Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 20

Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 20
20 4- MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JUU 1987 Börn í Eyjum læra réttu handtökin við sprang og bjargsig: Jr Með bros á vör, hangandi og svífandi á annarri hendi. Ekkert mál fyrir Frey Valsson, sem er einn sá alkaldasti, leiknasti og fimasti um þessar mundir. Legg höfuðáherslu á að vara þau við öllu sem heitir príi Sigrún Grétarsdóttir 12 ára: Ofsalega gaman að síga Vestmannaoyjum. Stelpurnar í Eyjum eru ekki síður leiknar við sprangið og bjargsigið en peyjarnir. Á námskeiðinu hjá Súlla voru fjölmargar stelpur og við eina þeirra var spjallað. Húnheitir Sigrún Grétarsdóttir og er 12 ára. Hún fór léttilega og fagmannlega niður 30 metra bergið, spyrnti sér vel frá og notaði stuðningsbandið rétt. Þegar Sigrún var komin niður og hafði losað sig úr bandinu var hún spurð hvort hún hefði ekki verið loft- hrædd. Sigrún hló við og þótti greinilega fávíslega spurt. „Nei sko, ekki aldeilis. Það er ofsalega gaman að síga og líka að spranga. Og þetta er líka alveg þræl spennandi. Mér finnst að allir krakkar í Eyjum ættu að koma hingað og læra hvernig á að gera þetta rétt og örugg- lega.“ Sigrún sagðist vera nú í fyrsta skiptið í kennslu hjá Súlla, en hún hefur sótt Sprönguna frá því hún var 8 Sigrún Grétarsdóttir ára gömul. Hún sagðist einu sinni hafa komið í útey, það var í Elliðaey og hefði það verið mjög gaman. Þar með var Sigrúnu ekki lengur haldið á snakki og hún hraðaði sér aftur upp í bergið til Súlla til þess að komast í aðra ferð. - segir HlöðverJohnsen bjargveiðimaður Vestmannaeyjum. Sprangan við Skiphella, ofan við Friðarhöfn, gegnir stóru hiutverki í frístundastarfi barna og unglinga í Vestmannaeyjum. Svo hefur verið um ómunatíð ogþeireru fáir Eyjapeyjarnir sem ekki hafa varið drjúgum tíma við sprangið. Á allra síðustu árum hefur svo komist á jafnrétti milli kynjanna á þessum vettvangi og stúlkurnar sýnt þessari íþrótt engu minni áhuga en strákarnir. Erþað ekki sístþví að þakka, að einn kunnasti og leiknasti bjargveiðimaður Eyjanna, Hlöðver Johnsen, hefur undanfarin 12-14 árverið með kennslu fyrir börnin í sprangi og bjargsigi á vegum tómstundaráðs bæjarins. Ekki þarfað fara mörgum orðum um nauðsyn þess að kenna börnunum réttu handtökin við sprang og sig því svo snar þáttur erþað í lífi og starfi barna í Eyjum að klifra í fjöiiog fara íúteyjar. Betri og traustari kennari en Súlli, eins og Hlöðver er gjarnan kallaður í sinni heimabyggð, er vandfundinn. Á hverju sumri í ein 12-14 ár hefur Hlööver starfrækt námskeið fyrir börnin og hefur aösóknin ávallt verið mjög mikil, allt upp í 50 börn í einu hafa sótt þriggja vikna námskeið. Raunar oft færri komist að en vildu sagði Hlöðver fréttaritara þegar hann leit við í Spröngunni í lok sumarnámskeiðs- ins á dögunum. Þar var hópur stráka og stelpna á ýmsum aldri að spranga og æfa bjargsig. Greinilegt var að Hlöðver hafði athygli barnanna óskipta og hann innprentaði þeim fræðin á sinn hógværa og sannfaerandi hátt. I spranginu fara byrjendur fyrst á Barnastein og síöan á Almenn- ing. Þegar leiknin eykst er fariö upp á Stígvél og áfram upp á Syllu, Efri- og Neðribekk. Ofurhugarnir fara síðan alla leið upp í gras, 12-14 metra upp í bergið. Þeir ná stærsta og tignarlegasta riðinu sem getur jafnvel kallað fram fölva í andlitum kóngafólks. Þeir lei- knustu láta sig ekki muna um aö fara riðið á annarri hendinni og fara gjarnan kollhnís í bakaleið- inni, en þá vissulega með báðar hendur á bandinu. Sigkennslan fer fram á sama stað og síga börnin fram af 30 metra háu bergi. Súlli sér um að þau séu tryggilega bundin og þau fara ýmist bundin á öðrum eða báðum eins og fjallamenn segja. Súlli segir að fyrsta reisan fram af brúninni hafi stundum framkall- að grettu og jafnvel skæl og margir hafi snúið við. En eftir að hafa horft dálitla stund á aðra fara niður bergið hafa þau hertupphugannog beöiðumað fara aftur. „Égeraðallega að kenna þeim að fara með bönd og innprenta þeim að gæta ávallt fyllsta öryggis. Að þau treysti böndunum," sagði Hlöðverþeg- arhann varspurður um kennsluna. „Ég kenni þeim tábragð og lær- vaö sem er lífsnauðsyn- legtaökunna þegarfarið er íbjörg. Með því að nota bandið tvöfalt, kunna tábragð og geta farið niðurá lær- vaði, geta menn bjargað sérúrsvelti. Þetta er meg- inmáliö og skiptir sköp- um. Það lenti hér einn í svelti í Dönskutófyr- irþremur árum. Fjórir peyjar voru uppi og einn niðri sem ekkert gat gert og þeirsem uppi voru gátu ekki híft hann. Svo þetta varð bara neyðarkall og menn urðu að sækja hann í bergið. Það sem ég legg höfuðáherslu á við börnin er að vara þau við öllu sem heitir príl og svo í öðru lagi að kenna þeim lærvað og hvernig á að hífa sig upp á tábragðinu. Kenna þeim rétta hnúta og hvernig á að hnýta ■ sig í vaðinn og að þau gangi ávallt úr skugga um aö bönd- in séu trygg." Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson ívar ísak Guðjónsson 14 ára: Nauðsynlegt læra réttu hand Vestmannaeyjum. HANN sýndi góð tilþrif í spranginu meðan fréttaritari staldraði við á námskeiðinu. ívar ísak Guðjónsson , sagðist hann heita og vera 14 ára gamatl. Sagðist hafa sótt Sprönguna frá þvfhann varfiára. k •* »* ■+

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.