Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
9
HUGVEKJA
Heilindi,
líf og friður
eftir sr. JÓN RAGNARSSON
Þegar við ræðum um miskunn-
semina, sanngirnina og það að
vera samkvæmur sjálfum sér
gagnvart Guði og meðbróðurnum,
þá erum við að tala um heilindi.
Gagnkvæm og heil tiltrú skiptir
miklu í mannlegum sökum og öllu
samlífi manna, persónulegu og
félagslegu. Hvort sem um er að
ræða einstaklinga, eða menning-
arheildir.
Heilindi eru ekki á hveiju strái,
þegar við svipumst um í heiminum
í dag. Heimurinn, sem við þekkj-
um, er undarlega klofinn. Hann
er klofinn í austur og vestur og
„þriðja heiminn“ auk allra ann-
arra flísa, sem fyrst og fremst eru
hugarfarslegar.
Það eru reistir illkleifir garðar
tortryggni á ímynduðum mörkum
og þeim rækilega viðhaldið.
Rússagrýlan er okkur allvel
kunn og ekki er frýnilegri sú
Kanagrýla, sem haldið er að íbú-
um austan tjalds.
Fólk er samt fólk, hvorum meg-
in hryggjar sem það liggur í
pólitísku deilingardæmi heimsins.
Það á sínar tilfinningar, þrár,
gleði og sorgir. Það vill fá frið til
að lifa lífí sínu og njóta hamingju
sinnar. Þeim friði er ærið oft
spillt af markvissum áróðri, sem
elur á tortryggni milli þjóða, sem
eiga í raun ekkert sökótt hver við
aðra, en standa varnarlausar and-
spænis þessari viðleitni til
mótunar hugarfarsins.
Því er ekki svo farið, að þjóðir
heims standi gráar fyrir jámum,
hver frammi fyrir annarri og bíði
óþreyjufullar eftir skipun um að
leggja út í heilagt stríð.
Þjóðir heims vilja frið. — Frið
til að iðka óþvinguð samskipti og
til að minnka bilið milli ríkra þjóða
og snauðra, í ábyrgu bróðemi
lausar við ágang og tortryggni.
Þjóðir heims standa þess í stað
felmtri slegnar frammi fyrir yfír-
þyrmandi tortímingarmætti
kjamorkuvopnanna. Þjóðir heims
mæna einlægum vonaraugum til
allrar sannrar viðleitni sem miðar
að því, að útrýma þeim ógnvaldi.
Það er knýjandi mál. Hefur verið
það frá því í Hirosima árið 1945.
Þetta er ekki einkamál ráða-
manna í ríkisstjórnum og heijum.
Þetta varðar alla lifandi menn —
og allt, sem lífsanda dregur.
Það er háskalegt, að stjómend-
ur örfárra ríkja, þótt máttug séu,
geti í einni svipan splundrað ver-
öldinni og lokið mannkynssög-
unni. Við vitum að henni hlýtur
að ljúka einhvem tímann, en það
var ekki okkar ákvörðun, sem réð
upphafi hennar og það á ekki að
vera okkar ákvörðun, hvenær
henni lýkur. Ógnin, sem stafar
af vígbúnaðinum, beinist ekki frá
einni þjóð til annarrar, þegar nán-
ar er skoðað. Hún beinist gegn
mannkyni. Gegn tegundinni
Homo Sapiens og lífríkinu, sem
hún er hluti af.
I4.sd.e.Trin
Lk.6:36-42
Kristin kirkja á erindi að reka
í þessum aðstæðum. Hún er í
heiminum til að ganga erinda
Guðs meðal mannanna og hún
vill lúta fomstu Krists í því verki.
Sá maður, sem tekur mark á
Kristi, treystir honum til að leiða
mannkyn til friðar og hann treyst-
ir jafnframt því fyrirheiti Guðs,
að hann stofni ríki sitt á jörð og
að þar eigi mannkyn framtíð sína.
Kristinn maður gengur ekki
með þann bjálka í auga, að allir
menn aðrir sitji á svikráðum við
hann og því sé nauðsynlegt að
brynja sig gegn náunganum.
Kristinn maður fínnur, hve
falskur friður það er, sem styðst
við kerfi gereyðingarvopna.
