Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 22

Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 L Samsýning’ Myndlist Bragi Ásgeirsson Níu listamenn af yngri kantinum hafa tekið sig saman um eina stóra sýningu á Kjarvalsstöðum, er hefur hlotið samheitið „Svarta skýið“. Hvergi kemur þetta heiti þó fram nema í formála sýningarskrár, sem Halldór Lárusson hefur tekið sam- an, en sem verður þó að teljast að endurspegli skoðanir sýnenda á ástandi listmála í landinu, svo sem það er í dag. Formáli þessi afhjúparöllu frekar bölmóð og uppgjöf en heilbrigðan uppreisnaranda og vilja til að tak- ast á við vandamálin, og er að auk á svo tyrfnu máli að hann verður með öllu óskiljanlegur öðrum en innvígðum, sem þó verða á stundum að spá í hvað maðurinn sé að fara. Svona svartagallsraus er ekki það sem heldur lesanda við efnið, gott ef hann sofnar ekki við lestur- inn og þá er betra heima setið en af stað farið. Ég fortek þó ekki að Hafldór hafi rétt fyrir sér í ýmsum atriðum málflutnings síns en eins víst er að hann hafí jafn rangt fyr- ir sér í öðrum. Öll gagnrýni, sem borin er fram af heilindum, á fullan rétt á sér og ber að taka til greina og svara á málefnalegan hátt, en þegar mála- flutningurinn einkennist af eins konar hreintrúar- og einstefnuof- stæki fallast manni hendur. Hins vegar er maður með á nót- unum þegar menn efast og draga í land, eins og hjá manninum, sem sagði, „óvissa mín er betri en full- vissa hinna. Ég var einmitt að lesa grein um sýningu á æviverki eins af snilling- um og brautryðjendum málaralistar tuttugustu aldarinnar August Macke, sem lítt er þekktur hérlend- is. Hann hafði mikil áhrif á Kand- insky, Klee og fleiri enda einn af stofnendum „Bláa riddarans" (Der Blaue Reiter). Aðsóknin á þessa yfírlitssýningu hefur slegið öll tnet í Lenbachhaus í Miinchen og er þá mikið sagt því ekki þurfa málverkasöfn og stór- sýningar að kvarta á þeim vettvangi í heiminum í dag, þótt hér sé ísland undantekning. Málið er að August Macke sagði við konu sína eftir að hafa málað eitt af höfuðverkum sínum, „ég veit ekki hvort þetta, sem ég var að mála sé eitthvað sérstakt eða ómerkilegur hlutur (Kitsch)“. í þessum framslætti er heilmikill sannleikur falinn um innri baráttu og sársauka í tilurð listaverks, sem í sjálfu sér var miklu meiri bylting á sínum tíma en framúrstefnuverk eru í dag. Það, að sú þróun, sem gengið hefur yfír heiminn, varðandi áhuga almennings og aukið upplýsinga- streymi um myndlist í fjölmiðlum heimsins, hefur ekki náð til Islands á ekki að fylla okkur myndlistar- menn heift heldur herða okkur og verða okkur hvati til áframhaldandi baráttu. Farsælasta lausnin er ekki að troða aðra í svaðið, heldur þarf hér að beita brögðum listar og hafa óbilandi trú á málstaðnum ... Níumenningamir_ sem sýna í Vestursal eru þau ívar Valgarðs- Fimm þeirra níu listamanna sem opna samsýningu á Kjarvalsstöðum í dag. Frá vinstri, Erla Þórarins- dóttir, Birgir Andrésson, Jón Óskar, ívar Valgarðsson og Halldór Asgeirsson. son, Erla Þórarinsdóttir, Jón Óskar, Halldór Ásgeirsson, Kees Visser, Sverrir Ólafsson, Hulda Hákon, Hannes Lárusson og Birgir Andrésson. Öll hafa þau verið framtakssöm við að kynna hinar margvíslegustu liststefnur, sem ganga yfír í út- landinu, bæði með einkasýningum og á ótal samsýningum. Flest hafa það sameiginlegt að vera smátt og smátt að þróa ákveðin persónuleg einkenni í mjmdmáli sínu og þó veit maður ekki nema að kúvending kunni að eiga sér stað hjá sumum fyrr en varir. Of margir sýnenda hafa sýnt mjög svipaða hluti nú nýlega til þess að nokkuð komi manni á óvart og því miður hafa betri hlutir verið þar innan um en þeir sem til sýnis eru í Vestursalnum. Þá hefur sprell í upphengingu svo sem fram kemur á sýningunni ekki þann slagkraft sem ætlast er til og síst í galopinni upphengingu, en hvorutveggja verður afar þreytandi við endurtekningar. Það er þannig ekki mikill kraftur yfír samsetningu þessarar sýningar þótt í sjálfu sér sé mikill slagkraft- ur í verki Jóns Óskars og myndin njóti sín vel í upphengingu, en fýr- ir margt á kostnað annarra. Minnisstæðastir verða mér senni- lega einfaldir steinskúlptúrar Ivars Valgarðssonar og tótemskúlpturar Sverris Ólafssonar (sem njóta sín ekki nægilega vel) auk fýrmefndrar myndar Jóns. Nokkur útlenzku- bragur er yfir sýningunni hvað nafngiftir á myndum og texta í veglegri sýningarskrá áhrærir. Sýn- ingarskráin er annars meira kynn- ing á sýnendum en að hún komi sýningunni sjálfri beinlínis við en er þó fullgild sem slík. I heild skortir þessa sýningu þann ferskleika og slagkraft, sem gæfí tilefni til ýtarlegri umfjöllunar um verk einstakra . . . HEIMSOKN TIL AKUREYRAR INNIFALIÐ í VERÐINU ER; * FLUGFAR báðarleiðir * GISTING OG MQRGUNMATUR tvær nætur á HOTEL AKUREYRI * FRÍMIÐI í SJALLANN sé um helgarferð að ræða EF ÞÚ VILT VERA LENGUR EN 2 DAGA BJÓÐUM VIÐ HLIÐSTÆÐ KJÖR. HRINGDU EÐA KOMDU OG RÆDDU VIÐ OKKUR Á NÝJU SKRIFSTOFUNNIOKKAR (AÐALSTRÆTI. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR AÐALSTRÆTI 16 101 REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.