Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 2

Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 2
2 Húnaflói: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN og UMHVERFI: Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt Umhverfi Þjóðarbókhlöðunnar f tillögu Reynis Vilhjálmssonar landslagsarkitekts að umhverfi verða trjáreitir með göngustígum. Unnið er að vegghleðslunni í Þjóðarbókhlöðunnar er gert ráð fyrir vegghleðslu með hallandi sumar og uppsteypu á inngangi hússins en um 45 milljónum króna grasbala í átt að síki sem verður umhverfis húsið. Við austurhlið er veitt til Þjóðarbókhlöðunnar í ár. Fljótandi vörukynning Islendinga í Færevjum Hrunrækju- stofnsins er stórkost- legt áfall - segja forsvarsmenn rækjuvinnslu á svæðinu í SKÝRSLU Hafrannsóknarstofn- unar um ástand nyíjastofna sjávar er Iagt til að rækjuafli á Húnaflóa verði á næsta vetri 500 tonn, sem er sama magn og á síðasta vetri, en aðeins um fimmt- ungur þess sem veiddist af rækju í flóanum áður. í skýrslunni kem- ur fram, að rækjustofninn í Húnaflóa er nú mjög lítill. „Ég yrði ánægður ef við gætum þó veitt þessi 500 tonn því ég reikna satt best að segja ekki með neinu lengur," sagði Heimir L. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf. á Skagaströnd. „Það er ekki raun- hæft að gera sér neinar vonir, þvi nú er mikil þorskgengd í flóanum og sá þorskur er sjálfsagt að gæða sér á síðustu rækjunum. í fyrra voru veidd 525 tonn og af því fékk Rækju- vinnslan 123 tonn. Til samanburðar má geta þess að veturinn áður veidd- ust um 2.800 tonn og af því fékk Rækjuvinnslan 638 tonn. Af þessu er ljóst að samdrátturinn í rekstrinum er gífurlegur og það er mikið áfall fyrir heimamenn." Heimir sagði það helst til ráða fyrir vinnsluna að fá báta til veiða á úthafsrækju. Jón Alfreðsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Steingrímsfjarðar, sagði að hann ætlaði ekki að mótmæla því að rækjustofninn í Húnaflóa væri hruninn. „Þetta er stórkostlégt áfall fyrir alla þá sem hafa haft lifibrauð af rækjuveiðum," sagði Jón. „Það sannaðist í fyrra að rækjan er horfín úr flóanum og sá vetur var mjög erfiður. Nú er að vísu aukning á bol- físki, en það tekur mörg ár þar til við getum farið að snúa okkur að þeim veiðum í stað rækjunnar. Bát- amir hafa til dæmis engan þorskk- vóta.“ Jón sagði að það væri helst til ráða að leggja aukna áherslu á út- hafsrækjuveiðar og þorsk. „Við höfum stundað skelfískveiðar, en nú fæst ekkert verð lengur fyrir skelina. Hvað þorskveiðar varðar þá er ljóst að bátamir okkar em ekki þannig að þeir gæti sótt á djúpslóð yfír vetur- inn. Hálft árið hefur innfjarðarrækjan verið hér uppistaðan í atvinnulífí og áfallið er því gífulegt fyrir okkur," sagði Jón Alfreðsson, kaupfélags- stjóri, að lokum. TVEIR 8 metra langir trefja- plastbátar leggja af stað frá Islandi á þriðjudaginn og halda til Færeyja. Þeir sigla síðan milli 15 staða í Færeyjum og kynna islenska framleiðslu á vélum og tækjum til fiskveiða og fisk- vinnslu. Það er Útflutningsráð íslands sem stendur fyrir kynn- ingunni en í henni taka þátt f imm fyrirtæki. Jens Ingólfsson markaðsstjóri tæknivara hjá Útflutningsráði sagði í samtali við Morgunblaðið að mark- aðskannanir hefður verið gerðar reglulega í Færeyjum. Benti allt til þess að markaður sé þar fyrir íslenskar tæknivömr fyrir fískveið- ar og fískvinnslu. Firnm íslensk fyrirtæki hefðu því ákveðið að gera markaðsátak í Færejjum. Þau em Bátasmiðja Guðmundar, sem fram- Ieiðir Sóma-bátana, 8 ;..etra langa hraðskreiða fískibáta, DNG á Akur- eyri, sem framleiðir tölvustýrðar handfæravindur, NORM-EX í Hafnarfírði, sem framleiðir plastker í allar stærðir fískiskipa, Sjóvélar, sem framleiðir línuspil og fleira og fseind hf., sem framieiðir olíu- eyðslumæla og annars konar raf- eindamælitæki. Iðnlánasjóður styrkir þessa kynningu að vemlegu leyti. „Við töldum æski'.egt að hefja þetta markaðsátak með því að hafa sýningu á vömnum sem fyrirtækin framleiða og vekja almenna athygli á þeim, “sagði Jens Ingólfsson. „Maður hefði kannski valið aðrar aðferðir á öðmm svæðum, til dæm- is með því að taka þátt í sjávarút- vegssýningum. En