Morgunblaðið - 12.07.1987, Side 44
t-
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
\
Stöður skipstjórnar-
manna til starfa á
Grænhöfðaeyjum
Þróunarsamvinnustofnun íslands auglýsir
hér með lausar til umsóknar eftirtaldar stöð-
ur við fiskveiðiverkefnið á Cabo Verde:
1. Skipstjóra á Feng, 150 smál. fjölveiðiskip
stofnunarinnar. Skipið mun stunda veið-
ar, veiðitilraunir og fiskirannsóknir við
Cabo Verde auk þess að vera notað til
kennslu í fiskveiðum. Umsækjendur skulu
hafa full skipstjórnarréttindi á slíkt skip
og reynslu af fjölbreyttum veiðiskap.
2. 1. stýrimann á skipið, með sömu réttindi
og skipstjórar.
3. 1. vélstjóra á sama skip. Umsækjendur
þurfa að hafa full vélstjóraréttindi og
reynslu við fiskveiðar. Einnig er æskilegt
að þeir hafi reynslu í viðgerðum, rafsuðu
og logsuðu ásamt almennu viðhaldi skipa.
í umsóknum þurfa m.a. að koma fram mennt-
un, tungumálakunnátta og starfsreynsla, þar
á meðal í þróunarlöndunum, ef um er að
ræða. Umsækjendur verða að vera reiðubún-
ir til náms í portúgölsku. Gert er ráð fyrir
að þeir sem ráðnir verða taki þátt í fjögurra
vikna undirbúningsnámskeiði og hefji störf
um mánaðamót ágúst/september eða sam-
kvæmt nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí 1987. Allar
nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu
Þ.S.S.Í., Rauðarárstíg 25, sími 622000, til
21. júlí.
Framtíðarstarf
Óskum eftir duglegum og laghentum manni
til starfa á verkstæði okkar í Lækjargötu 6a.
Starfið felst í skóviðgerðum og afgreiðslu.
Upplýsingar eru veittar á staðnum, ekki í
síma.
J i
GISLI fWm
FERDIINJMISIÐSSON HF
Lækjargötu 6a.
Sími 14711.
Fóstrur
Mikil þörf er fyrir ykkur á leikskólanum Mel-
bæ, Eskifirði. Eina stöðu þarf að manna í
ágúst og tvær í september. Æskilegt er að
ein ykkar hafi aflað sér sérþekkingar á sviði
talkennslu.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma
97-6170.
Bæjarstjórinn á Eskifirði.
Garðabær
Skrifstofumaður
Á skrifstofu Garðabæjar er laust starf skrif-
stofumanns, sem annast símavörslu fyrir
skrifstofu og tæknideild, umsjón með mót-
töku og skráningu pósts og almenn skrif-
stofustörf s.s. vegna manntals o.fl.
Umsóknum með upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf skal skila á bæjarskrif-
stofu Garðabæjar fyrir 1. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í
síma 42311.
Bæjarritarinn í Garðabæ.
Ritari
Arkitektastofa óskar að ráða ritara í hálfs-
dags starf. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg
og reynsla í tölvuritvinnslu æskileg. Þarf að
geta tekið til starfa eigi síðar en eftir tvo mánuði.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf legg-
ist inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Ritari
— 5178“ fyrir 20. júlí nk. Farið verður með
allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Fóstrur
Fóstrur og eða annað uppeldismenntað starfs-
fólk óskast til starfa á dagvistarheimilum
Hafnarfjarðar.
Upplýsingar um störfin veita forstöðumenn
dagvistarheimila Hafnarfjarðar og dagvistar-
fulltrúi í síma 53444 á Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar.
Félagsmálastjóri.
Forstöðumaður
Starf forstöðumanns á leikskólanum Arnar-
bergi er laust til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi
í síma 53444 á Félagsmálastofnun Hafnar-
fjarðar.
Félagsmálastjóri.
Atvinnurekendur
athugið!
Ungur og hress ritari óskar eftir starfi allan
daginn frá og með 1. ágúst.
Upplýsingar í síma 52601, Margrét.
ATH!
Ungur Svfi sem talar góða íslensku og ensku
óskar eftirvel launuðu starfi frá 1. september.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„HH — 6036".
Byggingarfræðingur
óskar eftir starfi. Margt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 681725.
Kjötafgreiðsla
Við leitum að kjötiðnaðarmanni, matreiðslu-
manni eða manni með sambærilega reynslu.
Til boða stendur gott starf, góð laun og
framtíðarmöguleikar.
Hafið samband við starfsmannastjóra í síma
22110 á milli kl. 10.00 og 12.00 og 14.00
og 15.00, eða komið á skrifstofu KRON,
Laugavegi 19, 4. hæð.
Verkfræðingar
— tæknif ræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að
ráða rafmagnsverkfræðing eða tæknifræð-
ing til starfa við áætlanagerð við raforkuvirki.
Kunnátta í Fortran-forritun æskileg.
Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og m.a.
aðgang að stóru tölvukerfi, sem nota má við
áætlanagerð.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 686222.
*
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
R^ÐCJOF OC RAONINCAR
Ert þú á réttri hillu
í Iffinu?
Ef þú ert vön/vanur bókhaldi, áhugasöm/
samur um tölvur og laus í byrjun ágúst, þá
höfum við ef til vill rétta starfið fyrir þig!
Einnig höfum við margvísleg önnur störf sem
gæti hentað þér.
Líttu við milli kl. 9.00-15.00 virka daga.
Ábendi sf.,
Engjateigi 9 (gegnt Hótel Esju),
sími 689099.
Ágústa Gunnarsdóttir,
Nanna Christiansen,
Þórunn H. Felixdóttir.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 SIMI681411.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfsmann í eina af
tryggingadeildum okkar til almennra skrif-
stofustarfa.
Æskilegt að umsækjendur hafi starfsreynslu
og geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá
starfsmannahaldi, Ármúla 3, sími 681411.
Samvinnutryggingar g. t.
FftÐCjOF OC RMDNINCAR
Ert þú fjármála-
snillingur?
Ungt metnaðarfullt iðnfyrirtæki með tæplega
30 manna starfslið leitar að vel menntuðum
fjármálastjóra með góða starísreynslu.
Starfið felur m.a. í sér umsjón með fjárreiðum
fyrirtækisins, bókhaldi, mánaðarlegu upp-
gjöri og skrifstofustjórn, ásamt samskiptum
við viðskiptavini þar á meðal lánastofnarir.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí.
Ábendi sf.,
Engjateigi 9 (gegnt Hótel Esju),
sími 689099.
Ágústa Gunnarsdóttir,
Nanna Christiansen,
Þórunn H. Felixdóttir.