Kristinn hugsunarháttur er
bjargráð í þeim ógöngum, sem við
höfum ratað í. Hann boðar tiltrú
manna og þjóða í milli, vegna
þess að Guð er með okkur og
hann hefur gefið fyrirheit um líf."
Fyrirheit, sem treysta má og sem
elur okkur upp í trúnaði og kær-
leika, eindrægni og heilindum
milli manna í stað tortryggni og
haturs.
Það er hlutverk kirkjunnar, að
hlusta eftir Guðs orði. Leggja
rækt við það og koma því til skila
hjá mannkyni á jörð.
Kirkjan á að reka „áróður" fyr-
ir málstað Krists og gegn þeim
vonleysisskugga, sem morðtólin
varpa yfir jörðina
Kirkjan veit, að Guð lifir — að
hann skapar heiminn og gefur líf
í þeirri framtíð, sem ógnað er af
misgerðum okkar mannanna.
Það er í trausti þess, sem við
berum börn fram til skírnar, svo
að þau megi læra að þekkja líf
og sannleika og frið Guðs í Jesú
Kristi.
MIÐBORG^
Skeifunni 17 (Ford-húsinu) 3. hæð.
Sími: 688100
Opið virka daga frá kl. 9.00-18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00-16.00
Járnháls
4000 fm, iðnaðar-, verslunar- eða verksmiðjuhúsnæði
í byggingu. Afhendist á mismunandi byggingarstigum.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Sölum. Þorsteinn Snædal, lögm. Róbért Árni Hreiðarsson hdl. ,
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Húseign óskast
Vil kaupa húseign með tveimur íbúðum. Æskileg
staðsetning: Vesturborgin.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20.
júlí merktar: „H — 5181“.
3 1
Góðan daginn! $
Gengi: 10. júlí 1987: Kjarabréf 2,158 - Tekjubréf 1,174 - Markbréf 1,076 - Fjölþjóðabréf 1,030
ÞAÐ SKILAR HAGNAÐI AÐ ÞIGGJA RÁÐ SÉRFRÆÐINGA
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS
ÞÚ GETUR TREYST PEIM FYRIR SPARIFÉ ÞÍNU:
ÞÚ FÆRÐ EINKARÁÐGJAFA ÞÉR TIL AÐSTOÐAR HVAÐ KEMUR SÉR VEL FYRIR ÞIG?
Ráögjafar Fjárfestingarfélagsins eru þrautreyndir á verðbréfa-
markaðinum.Þeir gæta þess að þú fáir hámarks ávöxtun af sparifé þínu.
Upphæðin skiptir ekki höfuðmáli. Þú getur fjárfest í mörgum tegund-
um verðbréfa og byrjað smátt eða stórt. Allt eftir því hvað fjárhagur þinn
leyfir.
Sérfræðingar okkar aðstoða þig við að finna hentugustu leiðina til að
spara og hagnast í fjármálum þínum. Það margborgar sig fyrir þig að
koma og ræða við okkur á skrifstofunni í Hafnarstræti 7, Reykjavík.
Við, ráðgjafar Fjárfestingarfélagsins, bjóðum ykkur velkomin.
Þú færð svarið þegar þú kemur og ræðir við ráðgjafa okkar. Þér til
glöggvunar koma nokkur dæmi um leiðir til úrlausnar.
Kjarabréf eru einföld og þægileg til ávöxtunar og söfnunar á sparifé. Þú
getur byrjað með rúmar 1000 krónur til kaupa á Kjarabréfum.
Tekjubréf eru hagstæð þegar þú vilt fá greiddar reglulega tekjur af
sparifé þínu.
Markbréf eru fjárfesting í viðskiptakröfum og skuldabréfum - aðallega
til skamms tíma.
Fjölþjóðabréf þegar þú vilt fjárfesta í innlendum og erlendum hluta-
bréfum.
Fjármálareikningurinn er sérlega hagstæður þegar þú ætlar að ávaxta
stærri fjárhæðir með fjölþættum verðbréfaviðskiptum. Þjónustuþættir
eru fleiri s.s. innheimtu-, tekju- og sparnaðarþjónusta.
Anna Heiðdal Kolbrún Kolbeinsdóttir Pétur Kristinsson
Rósa E. Helgadóttir Valur Blomsterberg
FJÁRFESriNGARFÉlAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík O (91) 28566
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegtgengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa ogTekjubréfa
VIS.VS0