ekki er um slíkt að ræða í Færeyjum. Með hliðsjón af þeim vömm sem fyrirtækin fram- leiða ákváðum við að reyna nokkuð nýstárlega aðferð og sigla á milli hugsanlegra viðskiptavina og bjóða upp á fljótandi vömkynningu. Vömnum verður komið fyrir í tveimur Sóma-bátum. Vömkynn- ingin hefst í Vestmannaeyjum mánudaginn 20. júlí, en alls verður farið á 15 staði. Henni lýkur í Þórs- höfn laugardaginn 25. júlí. Hæstiréttur um mál Helgu Kress: Jafnréttisráð brast málshöfðunarheiniild Vogalax: 500 laxar teknir á einum sólarhring MÁLI Jafnréttisráðs gegn menntamálaráðherra vegna stöðuveitingar við heimspeki- deild Háskóla íslands hefur nú verið visað frá dómi. Hæstiréttur staðfesti nýlega þann úrskurð borgardóms að Jafnréttisráð hafi brostið heimild til máls- höfðunarinnar. í ársbyijun 1986 setti þáverandi menntamálaráðherra, Sverrir Her- mannsson, Matthías Viðar Sæ- mundsson lektor í íslenskum bókmenntum. Umsækjendur um stöðuna vom sex og var Helga Kress þeirra á meðal. Dómnefnd heimspekideildar taldi þau Helgu og Matthías Viðar hæfust til starf- ans, en mælti sérstaklega með Helgu. Heimspekideild greiddi síðan atkvæði um umsækjendur og féllu þau þannig að Helga fékk flest, eða 26, en Matthías Viðar 4. Helga kærði stöðuveitinguna til Jafnréttisráðs, sem ákvað að höfða mál gegn ráðherra. Gerði Jafnrétt- isráð þá kröfu fyrir dómi að viðukennt væri að um brot á jafn- réttislögum hefði verið að ræða, er gengið var framhjá Helgu Kress við stöðuveitinguna. Af hálfu menntamálaráðherra var þess aðallega krafíst að málinu yrði vísað frá dómi, þar sem í jafn- réttislögum sé kveðið á um máls: höfðunarrétt Jafnréttisráðs. f ákvæði laganna segir, að Jafnréttis- ráð skuli, áður en til málssóknar kemur, beina til gagnaðila ákveðn- um tillögum um úrbætur og skilyrði sé að þeim tillögum hafí ekki verið sinnt. Af hálfu Jafnréttisráðs var því haldið fram að slíkum tilmælum hafí ekki verið beint til ráðherra þar sem augljóst væri að ákvæðið ætti ekki við þegar búið var að setja í stöðu. Þá var því einnig haldið fram af hálfu menntamálaráðherra að máls- sóknin væri tilkomin af því að Jafnréttisráð hafí hagsmuni af þvi að fá túlkun á ákvæðum laganna og væri því verið að leita álits dóms- stóls á lögfræðilegu álitaefni. Þessum röksemdum vísaði Jafnrétt- isráð alfarið á bug. Úrskurðað var um frávísunar- kröfu menntamálaráðherra í borgardómi fyrir skömmu. í niður- stöðum dómara segir, að máls- höfðunarheimild Jafnréttisráðs samkvæmt jafnréttislögum sé bundin því ófrávílq'anlega skilyrði, að ráðið hafi áður beint rökstuddum fyrirmælum um ákveðnar úrbætur til þess aðila, sem að mati ráðsins hefði gerst brotlegur við ákvæði laganna. Þvf hafí Jafnréttisráð brostið heimild til höfðunar málsins. Nýlega staðfesti Hæstiréttur nið- urstöðu borgardóms um að málinu skyldi vísað frá dómi á þessum for- sendum og var málskostnaður felldur niður. Þorgeir Örlygsson, borgardómari, kvað upp úrskurð undirréttar, en í Hæstarétti dæmdu málið hæstaréttardómaramir, Hall- dór Þorbjömsson, Guðmundur Jónsson og Þór Vilhjálmsson. UM 700 laxar eru komnir upp hjá Vogalax og er búist við að um 3.000 laxar náist i sumar. Það eru tæplega 13% heimtur, sem er mjög góður árangur að sögn Vilhjálms Guðmundssonar fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Hver lax vegur um 3 kg og fást 300 til 400 krónur fyrir kílóið á erlendum mörkuðum. Fyrstu laxamir gengu í stöðina um miðjan júní en aðalgangan hófst fyrir um viku og voru 500 laxar teknir á einum sólarhring. „Þetta er miklu betri árangur en þegar best lét árið 1985 en þá náðust 12,6%,“ sagði Vilhjálmur. Laxinn verður seldur í verslanir í Reykjavík og til Evrópu og Banda- ríkjanna. „Það er eftirspum eftir laxi í Bandaríkjunum núna og fæst gott verð fyrir hann, en verðið er heldur lægra í Evrópu," sagði Vil- hjálmur. Ný lokið er sleppingu 400 þúsund gönguseiða og er það stærsta seiða- slepping á íslandi til þessa og þriðja til fjórða stærsta á Atlandshafslaxi í heiminum. Á næsta ári er áætlað að sleppa 1,7 milljón seiðum og verður Vogalax þá orðin stærsta hafbeitarstöð við Norður-Atlands- haf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.