Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
SIR LYDEN PINDLING: ADDERLEY:
Smyglið varð honum ekki að „Hrokafullir Bandaríkja-
falli menn“
ISAACS:
Óleysanlegt vandamál?
deild Bandaríkjaþings skipaði
Bahamaeyjum á bekk með „óvin-
veittum ríkjum" á þeirri forsendu
að yfirvöld þar ættu mikinn þátt í
eiturlyfjsmygli til Bandaríkjanna.
Stjómvöld á eyjunum gripu þá til
þess ráðs að handtaka tvo flugmenn
DEA, sem nauðlentu vegna bilunar
þegar þeir voru á leið frá Jamaica
til Florida. Þótt skýrt kæmi fram
að þeir væru í opinberum erinda-
gerðum var lífí þeirra stefnt í hættu
þegar þeim var stungið í fangelsi
með dæmdum eiturlyfjasölum og
opinberlega var tilkynnt hvers eðlis
starf þeirra væri.Mönnunum var
ekki sleppt fyrr en hálfum mánuði
eftir að harðorð mótmæli bárust frá
Washington.
Andúð
Barátta Bandaríkjamanna gegn
eiturlyfjasmyglinu hefur aukið an-
dúð í þeirra garð á eyjunum. Fyrir
kemur að hróp séu gerð að áhöfnum
bandarískra tollgæzlubáta, _ sem
koma til að taka eldsneyti. í júní-
byijun fundu bandarískir tollverðir
2,383 pund af kókafni í fískibáti.
Þegar þyrla bandarísku strand-
gæzlunnar kom með sex manna
áhöfn bátsins til Cat Cazy grýtti
mannfjöldi hana. Þegar bandarísk
þyrla elti eiturlyfl asmyglara til Fre-
eport á Grand Bahama um svipað
leyti safnaðist saman æstur mann-
§öld og grýtti þyrluna og einhver
skaut á hana. Eyjaskeggjar vilja
greinilega ekki láta Bandaríkja-
menn segja sér fyrir verkum.
Skömmu síðar tók bandaríska
strandgæzluskipið „Bear“
kólombískt flutningaskip með
100,000 pund af mariúana við Ele-
uthera-eyju, þar sem hraðbátar áttu
að taka við farminum og sigla með
hann til Miami. Menn á hraðbátum
sælq'a oft bala með maríúana og
poka með kókaíni, sem er fleygt er
í sjóinn úr skipum eða flugvélum,
og sigla með góssið til Florida.
Maríúanabalar festast oft í netum
fískimanna á Bahamaeyjum.
Þrátt fyrir kosningaósigurinn
tókst aðalaandstöðufíokki stjómar-
innar, Þjóðlegu frelsishreyfíngunni
(FNM) að sýna svo að ekki varð
um villzt að töluverð óánægja er
með stjóm Pindlings. Leiðtogi
flokksins, lögfræðingurinn Kendal
Isaacs, gerði eiturlyfjasölu og spill-
ingu að aðalkosningamáli sínu og
hélt uppi vægðarlausri gagnrýni á
Pindling og aðra leiðtoga stjómar-
innar. FNM er hægrisinnaður
flokkur og styður Bandaríkjastjóm.
Stuðningsmenn FMM, sem eru
einkum menntaðir eyjaskeggja,
m.a. eigendur smáfyrirtækja og
hóteleigendur, telja að eiturlyfjasal-
an hafí ýtt undir gyllivonir um
góðar efnahagshorfur og aukið á
mikinn eiturlyfjavanda. Tíundi hver
eyjaskeggi af yngri kynslóðinni
reykir kókaíntegundina „crack“ og
Gorman Bannister segir: „Einu
sinni voru kirkja og krá á hverju
götuhomi. Nú em þar hús, þar sem
fólk reykir kókaín."
