Morgunblaðið - 12.07.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
41
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Hvammstanga
hreppur
Kennarar — fóstrur
Hvammstangahreppur óskar eftir að ráða
eftirtalið starfsfólk:
Kennara við grunnskólann. Einkum til
kennslu í raungreinum og tölvufræði en ann-
að kemur til greina. í skólanum eru u.þ.b.
160 nemendur og er andi meðal starfsfólks
og nemenda góður.
Upplýsingar veitir Flemming Jessen skóla-
stjóri í símum 95-1367 og 1368.
Forstöðukonu
við leikskólann
— Fóstru við
leikskólann
Upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma
95-1353.
Sjúkraþjálfar
Heilsugæslustöðin á Hvammstanga óskar
eftir að ráða sjúkraþjálfa til starfa. Góð vinnu-
aðstaða í nýju húsnæði.
Upplýsingar í síma 95-1348.
Hvammstangi er miðja vegu milli Reykjavíkur
og Akureyrar og er u.þ.b. 3 klst. akstur í
hvora áttina sem er. Staðurinn er þjónustu-
miðstöð fyrir V.-Húnvetninga, en með
vaxandi útgerðarstarfsemi. Þar er ný heilsu-
gæslustöð, hótel og sundlaug og nýlega
hefur viðbygging við grunnskólann verið tek-
in í notkun. Á Hvammstanga búa nú tæplega
700 manns og hefur staðurinn vaxið ört
síðustu ár.
Norðmaður
43 ára Norðmaður sem búið hefur á
bóndabæ og er búfræðingur frá skóla í
Svíþjóð óskar eftir sumarvinnu á íslandi.
Getur einnig tekið að sér trjágarðaplöntun.
Skrifið til: Harald Nes, p.a. Nes
6836 Viksdalen, Norge.
Við opnum í Kringlunni um miðjan ágúst
sérverzlun með svínakjöt.
Þarna verður þægileg vinnuaðstaða og um-
hverfið bæði nýtízkulegt og skemmtilegt.
Við viljum ráða fólk til:
1. Afgreiðslustarfa.
2. Ræstinga og uppþvott.
Til greina koma heilsdags- og hálfsdagsstörf
eða störf seinni part vikunnar.
Upplýsingar á skrifstofu okkar á morgun og
næstu daga frá kl. 14.00 til 17.00.
HH
m
m s
Bergstaðastræti 37.
Af g reiðsl u kassar
Miklagarðs
Óskum eftir að ráða starfsfólk til starfa á
afgreiðslukassa okkar. Um er að ræða heils-
dags- og hlutastörf, einnig störf fimmtudaga
og föstudaga frá kl. 16.00.
Vörumóttaka
Miklagarðs
Óskum eftir að ráða góðan lagermann til
framtíðarstarfa. Þarf að geta hafið störf sem
fyrst.
Tvö kvöldíviku
Óskum eftir að ráða fólk til uppfyllingar í
matvörudeild okkar tvö kvöld í viku, 4 tíma
í senn.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri Mikla-
garðs, sími 83811 og á staðnum.
AflKLÍG4RDUR
MÁRKAÐUR VfQ SUND
Hárgreiðslunemi
óskast í starfsþjálfun. Þarf að hafa lokið 9
mánuðum í iðnskóla.
Svar sendist fyrir 18. júlí á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „1. ágúst — 1541“.
Kennarar
Kennara vantar að grunnskólanum á Hellu
næstkomandi skólaár. Meðal kennslugreina:
Kennsla yngri barna, íslenska og handmennt.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 99-5943
og formaður skólanefndar í síma 99-8452.
