Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
23
i— —
Ljósmyiid-
ir í Djupinu
í Djúpinu við Hafnarstræti eru
þessa dagana til sýnis nær tveir
tugir ljósmynda eftir Svölu Ólafs-
dóttur. Hér er um að ræða myndir,
sem Svala hefur unnið á tveim
síðustu árum og eru flestar svart-
hvítar en sumar handlitaðar tilraun-
ir, unnar með blönduðum aðferðum.
Svala lauk BFA-gráðu í ljós-
myndun frá San Francisco Art
Institute vorið 1986 og er þetta
frumraun hennar hér á landi. Mynd-
imar á sýningunni bera þess
nokkum vott, að hér mun um skóla-
vinnu að ræða og að viðkomandi sé
að reyna fýrir sér í faginu og nálg-
ast það frá hinum ýmsu hliðum.
Viðfangsefnin eru frekar almenns
eðlis og ekki ýkja frumlega staðið
að verki þótt viljinn til þess sé auð-
sjáanlega fyrir hendi.
Og sem oft vill verða í slíkum
tilfellum nær gerandinn langsam-
legást mest sannfærandi árangri í
þeim myndum, er hann reynir ekki
að vera frumlegur en myndefnið
verður til svo að segja af sjálfu sér
— þetta er einmitt kjaminn í öllum
frumleika. Frumleikinn kemur fram
ef hann á annað borð er fyrir hendi
í einstaklingnum, áreynslulaust og
eðlilega en ekki sem markmið í
sjálfu sér.
Þannig þykir - þeim er hér ritar
mynd af konu í svörtu, sem nefnist
„Kveðja" (2), langsamlega áhrifa-
ríkasta myndin á sýningunni, í senn
einföld og tjáningarrík. Þá er mynd-
in „Skref“ (3) kröftug og hressileg
og algjör en skemmtileg andstæða
næstu myndar „Grátur" (3), sem
er ljóðræn og fíngerð og ein af hrif-
mestu myndum sýningarinnar.
Framtakið ber vott um ágæta hæfí-
leika Svölu Ólafsdóttur en framtíðin
' ein fær skorið úr því hvemig henni
nýtast þeir. Hér skal engu spáð ...
Stykkishólmur;
Ökuleikni BFÖ
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Hjólreiðakapparnir í ökuleiknikeppninni í Stykkishólmi.
Veidileyfi í Grímsá
Af sérstökum ástæðum er til sölu eitt 3ja
daga holl (10 stengur) í Grímsá dagana
29. júlí til 1. ágúst.
Upplýsingar í síma 93-51243
milli kl. 20-22 á kvöldin.
Veiðifélag Grímsár og Tunguár.
byrjendanámkeið
Stykkishólmi.
EINS og undanfarin ár fór hér
í Stykkishólmi fram ökuleikni á
vegum bindindisfélags öku-
manna. Var þessi keppni haldin
á bifreiðastæðinu fyrir framan
Hótel Stykkishólm og fór fram
bæði keppni í hjólreiðum og bif-
reiðaakstri og auk þess var farið
yfir allar reglur og umferðar-
mál.
Þetta mót var eins og oft áður
með marga þátttakendur og allskonar
hindranir á vegum sem menn áttu
að sigrast á. Fyrstu keppendumir
vom í hjólreiðum og meðferð reið-
hjóla og var mjög spennandi að
fýlgjast með. Vom bæði böm og
unglingar og sigraði Sigurjón Þórðar-
son 13 ára.
Reiðhjólakeppnin stóð á annan
klukkutíma og var gaman að sjá eftir-
væntinguna í hveiju auga, og það
sýnir sig alltaf að hinir ungu vilja
gera sitt besta, hlýða settum reglum
og reyna á krafta, þor og vit. Það
er aðeins að útbúa verkefnin þannig
að þau séu eftirsóknarverð.
A eftir reiðhjólakeppninni kom svo
akstur bifreiða og vom 10 keppendur
mættir til leiks í upphafí og léku alls-
konar listir á þessum ágæta velli og
var það eins og með hjólreiðakeppn-
ina að menn fylgdust með af áhuga,
bæði þeir sem stjómuðu og eins hin-
ir sem vom á hörku spani í að gera
sitt besta.
Keppnin fór þannig að Jóhann
Gunnlaugsson bifreiðastjóri varð
hlutskarpastur og næstur varð Guð-
mundur Egilsson. Á eftir var svo
verðlaunum útbýtt við hátíðlega at-
höfn.
Hjólum hefur farið fjölgandi á sein-
ustu tímum og fást þau nú keypt hér
í Hólminum í versluninni Húsið.
Árni
:
|
Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt
byrjendanámskeið í notkun einkatölva
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-tölva
• Stýrikerfið MS-DOS
• Ritvinnslukerfið WordPerfect
• Töflureiknirinn Multiplan
• Umræður og fyrirspurnir
Logi Ragnarsson,
tölvufræöingur
Tími: 21., 23., 28. og 29 júlí kl. 20-23
Innritun í símum 687590 og 686790
|
SSSS9 1 | L.
BORGARTÚNI28
FRJÁLS FÖT FYRIR FRJÁLSLEGT FÓLK FRÁ THINK PINK