Great Abago-eyja
\ BAHAMA-eyjar
\ Grand
\ Bahama-eyja «
BANDA-
RÍKIN Freeport
. I Bimini■
Miami feyja
\/ New Providence-
Cat Cays
Cajeyja
/,
Andros--y\ Nofma'n’s
eyja
Eleuthera-
eyja\+, " " ^eyja
Nassau
\
Cay
200 km ~ ^
J Great Exuma-eyja'^* \
Skip hlaðið eiturlyfjum var nýlega tekið við eyjuna
Eleuthera, sem sést á kortinu
Isaacs varaði við þeirri hættu að
unga fólkið yrði ofurselt eiturlyfjum
og kallaði kosningamar „baráttu
um hvort lýðræði og almennt vel-
sæmi munu halda velli.“ Þótt hann
sigraði ekki fékk hann verkalýðs-
hreyfínguna á sitt band. Nú óttast
hann að aldrei muni reynast unnt
að uppræta spillinguna á Bahama-
eyjum og telur að Pindling geti
sagt: „Kjósendum fellur starf mitt
vel í geð, svo að við skulum halda
áfram á sömu braut."
Kólnandi sambúð
Samskipti Bahamaeyja og
Bandaríkjanna hafa aldrei verið
eins stirð og halda líklega áfram
að versna eftir kosningasigur Pindl-
ings. Fyrir kosningamar sagði hann
þegar hann var spurður hvort fram-
hald yrði á samvinnunni við
Bandaríkin í baráttunni gegn eitur-
lyfjasölunni: „Þeir verða að hætta
að reyna að stjóma landinu fyrir
okkur.“ Adderley dómsmálaráð-
herra sagði að Bandaríkjamenn
væm „of stórir, of hvítir og of
bandarískir til að hlusta á okkur
vesalings svörtu apana í Nassau.
Þeir em alltof frekir og hrokafullir."
Clement Maynard varaforsætis-
ráðherra sakaði bandarískar „stofn-
anir“ um að stjóma kosningabar-
áttu stjómarandstöðunnar og kvað
úrslitin sýna að íbúar Bahamaeyja,
sem hefðu leyft Bandaríkjamönnum
að ráðast inn í landið í leit að eitur-
lyfjasmyglumm, vildu halda fram
sjálfstaeði eyjanna. Þó kvað hann
yfírvöld á Bahamaeyjum vilja halda
áfram að vinna að því með Banda-
ríkjamönnum að binda endi á
eiturlyfjasmyglið.
Að sögn „Sunday Times" fór
fulltrúi bandaríska utanríkisráðu-
neytisins til Lundúna skömmu fyrir
kosningamar og tilkynnti að
árekstrar við stjóm Bahamaeyja
yrðu óhjákvæmilegir, ef Pindling
„hreinsaði ekki til“ í henni. Þrátt
fyrir þessa harðnandi afstöðu telja
margir bandarískir þingmenn að
stjómin í Washington hafí sýnt
Pindling of mikla linkind.
Eftirspum eftir eiturlyfjum er
svo mikil í Bandaríkjunum og Ba-
hamaeyjar liggja svo vel við flutn-
ingum á kókaíni og maríúana frá
Suður-Ameríku að líkast til er
ógemingur að stöðva eiturlyfjaflóð-
ið með öllu. Vafalítið fagna smygl-
aramir sigri Pindlings, þótt stjóm
hans hafí fengið samþykkt lög um
harðari baráttu gegn eiturlyfjasölu.
Stuðningsmenn hans telja að
Bandaríkjastjóm ætti að viður-
kenna að hann sé eini maðurinn,
sem hafi nógu mikil völd til að
bijóta volduga smyglara á bak aft-
ur, en margir draga í efa að hann
vilji beita valdi sínu til að leysa eit-
urlyfjavandamálið.
GH
KARAKTER
SFORT
SPORTFATNAÐUR ~ SUMARFATNAÐUR
KARAKTER SPORT - VESTURCATA 4 - SÍMI 19260
Borgartúni 28
Tölvufræðslan mun í haust endurtaka hin vinsælu námskeið
fyrir skrifstofufólk sem haldin voru í haust og vetur.
Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám í vinnuað-
ferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu á notkun
PC-tölvasemnúeruorðnarómissandi við öll skrifstofustörf.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Námskeið hefst 7. september 1987
Nánarí upplýsingar í símum 687590 og 686790.
TÖLVUFRÆÐSLAN
Skrifstofutæknir
Eitthvað
fyrirþig?