Næstu fjórar vikur
fær Gula línan
1000-2000 þjón-
ustufyrirspurnir
Okkur vantar á skrá:
Arinhleðslu, arkitekta, auglýsingateiknara, bilaleigu, bílasimaleigu,
bílskúra og geymslur ó leigu, barnagæslu, bilapartasölu, blóma-
skreytingar, bólstrun, bókband, dýralækni, dráttakróka og grjót-
grindur, endurskoðendur, fjármálaþjónustu, fréttaþjónustu,
fatasaum, ferðaskrifstofur, fjölritun, fjórmögnunarleigu, fótasnyrt-
ingu, framköllun, flutningaþjónustu, forritun, garðtætaraleigu,
glerslipun, glerisetningu, gluggaskreytingar, gólfslipun, glærugerð,
hárgreiðslustofur, hártoppa, hóþrýstiþvotta, heilsurækt, hjólbarða-
þjónustu, hljóöfærastillingar og viögeröir, hópferðir, iðnaðarmenn,
innanhúsarkitekt, innheimtuþjónustu, innrömmun, kranaleigu, kant-
steypu, Ijósmyndun, leigumiðlun, laserprentun, logsuðu, legsteina,
Ijósritun, lækna, lögfræðinga, myndbandaþjónustu, myndlist, mark-
aðsráðgjöf, málara, múrara, nuddara, námskeið, píanóflutninga,
prentun, plasthúðun, pökkunarþjónustu, ruslagóma, ráðgjafa, raf-
tækjaviðgerðir, rafgeymaþjónustur, skiltagerð, silkiprentun, sand-
og malarsölu, skemmtikrafta, sólningu, tölvutelex, tölvuþjónustu,
trésmíöaverkstæöi, veggfóðrara, verkfræðistofur, vinnuvélar, veislu-
sali, veisluþjónustu, verktaka, ökukennslu o.fl.
Skráningargjaldið er aðeins 750,- á mánuði.
Sannarlega lítið gjald þegar von er á auknum
viðskiptum.
GUIA
62'33'88
Starf við
útlitshönnun
Stórt útgáfufyrirtæki í borginni vill ráða
starfskraft til að starfa við útlitshönnun.
Starfið er laust strax en hægt að bíða til
hausts.
Þær kröfur eru gerðar að viðkomandi séu
lærðir setjarar eða auglýsingateiknarar eða
hafi sambærilega menntun og kunnáttu,
Góö laun í boði fyrir réttan aðila.
Vaktavinna. Umsóknir og allar nánari upplýs-
ingar veittar á skrifstofu okkar.
GlJÐNI ÍÓNSSON
RÁDQÓF & RAÐN I NCARÞjÓN LISTA
TÚNGOTU 5. 101 REYKJAVIK - PÓSTHOLF 693 SÍMI621322
Setjari
Þekkt fýrirtæki í prentiðnaði vill ráða setjara
til starfa fljótlega.
Viðkomandi þarf að vera vanur
pappírsumbroti.
Góð laun í boði. Vaktavinna.
Umsóknir er tilgreini aldur og fyrri störf,
sendist skrifstofu okkar.
ClJÐM ÍÓNSSON
RÁDCJÖF & RÁÐN I NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVIK - POSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Innanhússarkitekt
Eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins vill
ráða innanhússarkitekt til starfa á rekstrar-
sviði. Starfið er laust strax en hægt er að
bíða smátíma.
Um er að ræða framtíðarstarf, en til greina
kemur að ráða í hlutastarf þar sem vinnutími
yrði samkomulag.
Laun samningsatriði. Allar nánari upplýsing-
ar veittar á skrifstofu okkar.
Umsóknir sendist skrifstofu okkar fyrir 15.
júlí nk.
GuðmTónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐN! 1 NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Bílaviðgerðir
Starfskraftur óskast strax til púst- og
bremsuviðgerða.
J. Sveinsson & Co.,
Hverfisgötu 116, Reykjavik.
Vörumóttaka
Okkur vantar starfskraft í vöruskemmu okkar
í vörumóttöku strax.
Upplýsingar á staðnum.
Vörufiutningamiðstöðin,
Borgartúni 21.
Atvinna
Óskum eftir að ráða starfsfólk (karla og konur)
til framleiðslustarfa í ýmsar deildir fyrirtækis-
ins nú þegar.
Nánari upplýsingar á skrifstofu fyrirtækisins
í Þverholti 19.
Smjörlíki hf.
Sólhf.