Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 30

Morgunblaðið - 12.07.1987, Síða 30
r Í.TTTt miDArm TP. .níöAJSMtlOflOM rp. 30 POTT- ÞETTAR PERUR AGOÐU VERÐI Allar RING bílaperur bera merkið (D sem þýðir að þær uppfylla ýtrustu gæðakröfur E.B.E. RING bílaperurnar fást á bensínstöðvum Skeljungs MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987 Minning: Jón Guðmundsson, Vésteinsholti Fæddur 23. júní 1906 Dáinn 5. júlí 1987 Á morgun verður til moldar bor- inn tengdafaðir minn, Jón Guð- mundsson frá Vésteinsholti. Jón var borinn og bamfæddur Dýrfirðingur, fæddur í Hrauni í Keldudal, 23. júní 1906. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Aðalsteins- dóttir og Guðmundur Guðmunds- son. Þau eignuðust 12 böm og vom 8 þeirra innan við fermingaraldur, þegar Guðmundur dmkknaði er „Síldin" fórst árið 1912. Þá var Jóni komið í fóstur á Vésteinsholti í Haukadal þar sem hann ólst upp frá 6 ára aldri hjá hjónunum Jóni Jónssyni, skipstjóra, og Guðmundu Kristjánsdóttur og bjó hann þar síðan allt fram til ársins 1962 er hann fluttist til Hafnarfjarðar með Qölskyldu sína. Eftirlifandi kona Jóns er Elínborg Guðjónsdóttir frá Amamúpi í Dýrafirði. Eignuðust þau 6 börn: Guðmund, Sigurlaugu Jónínu, Kristínu, Kristbjörgu, Vé- stein og Jón Friðrik, sem öll em fjölskyldufólk, búsett í Hafnarfirði og á Seltjamamesi. Kynni okkar Jóns og fjölskyldu hans hófust fyrir 20 ámm. Mér varð fljótlega ljóst að Jón, eins og þau hjón bæði og fjölskyldan öll, var einsjtaklega vandaður og traust- ur maður sem aldrei mátti vamm sitt vita. Sterk fjölskyldubönd vom áberandi og tryggð við heimahaga, þannig að undirritaður mátti hafa sig allan við fyrstu árin, og jafnvel enn í samkvæmum innan flölskyld- unnar, að ná því að verða viðræðu- hæfur um menn, málefni og staðhætti vestur í Dýrafírði. Auk búskapar á Vésteinsholti stundaði Jón ætíð vinnu utan heim- ilis, einkum sjómennsku. Hóf hann sjósókn 11 ára gamall frá Svalvog- um og stundaði upp frá því sjóinn í samtals 40 ár. Á sjómannsferli sínum kynntist hann öllum tegund- um skipa, nema togumm og veiðarfærum sem tíðkuðust á fyrri helmingi aldarinnar. Formaður var hann um skeið á mb. „Skíðblaðni" og þilskip átti hann sjálfur um tíma, „Fræg", senj hann reri á frá Haukadal. Eftir að fjölskyldan flutt- ist suður, stundaði hann lengst af smíðar hjá Olíufélaginu hf. Jón var hæfur og prúður í fram- göngu, naut þess að blanda geði við fólk og lá einstaklega vel orð til samferðamanna sinna. Eignaðist hann marga vini um dagana en énga óvildarmenn. Af samvemstundum okkar Jóns var okkur báðum ömgglega minnis- stæðast þegar við fóram tveir saman, réttu ári áður en hann dó, á báti vestur í Dýrafjörð. Voram við búnir að ráðgera þetta nokkuð lengi en skelltum okkur svo vestur í lok júní sl. sumar. Ágætisveður var á vesturleiðinni og var margt spjallað. Hann þekkti öll kennileiti og sagði ótal sögur sem tengdust verstöðvum og fískimiðum á leið- inni. . Eftir rúmlega 10 tíma siglingu vörpuðum við akkerum á Hauka- dalsbótinni, á sama stað og „Fræg“ var jafnan lagt á. Það stóð á endum að þegar við vomm búnir að gera allt klárt um borð stóðu Mummi og Gógó, elsti sonur hans og tengda- dóttir, í fjömnni og biðu þess að taka á móti léttbátnum og flytja okkur í Sólheima, sumarbústað þeirra hjóna. Allir vom drakknir af<gleði yfír góðri ferð og endurr fundum í Haukadal. Þama var + Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURÐUR VILHLEM JENSEN, Hamarsgerði 6, veröur jarösunginn frá Bústaðakirkju þriöjudaginn 14. júlíkl. 15.00. Sofffa Björgvinsdóttir, Marfa Sigurðard. Jensen, Jón Ingi Guðjónsson, Birgir Sigurösson, Inga Skaftadóttir, Linda Sigurðardóttir, Guðjón Sigurbjörnsson, Gréta SigurÖhrdóttlr, og barnabörn. t Móðir okkar, tendamóðir og amma, KRISTÍN SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, Öldugötu 26, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjaröarkirkju þriðjudaginn 14. júlí kl. 15.00. Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir, Einar Jónsson, Guðni Jónsson, Berta Björgvinsdóttir, Jóhannes Jónsson, Guðrún Lárusdóttir, Marfa Jónsdóttir, Jón Pálmi Skarphéðinsson og barnabörn. Minning: Ólafur Þórður Þórarinsson Fæddur 27.júlí 1926 Dáinn 27. júní 1987 Hann Óli bróðir er dáinn. Það er eins og mér finnist að eitthvað hafi farið af sjálfri mér. Ég minnist okkar æskudaga þegar við vomm í foreldrahúsum. Hann var einstak- lega fagurt bam og lundin ljúf enda augasteinn mömmu. Ég man hvað hann var nærgætinn við gamalt fólk og alla sem honum fannst eiga bágt enda þótti öllum vænt um hann sem kynntust þessum bjarta glóhærða dreng. Hans verður alltaf minnst því hann var drengur góð- ur. Foreldrar okkar vom hjónin Jóhanna Elín Ólafsdóttir og Þórar- inn Þórðarson verkamaður í Reykjavík. Ég minnist Óla bróður þegar hann fór fyrst að vinna fyrir sér. Þá var það hans fyrsta verk að kaupa skó á litlu systur sína. Það var oft mannmargt á æsku- heimiii okkar við Freyjugötu. Þar var talað um landsins gagn og nauðsynjar, þar drakk hann af bik- ar fróiðleiks, sem hann bjó að alla tíð. Ekki vom foreldrar okkar efn- aðir en áttu sitt hús og sitt stolt og vom í rauninni ríkir og ávallt gefendur. Óli kvæntist 1947 eftirlif- andi eiginkonu sinni Ester Bened- iktsdóttur, mætri og góðri konu. Þau áttu saman hlýlegt heimili sem ávallt var gott að koma á. Tvö böm Viltu halda heilsunni og anda að þér hreinu lofti? „Undrahjálmurinn" frá Pureflo er svarið. Hann tryggir þér ávallt ferskt loft við alla vinnu. Hann er laufléttur og engar snúrur eða slöngur eru tengdar við hann. Lítil og létt vifta, knúin áfram með rafhlöðum, dregur loft ( gegnum slu sem útilokar allt ryk og eiturgufur. Andlitshlff eykur á öryggið. Skeifan 3h - Sími 82670

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.