar eftirgjafar,
einkum hvað varðar 72 Pershing
lA-flaugar, sem Vestur-Þjóðveijar
eiga. Stórveldin hafa orðið sammála
um að eyða öllum skammdrægum
og meðaldrægum eldflaugum í Evr-
ópu en Bandaríkjastjórn hefur lagt
til, að þessum eldflaugum verði
eytt um allan heim. Ekki bólar á
svari Sovétmanna við þeirri tillögu.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta er umhugað um að komast að
samningum um afvopnunarmálin
áður en kjörtímabili hans lýkur en
til þess þurfa þeir að vera komnir
fyrir öldungadeildina snemma
næsta árs, áður en kosningabarátt-
an hefst fyrir alvöru. „Þeir eru
vissir um, að því lengur sem þeir
telja viðræðurnar, því meira gefum
við eftir," sagði bandarískur emb-
ættismaður.
Átöká
N-írlandi
Portadown, Reuter.
TIL átaka kom í Portadown á
Norður-írlandi í gær þegar mót-
mælendur réðust á fjóra lög-
reglumenn.
Mótmælendur á Norður-írlandi
hafa að undanförnu komið saman
til að minnast sigursins yfir kaþó-
likkum á 17. öld en hámarki ná
hátíðahöldin í dag, 12. júlí, og hef-
ur lögreglan mikinn viðbúnað af
þeim sökum. I gær réðust nokkrir
mótmælendur að lögreglumönnum
með bensínsprengjukasti og urðu
fjórir þeirra fyrir meiðslum.
Miklar óeirðir og
handtökur í Panarna
Panama City. Reuter.
ÓEIRÐALÖGREGLA handtók